Morgunblaðið - 03.09.1959, Side 18

Morgunblaðið - 03.09.1959, Side 18
18 MORCUNBT4Ð1Ð Fimmtudagur 3. sept. 1959 Caman vœri að fljúga einni af þessum gömlu aftur Rætt v/ð Sigurð Jónsson handhafa loftferðaskírteinis no. 1 — I>ér eruð handhafi loftferða Bkírteinis númer eitt, og þar rrifeð fyrsti íslenzki flugmaðurinn, er ekki svo? — Já, ég er fyrsti íslendingur inn er öðlast rétt til flugs. Frank er kandískur ríkisborgari og alls góðs maklegur — en hann >r fæddur í Kanadá. Ég fór utan til flugnáms árið 1923 á vegum íslenzka ríkisins. Við vorum 4, sem fórum utan, 3 til að 1 -- flugvéla/irkjun < 1 til að nema flug. Ég var valinn úr 25 J -nna hópi, að undangengnu/n prófum. Hinir sem fóru í flug- virkjun voru: Gunnar Jóhanns- son, forstjóri Stálhúsgagna hf., Björn Ólsen, sem var félagi hans, en er nú látinn, og Jóhann I>orláksson, vélfræðingur — sá, sem smíðaði fyrsta dísilhreyfil í bát hér á landi, ef nokkur man þá eftir því Við fórum utan haust ið 1928 og vélamennirr.ir sneru heim vorið 1929. Ég var fyrst í skóla í bænum Böblingen í Suð- ur-Þýzkalandi, síðan í Wúrsbuvg og loks fór ég í sjómannaskóla í Norður-Þýzkalandi. — Sjómannaskóla? — Já, við urðum að læra ýmis- legt í sjómennsku í sambandi við sjóflugvélar, splæsa og róa og margt annað. Ég lauk svo þýzku flugmannsprófi 30. maí 1930, og fékk skírteini númer 2530. — Þeir voru nú ekki fleiri þá. Kennslu- flugvélarnar voru frá fyrri heims styrjöldinni, sú elzta frá árinu 1916, 15 árum yngri en flugvél Wright-bræðra. Ég kom heim vorið 1930, og flaug hér heima í fyrsta sinn sem aðstoðarflugmað- ur 25. júní 1930 og tveim dög- um siðar sem stjórnandi flugvél- ar. Ég flaug sjö sinnum miili Reykjavíkur og Þingvalla í sam- bandi við alþingishátíðina. Fyrsta flug mitt ú;t á land var svo cil ísafjarðar og vorum við tvo og hálfan tíma á leiðinni. Þetta voru flugvélar af gerðinni Junker F 13 og W-33. Þær hétu Súlan og Veiðibjallan. Á móti mér flaug þýzkur flugmaður, Neumann að nafni. Hann fór utan um haustið í september. Síðan hafa útlend- ingar ekki flogið á vegum flug- félaganna í innanlandsflugi. Um veturinn flaug ég svo með póst út á land, en það var auðvitað heldur stopult. — — Það hefur verið mikill mun- ttr á fluginu þá og nú? — Já og öryggisþjónustunni — hún var engin. 30. júní fór ég til dæmis í síldarflug og eftír tveggja og hálfs tíma flug bilaði hreyfill flugvélarinnar, og við lentum á sjónum og vorum á reki í 8 tíma. Það var ekkert verið að undrast um okkur. Við fórum bara af stað, og þar var einfald- lega reiknað með að við kæmum aftur. — Hvað var þá til bjargar? — Það vildi svo heppilega til, að það var álandsvindur og okk- ur rak á land undan haugasjó og svo lygndi með kvöldinu. — Okkur bar að landi í Selvík á Skaga. Þar sáum við bæ, og menn urðu okkar varir og kon>u á trillubát og drógu okkur á land. Svona var nú öryggið þá. En við hröpuðum ekki, eins og þið blaða mennimir segið alltaf í tíma og ótíma: flugvél hrapar og svo fram vegis. Flugvél hrapar ekki nema hún fari í stykki í loftinu, ef að vélin vilar, þá svífur hún á vængj um sínum til jarðar og lendir. — Það er allt Og sumt Svo er annað: Þið segið, að lending hafi tekizt vel í það og það skiptið. Hvenær tekst lending illa? Annað hvort lendir flugvélin eða ekki — lend ing tekst ekkert misjafnlega. Flugvélin