Morgunblaðið - 19.09.1959, Qupperneq 2
2
MORWNBIAÐ1Ð
Laugardagur 19. sept. 1959
1 DAG eru liðin 40 ár síðan
verzlunin Geysir hér í bse
tók til starfa. f>að var þann
19. sept. 1919, að verzlunin
var stofnuð af nokkrum
framtakssömum mönnum,
sem nú eru að vísu flestir
látnir. Stofnendurnir voru
þeir Kristinn J. Markússon,
Arent Claessen, konsúll, Ól-
afur Johnson, Guðjón Ól-
afsson, Sigurður Jóhanns-
son og Guðmundur Krist-
jánsson. Fyrst í stað verzl-
aði fyrirtækið eingöngu
með veiðarfæri, en árið
1927 hóf verzlunin sölu á
vefnaðarvörum og hefur sá
liður farið ört vaxandi.
Eins og flestir Reykvík-
ingar kannást við var verzl-
unin um 36 ára skeið til
húsa í Hafnarstræti 1, í
húsi Ólafs Johnson. Árið
1948 festi verzlunin kaup á
núverandi húsnæði og flutti
þangað fyrir fjórum árum
eftir að gagngerar breyt-
ingar höfðu verið gerðar á
húsakynnunum. Þar eru á
boðstólum ýmiss konar
vefnaðarvörur, tilbúinn
fatnaður o. fl., svo og veið-
arfæri og málningavörur,
gólfteppi og dreglar. Alls
vinna nú hjá stofniminni
30 manns. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins hefur
verið frá byrjun Kristinn J.
Markússon.
Myndin af verzlun Geysis
er tekin um 1920.
Tónlistarskólinn
í Keflavík
að hefjast
KEFLAVlK, 18. sept. — Tónlist-
arskólinn í Keflavík tekur til
starfa um næstu mánaðamót. í
vetur hefst kennsla í fiðluleik
auk píanó- og blásturshljóðfæra-
leiks. Kennarar verða þeir Ragn-
ar Bjömsson, sem jafnframt er
skólastjóri, Árni Arinbjamarson
og Guðmundur Norðdahl. Það er
Tónlistarfélag Keflavíkur, sem
annast rekstur skólans.
Fyrstu tónleikar félagsins á
þessu hausti verða á miðviku-
dags- eða fimmtudagskvöldið
kemur. Eru það sjö listamenn
frá tónlistarháskólanum í Prag,
■sem halda hljómleika í Bíóhöll-
inni fyrir styrktarmeðlimi félags-
ins. Enn geta menn gerzt virkir
félagar í Tónlistarfélagi Kefla-
víkur, en formaður þess er Vig-
dís Jakobsdóttir, bæjarfógetafrú.
— HSJ.
Yíirlýsing Framleiðsluráðs
Úrsögn neytendafulltrúanna
tilraun til að gera merka löggjöf
Bókabúð minnist
50
afmælis
ara
HÚSAVÍK, 18. sept. — í gær
varð ein elzta bókaverzlun lands
ins, Bókaverzlun Þórarins Stef-
ánssonar, við aðalgötu bæjarins,
Garðarsbraut, 50 ára.
Þórarinn Stefánsson, bóksali,
sem stofnaði verzlunina, veitir
henni enn forstöðu, en á síðari
árum hefur Ingvar, sonur hans,
aðstoðað föður sinn.
Þeir feðgar hafa minnzt af-
mælisins á þann hátt að efna til
sýningar á listaverkaeftirprent-
unum Helgafells í Gagnfræða-
skólanum og í bókabúðinni er
bókamarkaður, þar sem ýmsar
fágætar bækur eru á boðstólum.
— Fréttaritari.
AKUREYRI, 18. sept. — Á fjórða
tímanum í nótt er lögreglan var
á eftirlitsferð um miðbæinn, varð
hún vör við að nokkrar rúður
höfðu verið brotnar í miðbænum.
Við nánari athugun kom í ljós,
að tvær stórar rúður höfðu verið
brotnar í verzluninni Vísi með
grjóti svo og á Litla barnum. Þá
höfðu líka verið unnin spjöll á
blómabeði á Ráðhústorgi. Lög-
reglunni tókst að hafa uppi á
skemmdarvargnum, sem var
drukkin unglingsstúlka. — Mag.
OVI
irka
EINS og kunnugt er hafa fulltrúar neytenda I verðlagsnefnd land-
búnaðarafurða sagt sig úr nefndinni. Var birt greinargerð frá sam-
tökum þeim, sem þessa fulltrúa tilnefna, hér í blaðinu í gær um
ástæðu þeirrar ákvörðunar þeirra.
