Morgunblaðið - 27.11.1959, Blaðsíða 2
2
MORGVJSBr.AÐlÐ
Föstudagur 27. nóv. 1959
Líkur til að viðræður hefjist um
verðlagsmál landbúnaðarvara
Landbúnabarráðherra beitir sér
fyrir viðræðum
Atkvceðagreiðslu um stöðvun á sölu
mjólkur að Ijúka
EKKERT er enn vitað hvern-
ig Ieysast muni úr verðlags-
málum landbúnaðarins, sögðu
þeir Sæmundur Friðriksson,
framkvæmdastjóri Stéttar-
sambands bænda, og formað-
ur þess, Sverrir Gíslason í
Hvammi, er blaðið hafði tal
af þeim í gær — hins vegar
munu mál þessi skýrast næstu
daga.
Um ástandið, eins og það er í
dag, fórust þeim orð á þessa leið:
— í tilefni af bráðabirgðalög-
unura um verðlag á landbúnaðar-
afurðum, var haldinn aukafull-
trúafundur í Stéttarsambandinu
30. sept. sl. Þar var samþykkt til-
laga um að stjórn sambandsins
reyndi fyrst að ná samkomulagi
við ríkisstjómina um rétt bænda-
stéttarinnar, en ef það tækist
ekki, þá að undirbúa sölustöðvun
á mjólk á 1. mjólkursölusvæði,
þ. e. í Vestur-Skaftafellssýslu,
Rangárvallasýslu, Árnessýslu,
Gullbringu- og Kjósarsýslu,
Borgarfjarðarsýslu, Mýrarsýslu,
Snæfellsnessýslu og Dalasýslu.
ATKVÆÐAGREIÐSLA
UM SÖL,USTÖ»VUN
Eftir að stjórn sambandsins
hafði fengið þau svör hjá rík-
isstjóminni, að engra breyt-
inga væri von í þessum efn-
nm, ákvað hún að láta fram
fara atkvæðagreiðsiu um sölu-
stöðvun á áðumefndu svæði.
Snemma í þessum mánuði
Gjafir til þríbur-
anna
ÞRÍBUKAFÆÐINGIN á
Uandspítalanum sl. föstudag
hefir vakið mikla athygli, og
hafa menn fylgzt vel með
fréttum blaðsins af líðan móð
ur og barna, sem heilsast ljóm
andi veL
Þegar kennarar Langholts-
skólans hér í bæ voru að
drekka kaffið sitt í gærmorg-
bn, kom fram sú hugmynd,
þvort ekki væri tilvalið að
Skjóta saman í smá-peninga-
gjöf handa þríburunum. —
Hlaut sú tillaga þegar góðar
undirtektir — og söfnuðust
þarna á fáeinum mínútum 550
krónur í „þríburasjóðinn".
Var gjöfin afhent í gærkvöldi.
Þá bárust móðurinni í gær
£00 kr. frá einhverjum, sem
ekki vildi láU nafns síns get-
jð. Einnig bárust henni frá
vandalausum 15 bleyjur, 4
treyjur, tvennar sokkabuxur
og 3—4 barnabuxur.
(7. og 8. nóv.) voru svo send
kjörgögn til allra búnaðarfé
laga á svæðinu, sem r.'.nnu
vera 80 talsins. Atkvæða-
greiðsla fór fram á tímabilinu
20.—25. nóv. og mun nú vera
u. þ. b. að ljúka, en á nokkr-
um stöðum hefur atkvæða-
greiðslan dregizt vegna stop-
ulla póstsamgagna. Atkvæði
munu verða talin í skrifstofu
Stéttarsambandsins. Þr.ðan,
sem frétxt hefur, er kjörsókn
góð og verði hún jákvæð frá
sjónarmiði Stéttarsambands-
ins, sem búist er við, kemur
til kasta stjóraar þess og full-
trúa þess á umræddu svæði,
að ákveða hvort til sölustöðv-
unar muni koma, þegar séð
verður hveraig rikisstjórnin
og Alþingi tekur á þessum
málum, sem hér hefur veriS
deilt um.