lendir, ef ekki — þá er slys, en ekki lending. — Þetta var nú útúrdúr, en þetta fer í taugarnar á okkur flugmönnun- um. En svo ég snúi mér aftur að fortíðinni. Á árunum 1928—31 var lent á 40—50 stöðum á land- inu, og á fjórum árum voru flutt- ir 2600 íslenzkir farþegar til og frá um landið, og er það mjög há tala, því 1928—29 var aðeins flogið um sumarmánuðina. Næsti maður í flugið á eftir mér var Björn Eiríksson. Hann kom vorið 1931, og við flugum báðir saman það sumar. Síðan kom þriðji maðurinn, Agnar Kofoed Hansín, flugmálastjóri, og Örn Johnson. Og- síðan hver af öðrum. Nú eru flugliðar orðnir 513, sem hafa einhver skírteini til starfa við flugið. — Þið hafið verið snemma í því hér? — Já, ég er búinn að fljúga í 31 ár, þegar flugið er 40 ára og 30 ár, þegar Wrigthbræður eiga 50 ára flugafmæli, en þeir telj- ast upphafsmenn nútímaflugs. — Flugfélag íslands sem var stofn- að 1919, en varð að hætta vegna fjárskorts 1920, er með elztu flug félögum í heimi. Ég held, að Det danske Luftfartselskab sé það Sigurður Jónsson elzta og síðan Flugfélag íslands. — Svoleiðis að maður er snemma í því. Ég man vel eftir Frank. — Þegar ég var 10 ára, var ég að sniglast í Vatns- mýrinni. Þá stóð hann uppi á vængnum á flugvélinni sinni, og allt í einu missti hann skrúfu niður á jörðina Og ég var ekki seinn á mér að ná í hana og rétta honum. Á þessu lifði maður svo í margar vikur á eftir. — Krókurinn hefur sem sé snemma beygzt til þes sem Verða vildi? — Já, aðefns átta árum síðar var ég kominn til flugnáms. — Og þú ert ekki hættur að fljúga? — Nei, nú prófa ég þá, sem vilja fá loftferðgaskírteini. Þeir eru orðnir margir. —. Gaman væri að fljúga einni af þessum gömlu aftur, en þær eru nú varla til lengur. — Alfreð m M Ný senumg m 1 Seekers I J kvöldkjólaefni ^ MARKAÐURIKN Hafnarstræti 11. Framh. af t>ls. 8 mála verður aldrei framar lokað á íslandi. Við munum, eftir því, sem kraftar leyfa, feta í slóð ná- granna okkar, auka nýtingu flug véla til alls konar flutninga og klæða með hjálp hennar landið gróðri, svo sem Nýsjálendingar hafa nú sannað, að auðvelt er. Hesturinn, bifreiðin, þjóðvegur- inn, þoka smám saman fyrir flug tæki framtíðarinnar. Þeirri staðreynd verður ekki haggað. Hitt er annað mál og óvissara hver hlutur okkar muni verða í hinum alþjóðlegu loftsiglingum framtíðarinnar, en á svarinu við þeirri spurningu veltur það m. a., hvort við munum geta drýgt þjóðartekjur okkar verulega með þessari atvinnugrein eða að við nýtum ekki hina landfræðilegu aðstöðu okkar og látum útlend- inga eina um að flytja fólk og vörur yfir ísland. Reynslan, sem þegar er fengin af starfsemi Loftleiða bendir ótvírætt til þess að við séum á réttri leið. Af hverjum 100 far- þegum félagsins eru 84 útlendir. Undanfarin ár hefir félagið verið sæmilega sjálfbjarga með er- lendan gjaldeyri og fyrstu 6 mán- uði þessa árs skilaði það bönk- unum gjaldeyri fyrir 10 milljón- ir króna, en flutti auk þess alla sína íslenzku farþega, þjóðinni að kostnaðarlausu, gjaldeyrislega séð. Þetta er að vísu ekki mikið til að státa af, en þó nógu aug- ljóst til þess að gefa örugga vís- be-ndingu um það hvert steína skuli í íslenzkum flugmálum. Á þessum fertugasta afmælis- degi flugsins vil ég, að sjáifsögðu, nota tækifærið til þess að þakka öllum þeim mörgu, sem stutt