Morgunblaðið - 03.09.1959, Page 11
Fimmtudagur 3. sept 1959
MnncrivpT 4 niÐ
11
Viðbrögö æskunnar
björguðu framtíð íslenzka flugsins
í TILEFNI af 40 ára afmæli
flugsins á íslandi sneri tíð-
indamaður Mbl. sér til Agn-
ars Kofoed Hansens, flug-
málastjóra, og spurði hann
um þróun flugmála á íslandi
og fleira, en Agnar Kofoed
Hansen hefur verið einhver
allra athafnasamasti frum-
kvöðull flugmála á íslandi
milli 20—30 ár. Um upphaf
flugsins hér á landi og þróun
flugmála fórust honum orð á
þessa leið:
Væri elzta flugfélag
í heimi ef ...
Grundvöllur flugsins hér á
- landi var lagður með stofnun
Flugfélags Islands árið 1919. Ef
þetta flugfélag væri enn starf-
andi væri það elzta flugfélag
heimsins, eða svo sýnist mér
samkvæmt þeim athugunum
sem ég hef gert á málinu. Danir
og Hollendingar hafa verið að
deila um það sín á milli hvorir
ættu eldra flugfélag og munu
Danir hafa stofnað sitt félag fyrr
en Hollendingar hafa fyrr byrjað
að fljúga en okkar flugfélag
væri tvímælalaust elzt ef það
hefði starfað áfram.
Þeir menn sem stofnuðu
þetta fyrsta Flugfélag íslands
eiga skilið mikið þakklæti og
mikið hrés því það þurfti
bæði áhuga og framsýni til
þess að ríða þar á vaðið. Af
þessum fyrstu flugbrautryðj-
endum stendur nú Halldór
Jónasson einn uppi.
Fór myndarlega af stað
Næsta skrefið í þróun flug-
málanna hér á landi var svo
stigið með stofnun Flugfélags
íslands nr. 2, er starfaði frá
1928—1931. Beitti dr. Alexander
Jóhannesson sér einkum fyrir
stofnun þess og fór það mjög
myndarlega af stað og var vel á
málum þess haldið. Samdi félag-
ið við eitt allra bezta flugfélag
heimsins þa, Lufthansa í Þýzka-
landi, um að það annaðist hina
tæknilegu hlið málsins, lánaði
vélar og sérfræðinga. Félaginu
tókst að safna nægu fé til að
byggja myndarlegt flugskýli. Það
fékk einnig samþykktan á Al-
þingi sérstakan skatt á síld, flug-
skatt, og urðu þær tekjur mjög
mikils virði fyrir félagið. Þá
beitti það sér fyrir þjálfun ís-
lenzkra áhafna á flugvélarnar og
fóru þá út til náms flugmenn-
irnir Sigurður Jónasson, sem er
handhafi loftferðaskírteinis nr.
1, og Björn Eiríksson, handhafi
loftferðaskírteinis nr. 2. Einnig
vélamennirnir Gunnar Jónsson
og Björn heitinn Olsen.
— Ég hef haldið því fram,
heldur Agnar Kofoed Hansen
áfram, að ekkert minna en ein
heimskreppa hafi nægt til að
drepa Flugfélag Islands í
höndum dr. Alexanders Jó-
hannessonar, en félagið hætti
störfum haustið 1931. Þá var
ekkert fé til, síldarlögin lögð
x niður og mjög dökkt í álinn í
fjármálum þjóðarinnar.
Eftir þetta var ekki mikið tal-
að um flug á Islandi í langan
tíma. Eg var að hugsa um að
fara út til flugnáms um þetta
leyti og var mér mjög mikið vor-
kennt því það var talið að ég
mundi aðeins bætast í hóp at-
vinnulausra flugmanna. Auk
þess þótti flugið þá hættulegt.
Mér gekk t. d. mjög erfiðlega að
fá mig líftryggðan fyrir námið.
Þá var áhuginn lítill
Eg fór í sjóflugherinn danska
og kom heim að afloknu flug-
liðsforingjaprófi vorið 1936. Þá
byrjaði ég strax að kanna mögu-
leikana á flugi hér á landi en
áhugi manna var mjög lítill. Til
marks um hve dáð hafði dregið
úr mönnum skal ég geta þess að
árið áður hafði ég fengið bréf
frá dr. Alexander og var þessi
bjartsýni maður þá kominn svo
undir áhrif þess peningaleysis,
sem gætti hér á landi, að hann
taldi mig á að taka atvinnu sem
mér hafði boðizt ytra. Kvað
hann ekki um flug að ræða á
íslandi í bráð.
Flugmálafélag íslands
Eg byrjaði á því eftir heim-
komuna að beita mér fyrir stofn
un Flugmálafélags íslands, er
stofnað var í ágúst 1936. I það
félag má segja að hafi gengið all-
ir helztu menn í opinberu lífi
höfuðborgarinnar og fjölmargir
áhrifamenn utan af landi. Þessir
áhugasömu menn voru félaginu
mikil lyftistöng og var mikill
styrkur að hafa þá bak við sig,
en að svo komnu máli datt þó
engum í hug að leggja út í flug
á íslandi.
