Morgunblaðið - 02.12.1959, Page 2

Morgunblaðið - 02.12.1959, Page 2
2 MORCVN BI AÐIÐ Miðvik'udagur 2. des. 1959 „Bráðlega íisk« laust haf66; NORSKA blaðið „Norges handels og sjöfartstidende“, 23. nóv.; seg- ir frá því hversu kvíðafullir Bret ar eru orðnir út af lélegri síldar- vertíð við vesturströnd Bret- lands. Er fregn þessi samkvæmt Lundúnafrétt. Segir þar að yfir- standandi vertíð sé sú lélegasta, sem komið hafi í eina öld. For- maður samtaka síldarútvegs- manna segir að undanfarin ár hafi veiðin stöðugt farið minnk- andi og augljóst sé að nú sé um ofveiði að ræða á síld á þessu svæði. Formaðurinn lætur þess getið, að það sé vegna þess að síldveiði- skip frá meginlandinu hópist á miðin. Hafa síldarútvegsmenn og sjó- menn í Bretlandi bersýnilega miklar áhyggjur af því hversu komið er og telja að stofnanir í viðkomandi löndum er um fisk- vernd fjalla, muni líta allt öðrum augum þetta alvarlega ástand en Bretar sjálfir. Fyrirsögn fréttar- innar talar skýrustu máli um hve ástandið er alvarlegt orðið, því fréttagreinin heitir Bráðlega fisklaust haf! Síldin batnaði í síðasta róðri SANDGERÐI, 1. des: — Síðustu tvo daga hefur verið lítil síld- veiði hjá bátunum héðan. í dag komu 7 bátar inn með 276 tunnur alls. Höfðu þeir lagt netin í Mið- nessjó, en þangað virðist síldin gengin nú og er það stærri síld og feitari sem þar veiddist. Hæsti báturinn Hrönn II. var með tæp- lega 80 tunnur síldar. í*að er óhagstætt veður, sem veldur aflaleysinu. Hefur verið ógerningur fyrir hringnótabátana að hafast nokkuð að. Vinsamlegar greinar um ísland í þýzkum blöðum TVÖ vestur-þýzk myndablöð birtu ekki alls fyrir löngu vin- samlegar greinar og frásagnir frá íslandi. Blaðið ..Allgemeine Wegweiser", birti ferðasögu með mörgum myndum eftir Karl Maute. Verður greinarhöfundi tíðræddast um náttúrufegurð íslands, en rekur einnig nokkuð sögu þess, getur um lýðveldis- stofnunina 1944 og telur lífskjör íslendinga vera svo góð, að þau séu jafnvel betri heldur en í Vestur-Hýzkalandi. Fyrirsögn greinarinnar er: ísland — eyja elds og vatna. Myndablaðið „Sie und Er“ birtir einnig myndskreytta grein um ísland undir fyrirsögninni: íslendingar þurfa ekki að hafa áhyggjur af kolaverðinu. Er þar mikið rætt um jarðhitann og hita veitu Reykjavíkur, sem talið er hið merkilegasta fyrirtæki. Sagt er frá því, að óhemju orka gufi upp ónotuð, þar sem íslendingar hafi ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að beizla hana. Báðar þessar greinar eru skrif- aðar af áhuga fyrir að kynna ís- land og þjóð þess. Námskeið forystumanna œskulýðsfél aga AKUREYRI, 30. nóv. — A veg- um hins nýstofnaða æskulýðsráðs fór hér fram námskeið forystu- manna æskulýðsfélaga. Þátttak- endur voru frá Akureyri, Húsa- vík, Siglufirði og víðar. Námskeiðið fór fram í Akur- NÚ fer jólastemmingin að fær ast yfir borg og bæ. Eitt af því, sem svo mjög setur svip sinn á höfuðborgina fyrir jólin, er jóiaskreytingin á hinum ýmsu götum bæjarins, og mynda þar samfellt ljósahaf. f fyrrakvöld var byrjað á því að koma þess- ari skreytingu upp í Miðbæn- um og tók ljósmyndari blaðs- ins þessa mynd er verið var að koma fyrir hinni miklu jóla- klukku á mótum Hafnarstræt- is og Aðalstrætis. Fyrsta námskeið í helg' siðafrœðum á Akureyri Samkomuiag um formsatriði í Genf SjÖ ríkja undirbuningsnefnd GENF, 30. nóvember. — í dag I komulagið innan sex mánaða frá var stigið stórt skref í áttina að staðfestingu þríveldanna. A samkomulagi um bann við til- fyrsta stigi málsins er það hlut- AKUREYRI, 30. nóv. — Nám- skeið í helgisiðafræðum hefst á morgun, 1. des. kl. 8.30 í kirkju- kapellunni og verður á sama tíma næstu kvöld. Á laugardag á sama tíma verður tíðarsöngur í kirkj- unni og á sunnudag kl. 2 verður hátíðaguðsþjónusta, sem verður flutt í samræmi við það sem tek- ið verður fyrir á námskeiðinu. Námskeið í helgisiðafræðum hefur aldrei fyrr verið haldið hér á landi og er sr. Sigurður Páis son á Selfossi leiðtogi námskeiðs- ins, en hann er manna fróðastur um þessi efni og hefur kynnt sér Dagskrá Alþingis í DAG er boðað til fundar