Morgunblaðið - 27.11.1959, Side 8

Morgunblaðið - 27.11.1959, Side 8
8 MORCUNBLAfílfí Fosíudagur 27. nóv. 1959 (Jtvarpið 1 GÆE hafði Ríkisútvarpið boð inni fyrir starfsmenn stofnunar- innar og gesti í tilefni af því, að útvarpið hefur fengið inni í nýj- um húsakynnum að Skúlagötu 4. Var þar saman kominn fjöldi manna og mátti sjá að gestirnir höfðu mikinn áhuga á því að skoða það hús, sem hefúr stöð- ugra og fjölbreyttara samband við fólkið í landinu en nokkurt ennað hús, eins og útvarpsstjóri komst að orði í ræðu sinni. í ræðu sinni sagði Vilhjálmur I>. Gíslason ennfremur, að húsnæði Ríkisútvarpsins í Skúla- götu 4 væri á fjórum hæðum og væri það tvöfalt að stærð móts við það, sem utvarpið hefði áður haft. „Það hefur að vísu verið okkur Ijóst frá upphafi, að þetta er ekki það útvarpshús, sem við hefðum sjálfir viljað reisa“, hélt útvarpsstjóri áfram. „Við hefðum viljað hafa enn rýmra um okkur, gjarnan fleiri stúdíó og einn stærri sal og meira pláss fyrir ýmsa þjónustu við hlust- endur okkar og viðskiptamenn. Við erum hér í sambýli við rann- sóknarstofnanir sjávarútvegsins, sem reist hafa þetta myndarlega hús, að nokkru með lánsfé frá útvarpinu. Innréttingu hefur ver- ið hagað eftir óskum og þörfum útvarpsins, eftir því sem húsið leyfði, en það var reist eftir að við komum hér við sögu.“ Lýsing hússins Síðan lýsti Vilhjálmur Þ. Gísla son hinum nýju húsakynnum út- varpsins og skýrði frá smíði þess, innréttingu o. fl. Hann sagði m. a.: „Um alla innréttingu og hljóð- einangrun fyrir útvarpið og all- an vélabúnað hafa séð erlendir verkfræðingar, ásamt verkfræð- ingi útvarpsins og húsameistara ríkisins. Þessi litla útvarpsstöð lítillar þjóðar er því nú í upp- hafi eins vel úr garði gerð að nýtízkutæknibúnaði og þær stöðv ar, sem bezt eru á vegi stadd- ar’ . . . Hér í húsinu eru nú 7 stúdíó auk jafnmargra sam- byggðra vinnuherbergja og marg ar aðrar vinnustofur eru til dag- skrárgerðar og annarra nauð- synlegra starfa. Flutningarnir hafa gengið vel og aldrei fallið niður útvarp en eðlilega þarf að prófa sig áfram um sumt. Húsið hefur Halldór Jónsson arkitekt teiknað, yfirsmiður hef- ur verið Indriði Níelsson, innrétt- ingar gerði Ragnar Emilsson arkitekt á vegum húsameistara ríkisins Harðar Bjarnasonar, en Hjalti Geir Kristjánsson hefur séð um húsbúnað, dr. Jordan um hljóðbúnað, verkfræðingarnir Wittenbruch og Milster, ásamt Stefáni Bjarnasyni, sáu um áætl un, smíði og uppsetningu véla, sem eru frá Telefunken. Fjöldi manna hefur annars lagt hönd að þessari flóknu smíð og skal þeim öllum þakkað og einnig þökkuð góð samvinna við dr. Þórð Þorbjarnarson, sem við höfum helzt átt við að skipta af húseiganda hálfu“. Samband við alla þjóðina Síðan skýrði útvarpsstjóri nokkuð frá starfsemi útvarpsins og sagði, að dagskráin væri alfa og omega þessa húss. Hann bætti við: „Líklega er úr engu húsi í þessu landi eins stöðugt og fjöl- breytt samband við eins marga 99 túlkur fortíðarinnar spegill samtíðarinnar í tónlistarsalnum. um ekki einungis mátt, heldur takmarkanir þess tækis, sem við vinnum með og stöðu útvarps- ins í andlegu og hagnýtu lífi, sem er að vísu skapandi en miklu oftar túlkandi. Við hugsum ekki sjálfir um útvarpið til áróðurs, þó að það geti líklega verið mátt- og sjonauki til framtíðarinnar4* Sterfsemi Ríkisutvarpsins flutt í ný húsdkynui og ólíkt fólk um allt land og um víðan sjó, eins og héðan úr út- varpshúsinu í Skúlagötu 4. Héð- an er útvarpað 10—12 stundir á dag, 20—30 megindagskrárþátt- um, sem eru samsettir úr mörg- um fleiri smærri liðum. Hér í hús inu fer fram afgreiðsla á við- skiptum við 47 þúsund hlustend- ur, sem hafa um 70 þúsund við- tæki og viðskipti við um eða yf- ir 1000 auglýsendur, sem senda út 62 þúsund auglýsingar og til- kynningar árlega og héðan er samband við um 80 fréttaritara útvarpsins innanlands og utan og héðan eru auk sérfrétta sendar fréttir um 300 stundir á ári og um 250 fréttaaukar. Hér ganga um hús 2—3000 manna árlega, sem koma fram í dagskránni, auk fjölda annars fólks. Hér eru flutt um 100 leik- rit og þættir á ári, hér koma ár- lega til upptöku og útsendinga um eða yfir 30 kórar og 30 hljómsveitir, um 180 einsöngvar- ar og einleikarar, um 700 ræðu- menn, alls 11—12000 einstakir flytjendur, auk allra þeirra, sem syngja í kóinm eða í samsettum dagskrám, barnatímum o. sl. Kringum þetta er margskonar erill, heilabrot og prófanir, sem dagskrármenn og tæknimenn bera hitann og þungann af, nokk- uð af efni berst alltaf að, en yfirgnæfandi mestur hluti af öll- um dagskrám er upprunninn hér og allur skipulagður hér í þessu húsi í dagskrárstjórn, dagskrár- deildum og tæknivinnustofum.