Morgunblaðið - 18.11.1959, Blaðsíða 16
16
MORCmSBLAÐltí
MiðviJíndagur 18. nóv. 1959
^J^srotinin
9
VlljU
15
óinum
EFTIR
RITA
I HARDINGE
„Af hverju ekki? Þegar hann
Sagði þetta, var hann lifandi eft-
irmynd móður sinnar — hann
brosti eins og Gloría hafði jafn-
an gert, þegar hún hafði komið
með betri uppástungu en Janet.
— Auðvitað getur hún það,
frænka. Hún getur fylgt mér í
rúmið og svo getur hún hitt þig
fyrir utan garðmúrinn. Þú ferð
auðvitað yfir hann. Það gerði
mamma alltaf.
Janet starði á hann. Henni
hafði ekki komið til hugar, að
Gloría hefði látið barnið vita, að
hún væri vön að laumast út til
að hitta Rupert prins. í svipinn
var hún hneyksluð, en svo varð
henni rórra, því að hún var sann
færð um, að systir hennar hefði
ekki gert það, ef eitthvað hefði
verið athugavert við þessa sam-
fundi. En ef Gloría hafði ekki
farið til Ruperts sem elskhuga
síns, hvers vegna hafði hann þá
sagt svo mörg ástarorð við hana
sjálfa? Og hvers vegna höfðu
þau þurft að hittast á þennan
hátt?
Helga viðurkenndi, að uppá-
stunga Páls væri bezt, og kvaðst
sér mundu verða miklu rórra í
skapi, ef hún fengi að fylgja
Janet til kastalans.
— Það er afar fjölmennt á göt
unum í kvöld, sagði hún. — Það
er öruggara, að við séum tvær
saman.
Eftir að Helga var farin með
Pál, beið Janet litla stund. Svo
læddist hún út í garðinn. Henni
veittist auðvelt að komast yfir
múrinn, því að hún fann eins kon
ar þrep í hann á einum stað.
Henni fannst líða óratími, unz
hún heyrði Helgu koma.
Hún tók undir höndina á Janet
og þær læddust út í myrkrið.
— Nú verðið þér að halda í
höndina á mér, sagði Helga. —
Þegar við mætum fólki, verðum
við að hlæja og syngja — og
við neyðumst til að dansa. En
gætið þess að missa ekki af mér.
Það leið ekki á löngu unz þær
komu í fjölmenni. Fólkið var sem
tryllt af gleði, áhrifin af því, er
Janet stóð á hallarsvölunum og
fullvissaði það um, að drottning
in væri á lífi, frisk og kát.
Karlar og konur á öllum aldri
og jafnvel börnin, þyrluðust um
götuna í áköfum dansi. Næstum
allir voru í bændabúningi og
flestir með skrítnar marglitar
grímur fyrir andlitinu. Götusal-
ar gengu um og seldu þær, og
Helga keypti tvær handa þeim.
Janet tók eftir því, að það dró
mjög úr hávaðanum, er þær nálg
uðust kastalann.
„Uss — ekki þessi læti! sögðu
róandi raddir. — Það má ekki
gera Svarta Rupert ónæði.
Þegar þær komu að dyrunum
í múrinn, bankaði Helga leyni-
merkið á þær, og þær biðu eftir
væntingarfullar, unz litlu speldi
var skotið frá og gróf rödd sagði
eitthvað fyrir innan.
Helga ýtti við Janet, og henni
tókst að stynja upp „Páll“ með
rödd, sem var nauðalík rödd syst
i ur hennar.
Varðmaðurinn hikaði ekki and
artak. Það var auðséð, að hann
vissi, hver gesturinn var. Dyrnar
opnuðust og þær flýttu sér inn
í stóran garð. Þar var aðeins
einn maður, og þótt skuggsýnt
væri, sá Jenet, að það var ung-
ur liðsforingi.
— Þetta er hættulegt, yðar há-
tign, hvíslaði hann.
—- Já, ég veit það, en ég var
neydd til að koma, flýtti Janet
sér að segja. — Hvernig líður
prinsinum?
Liðsforinginn brosti róandi.
Hann hafði aðlaðandi svip og
hreinskilnisleg augu.
— Sárin eru ekki alvarleg,
sagði hann. — Yðar hátign veit
auðvitað, að það var ekki ætlun-
in, að sprengjan dræpi neinn.
Hún átti aðeins að særa og
hræða, — vera bending xxm það,
að okkur er alvara.
Hann þagnaði, bersýnilega
smeykur um, að hann hefði ver
ið of lausmáll, því að Janet gat
ekki að sér gert að stara á hann.