hafa Loftleiðir til dáða og óska þess, að sem flestir verði eftirleiðis reiðubúnir til þess að veita fé- laginu þann styrk, sem nauðsyn krefur til þess að halda áfram sókninni inn á hin miklu mark- aðslönd alþjóðaflugsins. Agcet skemmtiferð aldraðs fólks í Firðinum HAFNARFIRÐI. — Síðastliðinn mánudag buðu bifreiðastjorar á fólksbílastöðvunum hér og Land- leiðir í Rvík öldruðu fólki í skemmtiferð, en það hafa aðilar þessir gert undanfarin sumur. í — Orn Framh. af bls. 8. Innanlandsflugið hefur jafnan reynst félaginu erfiðara en milli landaflugið, tæknilega og fjár- hagslega, sem ekki er óeðlilegt því að við búum við óblíða veðr- áttu, lítil þjóð í víðfeðmu fjalla- landi. Millilandaflug félagsms hefur hins vegar verið innan- landsfluginu styrkur á margan hátt, og til þessa gert félaginu kleyft að starfa að öllu leyti án fjárhagslegs _ stuðnings hins op- inbera Mun ísland vera eitt fárra landa, ef ekki það eina, sem kom- izt hefur hjá að styrkja innan- landsflug sitt drjúgum fjárfram- lögum úr ríkissjóði. Þótt félagið hafi komizt hjá að leita á náðir ríkisins í þessum efnum, er því ekki að neita að það hefir löngum átt við fjárskort að etja, eink- um síðustu tvö árin, eftir kaup þes á hinum fullkomnu en dýra Viscount flugvélum, „Gullfaxa“ og „Hrímfaxa“. Þær flugvéiar kostuðu um 47 milljónir króna er kaupin voru gerð, en með til- komu yfirfærslugjaldsins vo.'.ð 1958 hækkuðu erlendar skuldir félagsins vegna þessara kaupa um u. þ. b. 15 milljónir króna. — Óneitanlega var stigið stórhuga skref með kaupum þessara flug- véla af ekki fjársterkara fyrir- tæki c*n Flugfélag íslands er í dag, en það er sannfæring mín að félaginu takist að yfirvinna þá örðugleika, sem þessu fylgja um nokkurt árabil og að einmitr þessi ráðstöfun hafi verið heilla- ríkt spor. Þegar Flugfélag fslands hóf starfsemi sína árið 1938, átti það eina flugvél, sem flutt gat 3—4 farþega að hafði 3 s,tarfsmenn í þjónustu sinni. Það ár voru flutt- ir 700 farþegar og brúttótekjur námu 40 þús. krónum. Nú starfa 270 manns hjá félaginu og flug vélar þess geta flutt 265 farþega samtímis. Gera má ráð fyrir að flugvélar félagsins flytji á þessu ári yfir 80 þúsund farþega og að brúttótekjur nemi 80—90 millj. króna. Þessar tölur varpa nokkru ljósi yfir vöxt Flugfélags íslands á liðnum árum, en þær marka þó aðeins útlínurnar, og innaa þeirra er að finna sögu félags- ins og þau fjölmörgu verkefni i samgöngumálum landsmanna, sem félagið hefur fengið til úr- lausnar. Síðustu árin hefur Flugfélag íslands, auk áætlunarflugsins, annast mikla og vaxandi flutn- inga milli Danmerkur og Græn- lands.. Alls hafa flugvélar þess nú farið meira en 600 ferðir <il Grænlands, og er almennt talið að áhafnir félagsins hafi nú öði- ast meiri reynslu í hinu vanda- sama Grænlandsflugi en flug- menn annarra þjóða. Grænlandsflugið hefur verið vaxandi þáttur í starfi félagsins undanfarin ár, og það er von mín að það fari enn vaxandi þrátt fyrir blikur þær, sem nú eru á lofti í þeim efnum. Mörg verkefni bíða úrlausnar Flugfélags íslands á næstu árum. Áður en langt um líðu. þarf að endurnýja flugvélakost félagstns til innanlandsflugs, og fylgist fé- lagið vel með öllum framförum á sviði flugvélaframleiðslu, sem hagnýtar kunna að reynast fyrir okkar aðstæður. Þá vinnur fé- lagið í vaxandi mæli að kynn- ingarstarfsemi erlendis til að vekja athygli ferðamanna á landi okkar. Má vænta árangurs af þvi starfi á komandi árum. Örn Ó. Johnson. förinni voru 26 bílar og tveir strætisvagnar, en alls tók 200 manns þatt í ferðinni. Veður var ekki sem hagstæðast, rigningar- suddi, en.