Starfsemi Flugmálafélags Is
Svifflugið fékk góðar
undirtektir hjá æsku-
mönnunum
Sama sumar beitti ég mér fyr-
ir stofnun Svifflugfélags Islands
er stofnað var í gömlu Bárunni
eitt fagurt ágústkvöld. Ég hafði
undirbúið stofnunina með út-
varpserindi og blaðaviðtölurri um
svifflug. Svifflugið fékk mjög
góðar undirtektir hjá æskumönn-
um borgarinnar og þeir fylltu
Báruna þetta kvöld. Hófum við
von bráðar flugæfingar og strax
fyrsta sumarið komst ég í loftið
í tæki, sem bræðurnir Geir og
Indriði Baldurssynir höfðu smíð-
að. Sú vél var ekki smíðuð úr
neinu því efni, sem í flugvél á
að vera og það var afar mikil
mildi að maður skyldi ekki
drepa sig á þessu. Arið eftir var
svo smíðuð fullkomin æfinga-
fluga.
Það má segja að strákamir,
sem söfnuðust kringum svif-
flugið, hafi verið frjóangarnir
í flugmálum okkar á næstu
árum, því þessir fyrstu menn
eru í dag hvarvetna starfandi
sem flugstjórar, siglingafræð-
ingar, flugumferðarstjórar,
framkvæmdastjórar eða í ör-
yggisþjónustu flugsins, bæði
Samtal við Agnar Kofoed
Hansen flugmalastjóra
lands var í því fólgin að það
kom sér upp skrifstofu í Banka-
stræti 11. Þar voru veittar upp-
lýsingar um allt sem snerti flug
og þar lágu frammi öll helztu
tímarit um flug og flugtækni,
sem þá komu út í heiminum. Eg
var fyrsti forseti þessa félags.
Skömmu síðar var ég gerður að
flugmálaráðunaut íslenzku ríkis-
stjórnarinnar. Það var geysimik-
ill munur að fá þennan opinbera
stimpil. Kaupið var að vísu ekki
hátt, 167.00 kr. á mánuði, én
ég þóttist hafa himin höndum
tekið. Það var fyrst og fremst
Sveini Björnssyni að þakka að
þetta embætti var stofnað og
notfærð heimild í lögum, sem dr.
Alexander hafði beitt sér fyrir
að fá samþykkta 1929,
hjá flugfélögunum og flug-
málastjórninni. Viðbrögð æsk
unnar urðu þannig til að
bjarga framtíð íslenzka flugs-
ins.
Flugáhuginn fór yfir eins
og vakning
Brátt voru stofnuð svifflugfé-
lög úti á landi og flugáhuginn
fór yfir eins og vakning. Einnig
var stofnað módelflugfélag og
reyndum við hvarvetna að ná
sem mest til æskunnar, en það
var það sem að mínum dómi
vantaði 1931. Þá var ekki almenn
hreyfing fyrir fluginu meðal
unga fólksins, en þessu unga
fólki má hiklaust þakka sigur
Agnar Kofoed Hansen,
flugmálastjóri
okkar í dag. Þessir ungu og á-
hugasömu menn tryggðu okkur
mikið mannval í flugþjónust-
una.
Næsta skrefið var svo er Flug-
félag Akureyrar var stofnað, er
síðar varð Flugfélag Islands, er
nú starfar. Ég hafði reynt mikið
að stofna flugfélag í Reykjavík
en það strandaði á fortíðinni,
því menn höfðu tapað nokkuð
miklu á eldra flugfélaginu. Har-
aldur Guðmundsson var þá sá
ráðherra er þetta heyrði undir og
var mjög gott að leita til hans.
Tókst honum að fá samþykki
samgöngumálanefndar og fjár-
veitinganefndar til kaupa á far
þega- og póstflugvél, en er til
kom fékkst ekki gjaldeyrisleyfi
hjá Landsbankanum.
Þá fór ég norður til Akureyr-
ar en mér hafði verið sagt að
þar væri ofurmenni sem héti
Vilhjálmur Þór. Tók Vilhjálmur
mjög vel undir þá uppástungu
mina að stofna flugfélag, hóaði
saman nokkrum mönnum og
Flugfélag Akureyrar var stofn
að. Það sýndi sig strax fyrsta
árið, sem þetta flugfélag starf
aði að það var hægt að láta flug-
ið bera sig.
Skömmu seinna tók Örn John-
son við félaginu og nafni þess
var breytt, en ég gerðist lög-
reglustjóri yfir stríðsárin. Fé
lagið hefur svo vaxið og dafnað
undir hans stjórn. Hann tók við
einni fjögurra sæta flugvél en
hefur nú yfir að ráða farþega-
rými fyrir 238 manns og allar
vélar og tæki eins fullkomin og
frekast getur verið.
