Morgunblaðið - 27.10.1959, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 27. okt. 1959
MORCTJNnr AfíiÐ
Rúðurnar í sendiferðabílnum, sem járnbitinn flaug í gegnum.
Biðskákir
jr _
I Belgrad
BELGBAD, frá fréttaritara Mbl
í 26. umferð áskorendamótsins
urðu úrslit þessi:
Tal og Petrosjan skildu jafnir.
Náði Petrosjan að þráskáka en
var þá 4 peðum undir.
Gligoric vann Smysloff með
sókn á drottningarvæng í 18
leikja skák.
Keres vann Benkö með kóngs-
sókn í 23 leikja skák.
Fischer og Friðrik eiga bið-
skák, en þar er staða Friðriks
töpuð. Staðan er: Fisrher (á leik-
inn) Ke4, Hdl, a2, b2, f2, g3, h2.
Staða Friðriks: Ke6, Hf7, b5, d4,
g5, h7. Friðrik lenti í tímaþröng!
í erfiðri stöðu.
í 27. umferð sem tefld var í
gærkvöldi (mánudag) fóru allar
skákirnar í bið.
Keres á vinningsstöðu gegn
Gligorii. Tal stendur betur í skák
sinni gegn Fischer. Friðrik tefldi
við Smyslov og er staða Smyslofs
betri. Benkö stendur aðeins bet-
ur að vígi en Petrosjan.
STAKSTEIMAR
Járnbiti
stakkst inn
í bíli
inn
KLTJKKAN langt gengin í 11 í
gærmorgun Iá við stórslysi á
gatnamótum Nóatúns og Lauga-
vegar, er járnbiti, sem stóð fram
af vörubifreið, rakst inn í gegn-
um rúðuna í sendiferðabif-
reið, straukst við kinn bilstjór-
ans og fór út um framrúðuna.
Vörubifreiðin kom upp Nóa-
tún með um 12. m. langan járn-
bita bundinn utan á húsið og
stóð endi hans 1,62 m. fram fyrir
frambrettið. Ók bíllinn inn á
Laugaveginn, sem er aðalbraut.
Sendiferðabíllinn kom austur
Laugaveginn, og rakst járnbitinn
frá vörubílnum gegnum rúðuna
við hlið bílstjórans, straukst við
kinn hans og skrámaði hann og
stóð að lokum út um framrúð-
una. Bílstjóri sendiferðabílsins,
Ólafur Þórðarson, Barmahlíð 5,
taldi sig hafa fengið glerbrot í
vinstra augað og var farið með
hann á Slysavarðstofuna.
Stolið í íþrótta-
mannvirkium
INNBROTSÞJÓFAR lögðu leið
sína í nótt í tvö íþróttamann-
virki í Laugardal. Voru innbrot
þessi bersýnilega framin í þeim
tilgangi einum að reyna að ná í
peninga. Var gerð ítarleg pen-
ingaleit í skrifborðsskuffum, sem
stungnar voru upp. í KR-heim-
ilinu var stoliið á annað þúsund
krónum. í skrifstofu vallarvarð-
ar Laugardalsleikvangsins var
stolið um 300 krónum.
VörubíIIinn með járnbitann langa.
T unglmyndirnar
heppnuðust vel
MOSKVU, 26. okt. (Reuter).
Tass-fréttastofan rússneska
skýrir frá því, að ljósmyndir
af bakhlið tunglsins, sem eng-
inn maður hefur séð, verði
birtar á morgun í rússneskum
blöðum. Ljósmyndir þessar
voru teknar af tunglflauginni
Lúnik, er hún var handan
tunglsins, en sendar með sjón-
varpstækjum til jarðar, er
geimstöðin var skemmst frá
jörðu nokkrum dögum siðar.
Tass segir, að ljósmyndirnar
sem náð hafa jörðu séu skýr-
ar og sýni hárnákvæmt lands-
lag á tunglinu. Myndirnar
voru teknar úr 60 þúsund
kilómetra fjarlægð. — Stóð
myndatakan yfir í 40 mínútur
og voru margar myndir tekn-
ar. —
Eintök af ljósmyndunum
hafa verið afhent visindaaka-
demíu Sovétríkjanna og hef-
ur hún skipað sérstaka nefnd
til að gefa ýmsum kennileit-
um á bakhlið tunglsins ör-
nefni.
Lítilsháttar
síldveiði
ÞAÐ er aðeins tekið að færast líf
yfir reknetjaveiðarnar hér við
Suðurland. Enn sem komið er, er
síldaraflinn tregur og síldin sem
veiðzt hefur smá.
Fréttaritari Mbl. á Akranesi
símaði í gær, að fimm bátar hefðu
verið að reknetjum í fyrrinótt.
Einn þeirra fékk dálitla veiði,
Svanur, sem var með rúmlega 30
tunnur en hinir voru með slatta.
Á Akranesi eru fjórir bátar tii
viðbótar um það bil að hefja
veiðar.
125 þús. kr.
Blindravina-
félagi
agsins
MERKJASALA Blindravinafé-
lags íslands var s.l. sunnudag 18.
okt. Þegar eru komnar inn kr.
125.00.00, og enn er mikið ókom-
ið utan af landi.