1 gær barst Morgunblaðinu svo athugasemd frá Framleiðsluráði
landbúnaðarins, þar sem sjónarmið þess eru skýrð.
Fer hún hér á eftir:
I tilefni af bréfi því og til-
kynningu sem stjórnir Alþýðu-
sambands Islands, Sjómannafé-
lags Reykjavíkur og Landssam-
bands iðnaðarmanna fengu birta
í dagblöðunum í dag um verð-
lagningu landbúnaðarvara, þykir
Framleiðsluráði landbúnaðarins
rétt að skýra mál þetta í stuttu
máli út frá sjónarmiði fram-
leiðsluráðs.
Verkefni sex manna nefndar-
innar er samkvæmt lögum, að
finna grundvöll, sem feli í sér,
að bændur hafi sambærilegar
tekjur við aðrar vinnandi stéttir
og sem verðlagning í heildsölu
og smásölu geti hvílt á. Þessi
grundvöllur er í rauninni reikn-
aður yfir gjöld og tekjuí bús af
ákveðinni stærð. Er þetta undir-
staðan að verðlagningunni.
Hins vegar ber Framleiðslu-
ráði landbúnaðarins að ákveða
ís'enzkir óheyrendur oibiagð
— segir tékkneska tónlistaríólkið
ÞESSA dagana dveljast hér sex 1 verður önnur en hér í Reykja-
nemendur Tónlistarháskólans í
Prag í boði Tónlistarskólans í
Reykjavík, og er það endurgjald
fyrir heimboð Pragskólans, er
tónlistarnemendur héðan þágu
sl. vor. Fararstjóri hinna sex
ungu tónlistarmanna er Václav
Hubácek, prófessor.
Tékkneska tónlistarfólkið hef-
ur haldið tvenna hljómleika fyr-
ir styrktarfélaga Tónlistarfélags-
ins í Reykjavík, í fyrrakvöld og
í gærkvöldi — og hlaut það hin-
ar ágætustu móttökur. — 1
morgun var svo ráðgert að halda
flugleiðis til Akureyrar og halda
þar hljómleika síðdegis. Á morg-
un sækir listafólkið Mývetninga
heim og heldur tónleika í Skjól-
brekku. Að því búnu verður aft-
ur haldið suður á bóginn, og
verða tónleikar haldnir á Sel-
fossi á þriðjudagskvöldið og í
Keflavík á miðvikudagskvöld.
vík. — Á laugardaginn næsta
halda svo Tékkarnir heimleiðis.
Tónlistarháskólinn í Prag er
elzti tónlistarháskóli í Mið-Ev-
rópu, stofnaður 1811, og hefur
löngum notið mikils álits. Hann
er nú ríkisskóli. Nám þar tekur
sex ár" í öllum aðalgreinum, og
er tónlistarfólkið, sem hér er í
heimsókn, mismunandi langt á
veg komið, tveir um það bil
hálfnaðir, en söngkonan Ludmila
Skorpilova lauk námi sínu sl.
vor — og aðrir eru langt kommr.
— Nokkur breyting varð á efnis-
skrá flokksins hér, vegna þess, að
ungur söngvari forfallaðist á síð-
ustu stundu — og varð að fá
annan í hans stað.
Fréttamenn ræddu stuttlega
við listafólkið í gær, sem kvaðst
ánægt með komuna hingað — ís-
lenzkir áheyrendur væru hrein-
heildsölu- og smásöluverð á land-
búnaðarvörum í samræmi við
þennan grundvöll.
Þessi lagafyrirmæli hafa verið
í gildi frá árinu 1947 og allan
þann tíma, sem liðinn er síðan,
hefur sex manna nefndin starfað
samkvæmt þeim. Fulltrúar neyt-
enda í nefndinni hafa öll þessi ár
unnið að þessum málum í anda
laganna, þar til haustið 1958, að
þeir vildu einnig hafa afskipti af
störfum framleiðsluráðs, hvað
verðlagninguna snerti. Það virð-
ist vera, að fulltrúar neytenda í
nefndinni hafi haustið 1958 lagt
annan skilning í hlutverk sitt í
sex manna nefndinni en áður,
þannig að þeim bæri einnig að
hafa áhrif á ákvörðun fram-
leiðsluráðs um heildsölu- og smá-
sölukostnað.