Loftleiðir var svo stofnað
1944 af þremur ungum at-
t 1 ' , >:
Hér sést Agnar Kofoed Hansen í svifflugunni, sem þeir smíðuðu Geir og Indriði Baldurssynir, en
um þetta flug segir hann nú: „Sú vél var ekki stniðuð úr neinu því efni, sem í flugvél á að vera,
og það var afar mikil mildi, að maður skyldi ekti drepa sig á þessu“.
vinnulausum flugmönnnm.
Hefur sjálfsagt engan óraS
fyrir því er þeir komu með
fyrstu fjögurra sæta vélina,
að flugfélag þeirra ætti eftir
að raska ró margra stórra er-
lendra flugfélaga.
í tveimur gulum
umslögum
— Þér vilduð kannske segja
mér frá starfi flugmálastjórnar-
innar?
— Þegar ég kom til landsins
1936 kom ég upp í Stjórnarráð og
þá voru flugmál ríkisins öll
geymd í tveimur gulum umslög-
um. Svo var stofnað starf flug-
málaráðunauts og 1945 var
stofnað embætti flugmála-
stjóra. Fyrstu árin gengdi
því embætti Erling Erlingsen.
Tók hann við rekstri beggja flug-
vallanna í Keflavík og Reykja-
vík og störfuðu til að byrja með
aðeins 2—3 menn á vegum flug-
málastjórnarinnar á Keflavíkur-
flugvelli en nú eru þeir 81. Flug-
ráð var stofnað 1947 og varð þá
breyting á skipan flugmála. Þá
hóf ég aftur starf í þjónustu
flugsins.
Við höfum komizt að afar
hentugum samningum á alþjóða-
vettvangi eftir að því var slegið
föstu að ísland væri mikilvæg
flugstöð í Norður-Atlantshafi,
en ýmsir höfðu haldið því fram
með nokkrum rökum að flug-
umferðarstjórn Norður-Atlants-
hafsins þyrfti ekki að hafa að-
setur á íslandi. Það varð þó úr
að alþjóðaflugmálastjórnin kom
hér á fót mikilli þjónustu, og
höfum við íslendingar haft hátt
á annað hundrað milljónir króna
í gjaldeyristekjur af henni alls.
Starfsemin er þrenns konar:
1) flugumferðarstjórn, 2) veður-
þjónustan og 3) fjarskiptaþjón-
ustan. Eru 125 íslendingar starf-
andi hjá alþjóðaflugmálastofn-
uninni, en 260 manns vinna alls
hjá flugmálastjórninni.
Bylting í öryggis-
málum
— Hvað viljið þér að lokum
segja mér um álit yðar á fram-
tíð flugsins hér á landi?
— Við höfum séð flugmál okk-
ar þróast með ótrúlegum hraða.
Við höfum lagt megin áherzlu á
öryggishliðina og ég held að mér
sé óhætt að fullyrða að á síð-
ustu 6—8 árum hafi orðið alger
bylting á öryggismálum. Al-
þjóðaflugmálastofnunin hjálpaði
okkur að leggja grundvöllinn, er
þeir sendu hingað að beiðni
minni sérfræðinga til að kanna
ástand okkar öryggismála. Ör-
yggiskerfi það, sem þeir lögðu
grundvöll að, hefur reynzt frá-
bærlega vel og daglega er verið
að byggja þetta öryggiskerfi upp
af fullum krafti.
Ég held að það sé ekki ofsagt,
að þessi mál standa yfirleitt með
glæsibrag og hafa þar margar
hendur að unnið. Fjárveitingar
til flugvallagerða hafa komið að
margföldu gagni vegna þess að
þeir sem hafa haft framkvæmdir
með höndum úti á landi hafa
beitt allra bragða til að gera sem
mest úr þeim.
Framtíðin er björt
Það er ekki hægt að ljúka
þessu viðtali svo að maður minn-
ist ekki bæði Alþingis, sem hef-
ur sýnt þessum málum mikinn
velvilja og hinna mörgu ráð-
herra flugmála, sem hafa ver-
ið sérstaklega vinsamlegir og
skilningsgóðir alla tíð. Það sem
við eigum að þakka okkar mikla
sóknarhraða er m. a. mikill og
brennandi áhugi hjá öllum starfs
mönnum flugsins, þar sem hver
vill gera sitt bezta. Hygg ég
óvíða unnið af jafnmiklum áhuga
og gert er hjá okkur bæði hér
í Reykjavík og úti á landi.
Það hefur verið, er og verð-
ur gaman að vinna að þess-
um málum. Ég held að fram-
tiðin sé það björt að við séum
rétt að byrja að taka flugið
í okkar þjónustu, sagði Agnar
Kofoed llansen að lokum.
J. H. A.