Morgunblaðið - 15.09.1959, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 15.09.1959, Qupperneq 16
16 MORGZJISBT 4ÐI to Þriðjudagur 15. sept. 1959 Afgreiðslustarf Afgreiðslumaður eða kona með góða reynslu óskast frá ca. 1. nóvember. Umsækjendur komi til viðtals á morgun (miðvikudag) kl. 10—11 f.h. V E R Z L . Austurstræti 17. Fiðlukennsla Tek byrjendur og lengra komna nemendur. Byrja að kenna 1. okt. Talið við mig í síma 35731. RUTH HERMANNS Skrifstofur okkar verða lokaðar vegna jarðarfara í dag frá kl. 1—4 e.h. S. Árnason & Co. Gunnar Guðjónsson, skipamiðlari. LAN 50—100 þús. króna lán óskast. Góð trygging. Tilboð merkt: „Trúnaðamiál — 9021 sendist Morgunblað- inu fyrir 18. þ.m. Byggingasamvinnufélag starfsmanna Reykjavíkurbæjar Til sölu er á vegum félagsins einbýlishús við Grundargerði, forkaupsréttur félagsmanna til 23. september. Nánari upplýsingar veitir formaður félagsins, Valgarð Briem, hdl. STJÓRNIN. Ú tgerðarmenn 53 tonna bátur til leigu á komandi vetrarvertíð, mjðg sanngjörn leiga ef samið er strax. Upplýsihgar í Landssambandi isl. útvegsmanna og herbergi no. 22 Hótel Vík næstu daga. Verzlunin Gnoð selur málningu frá þrem verksmiðjum. Fyrir eftir- talin hverfi er fljótlegast að kaupa málningu í verzl- uninni Gnoð. Fyrir Vogana, Langholtið og Heimanna. Ennfrem- ur fyrir Sogamýri og Bústaðahverfi. Byggðina frá Blesugróf að Háaleitisvegi og Reykjanesbraut. VERZLUNIN GNOÐ stendur við Suðurlandsbraut og Langholtsveg. VERZLUNIN GNOÐ selur snyrtivöru, smávöru barnafatnað, vinnufatnað og metravöru. Verzlunin Gnoð Gnoðavogi 78 — Sími 35382. Stefán Dagfinnsson skipstjóri — kveðja „Vagga, vagga, víða, fagra, undurbreiða haf, ástarblíðum blævi strokið af, vagga, vagga, allar sorgir svæf og niður þagga“ í lognstafa sjó liggur Gullfoss við hafnargarðinn, loftið er milt og í móðu, engu líkara en að bæði lögur og loft vilji taka þátt í athöfninni helgu, þegar kistan, sem geymir Stefán skipstjóra Dagfirinsson, sveipuð fánanuin íslenzka, er látin siga frá þilj- um skipsins glæsta, sem flutti hann síðustu, ferðina heim, en á hafnarbakkanum standa heiðurs vörð allir yfirmenn skipsins til þess að veita móttöku þessari síðustu jarðnesku hvílu merka félagans góða og, afhenda hana syrgjandi ástvinum og ættingj- um, sem báðu þess heitt og inni- lega, að mega heimta hann heil- an heim, en bera nú í staðinn harm sinn í hljóði. Já! Allir sem voru svo lán- samir að kynnast hvílíkur mann kostamaður Stefán Dagfinnsson var, sakna hans úr hópi skip- stjóranna á flota Eimskipafélags Islands og finna sárt til með syrgj andi ættingjum og það er ekki að undra, því hjá félaginu hafði hann starfað í full fjörutíu ár, stigið stig af stigi úr stöðu kynd- arans, hásetans, stýrimannsins til virðingarstöðunnar á stjórn- palli, sem hann skipaði með sér- stakri þekkingu á hættum hafsins og dutlungum Ránar, því á sjón- um ól hann aldur sinn frá því fyrir fermingu á flestum eða Öll- um tegundum þeirra skipa, sem við íslendingar höfum orðið að notast við og oft voru átökin við Ægi enginn barnaleikur fyrir hann frekar en alla okkar vÖsku sjómannastétt, sem hann var stoltur af að skipa sér í eins og hún var vel af honum sæmd, og- hann var engu síður afhaldinn af undirmönnum sínum en yfir- mönnum, sökum skilnings, skyldu rækni og mannúðar. Stefán var sonur hjónanna Dag finns Jónssonar og Halldóru Elíasdóttur, sem felldu hugi saman á Mýrunum við Faxaflóa, þar er hátt til lofts og vítt til veggja, þar sem sjórinn kallar á syni landsins, einkum þá, sem þurfa af sjálfsdáðum að brjót- ast áfram við lítil efni. Sam- valin voru þau hjónin í að koma áfram og til manns stórum barna hóp, sonum sex og dætrum þrem, og ekki varð þeim þetta léttara, er þau snemma í búskapnum fluttust til Reykjavíkur, en þar, eins og á Mýrunum, blasti sjórmn við. Sjálfur sótti Dagfinnur sjó- inn og síðar völdu synirnir fjórir, Einar, Guðmundur, Stefán og Sigurbergur að gerast sjómenn, svo og yngsti sonurinn Elías að nokkru leyti, en Ólafur fórísveit. Dætumar þrjár, Agata, Sigríður og Sesselja voru heima hjá móð- 4rd herb. íbúðurhæð í tvíbýlishúsi við Heiðargerði til sölu. Ibúðin er ný og mjög vönduð. 