Landbúnaðarráðherra, Ingólf-
ur Jónsson, hefur óskað eftir að
fram færu óformlegir viðræðu-
fundir milli fulltrúa frá stéttun-
um, sem sæti eiga í verðlags-
nefnd (hinni svonefndu 6 manna
nefnd) til þess að kanna hvort
líkur séu til að nefndin geti hafið
störf að nýju.
Þess má að lokum geta, að full-
trúar neytenda lögðu niður störf
í nefndinni, er ósamkomulagið
varð. Nú mun í ráði að þeir, eða
aðrir í þeirra stað, munu sitja
hina óformlegu fundi, sem fyrr
er um rætt.
Herferð
í DESEMBER eykst umferð-
in í Reykjavík jafnan mikið
og fer stöðugt vaxandi fram
til jóla. Lögreglan gerir að
vanda ráðstafanir til þess að
fyllsta öryggis sé gætt og
þröngin verði ekki allt of mik-
Viðræður neyt-
endo og bændn
í dng
I gærkvöldi sneri Mbl. sér
til Ingólfs Jónssonar, landbún-
aðarráðherra og innti hann
eftir því hvort viðraeður væra
framundan milli fulltrúa neyt
enda og bænda um verðlags-
mál Iandbúnaðarafurða.Skýrði
ráðherrann svo frá, að full-
trúar frá þeim samtöknm, er
áttu aðild að sexmannanefnd-
inni hefðu verið tilnefndir í
viðræðunefnd og fari fyrsti
viðræðufundur þessara aðila
væntanlega fram í dag.
Er hér aðeins um óformleg-
ar viðræður að ræða.
Sigurjón Signrðsson
Mbl. átti í gær tal við lög-
reglustjórann, Sigurjón Sig-
urðsson, og Ólaf Jónsson, full-
trúa, í tilefni þessarar herferð
ar, sem á að auka öryggið í
umferðinni og bæta umferðar
menninguna.
Lögreglustjóri sagði, að um-
ferðarnefnd og lögreglan hefði
undirbúið þessa breytingu
eins og kostur hefði verið.
Fyrst og fremst hefði verið
rekinn áróður fyrir stefnuljós-
unum með aðstoð blaðanna.
0^^0+0\0'0*0»&*0** 0-0T010*0 -0H
Ljósin á að nota, þegar
skipt er um akrein,
ekið af stað frá brún ak-
brautar,
ekið er út úr hringtorgi.
Þessar reglur verða aldrei
brýndar of oft fyrir ökumönn-
um — og svo jafnframt það,
að stórhætta getur stafað af
því að ljósin séu notuð rangt.
Daglega munu milli 20 og
30 lögregluþjónar fylgjast
með umferðinni á götum bæj-
arins. En, þegar líður fram
desembermánuð verður götu-
lögreglan aukin og kvaðst lög-
reglustjóri vænta þess, að öku
menn kynntu sér reglurnar til
hlítar.
Þá gat hann þess, að í næstu
viku yrði sett upp fyrstu nýju
stöðvunarmerkin á nokkrum
gatnamótum í bænum. Þessi
merki boða algera stöðvunar-
skyldu þ. e. a. s.: Bifreiða-
stjórum ber að stöðva farar-
tækið alveg við merkið, enda
þótt engin umferð sé í veg-
inum fyrir því að bifreiðin
haldi áfram yfir gatnamótin.
Ólafur Jónsson skýrði þá
svo frá, að nú hefði tekizt að
hafa hendur í hári nær allra
þeirra, sem svikizt hefðu um
að koma með bíla sína til
til aukinnar umferðarmenningar
iL Að þessu sinni er það líka
fleira, sem kemur til greina.