þrátt fyrir það tókst ferðin ^gtlega og fólkið skemmti sér vel. Var haldið af stað úf bænum laust eftir hádegi og haldið sem leið liggur austur Hellisheiði, gegnum Hveragerði og austur að Sogi. Veður var ekki þann veg háttað að fólkið gæti farið úr bílunum, en um fyrrnefnda staði var ekið hægt, þannig að það gat t. d. virt fyrir sér hinar miklu framkvæmdir við Sogið. Síðan var haldið til Valhallar á Þing- völlum, þar sem bílstjórarnir og Landleiðir hf. buðu hinu aldraða fólki upp á góðgerðir, kaffi og kökur. Var stanzað þar á þriðja tíma, og yfir kaffinu voru ræður haldnar og skemmtiatriði flutt. Séra Jóhann Hannesson þjóð. garðsvörður flutti skemmtilegt og fróðlegt erindi um þingvelli og fleira, en af hálfu aldraða fólks- ins töluðu og þökkuðu fyrir ferð ina og veitingar allar, þeir Sigur. jón Jóhannsson, Guðlaugur Ein- Framhald á bls. 19. Seg ibað með blómum ÉG man, að ég hef séð og heyrt þessi' orð á ferðum mínum er- lendis. Mönnum var bent á að kaupa blómin, senda þau vinum á gleði- og sorgarstundum og láta þannig í ljósi hugheilar óskir og samúð- arkveðjur. Þá var einnig sú að- ferð notuð að selja merki til styrktar góðu málefni og til hjálpar hinum sorgbitnu. Áreiðanlegt er, að Hjálpræðis- herinn er meðal hinna fyrstu hér á landi, sem á þennan hátt hafa safnað fé, sem menn með gleði hafa greitt, er þeir veittu við- töku merki dagsins. Merkjasalan er einn þáttur í bæjarlífinu. Mörg félög hafa með þessu móti bætt úr margs konar böli. Hjálpræðisherinn hér í bæ er nú á 65. árinu. Man ég fyrstu samkomu Hersins í maí 1895. Hef ég oft verið vottur að þol- gæði og þrautseigju hermann- anna, sem trúir starfi sínu hafa staðið á götum bæjarins, bæði í sólskini og regni, í frosti og blíð- viðri, boðið mönnum Herópið, sem nú er 64 ára, safnað fé til hjálpar fátækum, og með söng og lífsins orði bent mönnum á hinn rétta veg. Með dugnaði og ósérhlífni hefur Herinn um langt árabil unnið fagurt fórnarstarf. Starfsfólk Hjálpræðishersins hefur um mörg undanfarin ár haldið árlegan merkjasöludag, margir hafa fúslega keypt blóma merkin, því að það er vitanlegt, að ágóðanum af sölunni er varið til eflingar andlegri starfsemi og til síuðnings því líknarstarfi, sem er í fylgd með sönnu trúarlífi. Heill öllum þeim, sem hafa það hugfast að sálin í öllu líknar- starfi er líknin, sem veitist sál- inni. Það skal sannast, að þar sem hugsað er um velferð sálar- innar, vaknar áhugi á því, að bætt sé úr líkamlegri þörf. Mér er sagt, að Hjálpræðisher- inn hafi í þessu augnamiði merkjasölu síðustu tvo daga þess arar viku. Verða merkin seld á götum bæjarins, og allir, sem þau kaupa, gleðjast yfir því, að hver króna, sem fyrir þau fæst, er notuð til þess að auka far- sæld þeirra, sem hjálparinnar þarfnast. Styrkjum því fagurt starf með því að kaupa merkin, sem seld verða á föstudag og laugardag. Það er áreiðanlegt, að Guð hefur velþóknun á hverri gjöf, sem til heilla horfir, og um leið gefur hann góðu málefni sigur. Bj. J.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.