Morgunblaðið - 15.09.1959, Síða 23

Morgunblaðið - 15.09.1959, Síða 23
Þriðjudagur 15. sept. 1959 MORGVNBl4Ð1Ð 23 — Utan úr heimi Metnaðarmál » Hann hefir fyrst og fremst lagt metnað sinn í það að gera blaðafulltrúann að sem atkvæða- mestri persónu í öllu stjórnar- kerfi Bandaríkjanna — og segja má, að honum hafi tekizt að kom- ast furðulangt að því leyti. Það hlýtur að hafa verið hon- um mikilvæg og „stolt“ stund, er hann fór frá Washington til sjúkrabeðs Eisenhowers í Denver 1955, og forsetinn hvíslaði, er honum var tilkynnt koma blaða- fulltrúans: — Er Jim kominn? Því er ég feginn. — Segir honum, að hann skuli þegar í stað taka við for- ystunni. Það gerði hann — og landar hans munu sammála wm það, að opinskáar, en jafnframt skyn- samlega varkárar filkynningar hans um sjúkdóm forsetans, hafi skjótt lækkað þær öldur óttans, sem í fyrstu gripu um sig meðal þjóðarinnar.' — 'k — Það er sízt að undra þótt vit- urleg framkoma hans þá erfiðu daga hafi enn styrkt það traust, sem forsetinn bar þá þegar til hans. — Enda segir Eisenhower gjarna, þegar ganga á frá mikil- vægum málum, eða áður en áríð- andi fundir hefjast: — Við skulum heyra, hvaða skoðun Jim hefir á þessu. — Við túngarðinn Framh. af bls. 13. Glettinn kyssir Sigurður konu sína á kinnina um leið og hann þakkar henni fyrir matinn. Við höldum á brott frá þessum stað, þar sem dugnaður fjör og glettni eiga sér heiðurssæti. Ég gleymi yfirhöfninni minni og ég vóna að hjátrúin gamla, sem seg- ir að það verði til þess að ég eigi eftir að koma að Laugabóli aft- ur, rætist á mér. vig. — Skibaskálinn Framhald af bls. 22 ÍR þennan dag voru stór hópur Biamid. Sigurjón Þórðarson formaður bygginganefndar upplýsti að kostnaður við skálabygginguna nú væri 285.900 krónur og hefði verið unnið og keypt efni fyrir yfir 200 þús. kr. á þessu ári. Innifalið er mat sjálfboðavinnu á kr. 20 á klukkustund. Hann sagði að deildin væri nú fjárvana en enga styrki hefði deildin fengið ennþá, en kvaðst vona að á sínum tíma kæmu þeir til IR sem annarra. ‘Sigurjón sagði að skálinn væri reistur í landi ÍR, landi er Ölfushreppur hefði gefið félaginu fyrir nokkrum ár- um og ekki hefði verið selt með Kolviðarhólslandi. í landareign- inni væri jarðhiti og yrði reynt að nýta þá fyrir skálann svo fljótt sem efni stæðu til. Sagði Sigurjón að hugmyndin væri að þarna risi alhliða skíðaheimili — með dráttarbraut o. fl. Sigurjón gat um það að meðal gesta væri einn af elztu félög- um í skíðadeild ÍR, Friðrik Daníelsson, en hann var um ára- bil kallaður „hreppstjóri“ á Kolviðarhóli vegna mikilvægra umsjónarstarfa. Kvaðst Sigurjón vona að fleiri af eldri félögun- um myndu rétta yngri félögum deildarinnar nú hjálparhönd og vísa þeim veginn fram á við. Albert Guðmundsson form. fé- lagsins mælti nokkur kvatningar- ort til skíðadeildarmanna, lýsti ánægju sinni yfir því hve langt væri á veg komið og því hve dugnaður fárra hefði skapað bjarta framtíð fyrir marga. Bað hann félagsmenn ekki örvænta vegna fjárskorts heldur standa saman og þá yrði málinu hrint heilu í höfn. Fleiri tóku til máls og ríkti ánægjuleg stemning meðal skíða- fólksins. — Málefni kvenna Framh. af bls. 6. ur á fundarstað. Auk þess fórum við úr stjórninni mikið út um land. Ég hefi setið fundi hjá flest- um félögunum nema á Vestfjörð- um, og oft hjá sumum. Það hefur verið mín mesta ánægja í þessari starfsemi að sækja konurnar heim. Maður auðgast mikið að þekk- ingu af að fara og sjá hvernig aðstaða kvenna er annars staðar. Og það er mikið af afbragðs kon- um í landinu. Ég hefi einkum reynt að hafa samband við víð- sýnar konur og þær eru margar. í svoná félagsskap kemur upp allt milli himins og jarðar og þar sem góðar konur eru í félögunum greiðist úr því af sjálfu sér. Nú taka aðrar við Það hefði verið fróðlegt og skemmtilegt að spjalla meira við frú Guðrúnu Pétursdóttur um þátttöku hennar í fjöldamörgum öðrum félagsmálum, spyrja hana um það þegar hún kenndi kon- um að prjóna í Heimilisiðnaðar- félaginu, þegar hún átti þátt í því að Mæðrastyrksnefnd kom upp orlofsheimili- fyrir húsmæður i Mosfellssveitinni, þegar hún sat og saumaði íslenzku fánana fyrir konungskomuna 1907 og ótal margt fleira. En í stuttu blaða- viðtali verður einhvers staðar að nema staðar og því vænlegast að halda sig nær eingöngu við til efni viðtalsins, það að frú Guðrún Pétursdóttir er að hætta for- mannsstörfum í kvenfélagssam- bandinu. — Ekki eruð þér alveg hættar störfum. í kvenfélögun- um, þó þér sitjið ekki lengur í formannssæti, frú Guðrún? — Jú, ég ætla alveg að hætta allri félagsstarfsemi. Það er ekki rétt að skipta sér af og setja út á, ef maður er ekki lengur maður til að vinna og bæta úr. Ég er nú búin að beita mér í málefnum kvenna í 65 ár. Nú er tími til kominn að aðrar taki við. E. 