Morgunblaðið - 07.11.1959, Blaðsíða 20
V EÐRID
Allhvass SV, hægir í dag,
jeljagangur.
248. tbl. — Laugardagur 7. nóvember 1959
Rœða Thor Thors
á þingi S. þ. Sjá bls. 11.
Tundurspillir hindr-
ar töku Hulltogara
María Júlía staðsetti lögbrjótinn innan
gÖmlu fiskveiðitakmarkanna
í FYRRADAG kom til kasta
milli varðskipsins María Júlía og
brezka herskipsins Dunkirk, sem
er stór tundurspillir, vopnaður 13
fallbyssum. Hindraði herskipið
varðbátinn í að framkvæma
Elzti maður
Reykjavíkur
ldtinn
GUÐMUNDUR Jónsson, sem
flestir bæjarbúar könnuðust við
undir nafninu Guðmundur í Bað-
húsinu lézt í fyrrakvöld á Elli-
heimilinu Grund, 103 ára að
aldri. Guðmundur var elzti mað-
ur í Reykjavík. Á afmælisdaginn
hans 1. okt. s.l. var viðtal við
hann hér í blaðinu og var hann
þá hinn hressasti. Undanfarið
hfeur hann þó verið hálflasinn
og smáversnaði, þar til hann lézt
á fimmtudagskvöld á Elliheimil-
inu, þar sem hann dvaldi síðustu
23 árin.
Baujan á reki
vestan Skaga
AKRANESI, 6. okt. — Vitabauj-
an hér út af Suðurflösinni slitn-
aði upp í brimrótinu kl. 11 í
fyrrakvöld. Er baujan nú á reki
fyrir vestan Skagann. Vonandi
verður bráður bugur undinn að
því að ná henni aftur og leggja
henni vel og vandlega.
Vegna þess að vitabaujan slitn-
aði upp, munaði minnstu að Vest-
mannaeyjabátarnir, Gullþórir og
Buðurey, sem hingað fluttu
bræðslusíld úr Vestmannaeyja-
höfn, væru komnir upp. Var
tekið að brjóta á kringum þá,
þegar þeir áttuðu sig og komu
sér á rétta leið. —Oddur.
handtöku togarans Stella Dorado
ízá Hull. sem er gamall togari.
í fréttatilk. frá Landhelgis-
gæzlunni er blaðinu barst í gær-
kvöldi, er þannig sagt frá at-
burði þessum:
Síðari hluta dags á fimmtudag,
kom varðskipið María Júlía að
brezka togaranum Stella Dorado
H-307, þar sem hann var að ólög-
legum veiðum um 8,1 mílu fyrir
innan fiskveiðitakmörkin suð-
austur af Langanesi.
Varðskipið setti út bauju við
togarann og bjó sig undir að
taka hann. Kom þá þar að brezka
herskipið Dunkirk. Fór það á
milli varðskipsins og togarans og
hindraði frekari aðgerðir. Var
þessu þá þegar mótmælt, en það
kom fyrir ekki. Kvað herskipið
brezka togarann hafa verið utan
við hin gömlu fiskveiðitak-
mörk og væri því allt í lagi.
Þó sagði herskipið togaranum að
færa sig utar. Síðan hefur það
haldið sig stöðugt í námunda við
togarann.
Annar maður horfinn
ENN berast fregnir um
mannshvarf. Er um að ræða
Styrmi Proppé, til heimilis að
Sumarið var misgjöfult
HEY eftir sumarið eru bæði
mjög mikil og góð á Norð-
austurlandi, mikil og sæmi-
lega góð í Eyjafjarðarsýslu,
annars staðar eru þau víðast
nokkuð mikil að vöxtum, en
mikill hluti þeirra með
slæmri verkun, og sumt mjög
hrakið. Upplýsingar þessar
er að finna í nýútkominni Ár-
bók landbúnaðarins.
Jón forseti seldi
í Hull
HULL, 6. nóvember. — íslenzkur
togari landaði í Hull í dag, en
slíkt hefur ekki gerzt i 9 mánuði.
Þetta var Jón Forseti, sem var
með 205 tonn, eða nær helmingi
meira en togarar hafa verið með
að undanförniu. Söluverðið var
12.500 sterlingspund og gekk upp-
skipun og sala snurðulaust.
Týndi pilturinn
HAFNARFIRÐl —• í gærkvöldi
hafði Baldur Jafetsson ekki enn
komið fram, og er nú að vonum
mjög farið að óttast um hann.
ímsar sögusagnir hafa komizt
á loft um að hann hafi sézt
á þeim tíma frá því hans er sakn-
að, en engin vissa er fyrir þeim
sögusögnum. — Lögreglan biður
þá, sem gætu gefið einhverj-
ar upplýsingar á hvarfi Baldurs,
að gefa sig þegar fram.
Um mikinn hluta landsins var
heyskapartíð óhagstæð, fram til
ágústloka ailra óhagstæðust um
Skaftafellssýslur og austanverða
Rangárvallasýslu, en síðari hluta
ágústmánaðar og í september
allra óhagstæðust á Suðurlands-
undirlendinu og við sunnanverð-
an Faxaflóa. Um Vesturland og
vestanvert Norðurland fór hey-
skapur sæmilega vel af stað, en
varð erfiðari er lengra leið á
sumarið. í Eyjafjarðarsýslu gekk
heyskapurinn mjög sæmilega, en
afbragðsvel um alla Þingeyjar-
sýslu, Ncrður-Múlasýslu og
norðanverða Suður-Múlasýslu,
einkum í sveitunum á Héraði,
en á fjörðunum ,einum hinum
syðri, var veðráttan óhagstæðari.