1 áðurnefndri tilkynningu frá
stjórnum nefndra samtaka kem-
ur fram, að þær láti fulltrúa sína
í sex manna nefndinni hætta þar
störfum m. a. vegna þess, að
framleiðsluráð hafi á sl. hausti
bætt 85 aurum ofan á hvert kg
dilkakjöts, sem selt var á inn-
lendum markaði, til þess að
standa straum af útflutningi á
dilkakjöti. Framleiðsluráð hefur
þó verið sýknað í undirrétti í
máli út af þessu.
Út af þessu vill framleiðsluráð
taka fram, að vegna tilfærslu
verðs milli búvara leiddi þetta
ekki til neinnar hækkunar á út-
söluverði kjötsins og var í fullu
samræmi við grundvöllinn. Fram
leiðsluráð getur því ekki fundið
réttmætt tilefni hjá samtökunum
til þess að láta fulltrúa sína hætta
störfum í sex manna nefndinni
og litur fyrst og fremst á það,
sem tilraun til að gera merka
löggjöf um samstarf framleið-
enda og neytenda í þessum mál-
um óvirka.
Sverrir Gíslason,
Jón Sigurðsson,
Einar Ólafsson,
Páll Metúsalemsson,
Bjarni Bjarnason,
Helgi Pétursson,
Pétur Ottesen,
Sveinbjörn Högnason,
Jón Gauti Pétursson.
Indverjar
sækja fram
NÝJU DELHl, 18. sept.
— Reuter. —
INDVERSKT herlið hefur
fært sig þremur kílómetr-
um nær bænum Longju,
sem kínverskir kommúnist-
ar tóku fyrir nokkru. Bær-
inn er um 5 km innan við
indversku landamærin. —
Kínverjar viðurkenna ekki,
að Iandsvæði þetta sé ind-
verskt. Sitja herflokkar
beggja nú vopnaðir and-
spænis hvorir öðrum en
beðið er Iausnar á landa-
mæradeilunni eftir stjórn-
málaleiðum.
Listi Sjálfstœðis-
manna í R.vík
samþykktur samhljóða á fjölmennum
fulltrúaráðsfundi i gærkveldi
Efnisskrá þessara hljómleika asta afbragð.
Sr. Sveiim Víking-
ur skólastjóri
SÚ BREYTING verður á filhög-
un Samvinnuskólans að Bifröst á
komandi vetri, að séra Guðmund
ur Sveinsson, sem starfað hefur
þar sem skólastjóri undanfarna
fjóra vetur, hverfur til Bretlands
til framhaldsnáms vetrarlangt.
Mun hann einkum dveljast í öx-
ford. Við störfum hans tekur
þann tíma séra Sveinn Víkingur,
fyrrv. biskupsritari.
Eyjólfur K. Jónsson gerði grein
fyrir störfum kjörnefndar og
lagði tillögur nefndarinnar fyrir
fundinn. Urðu síðan stuttar um-
ræður og var listinn að þeim
loknum samþykktur í einu hljóði.
Þessir menn skipa listann:
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfélag
anna í Reykjavík kom saman til
fundar í Sjálfstæðishúsinu í gær-
kvöldi til að ákveða framboðs-
lista flokksins í kosningunum 25.
og 26. október nk. Var fundurinn
mjög fjölmennur.
1. Bjarni Benediktsson, ritstjóri.
2. Auður Auðuns, frú.
3. Jóhann Hafstein, bankastjóri.
4. Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri.
5. Ragnhildur Helgadóttir, frú.
6. Ólafur Björnsson, prófessor.
7. Pétur Sigurðsson, sjómaður.
8. Birgir Kjaran, hagfræðingur.
9. Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri.
10. Geir Hallgrimsson, hæstaréttarlögmaður.
11. Jóhann Sigurðsson, verkamaður.
12. Baldvin Tryggvason, Iögfræðingur.
13. Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur.
14. Ragnheiður Guðmundsdóttir, læknir.
15. Pétur Sæmundsen, framkvæmdastjórl.
16. Ólafur Pálsson, mælingafulltrúi.
17. Jóna Magnúsdóttir, iðnverkakona.
18. Ingvar Vilhjálmsson, útgerðarmaður.
19. Jón Kristjánsson, verkamaður.
20. Birgir I. Gunnarsson, stud. juris.
21. Jónas B. Jónsson, fræðslufulltrúi.
22. Tómas Guðmundsson, skáld.
23. Sigurður Sigurðsson, yfirlæknir.
24. Sigurður Kristjánsson, forstjórL