'Pá. Kvæðamanna- félagið Iðunn 30 ára * KVÆÐAMANNAFÉLÁGIÐ Ið- unn verður í dag 30 ára. Það var stofnað 15. sept. 1939 og voru aðalhvatamenn að stofnun þess Björn Friðriksson og Kjartan Ólafsson. Félagið hefur þegar sungið 300 rímnalög inn á segulbönd og plöt- uf og afhent eitt eintak af þeim til Þjóðminjasafnsins. Félagið heldur kvöldvökur tvisvar í mán- uði. Formenn Kvæðamannafélags- ins Iðunnar hafa verið Kjartan Ólafsson, Jósef Húnfjörð, Björn Friðriksson og Sigurður Jónsson frá Haukagili. Núverandi stjórn skipa: Sigurður Jónsson frá Haukagili formaður, Jóhannes H. Benjamínsson, gjaldkeri, Sigurð- ur Jónsson frá Brún ritari, Kjart- an Hjálmarsson og Ormur Ólafs- son. Byrjað að slátra á Selfossi í dag FRÉTTARITARÍ Mbl. á Selfossi símaði í gærkvöldi, að sauðfjár- slátrun myndi hefjast í dag í stærsta sláturhúsinu fyrir austan Fjall, sláturhúsinu á Selfossi, eign Sláturfélags Suðurlands. Það er ekkbvitað hve mörgum dilkum verður slátrað nú í haust, sagði fréttaritarinn, en 1200—1500 verður slátrað á dag. Ekkert hefur verið tilkynnt um kjötverðið á nýja kjötinu, en sennilegt er að það muni koma á markaðinn seinnipart vikunnar, svo ekki getur dregist lengi að kunngjört verði kjötverðið. Sendisveinn Röskur sendisveinn óskast frá kl. 6 til 12 f.h. Þarf að hafa skellinöðru. Afgreiðsla Morgunblaðsins. Sími 2-24-80 fltottiiittbljibtto Unglinga vantar til bladburðar í eftirtalin hverfi EFSTASUND og HVERFISGÖTU II Drengir eða telpur óskast til sendiferða á skrifstofu blaðsins. Vinnutími kl. 10—6. ofgjtittbfefrib Hjartans þakkir til fjölskyldu minnar, venzlafólks, sveitunga, gamalla og nýrra vina, fjær Og nær, er heiðr- uðu mig með skeytum, gjöfum, blómum og heimsókn- um á sjötugsafmæli mínu. Lifið öll heil og hugumglöð. Jón Sumarliðason, f. Bre ðabólsstað. Innilegt þakklæti til allra skyldmenna og kunningja sem glöddu mig með heimsókn, hlýjum orðum, gjöfum, blómum og skeytum á 60 ára afmæli mínu. Guð blessi ykkur öll. Þóranna Helgadóttir. Hjartanlegar þakkir færi ég öllum, sem auðsýndu mér vinarhug á sjötíu ára afmæli mínu, 4. þ.m. með heimsóknum, gjöfum og skeytum. Guð blessi ykkur öll. Gísli Jónsson, Helgastöðum. Þið vinafjöld, fjær og nær, sem á margvíslegan hátt fylltuð hugi okkar og hjörtu gleðigeislum og blómaang- an gullbrúðkaupsdag okkar og brúðkaupsdag elzta sonar- sonarins. Hjartans þakkir. Guð blessi ykkur öll. Þórdís og Bjarni Benediktsson, frá Húsavík Ég þakka hjartanlega börnum mínum, tengdabömum og barnabörnum, frændfólki, kunningjum og félögum fyrir heimsóknir, heillaóskir og góðar gjafir á 75 ára afmæli mínu 3. sept. Guð blssi ykkur öll. Ágústa Jónsdóttir, Lækjargötu 10, Hafnarfirði. Móðir mín GUÐRtíN jónsdóttir frá Fáskúrðsfirði, andaðist 13. sept. að Hjúkrunarheimilinu Sólvangi Hain- arfirði. Sólveig Bjarnadóttir. Maðurinn minn STEFÁN Ó. STEPHENSEN andaðist aðfaranótt 13. þ.m. að heimili okkar. Sigríður Arnórsdóttir. Jarðarför mannsins míns, föður okkar og tengdaföðurs SIGURÐAR GUÐBJARTSSONAR bryta, fer fram í dómkirkjunni, miðvikudaginn 16. sept. kl. 2 e.h. Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna er vinsamlega bent á Slysavarnaiélag íslands og Dvalar- heimiU aldraðra sjómanna. Esther H. Ólafsdóttir, börn og tengdaböm. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa EYÞÓRS GUÐJÓNSSONAR bókbindara. Ástriður Bjömsdóttir, börn, tengdabörn og barnaböm. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarð- arför eiginmanns mína og föður SIGÞÓRS JÓNSSONAR Stefanía Árnadóttir, Sigrún Sigþórsdóttir. Hjartans þakkir til allra, nær og fjær, er sýndu okkur hluttekningu og vinarhug við andlát og jarðarför JENS ÁRNASONAR vélsmíðameistara. Guðrún Halldórsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.