110 fermetrar. Bílskúrsréttindi. Olíukynd- ing með sjálfstilli. Tvöfalt gler í gluggum. Hurðir og dyraumbúnaður úr harðviði. Skápar úr tekkviði. Sam- eiginleg þvottavél og þvottapottur. 1. veðréttur laus. STEINN JÓNSSON, hdl. Lögfræðistofa — Fasteignasala Kirkjúhvoli — Símar: 19090 — 14951 í Vesturbænum Höfum til sölu rúmgóða og skemmtilega 4ra herbergja íbúð í litið niðurgröfnum kjallara við Granaskjól. tbúðin er nú fokheld. Verður með sér kyndingu. Fagurt út- sýni. Hagstætt verð. FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN, (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4. — Símar: 13294 og 14314. Ný sending Enskar kápur % glæsilegt úrval MARKAÐURl LAUGAVEGI 89 ur sinni, sem vann fyrir og með börnum sínum, þegar Dagfinnur andaðist 1906 og þegar Halldóra sjö árum síðar var kölluð héð- an burt, tók ^teta dóttirin Agata við heimilinuTWg mun samheldni þessara systkina vera við brugð- ið af þeim sem til þekkja. hað er vissulega rnikil gæfa að vera drengur góður og vær.n bróðir, og þetta var Stefán hvort tveggja, en hann var meira, hann var gæfumaður. Þegar hann eignaðist eiginkonu sina Júníönu Stefánsdóttur 1926, rann upp lífs hans sól. Sjálfur hefi ég reynt það og veit, hviiík lífshamingja það er ósegjanieg, að eiga ástríka eiginkonu og tryggan lífsförunaut, sem jafn- framt er yndisleg móðir góðra barna og myndarlegra, en slíka hamingju átti Stefán, og hana mat hann Öllu öðru fremur nér í heimi. I hinu litla, fallega heim ili Juniönu og Stefáns á Hring- braut 32, hefur ávallt friður ríkt og gleði. Fyrsta barnið sitt, dótt- ur litla Sigríði, misstu þau hjón- in barnunga, en fjögur mannvæn leg börn hafa alizt upp í skjóii þessara ástríku foreldra, einka- sonurinn Dagfinnur, flugstjóri hjá Loftleiðum, giftur 'Soffíu Haraldsdóttur, Þóra gift framkv,- stjóra Haraldi Björnssyni, Sigi ún gift Hannesi Hafstein stýrimanni, Aslaug, gift Bjarna Júlíussyni vélstjóra og ekki má gleyma barnabörnunum, yndi og eftirlseti elsku, góða afa, sem komu fagn- andi um borð í stóra skipið har.s afa og hringuðu sig utan um þennan elskulega, brosandi barna vin. Fyrir nokkru flaug Stefán til Hafnar með syni sínum, að leita sér lækninga á þungbærum sjúkdómi, sem sótti stöðugt fastar á. Sú för rriistókst, en hér skal sorgarsagan ekki sögð, aðeins það, að þján- ingar sinar bar Stefán með /rá bærri stillingu og hetjuskap. í öllum þeim raunum var þó emn sólargeisli, eiginkonan ástríka, sem fylgdi manni sínum til sjúkra hússins og sat öllum stundura við sjúkrabeðinn unz yfir lauk. Þega, svo langt var komið veikindunum að vinur minn far.n, að bitur hjörr var að göfugu hjarta reiddur, finnst mér ég bezt geta túlkað tilfinningar hans með orðum skáldsins, sem og tók sár- an út, en horfði æðrulaus gegn ör lögunum, sem bíða okkar allra: „Unn mér Drottinn, liknar- - lagsins, lausn mér veit í þinni náð". Kæri, Stefán! Kæri tengda- bróðir! Nú, þegar komið er að kveðjustundinni, er mitt að þakka.Fyrst óg fremst fýrir elsku lega iengdadóttur, sem verður syni mínum eins góð sjómanns- kona, eins og móðir hennar ’-'.ir þér. Þar næst fyrir allar stund- irnar, sem við tveir áttum sam- an í „Brúarfossi" gamla, þær voru sameign okkar, nú um stund séreign mín. Eins og þessar stur.d ir ekki gleymast, verða þær ekki endurteknar fyrr en við hittumst aftur á „Brúarfossi" handan vert við feigðarfjörðinn. Vertu bless- aður og sæll, kæri vinur og bróð- ir tryggra tengda! „Hafðu þökk fyrir hjartans mál, hug og þrek og vilja. Gleðji nú Drottinn góða sál, gefi oss rétt að skilja“. Júl. Havtseen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.