Nú verður nýju umferðar-
lögunum fylgt út í æsar og
aðaláherzlan verður lögð á að
ökumenn noti stefnuljós — og
noti þau rétt. Um mánaðamót-
in verður eftirlitið hert veru-
lega og allir þeir ökumenn,
sem staðnir verða að því að
nota ekki, eða misnota stefnu-
ljósin, verða kærðir til saka-
dómara.
Síðan hefði umferðamefnd
sent um 4 þúsund atvinnubif-
reiðastjórum sérstakt bréf,
þar sem nýju lögin voru
kynnt rækilega og brýnt fyrir
þeim að fylgja reglunum í
hvívetna. Síðan hefðu lög-
regluþjónar dreift miðum með
fyrirmælum um það hvernig
stefnuljósin skyldu notuð með
al bifreiðastjóra, sem götu-
lögreglan hefði séð misnota
stefnuljósin.
skoðunar. En rekist lögreglan
á-óskoðaða bíla á götum bæj-
arins verða númeraskiltin um-
svifalaust tekin af þeim á
staðnum, sagði Ólafur. Ann-
ars sagði hann, áð allir þeir,
sem ekki hefðu enn mætt til
skoðunar með bíla sína, hefðu
verið kærðir til sakadómara
og vonandi væri þetta stríð
lögreglunnar við þá, sem
trassað hafa að láta skoða, á
enda að sinni.
— Bang-Jensen
Framh. af bls. 1.
listann jafnframt því sem hann
bar fram harðorðar ásakanir á
ýmsa háttsetta starfsmenn sam-
takanna og nefndarinnar. Síðar
var listinn brenndur á þaki aðal-
stöðva SÞ í New York. — Bang-
Jensen var í 10 ár starfsmaður
danska sendiráðsins í Washing-
ton, áður en hann hóf starf sitt
hjá Sameinuðu þjóðunum árið
1949. —
Dagskrá Alþingis
í dag var boðaður fundur í
neðri deild Alþingis, kl. 1,30.
Fjögur mál eru á dagskrá.
L Skemmtanaskattsviðauki,
frv. — 1. umr.
2. Dragnótaveiði í fiskveiði-
landhelgi, frv. — 1. umr.
3. Lántökuheimild til hafnar-
framkvæmda, frv. — 1. umr.
4. Jarðræktar- og húsagerðar-
samþykktir í sveitum, frv. —
L umr.
Nýslegið hey galt■
að í Hvolhreppi
í FYRRADAG var verið að
galta nýslegið hey á einum
bæ í Hvolhreppi í Rangár-
vallasýslu, og mun hafa náðst
töluvert upp af heyi. Þykir
það tíðindum sæta, komið
fram í nóvemberlok.
Blaðið átti í gær tal við Pál á
Efra-Hvoli, oddvita sveitarinnar,
og spurði hann um heyskap og
heyfeng bænda þar eftir þetta
mikla rigningarsumar. Sagði
hann að ekki hefði komið heill
þurrkdagur síðan í júlí og sum-
arið því verið ákaflega erfitt
bændum. Forðagæzlumaður sveit
arinnar, Hermann Sveinsson,
bóndi á Kotvelli, hefur farið um
sveitina og rannsakað ástandið.
Samkvæmt skýrslu hans er hey-
magn sveitarinnar 20982 kúbik-
metrar, en fóðurþörfin eftir
gripafjölda 19288 kúbikmetrar.
A því að vera 1694 kúbikmetra
afgangur af heildarmagni í sveit-
inni. Þó þessi heyfengur sé yfir
það sem nauðsynlegt er talið, er
ljóst að magnið getur minnkað,
þar sem svo margir hafa orðið
að setja hey úti og undir striga
og þar af leiðandi geta komið
fram skemmdir á því seinna í
vetur.
