Morgunblaðið - 02.12.1959, Síða 1

Morgunblaðið - 02.12.1959, Síða 1
24 slður 46. árgangur • 229. tbl. — Miðvikudagur 2. desember 1959 Prentsmiðja Moi’gunblaðsins Stjórnmálasamband milli Bretlands og^ Arabíska sambandslýðveldisins KAÍRÓ og LONDON, 1. des. — (NTB/Reuter). — BRETLAND og Arabíska sam- bandslýðveldið hafa ákveðið að taka að nýju upp stjórnmála- samband, en það rofnaði eftir innrás Breta og Frakka í Súez haustið 1956. I tilkynningu sem gefin var út í dag segir, að ríkin hafi ákveðið að hafa sendiherra af lægstu gráðu (chargé d’affair- es) hvort hjá öðru. Brezki sendi- maðurinn verður Colin Crowe, og mun hann leggja af stað til Kaíró innan skamms. Eins og kunnugt er sameinuðust Egyptaland og Sýrland í Arabíska sambands- lýðveldið árið 1958. Colin Crowe hefur verið for- maður brezku samninganefndar- innar, sem setið hefur á rökstól- um með fulltrúum Arabíska sambandslýðveldisins um kröfur og gagnkröfur vegna skaðabóta Krúsjeff hefur óskertan áhuga á fundi œSstu manna BÚDAPEST, 1. desember. — —■ (NTB/Reuter). —• NIKITA KRÚSJEFF, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, staðfesti í dag óskir sovétstjórnarinnar um fund æðstu manna austur og vest urs, og sagði að því fyrr sem hann yrði haldinn, þeim mun betra. Með þessu ógilti Krúsjeff blaðafregnir þess efnis, að sovét- stjórnin væri ekki eins áhugasöm um fund æðstu manna og hún hefði áður verið. — Við viljum slíkan fund, sagði hann, en við viljum líka að hann beri ávöxt og verði heiminum í hag. Sovétstjórnin er reiðubúin að taka þátt í fundi æðstu manna hvenær sem er og á hverjum þeim stað sem allir aðilar geta fallizt á. Krúsjeff lét þessi orð falla í Búdapest á fyrsta þingi ung- verska kommúnistaflokksins eft- ir þjóðbyltinguna í Ungverja- landi haustið 1956. Hann ítrekaði kröfu sína um friðarsamninga við Þýzkaland og sagði, að ef ekki yrði gengið frá slíkum samningi, mundu Sovétríkin fyrir sitt leyti gera sérstakan friðarsamning við Austur-Þýzkaland. Meginhlutinn úr ræðu Krúsjeffs var helgaður Þýzkalandsvandamálinu, en hann Fylgjast með löndunum erlendra togara GRIMSBY, 30. nóv. — Einkaskeyti frá frétta- ritara Mbl. — SAMTÖK brezkra tog- arasjómanna, sem ótt- ast að kjörum brezkra sjómanna sé hætta búin af erlendum fiskinn- flutningi, hafa sett á laggirnar f jögurra manna nefnd til að fylgjast með löndunum erlendra tog- ara. Tilkynning um þctta var gefin út í dag. vék einnig að friðsamlegri sam- búð ríkja, algerri afvopnun og alþjóðlegu «átyggiskerfi. Kosningabaráttaii á Kýpur NIKÓSÍU, Kýpur, 28. nóv. (Reut- er) — Forsetakosningar standa fyrir dyrum á Kýpur, sem kunn- ugt er, og á morgun hefst hin eiginlega kosningabarátta — verða haldnir tólf fjöldafundir víða um land, þar sem fram- bjóðendurnir tveir, Makarios erkibiskup og Clerides, fram- bjóðandi Lýðveldisbandalagsins svonefnda, og stuðningsmenn þeirra munu leiða saman hesta sína. Samkvæmt samkomulagi þvi um framtíð Kýpur, sem kennt er við Zúrich og London, verður eyjan sjálfstætt lýðveldi í febr- úar nk. — Maður af grískum stofni skal kjörinn forseti, sam- kvæmt samkomulaginu, en vara- forsetinn skal vera af tyrknesk- um stofni. — Flestir búast við ótvíræðum sigri Makaríosar við kosningarnar, en sumir halda því fram, að Clerides muni vinna fylgi eftir því sem á líður, þótt það nægi honum varla til sigurs. út af Súez-stríðinu. Sendiherra Arabíska sambandslýðveldisins í London verður Kamal Eddin Khalil, yfirmaður rannsóknar- deildar utanríkisráðuneytisins í Kairó. Selwyn Lloyd utanríkisráð- herra tilkynnti neðri málstofu brezka þingsins útnefningu sendi herranna í dag. Jafnframt þakk- aði hann Svisslendingum fyrir að hafa gætt hagsmuna Breta í Arabíska sambandslýðveldinu síðan 1956. Yfirlýsing Lloyds leiddi af sér stutta orðasennu 1 neðri mál- stofunni. Aneurin Bevan, for- mælandi Verkamannaflokksins í utanríkismálum, sagði að nú hefði stjórn íhaldsflokksins far- ið hringinn og væri kominn ná- kvæmlega jafnlangt og þegar lagt var út í Súez-ævintýrið. — Hann bað um hvíta bók varðandi málið. Bevan sagði ennfremur, að ef Lloyd héldi að kjósendur hefðu með atkvæðagreiðslu sinni í kosningunum í haust lagt blessun sína yfir Súez-ævintýrið, hvað mundi þá halda aftur af stjórninni að leggja aftur út í slíkt ævintýri? Lloyd varði Súez-stríðið og sagði að nú yrði Bevan að fara að hugsa