Reykjanesbraut 8 í Ytri-
Njarðvík, en hann er skjala-
þýðandi hjá herlögreglu
varnarliðsins á Keflavíkur-
flugveíli.
Laust fyrir miðnætti á fyrra-
kvöld barst lögreglunni í Kefla-
vík tilkynning um það, að ekk-
ert hefði spurzt til Styrmis frá
því síðastliðinn sunnudag. Laust
eftir kl. 1 e. h. á sunnudaginn
hafði Styrmir sézt á gangi á veg-
inum milli Ytri Njarðvíkur og
Keflavíkur og virtist hann þá
vera á leið til Keflavíkur, einn
síns liðs.
Hann var í gráum ullarfrakka,
berhöfðaður og mun hafa verið
í gráum buxum og gráum jakka
undir frakkanum. Styrmir
Proppé er maður á bezta aldri.
Lögreglan í Keflavík grennsl-
aðist fyrir um ferðir Styrmis í
gær, en mun ekki hafa orðið
neitt ágengt. Eru þeir sem kynnu
að geta gefið upplýsingar um
ferðir hans síðdegis á sunnudag
eða síðar beðnir um að gera
Keflavíkurlögreglunni aðvart.
UmrœSufundur um róð-
hús Reykjavíkur á morgun
Aðalfundur Stúdentafélags Reykjavíkur
Varðark&e fi í Valhöll
i áug kl. 3-5 s.á.
STÚDENTAFÉLAG Reykjavíkur
hefur ákveðið að efna til umræðu
fundar um ráðhús Reykjavíkur,
en miklar umræður hafa að und-
anförnu verið um það mál. Hefur
félagið fengið sem frummælend-
ur Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóra og Sigurð Þórarinsson,
jarðfræðing.
Ráðhúsfundurinn verður hald-
inn á morgun kl. 3 e.h. í Sjálfstæð
Háskólafyrir-
lesliir
PRÓFESSOR Ármann Snævarr
flytur fyrirlestur um ættleiðingu
og ættleiðingarlöggjöf n.k. sunnu
dag 8. nóv. kl. 2 e.h. í hátíðasal
háskólans. Fyrirlestur þessi er í
fyrirlestrarflokki lagadeildar til
minningar um hálfrar aldar af-
mæli innlendrar lagakennslu og
er hinn siðasti í þeim flokki. Fyr-
irlesturinn fjallar um félagslegt
hlutverk ættleiðingar og löggjöf
og lagaframkvæmd um hana.
ishúsinu. Öllum er heimill aðgang
ur að fundinum, en aðgangseyrir
er kr. 10 fyrir þá, sem ekki hafa
stúdentaskírtemi.
Aðalfundur Stúdentafélagsins
verður haldinn í dag kl. 3 e.h.
í Sjálfstæðishúsinu og eru venju-
leg aðalfundarstörf á dagskrá.
BLÆRINN á götulífinu í
Reykjavík breytist mikið
þegar allt í einu fara að falla
hvítar snjóflyksur í stað þess-
ara tæru vatnsdropa, sem lát-
laust hafa dottið úr Iofti und-
anfarnar vikur. Þegar það
gerðist upp úr hádeginu í jver,
greip ljósmyndari blaðsins
myndavélina sína, skundaði
út fyrir dyrnar og tók þessa
fallegu snjómynd af Austur-
strætinu.
Dr. Kristiim farinn
til London
DR. Kristinn Guðmundsson,
sendiherra, fór til London í gær,
en hann hefur verið heima í leyfi
og til viðræðna síðan í vor og
skroppið utan nokkrum sinnum.
Síðast kom hann heim frá Hol-
lar.di um mánaðarmót október—
nóvember, en hann er einnig
sendiherra íslands í Hollandi eins
og kunnugt er.
Sláturfénaðiir
rýr um Suður-
Suðvesturland
EFTIR þeim fréttum, sem borizt
hafa frá sláturhúsunum, er slát-
urfénaður rýr um Suður- og Suð-
vesturland, en mjög sæmilegur
norðanlands og austan. í Árbók
landbúnaðarins segir að augljóst
sé að fénaði muni fjölga á Norð-
ur- og Austurlandi, bæði nautpen
ingi og sauðfé, en á Suður- og
Vesturlandi mun ekki verða mik-
il breyting á tölu búpenings. Hins
vegar muni verða erfitt að fá kýr
til að mjólka vel í vetur á Suður-
landsuadirlendi og í Borgarfirði,
nema því meira sé gefið af kjarn-
fóðri.
Fallegri og feitari síld
í Vestmannaeyjahöfn
VESTMANNAEYJUM, 6. okt. —
Síldveiðin hér í höfninni hélt
áfram í kvöld. Kl. 7—8 köstuðu
þrír bátar og munu hafa fengið
samtals 1400—1500 tunnur.
Stærsta kastið var 600—700 tunn-
ur.
Síldin sem veiddist í kvöld er
fallegri og feitari en sú sem
veiðzt hefur að undanförnu.
Tóku öll frystihúsin talsvert af
síld í beitu. Annars bíða hér
tveir bátar, Sjöstjarnan og Gull-
toppur, báðir n*eð fullfermi, sem
þeir ætla með til Hafnarfjarðar.
Gott útlit er fyrir áframhald-
andi veiði, því það er eins og síld
in gangi inn í höfnina á hverju
flóði. Ýmsir erfiðleikar eru þó á
að veiða hana, því höfnin er
þröng og næturnar vilja rifna.
Sumir bátarnir e»u líka með upp
gerðar nætur og ekki af sem
heppilegastri stærð. Sennilega
eru 6 eða 7 nætur nú notaðar
við þessar veiðar. — Bj. Guðm.