Morgunblaðið - 18.11.1959, Qupperneq 20
V EÐRIÐ
NA kaldi — léttskýjað, kólnandi.
JHorpitiMitft
257. tbl. — Miðvikudagur 18. nóvember 1959
Framherjar í Berlín
Sjá bls. 11
Alexandrov sendiherra, Mikojan, Kugenkov blaðafulltrúi rússneska sendiráðsins og Jónas H. Haralz.
Myndin er tekin á Keflavíkurflugvelli I gærmorgun. (Sjá forsíðu)
Ólga innan banda-
lags leikfélaga
MIKIL ólga er nú ríkjandi inn-
a» Bandalags íslenzkra leikfé-
laga. Hefur komið upp ágreining-
ur milli stjórnar bandalags þessa
og framkvæmdastjóra þess,
Sveinbjörns Jónssonar. Hefur
þetta leitt til þess að stjórnin
samþykkti á fundi sínum eigi alls
fyrir löngu að víkja Sveinbirni
án tafar frá störfum. Tvö leikfé-
lög innan vébanda þessa sam-
bands hafa ákveðið að láta mál
þetta til sín taka og hafa boðað
til fundar fulltrúa aðildarfélaga
á sunnudaginn kemur í Rvík.
Ágreiningurinn milli fram-
kvæmdastjórans og stjórnar
Bandal. ísl. leikfélaga, mun hafa
risið út af leikför þeirri um land-
ið ,er stjórnin ákvað að efna til
í sumar er leið.
Svo djúpstæður var ágreining-
urinn milli framkvæmdastjórans
og stjórnarinnar, að stjórnin
ákvað að halda sérstakan stjórn-
arfund um málið.
ekki gert kleift að skila af sér
starfinu, t.d. fjárreiðum sam-
bandsins, en það nýtur ríkis-
styrks er nemur 160,000 krón-
um. Hvorki gengur nú eða
rekur um starfsemi skrifstofunn-
ar, þó annatími sé mikill hjá
leikfélögunum úti á landi. Mun
stjórnin hafa hug á að ráða nýj-
an framkvæmdastjóra.
Tvö sambandsíélög, Leikfélag-
ið í Kópavogi og UMF Aftureld-
ing, hafa ákveðið að láta mál
þetta koma fyrir fulltrúafund í
bandalaginu. í gærdag boðu þau
fundinn, sem haldinn verður á
sunnudaginn kemur hér í Reykja
vík.
í gærkvöldi hringdi Sigurður
Grétar Guðmundsson, formaður
Leikfél. Kópavogs, og bað hann
Mbl. að geta þess að nafn félags-
ins væri notað í fullkomnu heim-
ildarleysi í sambandi við þetta
fundarboð.
Almenn en misjöfn síldveiði
STÓÐUGT fjölgar bátunum á
síldveiðunum hér sunnanlands og
eru þeir nú farnir að skipta tug-
um. I fyrrinótt hafði veiðin ver-
ið almenn, en afli bátanna mjög
misjafn.
Fréttaritari Mbl. í Sandgerði
símaði að þangað hefðu komið í
gærdag 11 bátar og höfðu þeir
verið með alls um 1450 tunnur
Þrír bátar gerðir
út frá Stokkseyri
STOKKSEYRI, 17. nóv: — Þrír
bátar verða gerðir út á vertíð
héðan frá Stokkseyri. Þeir eru
nú allir í slipp, og er verið að út-
búa þá á veiðarnar. Engir trillu-
bátar hafa stundað hér haust-
róðra, og því enga nýja soðningu
að fá. Óttazt er að erfiðlega muni
ganga að ráða menn á vertíðína,
ef ekki fást Færeyingar í skip-
rúmin eins og í fyrra — en það
mun óráðið enn, hvort þeir fást.
Byggingarframkvæmdir eru hér
með mesta móti. Eru 5 íbúðarhús
í smíðum, og að minnsta kosti 2
þeirra vel á veg komin. Margir
verkamenn héðan stunda vinnu á
Selfossi. Vegna þess, hve sumar-
ið, einkum seinni partur þess, var
erfitt, og heyfengur lítill og lé-
legur, var fénaði fargað með
mesta móti í sláturtíðinni í haust.
Hér er frostlaust og útkomulaust
í 'dag, og snjór hefur ekki fallið
hér að nokkru ráði, það sem af
er haustinu.
síldar. Hafði Víðir II fengið 450
tunnur í hringnót sína, Rafnkell
sem líka var með hringnót hafði
fengið 400 tunnur. Hæstu rek-
netabátar voru með rúmlega 100
tunnur.