fram í tímann. Hann lauk sennunni með því að segja, að það væri ætlun Breta að bæta sambúðina við Arabíska sam- bandslýðveldið og endurvekja trúnaðartraustið milli þjóðanna. Mohammeð Reza Fahlevi, Iranskeisari, sést hér með unnustu sinni, Farah Dibah, sem er 21 árs gömul, þegar þau sóttu ný- lega veizlu, sem móðir keisarans hélt í tilefni af brúðkaupi Fatimu prinsessu, systur keisarans, og Mohammeds Khatamis, hershöfðingja, yfirmanns íranska flughersins. — Brúðkaup keisarans og unnustu hans fer fram 21. desember n. k. — Sjá grein um Farah Dibah á bls. 10. — Fárviðri um alla Sudur-Evrópu LONDON, 1. desember. NTB— Reuter. — Stór svæði í Suður- Evrópu hafa síðasta sólarhring- inn orðið fyrir miklu óveðri; stormar, rigningar, snjókoma og haglél, hafa valdið flóðum í nokkrum löndum. Allmargt fóik Aímæliskoko með 130 þjóðfónum LONDON 30. nóvember — NTB Reuter. — Afmæliskaka sú, sem borin var fyrir Sir Winston Churchill á 85 ára afmæli hans á mánudag, var samansett úr efn • um frá 130 löndum, m. a. ban- önum frá Islandi. Kakan var gerð af bakara nokkrum í London, Frederich Floris, er fékk þá hugmynd í höf- uðið að skrifa til sendiráða og annarra erlendra fulltrúa í borg inni, þar sem óskaði eftir fram- lagi hinna ý .su þjóða í kökuua. Bárust alls efni, er vógu 152 kíló, en afmæliskakan varð í allt 27 kg- Frá Panama kom lítil flaska sem í var vatn úr Panama-skurð- inum, frá íslandi bananar, sem ræktaðir voru í gróðurhúsi, ávextir frá Ítalíu, fíkjur frá Tyrklandi, rúsínur frá Ástralíu, konjak frá Frakklandi, kókós- hnetur frá Ghana o. s. frv. ís- lenzku bananarni, voru sendir út af Unnsteini Ólafssyni, skóla- stjóra Garðyrkjuskólans í Hvera gerði. Og loks var hin mikla kaka skreytt fánum hinna 130 þjóða, sem sendu eitt eða annað í af- mælisköku Churchills. hefur látið lífið í óveðrinu, nokkurra manna er saknað og margir hafa særzt. Óveðrið hef- ur valdið miklum tálmunum í siglingum, og í dag bárust frétt- ir af átta skipum, sem lent höfðu í erfiðleikum eða tvísýnu. Á Atlantshafinu hefur líka geisað óveður í lengri tíma, og hefur vindáttin jafnan verið á vestan eða suðvestan, þannig að mörg skip á leið til Ameríku hafa tafizt. Á Riviera-ströndinni í Frakklandi kom óvenjulega vont veður, og voru bæði lög- regla og slökkvilið til taks í heil- an sólarhring vegna flóða í Rhone-ánni og ýmsum minni ám. Hafði vatnsborðið í Rhone-ánni Óður muður skelfir Mílunó-búu MÍLANÓ (ftalíu) — íbúar borg- arinnar, í iðnaðarhverfunum í norðausturhluta hennar, eru skelf ingu lostnir þessa dagana. — Er orsökin sú, að geðbilaður mað- ur hefur reynt að sprengja í loft upp olíu- og benzíngeyma Shell- félagsins á þessum slóðum. Kast- aði hann handsprengju sem átti að lenda inn á afgirtu svæði, on lenti í vírneti, og sprakk ekki. í símtali, sem þessi sami maður átti við aðalskrifstofu Shell, hót- aði hann að hætta ekki fyrr en hann hefði komið áformi sínu í framkvæmd. Af tali mannsins er gert ráð fyrir, að hann sé geð- bilaður, slíkar voru hótanimar og formælingar hans í símanum. Á þessum slóðum búa um 100 þúsund manns, og hefur allt kom- izt á annan endann, en lögreglar. leitar dauðaleit að hinum óða manni, sem gæti orsakað dauða þúsunda manna, ef hann kæmi áformi sínu í framkvæmd. hækkað fjóra metra yfir venju- lega hæð í dag. — í Nice skolaði flóðið tveim bryggjum burt, og í Monte Carlo varð fólk að flytja úr allmörgum húsum, vegna þess að grunnar þeirra voru að láta undan. í Madrid hefur slökkviliðið hvað eftir annað verið kallað út vegna flóða kjöllurum. Neðan- jarðarbrautin og sjónvarpið voru óvirk alllengi. Á endilangri strönd Norður-Afríku var úrhell- isrigning og víða varð eignatjón. í Suður-Englandi voru regn- skúrir og þoka, og torveldaði það flugsamgöngur og umferð um þjóðvegina. Allar flugvélar frá New York, Sydney og París voru látnar lenda á flugvelli á suður- ströndinni, en ekki í London. Stórt brezkt farþegaskip með 300 farþega innanborðs var í dag dregið af grunninu við Gíbraltar, þar sem það strandaði í gær- kvöldi. Stormurinn var svo sterk- ur, að dráttarbáturinn varð að bíða og sæta lagi til að komast á strandstaðinn. Þá er sagt frá árekstrum sl 'pa og fleiri slysum á sjó og landi. T. d. tók mann út af hollenzkum dráttarbáti sem varð að aðstoða stórt farþega- skip.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.