Hún hafði tekið af sér grímuna,
og andlit hennar lýsti skelfingu,
8/ae&//eaé/
HÁR YÐAR ER í ÞÖRF FYRIR ECG...!
BLACK-HEAD EGGJA SHAMPOO
ER TÖFRASPROTINN SEM GERIR
HÁR YÐAR SKÍNANDI FAGURT!
Hið lecithin-auðuga og nærandi Black-Head
eggjarauðu shampoo gerir hárið lifandi og
mýkra og fegurra en nokkru sinni fyrr.
I»að er nú heimskunn aðferð að nota
Black-Head eggja shampoo til að yngja hárið
upp.
Hinar fegurstu konur vita þetta.
Viljið þér ekki reyna það líka?
Heildsölubirgðir: STERLING h.f. Sími 11977
......8/acÁ-//ear//
ÆG SHAMPOO
þegar henni skildist, að Rupert
og fylgismenn hans báru ábyrgð
á sprengjutilræðinu. Það var
þá þess vegna, að hann hafði
reynt að hindra, að hún æki með
konunginum, gegnum borgina.
Hann hafði ráðgert að særa og
hræða Michael til að ná yfirhönd
inni!
Janet langaði mest til að snúa
við og hlaupa sína leið.
Hvers vegna skyldi hún bjarga
manni, sem hafði sýnt hálfbróður
sínum svo miskunnarlaust til-
ræði? Hann var engu betri en
Michael. Þeir voru báðir samsær
ismenn, sem einskis svifust í bar
áttunni um hásætið. En svo varð
henni hugsað 'il, hvernig Rupert
hafði stokkið upp í vagninn og
krafist þess að aka með þeim,
þótt hann vissi, að sprengjunni
myndi verða kastað.
— Það gerði hann mín vegna,
hugsaði Janet, og hjarta hennar
sló á þann annarlega hátt, sem
hún vissi, að hún mátti ekki láta
eftir sér.
Hún bað liðsforingjann að
fylgja sér til Ruperts.
—• Farið á eftir honum, hvisl-
aði Helga. — Ég bíð hérna.
Þegar liðsforinginn stanzaði
úti fyrir dyrum, hikaði hún dá-
lítið, því að nú skildi hún fyrst
þá hættu, sem hún lagði sig í
með því að koma hingað og tala
við Rupert — manninn með
fríða, dökka andlitið, sem stöð-
ugt leitaði á hug hennar. Það
var mikil hætta á, að hann sæi í
gegnum hana, að hún væri ekki
Gloría, þó hún reyndi enn að
bera fyrir sig minniistap.
Henni datt í hug, að hún gæti
beðið þennan viðfelldna liðsfor-
ingja fyrir aðvörunarskilaboð til
Ruperts, en í því sneri hann sér
að henni og sagði: — Ég skal
fara á undan og fjarlægja verð-
ina, svo að enginn sjái yður í
ganginum.
Svo beið hún við dyrnar og
heyrði raddir að innan. Brátt
birtist liðsforinginn á ný.
— Nú er engin undankomu-
leið, hugsaði Janet og reyndi að
herða upp hugann, meðan þau
gengu eftir breiðum gangi, böð-
uðum í sterku Ijósi. Hún hafði
ofbirtu í augunum, er hann lauk
upp hurð og vék til hliðar.
Hann sagði ekkert, en rödd
Ruperts heyrðist kalla: „Gloría!“
Meðan hún gekk hikandi inn,
var hurðinni lokað að baki henn
ar, og nú var hún ein með
Svarta Rupert.
6. kafli.
Janet stóð andartak og reyndi
að ná valdi á tilfinningum sín-
um. Hún vissi, að þetta var
hættulegasta raunin, sem hún
hafði enn mætt í hlutverki
Gloríu.
Hún hafði búizt við að Rupert
lægi í rúminu, alvarlega særð-
ur, en hann stóð við arininn. Hið
eina, sem á honum sá, voru um-
búðir um höfuðið og að hann hélt
vinstri handleggnum stífum
þvert yfir brjóstið.
Eftir að hafa sagt þetta eina
orð „Gloría“, stóð hann kyrr og
horfði á hana, og hjarta hennar
titraði svo undarlega, þegar hún
horfði í þessi dökku, rannsakandi I
augu.
Allt í einu gekk hann til henn-
ar.
— Gloría, sagði hann aftur í
sama ákafa tón.
Hún hórfaði ofurlítið aftur á
bak og hélt annarri höndinni
fram undan sér eins og til að
verja sig.
