Morgunblaðið - 27.11.1959, Side 15

Morgunblaðið - 27.11.1959, Side 15
Föstudagur 27. nóv. 1959 MORGV1SBIAÐ1Ð 15 Violet Ingjaldsson — Canadian Authors’ Association Winnipeg Branch — til kvöld- verðarboðs henni til heiðurs ný- lega. — Mrs. Ingjaldson er list- ræn mjög og lagði fyrst fyrir sig að leika á píanó, en þegar hún slasaðist á hendi, sneri hún sér að því að rita smásögur, sem ha'fa birzt af og til í blöðum og tímaritum. Hún leggur aðallega fyrir sig að rita fyrir börn og unglinga, og er hin nýja saga ætl- uð þeim, en er þó talin sérstak- lega skemmtileg aflestrar fyrir fullorðna jafnt sem börn. Efnis- svið sögunnar eru fiskveiðarnar á Winnipegvatni, en því um- hverfi og efni er hún vel kunnug. Afi hennar. Pétur Paulson, kom til Gimli árið 1876 og var með þeim fyrstu, er stunduðu fisk- veiðar og seldu fisk þar við vatn ið. Foreldrar hennar voru hin valinkunnu hjón Kristján og Thorbjörg Paulson. Var Kristján mannvænlegan son, sem var a8- eins 24 ára að aldri. En allt sitt mótlæti hefir hún jafnan borið með hetjuskap og jafnaðargeðl og hefir virzt vaxa við hverja þraut. svo sem sá áfangi, sem hún hefir nú náð, ber vitni um. Lögberg-Heimskringla óskar henni til hamingju með þetta af- rek og þann heiður, sem henni hefir fallið í skaut. Ný skáldkona meðal Vestur íslendinga BLAÐIÐ Lögberg-Heimskringla segir frá því að Vestur-íslenzk kona Violet Ingjaldson hafi ekki alls fyrir löngu gefið út fyrstu skáWsögu sína „Cold Adventuxe" (Kalt ævintýri), sem veki mikla athygli. Frásögn blaðsins fer hér á eftir: Nýlega hefir útgáfufyrirtækið Copp Clark and Co. gefið út skáldsögu eftir Mrs. Violel Ingj- aldson, er nefnist Cold Adven- ture og þykir með ágætum. f til- efni þess efndi rithöfundafélagið svo sem kunnugt er, lengi yfir- maður fiskiklakanna bæði í Sel- kirk og Gull Harbour í Mikley. Mrs. Ingjaldson hefir ekki far- ið varhluta af sorgum og erfið- leikum. Hún er ekkja eftir Ingi- mar Ingjaldson, sem var fylkis- þingmaður fyrir Gimli-kjördæmi hinn mætasti maður. Hún missti hann frá sex börnum 1934, hið yngsta þá 11 ára; en henni auðn- aðist að koma þeim öllum til mennta. Árið 1942 barði sorgin enn að dyrum; þá missti hún Skólafélag Iðnskól ans endurvakið NÝLEGA hefir verið endurvak- ið skólafélag Iðnskólans í Reykja vík, en starfsemi þess hefir leg- ið niðri síðan gamli skólinn var við líði. Á stofnfundinum var mættur fjöldi nemenda og mikill áhugi ríkjandi að endurvekja hið gamla félag, en tilgangur með skóla- félaginu er mjög margvíslegur, eins og títt er um skólafélög. Til dæfhis er í ráði að starfrækja kaffistofu fyrir skólanemendur í Iðnskólanum. í stjórn voru kosnir Óttar Guðmundsson form., Sveinn Guð bjartsson varaform., Guðjón Tómasson ritari og Örn Friðriks son gjalkeri. Einnig er í stjórn- inni einn kennari, og er það Sig urður Ríkarðsson. Á fundinum var einng kosið í varastjórn og nefndir. — Skóla- félagið hefir ákveðið að hefja starfsemi sína á föstudagskvöld, 27. þ.m., og verður þá meðal ann ars spilað hið vinsæla spil bingó. Ferja Akranes- hafnar í stööugum flutningum AKRANES, 24. nóv. — Ferja Akraneshafnar, sem ber 300 íil 350 tonn, hefur verið stanzlaust í flutningum síðan 11. maí í vor. Framan af sumri annaðist hún vélaflutninga fyrir varnarliðið, fór þá t. d. 5 ferðir vestur til Aðavíkur, til að sækja vélar og áhöld, er ferjan flutti ýmist til Lóranstöðvarinnar á Snæfellsnesi eða til Keflavíkur. Að því loknu hefur ferjan verið í stöðugum sementsflutningum fyrir Sements verksmiðjuna héðan frá Akranesi og til Reykjavíkur og Keflavíkur. Ferjan er grunnákreið og eink- ar hentug, þótt engin sé bryggjan, því að henni má lenda í sendinni fjöru. Hægt er að opna