Félagið færir öllum þeim, sem
aðstoðuðu við merkjasöluna,
kærar þakkir og þó sérstaklega
Kvenfélögunum, sölubörnum og
öðrum velunnurum félagsins,
sem árlega hafa tekið að sér
söluna.
• Happdrætti var innan merkja-
sölunnar, og féllu vinningar þann
ig. nr. 1008 Körfuhúsgögn, 17489
Bókahilla, 13265 Armstóll, 35287
Vöfflujárn, 21855 Kaffistell, 9479
Gufustraujárn, 28653 Borðlampi,
18249 Borðlampi, 24830 Blaða-
grind, 7163 Blaðagrind.
Borholan
EINS og skýrt hefur verið
frá hér í blaðinu var lokið
við að bora holuna á horni
Nóatúns og Suðurlandsbraut-
ar síðastliðinn þriðjudag og er
hún þá orðin 2200 metra djúp.
— Síðan var beðið eftir
að hún gysi. Holan gaus loks
síðdegis á föstudag. Gýs hún
tæplega 4 lítrum á sekúndu
af 130—140 stiga heitu vatni.
Endanlegum mælingum er þó
ekki lokið og má vera að
vatnsmagnið breytist. Verður
reynt að auka það með því að
dæla í holuna vatni.
„Á móti áframl aldandi
mannlífi“
1 Þjóðviljanum á sunnudag-
inn birtist svohljóðandi opið
bréf til Tómasar Guðmundsson-
ar skálds:
„Herra Tómas Guðmundsson,
skáld, Reykjavík.
Einsog glöggt má sjá í Morg-
unblaðinu hafið þér tekið sæti
á framboðslista „Sjálfstæðis-
flokksins“ í Reykjavík og lát-
ið þann sama flokk mynda yð-
ur sem fundarstjóra á pólitísk-
um fundi hjá sér, hvar ásjónu
yðar gefur að líta til hliðar við
borgarstjórann í Reykjavík,
sem liggur undir ákæru um að
hafa notað aðstöðu sína til að
ívilna sjálfum sér og pólitísk-
um samverkamönnum sinum
fjárhagslega á kostnað almenn-
ings. Tilgangurinn af flokksins
hálfu hlýtur að vera sá að
nota sér skáldfrægð yðar sér
til framdráttar.
En hver er yðar tilgángur?
Þér eruð skáld og hafið ort
góð kvæði um mannlífið: sorg-
ina, ástina og drauminn. Hvem-
ig getið þér svo sem maður og
skáld varið það fyrii sjálfum
yður að vinna fyrir flokk, sem
berst á móti áframhaldandi
mannlífi á jörðinni með á-
kveðnum stuðningi við hern-
aðarhugsjón nýlenduvelda,
flokk sem hefur alla tíð unn-
ið að því að gera þá ríku rík-
ari og þá fátæku fátækari?
Hvernig getur skáld unnið
fyrir þá, sem berjast gegn jafn-
rétti, bræðralagi og frelsi fyrir
þá sem minnst mega sín? Minn-
izt þess að orðið frelsi eitt sér
er aðeins innantómt slagorð.
Mennina vantar fyrst og fremst
öryggi. Frelsi frá öryggisleysl
ætti að vera kjörorð allra
manna á okkar dögum. Það
frelsi vinnst aldrei með stuðn-
ingi við þá sem stjóina atóm-
sprengjunum-
Ég bið yður að hugleiða þettn.
Reykjavík 22. okt. 1959
Jón frá Pálmholti."
„Orðprúður ritstjóri"
Undir þessvri fyrirsögn segir I
íslendingi sl. laugardag:
„Nokkrar glefsur úr forustn-
grein Dags 21. þ. m.:
.... Klækin er kaupmannn-
lund / kæta hana andvörp föður-
leysingjanna“.
.... Jónas Rafnar og Magnús
Jónsson eru launaðir vikapiltar
hjá hinum einu og sönnu arftök-
um mannanna, sem hið orðvara
skáld kvað um og áður er vikið
að ...„“
„Þeir menn, sem hafa skugga-
lega fortíð, vilja ekki á hana
minnast. Þeir sem hafa ill áform
í huga, bregða gjarnan á létt-
ara hjal. Sjálfstæðisflokkurinn og
útsendarar hans reyna að tala
sem fegurst við fólkið, en blanda
orð sín sögufölsun og rógi ....“
Hér er ekki rúm til fleiri til-
vitnana, þótt freistandi væri.
Sýnilegt er, að undirbúningur
kosninganna hefir leikið svo
skapgerð E. D., að hann veit
ekki lengur sitt rjúkandi ráð, —
heldur að rakalaus illyrði um
vinsæla menn og vammlausa séu
sigurvænlegar fyrir málstað
flokks hans. Hann ætti þó að
vita, að vænlegra er til árang-
urs að fletta rækilega ofan af
„skuggalegri fortíð“ Jónasar
Rafnar og Magnúsar Jónssonar
en að dylgja um hana.
Og það má E. D. skilja, að er
Jónas kvað um klækna kaup-
mannslund var Olíufélagið h.f.
ekki tekið til starfa og engin við-
skipti hafin á Keflavíkurflug-
velii“.