Við verðum að ná Anda út I Komdu með hestinn þinn hingað,
ctrax, vatnið er stöougt að stíga. | SirrL Ef við getum losað um
stærsta steininn þá getur verið frá munanum. En ef skriðan fer
að skriðan fari af stað og losist í öfuga átt getur hlaðizt enn
meira fyrir munann.
— Nei, Rupert, sagði hún. —
Ég hef sagt þér, að ég man ekk-
ert rétt vel lengur. Það er eins
og allt sé í þoku og minnið
bregzt mér stöðugt.
Hann brosti, og hún fann, að
hvað sem Michael kynni að
segja, var ekkert illt til í þess-
um manni. Hann tók blíðlega
um handlegginn á henni og leiddi
har.a að stól við arininn.
— Seztu og vertu öldungis ró-
leg. Þú veizt, að þú hefur ekkert
að óttast af minni hálfu. Við
þekkjumst of vel til þess.
Það var innilegur hreimur í
rödd hans, og hún þorði ekki að
mæta augum hans, því að hún
vissi, hvað hún myndi lesa þar.
— Ég var neydd til að koma
til þín — byrjaði hún örvænt-
ingarfull.
......áparió yí>u.r hiaup
A ralili xnargra vcrzlrma ■
iMUtöl
i ÖIIUM
tttWHI
- Austurstiætn
SlJtltvarpiö
Miðvikudagur 18. nóvember
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05
Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik-
ar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón-
leikar. — 9.10 Veðurfr. — 9.20
Tónleikar).
12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir
og tilkynningar).
12.50—14.00 „Við vinnuna": Tónleikar
af plötum.
15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00
Fréttir og veðurfr.).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Utvarpssaga barnanna: ..Siskó á
flækingi" eftir Estrid Ott; VI.
lestur (Pétur Sumarliðason kenn-
ari).
18.55 Framburðarkennsla í ensku.
19.00 Tónleikar.
19.30 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson
cand. mag.).
20.35 Með ungu fólki (Guðrún Helga-
dóttir).
21.00 Finnsk þjóðlög. Finnskir lista-
menn flytja.
21.30 Framhaldsleikrit: „Umhverfis
jörðina á 80 dögum" gert eftir
samnefndri sögu Jules Verne; II.
kafli. — Leikstjóri og þýðandi:
Flosi Olafsson. Leikendur: Róbert
Arnfinnsson, Erlingur Gíslason,
Þorsteinn O. Stephensen, Karl
Guðmundsson, Herdís Þorvalds-
dóttir, Haraldur Björnsson, Krist
ján Jónsson, Baldvin Halldórsson,
Flosi Olafsson, Helga Bachmann,
Bryndís Pétursdóttir, Helgi Skúla
son og Þorgrímur Einarsson.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Leikhúspistill (Sveinn Einarsson).
22.30 Djassþáttur á vegum Jazzklúbbs
Reykjavíkur.
23.10 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 19. nóvember
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05
Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik-
ar — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleik-
ar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20
Tónleikar.
12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir
og' tilkynningar).
12.50—14.00 „A frívaktinni" — sjó-
mannaþáttur (Guðrún Erlends-
dóttir).
15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00
Fréttir og veðurfregnir).
18.25 Veðurfregmr.
18.30 Fyrir yngstu hlustendurna (Mar-
grét Gunnarsdóttir).
18.50 Framburðarkennsla í frönsku.
19.00 Tónleikar.
19.30 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Listin, ströndin og stjörn-
umar (Olafur Gunnarsson sál-
fræðingur).
21.00 Einsöngur: Þuríður Pálsdóttir
syngur við undirleik Fritz Weiss-
happels.
a) Þrjú lög eftir Pál Isólfsson: „I
skein sól," „Söknuð" og „Söng-
ur bláu nunnanna".
b) „Svanasöngur á heiði" eftir
Sigvalda Kaldalóns.
c) „Vögguljóð" eftir Sigurð Þórð-
arson.
d) „Den farende svend" eftir Karl
O. Runólfsson.
21.20 Upplestur: Andrés Björnsson les
ljóð eftir Hannes Pétursson.
21.30 Músíkvísindi og alþýðusöngur;
II. erindi. (Dr. Hallgrímur Helga-
son).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Smásaga vikunnar: „Loðfeldur-
inn“, eftir Hjalmar Söderberg í
þýðingu Andrésar Kristjánssonar
fréttastjóra. (Jón Aðils leikari).
22.25 Sinfónískir tónleikar: Sinfónía
nr. 10 op. 93 eftir Dimitrij Sjosta
kóvitsj. Tékkneska fílharmoníu-
hljómsveitin leikur. Stjórnandi:
Karel Ancerl.
23.10 Dagskrárlok.