ferjuna að framan _og aka þungavélum um borð. Áhöfnin er 4 menn, skipstjóri Elías Guðmundsson og vélstjóri Haraldur Magnússon. Oddur. Þegarþú athugar nákvæmlega, veiztu að... BLÁTT OMO GEFUR HVÍTASTA ÞVOTT í HEIMI Ingibjörg Einarsdóttir — Kveðjuorð — I GÆR var til moldar borin í Fossvogskirkjugarði Ingibjörg Einarsdóttir, húsfreyja á Hverfis götu 55 hér í borg. Ingibjörg Einarsdóttir var fædd 1. ágúst 1893 að Hrófsskála á Seltjarnarnesi, og voru for- eldrar hennar hjónin Einar Ágúst Einarsson, útvegsbóndi, síðar í Lágholti í Reykjavík, og Margrét Þor’áksdóttir. Um eða eftir ferm ingu fór Ingibjörg til móður- bróður síns Bjarna trésmiðs Þor- lákssonar, og móðurömmu Ingi- bjargar Bjarnadóttur. Dvaldi Ingibjörg hjá þeim þar til hún giftist 15. okt. 1914, Gunnari Brynjólfssyni, efnisverði hjá hafnar- og vitamálum. Þau Gunn ar og Ingibjörg reistu bú á Hverf- isgötu 55 í Reykjavík, og áttu þar heima æ síðan. Eignuðust þau þrjú börn, sem öll kornust á legg, en son sinn Brynjólf misstu þau fyrir 10 árum. Eftir lifa dæturnar Helga og Margrét. Öll voru þau systkin gift og búsett 1 Reykja- vík og áttu þau hjón nú 10 barna- börn. Ég kynntist Ingibjörgu Einars- dóttur og heimili hennar ekki fyrr en á námsárum mínum hér í Reykjavík fyrir röskum 20 ár- um, og var hún þá orðin fullorð- in kona. Það sá ég þegar að Ingi- björg var með allra glæsilegustu konum í sjón, og hitt varð ég næstum jafnfljótt áskynja um, að hún var ekki síðri í raun. Hvortveggja þessi áhrif hafa hafa haldizt óbreytt alla tíð síðan, allt þar til Ingibjörg lézt skyndilega og óvænt á heimili sínu hinn 20. þ.m. Persónulega naut ég mikill- ar gestrisni og glaðværðar á heim ili þeirra hjóna, Ingibjargar og Gunnars, og yrði of langt að telja þær ánægjustundir. Hitt varð mér og fljótlega ljóst, að Ingi- björg hafði marga þá beztu kosti, sem húsfreyju mega prýða. Til þess að orðlengja það ekki, vil ég fullyrða að hún var þrifin, myndarleg, rausnarleg og hús- móðir ágæt. Við þetta bættust mannkostir, sem eltki eru ef til vill eins áberandi í daglegu lífi, en segja sína sögu um manngerð þegar ahugað er. Hún var til dæmis alltaf létt í bragði þegar hún var heimsótt, jafnvel þótt vitað væri um áhyggjur eins og þær gerast í lífi manna, og sorgir. Annað var það, að hún mátti ekkert aumt sjá, og verð ég að segja að mér fannst stundum um of manngæði hennar. Þá þekkti ég eiginleika í fari Ingibjargar, sem tala sínu máli, en það var að hún var með afbrigðum barn- góð. Nutu barnabörn -hennar þessara mannkosta, en auk þess er mér kunnugt um að svo var um fleiri börn, og nefndu sum hana „ömmu“, enda þótt svo væri ekki í raun og veru. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, og ég get ekki kvatt Ingi- björgu Einarsdóttur og þakkað henni viðkynningu nema fyrir sjálfan mig. Ég hygg mig þó munu mæla fyrir munn flestra, ef ekki allra, sem af henni höfðu kynni, að sjónarsviptir sé að henni, hvernig sem á það er litið, og sess hennar vandfylltur vin- um hennar, að ekki sé talað um vandamenn. Ég vil að lokum votta samúð mína ágætum eiginmanni henn- ar, Gunnari Brynjólfssyni, svo og öðrum vandamönnum, vegna hins sviplega og óvænta fráfalls hinnar mætu konu, Ingibjargar Einarsdottur. Bárður Jakobsson. Jafnvel óhreinustu föt verða fjótt hrein í freyðandi Bláu Omo löðri. En allur þvotturinn er hreinni, hvítari en nokkru sinn fyrr. Þú sérð á augabragði, að OMO gefur hvítastan þvott í heimi. • Tilsýndar gæti skyrtan hans $ Hann nágast . . . verið hvít hún sýnist hvít X OMO N-UM-é> - Og aN\Gski,ar n,,s^,^uffl þvotti björtustum! $ Jú, þegar hann er kominn, geturðu séð, að hún er OMO hvítí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.