Fjallademburnar einkum slæmar
Ástandið eftir sumarið er ákaf-
lega mismunandi í Hvolhreppi,
og fer það mikið eftir hve lið-
margir bændurnir eru og hve
mikið af stórvirkum verkfærum
þeir hafa haft. Hjá sumum eru
ástæðurnar bágar. Þó í sömu
sveit sé, getur verið undarlega
misjöfn veðrátta, og verða þeir
sem í fjallshlíðunum búa ver úti,
vegna hinna svokölluðu fjalla-
Framh. á bls. 23.
Talsverðar skemmdir
á Norðlendingi
Ekki hægt að kanna skipið að innan
fyrir olíu
FRÉTTIR bárust Mbl. í gær frá
Þórshöfn um togarann Norðlend-
ing, sem strandaði fyxir stuttu
við Færeyjar.
Skoðunarmaður Lloyds skoðaði
skipið í fyrradag, en endanleg
skoðun getur ekki farið fram fyrr
en eftir eina viku, því hauðsyn-
legt er að hreinsa olíu af öllu
skipinu áður en hægt er að sjá
hvernig það er að innan. Að utan
sést að endurnýja verður 8 plöt-
ur, gat er á einni plötu við kjöl-
inn og 200 naglar hafa losnað,
en sjálfur kjölurinn hefur ekki
skemmzt mikið. Nokkur þungi
högg hafa þó lent á honum,
svo að einhverjar skemmdir geta
hafa orðið á honum að innan.
Allir olrugeymarnir leka og tog-
arinn hefur misst mikla olíu.
Allur ísinn, og það sem eftir var
af olíunni, sem nemur 16 tonnum,
var látið í færeyskaui togara.
ý Björgunarlaun.
Færeyska skútan Minnie, sem
dró Norðlending af skerinu,
krefst bankatryggingar, sem nem
ur 220 þúsund dönskum krónum.
Listí „sloifundi sjómonna"
Að marggefnu tilefni vil ég
taka það fram, að ég er EKKI
stuðningsmaöur B listans við
væntanlegt stjórnarkjör í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur og
tel það enga lausn á vanda-
málum sjómannastéttarinnar
að leiða verkfæri herranna í
Tjarnargötu 20, til valda inn-
an hennar.
Ég vil eindregið skora á
alla starfandi sjómenn að
fylkja sér um A-listann —
lista núverandi stjórnar.
Pétur Sigurðsson.
Björgunarmálíð kemur fyrir rétt
í fyrsta sinn 15. desember.
Norðlendingur sigldi sjálfur til
Skálar og lak lítið á norðurleið-
inni. Björgunarskipið Þetis, sem
einnig var á norðurleið, var beð-
ið um að fylgjast með því, en
engin hjálp var nauðsynleg. —
Skipshöfninni líður ágætlega og
sendir kveðjur heim.
Skipstjórinn á Norðlendingi
getur ekki gefið neinar upplýs-
ingar um strand skipsins, fyrr
en sjópróf fer fram.
Skákmót
Keflavíkur
KEFLAVIKURFLUGVELLI, 25.
nóv. — Sex umferðir hafa verið
tefldar í Skákmeistaramóti Kefla
víkur og er staðan í meistara-
flokki þannig að efstir og jafnir
eru Páll G. Jónsson og Skúli
Thorarensen með 3 vinninga
hvor. Ragnar Karísson hefur hlot
ið 2% vinning. Borgþór H. Jóns-
son 2 vinninga og Hörður Jóns-
son líiivinning.
í 1. flokki hefur Marteinn Jóns
son hlotið 4 vinninga úr 4 skák-
um og í n. flokki hefur Pálmar
Breiðfjörð hlotið 6 vinninga.
Teflt er á þriðjudögum og föstu
dögum að Vík.
BÞ.
EISENSTAÐT, 26. nóv. (Reuter).
Á sl. 24 klukkustundum óðu sex
Ungverjar yfir Neusiedler-vatnið
á landamærum Austurríkis, sem
er grunnt, og báðu um pólitískt
hæli í Austurríki.