í Grindavík hafði afli bátanna
verið 25—60 tunnur,
★
HAFNARFIRÐI. — Bátarnir héð-
an öfluðu ailsæmilega í gær, en
þó var veiði mjög misjöfn eins
og fyrri daginn. Síldina fá þeir
í Skerjadýpinu (norðanverðu) og
í Grindavíkursjónum. Stendur
hún mjög djúpt og kemur yfir-
leitt ekki upp fyrr en með morgn
inum. Þetta er ágætis síld, sem
öll er söltuð eða fryst, og hefir
verið mikil vinna á söltunarstöðv
um hér síðustu daga og oft unn-
ið fram á nótt.
í gær komu þessir bátar inn
með síld: Fagriklettur 48 tunnur,
Fiskaklettur 66, Hafnfirðingur
80, Flóaklettur 20, Stefnir 32,
Reykjanes 85, Fákur 35, og Haf-
björg og Guðbjörg voru með eitt-
hvað yfir 100 tunnur. — Bátarn-
ir fóru út aftur í gær. — G.E.
★
AKRANESI: — Rúmar 14 hundr-
uð tunnur af síld bárust hingað
á land í dag. Eru það hundrað
tunnur til jafnaðar á bát. Allt
voru það reknetjabátar sem lönd-
uðu. Aflahæstu bátarnir voru
þessir: Bjarni Jóhannesson með
216 tunnur, Sæfari 184 og Höfr-
ungur 145 tunnur. Átta hundruð
og fimmtíu tunnur komu til H.
B. og Co. Síldin er ýmist söltuð
eða fryst. Hæstir trillubátanna
hér í gær voru Bolli 1860 kg ó-
slægt, Hafþór 1400 kg og Blíðfari
1350 kg, slægt.
★
KEFLAVÍK. — Til Keflavíkur
komu 17 bátar í dag með 1538
tunnur síldar. Hæstur var Andri
með 147 tunnur, næstur Guð-
finnur með 133 og Faxavík var
með 117 tunnur. Aðrir höfðu tals-
vert minna og misjafnt. Bátarnir
fóru út aftur í kvöld.
ÍSAFIRÐI, 17. nóv. •— Átta stórir
bátar eru nú byrjaðir róðra frá
ísafirði. Aflinn er góður, allt upp
í 10 tonn í róðri af vænum fiski.
Innan skamms eru væntanlegir
tveir stórir bátar sem smíðaðir
eru í Austur- og Vestur- Þýzka-
landi. Er annar þeirra 75 tonn, en
hinn 90 tonn. ísborg er að landa
Vill láta endur-
skoða kjötmatið
Á F U N D I heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur er haldinn var fyrr
í þessum mánuði, var rætt nokk-
uð um mál er snertir kjöt það
sem á boðstólum er. í sambandi
við þessar umræður samþykkti
nefndin að fela borgarlækni að
vinna að því að lögin um kjöt-
mat og fleira frá 1949, verði nú
tekin til endurskoðunar.
Á þessum fundi hafði stjórnin,
en formaður hennar er Sigurður
Kristinsson í Hafnarfirði, sam-
þykkt að víkja Sveinbirni Jóns-
syni þegar úr starfi. í kjölfar
þessarar samþykktar hafði svo
stjórnin gengið fast fram um
framkvæmd uppsagnarinnar. því
þegar Sveinbjörn kom í skrif-
stofu sambandsins næst á eftir
þessum fundi, þá gengu hans
lyklar ekki að þar og leitaði
hann lögregluaðstoðar við að
komast inn á skrifstofuna. Þá
hafði símanum á skrifstofunni
verið lokað og var Sveinbirni
núna um 100 tonnum af fiski, og
Sólborg er væntanleg í kvöld
með 260 tonn af karfa frá Ný-
fundnalands-miðum. Rækjuveið-
ar hafa gengið vel, og tók ný
verksmiðja til starfa nú fyrir
skömmu. Eigandi hennar er Óli
Ólsen. Rækjuverksmiðjur eru þá
orðnar þrjár á ísafirði.
Niðurskurður
Eins og skýrt var frá í blaðinu
fyrir nokkru, var skorið niður
allt fé á bænum Múla í Naut-
eyrarhreppi, vegna mæðiveikitil-
fella. Nú hefur verið skipaður
niðurskurður á öllu fé á 2 næstu
bæjum, í Gervidal go á Laugar-
bóli. Er það alls um 500 fjár, sem
niðurskurðurinn nær til. — G.K.
Bóndi slasast
í heyhlöðu
ÞYKKVABÆ, 17. nóv: — Guðni
Sigurðsson bóndi í Háarima hér
í Þykkvabænum féll á mánu-
dagskvöldið ofan af heystabba og
niður á hlöðugólfið með þeim af-
leiðingum að hann missti allan
mátt fyrst eftir fallið. Virðist
hann nú vera að jafna sig, þó
enn sé hann mikið veikur. Hefur
ekki verið unnt að kanna meiðsl
hans. Ekki hefur verið hægt að
færa hann úr öllum þeim fötum,
sem hann var í þá er hann féll.