“ Síðan minntist útvarpsstjóri á kröfur þær, sem gerðar eru til íslenzka útvarpsins og væru þær hinar sömu og gerðar væru til útvarps hjá stórþjóðum. Hann sagði, að þó margt ætti að vera ópersónulegt og hlutlaust í út- varpinu, yrði annað að vera ,,per sónulegt, lifandi, ljóst, verk lif- andi manns, sem hefur nytsam- lega vél á valdi sínu, en er ekki aðeins í þjónustu tækninnar." Um gagnrýnina á útvarpið sagði útvarpsstjóri: Gagnrýnin á útvarpið „Okkur útvarpsmönnum er ljós sá vandi, sem okkur er á höndum, sú gagnrýni, sem við erum alltaf ofurseldir. Við þekkj Skrifstofa útvarpsráðs. Á vegg er mynd Guiuilau0 Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri. ugasta áróðurstæki nútímans. ugasta áróðurstæki nútímans. Við hugsum um það til fræðslu og rannsóknar, til listrænnar túlkun ar, til lifandi frétta, til skemmtun ar og dægradvala og til hvíldar og til hagnýtrar þjónustu". Að lokum kvaðst' Vilhjálmur Þ. Gíslason vona, að í hinu nýja húsi yrði einatt fylgzt með áhuga með öllu fréttnæmu og því sem væri til nytsemdar og fegurðar og. þar væri „alltaf lögð rækt við dýrustu erfðir sjálfra okkar, sífellt borin virðing fyrir frelsi hugsunar og líka virðing fyrir velsæmi, fyrir mannhelgi, mann- dómi og mannrétti. Hann sagði í lok máls síns: „Útvarpið er nú allstaðar. Það er fyrir alla, með boð til allra og það er fyrir þá fáu og vandlátu. Það er þjóðfélagsstofnun og þjóð- skóli, heimilistæki og athvarf í einrúmi einstaklingsins, það er hvíld og dægradvöl sjúkra og ellimóðra og boðberi hins unga og ærslafulla lífs, þjónn hins hagnýta starfs. það er túlkur for- tíðarinnar, spegill samtíðarinnar og sjónauki til framtíðarinnar". Ræða formanns útvarpsráðs Að lokinni ræðu útvarpsstjóra, tók til máls Sigurður Bjarnason, ritstjóri og formaður útvarps- ráðs. í niðurlagi ræðu sinnar komst hann svo að orði: „Útvarpið á að vera heímll- unum dægradvöl, sem hvetur til aukinnar heimilisrækni við arinn þeirra. Það á að standa trúéui vörð um islenzka tungu og önn- ur þjóðleg verðmæti, um leið og það er opið fyrir hverskonar nýj- ungum, er til heilla horfa og boðá andlega eða verklega upp- byggingu og framför. Með þessi áform og einkunnar- orð að leiðarljósi vill Ríkisútvarp ið rækja hið mikilvæga menning- arhlutverk sitt í íslenzku þjóð- félagi. Góðir áheyrendur! Ég leyfi mér fyrir hönd út- varpsráðs að óska ykkur og starfs fólki Ríkisútvarpsins til ham- ingju með bætt starfsskilyrði þess um leið og ég læt þá ósk og von í ljós, að þið munið í fram- tíðinni verða þeirrar breytinga vör í daglegri starfsemi stofn- unarinnar. Minnumst þess einn- ig, að rökstudd gagnrýni hlust- enda og jákvæðar tillögur um tilhögun dagskrár eru ævinlega vel þegnar og geta átt sinn þátt í nauðsynlegri þróun. Útvarps- ráð og dagskrárstjórn þakka mik ilsvert samstarf við listamenn þjóðarinnar, tónlistarmenn, leik- ara, skáld og rithöfunda og aðra þá, er myndað hafa burðarás- inn í dagskrá þess í nær þrjá áratugi. Án slíkrar samvinnu getur útvarpið ekki verið. Að senda sjóvettlinga símleiffis Að lokum: Fyrir tæpum 50 ár- um kom gömul kona á Norður- landi inn í símstöð, sem nýlega hafði tekið til starfa í sveit henn- ar og bað símstjórann að senda sjóvettlinga fyrir sig símleiðis suður á land. Um það bil 20 árum síðar hóf Ríkisútvarpið starfsemi sína og sendi talað orð og hljómlist þráðlaust um allt ísland. Tæpum 30 árum frá þeim tímamótum birtu íslenzk dag- blöð fyrstu símsendu fréttamynd irnar frá útlöndum á síðum sín- um. Hugmynd gömlu konunnar um símsendingu sjóvettlinganna er að nálgast veruleikann. Við erum aftur stödd mitt í tímum ævintýranna. Sjónvarpið leggur undir sig lönd og álfur. Menn greinir á um gildi þess. Alla góða hluti má misnota. En trúum á framtíðina, hæfileika mannsins til þess að hagnýta hugvit sitt og snilligáfu til sköpunar fegurra mannlífs og betri og réttlátari heims“. Ávarp menntamálaráffherra Að lokum tók menntamála- ráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason til máls, og komst hann m.a. svo að orði: „En aðalhlutrverk útvarpsins á þó að vera að bæta þjóðlífið, fegra það, hjálpa okkur fram á við á sviði hugmenningar og verkmenningar. Því hlutverki getur útvarpið ekk: sinnt nema

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.