Guðni, sem er hraustmenni hið
mesta, hefur miklar þrautir í öll-
um líkamanum. Kom hann á bak-
ið niður á hlöðugólfið, en í fall-
inu hafði háls og herðar slegizt
í gluggakistu. Hann var einn í
hlöðunni er hann féll. Var hann
að leysa hey með heykróki og
hafði skyndilega losnað um hann.
Fallið ofan af heystabbanum og
niður á hlöðugólfið er 3—5 metr-
ar. Guðni í Háarima er 57 ára
að aldri.
Fjarðarheiði
þungfær
SEYÐISFIRÐI, 17. nóv. — Yta
fór yfir Fjarðarheiði nú um helg-
ina, og síðan hefur verið fært
yfir heiðina á bílum með drif á
öllum hjólum, en færðin er mjög
þung. Hér er nú austan átt og
rigning.
Afmœlissýning til heiðurs
Svavari Cuðnasyni
Niðurskurður 500 fjár
i Nauteyrarhreppi
Fjölmenn minningarat-
höfn í Húsavíkurkirkju
HÚSAVÍK, 17. okt. — í dag fór
fram í Húsavíkurkirkju minning-
arathöfn um mennina tvo, sem
fórust með vélbátnum Maí 22.
október sl. Var þetta einhver fjól
mennasta minningarathöfn, sem
hér hefur verið haldin, enda voru
báðir mennirnir, þeir Kristján
Stefán Jónsson og Aðalsteinn
Árni Baldursson, mjög vel látnir
og dugandi sjómenn. Þeir voru
báðir Húsvíkingar.
Sóknarpresturinn, sr. Friðrik
A. Friðriksson, flutti minningar-
ræðu. Þá voru flutt tvö frum-
samin ljáð eftir Valdemar Hólm
Hallstað og Árna Jónsson. Karla-
kórinn Þrymur og Kirkjukór
Húsavíkur sungu, Haraldur Sig-
urgeirsson frá Akureyri lék á
orgel og Jóhann Konráðsson frá
Akureyri söng.
Athöfnin var öll hin hátíðleg-
asta og mjög fjölmenn. Kom fólk
bæði frá Akureyri og úr nágrenni
Húsavíkur, til að vera viðstatt.
I. Þ.
Stærsta íbúðarhús
á Akranesi
AKRANESI, 17. nóv.: — Fyrir
rúmri viku var byrjað að grafa
fyrir fjölbýlishúsi við Höfða-
braut. Grunnurinn er 400 ferm.
að flatarmáli, og ofan á hann
verða byggðar 5 hæðir með 16
íbúðum. Fjölbýlishúsið byggir
Fell hf. á vegum Byggingarfé-
lags verkamanna á Akranesi. —
Hið nýja fjölbýlishús verður
stærsta íbúðarhús, sem enn hef-
ur verið reist á Akranesi.
í KVÖLD klukka* 8,30 verður
opnuð málverkasýning í Lista-
mannaskálanum, sem efnt er til
í sambandi við 50 ára afmæli
Svavars Guðnasonar listmálara.
Mun sýningin standa yfir næstu
daga.
Á þessari sýningu, en listamað-
urinn hefur sjálfur valið verkin,
er sýndur ferill Svavars á mál-
arabrautinni frá því hann 25 ára
gamall fór að mála myndir. Eru
elztu myndirnar á sýningunni
meðal 50 fyrstu mynda hans.
Myndir þessar eru frá Snæfells-
nesi. Eru þær og hinar næstu á
eftir í venjulegum naturalstíl, en
1936 hnígur stíll hans æ meira til
abstraktforms, en Svavar er og
hefur verið einn helzti abstrakt-
málari meðal ísl. myndlistar-
manna. Margar myndanna eru
það sem hann kallar Fönsun, sem
er ísl. þýðing á orðinu komposi-
tion. Margar þessara mynda bera
nýtízkuleg heiti svo sem þota, og
„Rosabaugur um gerfitunglið.
Önnur bera rómantískari nöfn.
svo sem Draumur spætunnar,
Madonna frá Lækjarnesi og
svona mætti fleiri nöfn nefna.
Hinn kunni listmálari Gunn-
laugur Scheving var í sýningar-
salnum í gærdag, og kvað hann
þessa sýningu á verkum Svavars
vera mjög góða sýningu. Ekki
var búið að koma öllum myndun-
um upp, en víst er að af þeim
má ráða listferil annars elzta
abstrakt málara íslendinga.