í sam- einuðu Alþingi klukkan 1,30, en að honum loknum er boðað til funda í deildum. Á dagskrá sameinaðs þings er 21 mál. Er það fyrirspurn og nokkrar þingsályktunartillögur, hvernig skuli ræddar. I>á eru á dagskránni allmargar kosningar: í menntamálaráð, stjórn vísinda- sjóðs, áfengisvarnarráð, stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs, út- varpsráð, tryggingaráð. Þá verða kosnir yfirskoðunarmenn ríkis- reikninga, stjórn fiskimálasjóðs, verðlaunanefnd gjafar Jóns Sig- urðssonar, eftirlitsmenn með op- inberum sjóðum, flugráð, lands- kjörstjóm, yfirkjörstjórnir, stjórn byggingarsjóðs og Þing- vallanefnd. Eitt mál er á dagskrá efri deildar. 1. Bráðabirgðabreyting og fram lenging nokkurra laga, frv. — 2. umr. (Ef leyft verður). Á dagskrá neðri deildar er eitt mál. 1. Bráðabirgðafjárgreiðslur 1960, frv. 1. umr. þetta sérstaklega. kirkjunnar eru mjög innan prestastéttarinnar, en al menningur hefur haft litla mögu- leika iil að kynna sér þá. Má bú- ast við að áður en langt um líður verði gerðar breytingar á messu- siðum, þannig að almenningur geti tekið meiri þátt í mesunni. Það sem tekið verður fyrir á námskeiðinu er þetta: 1) messan 2) messusiðir og aðrir helgisiðir i 3) skrúði prests og kirkju eftir, kirkjuárstíðum og við ýmsar j kirkjuathafnir 4) þjónusta leik-1 manna í messu 5) helztu kirkju- j leg tákn 6) hið kirkjulega em- j bætti og hinn almenni prestdóm- j ur. Öllum er heimilt að taka þátí! í námskeiði þessu bæði lærðum i og leikum, ungum sem gömlum. j — mag, raunum með kjarnorkuvopn og eftirlit með því, að slíku banni yrði framfylgt. Fulltrúar Breta, Bandaríkjamanna og Rússa gerðu samkomulag um skipan undirbún ingsnefndar, sem á að sjá um að eftirlitið verði virkt eftir að stór- veldin hafa undirritað samkomu- j lag um bann, sem enn er þó allt Helgisiðir j 4 huldu um að takast megi að á dagskrá gera. Ráðgert er, að eftir að endan- j legt samkomulag hefur verið undirritað af þríveldunum og þar til þjóðþing ríkjanna hafa stað- fest það sitji stórveldin þrjú ein í nefndinni. En eftir staðfesting- una verður fjórum ríkjum bætt í nefndina þannig, að í henni eiga sæti sjö. Síðan á að boða til ráðstefnu allra ríkja sem skrifa undir sam Louis F. Foght látiiin LOUIS F. Foght, stórkaupmaður, andaðist að heimili sínu í Kaup- mannahöfn sl. laugardag, rúm- lega 68 ára gamall. Mun hjarta- bilun hafa verið banamein hans. Louis Foght var mikill íslands- vinur. Hann gaf Listasafni rík- isins fagurt safn danskra nútíma- málverka fyrir nokkrum árum, Reykjavíkurbæ gaf hann högg- mynd og Skálholtskirkjú gaf hann fyrir skömmu litaða glugga í kirkjuna ásamt E. Storr for- stjóra í Kaupmannahöfn. Louis Foght átti marga vini hcr á landi og naut vinsælda allra er kynntust honum. Hann hafði verið særadur stórriddarakrossi hinnar íslenzku fálkaorðu. Útför Sigurð ar á Fosshóli ÁRNESI, 21. nóv. — Jarðarför Sigurðar L. Vigfússonar bónda, sem andaðist 13. þ.m. fór fram í gær frá heimili hans Fosshól. Jarðsett var að Ljósavatni. Sókn- arpresturinn, Stefán Lárusson, flutti bæn í heimahúsum, og Karlakór Reykdæla söng. Að Ljósavatni flutti séra Stefán að- alræðuna og jarðsöng, en auk hans töluðu í kirkjunni: Baldur Baldvinsson, Ófeigsstöðum, Sig- urður Geirfinnsson, Landamóti, Jón Sigurðsson, Yzta-felli, Jón Jónsson, Fremstafelli, Guðmund ur Friðbjarnarson, Húsavík og Karl Sigvaldason, Fljótsbakka, sem flutti frumort kvæði. Jarð- arförin var afar fjölmenn, enda var Sigurður Lúter landskunnur greiðamaður og átti fágætum vinsældum að fagna bæði fjær og nær. Ljósavatns- og Bárðdælahrepp- ar kostuðu sameiginlega útför- ina í virðingar- og þakkarskyni við hinn látna. — H. G. verk nefndarinnar að skipuleggja eftirlitið og ná samkomulagi um það hvar eftirlitsstöðvum verð- ur komið upp. Þar verður fjall- að um ýmis tæknileg atriði, eftir- lit úr lofti og á sjó, hvers konar tæki nota á til eftirlitsins með því að bannið verði haldið. Þá verður ráðinn framkvæmda stjóri eftirlitsins og aðalstöðvum verður komið upp í Vínarborg. Nefndin á einnig að hafa með höndum fjárhagsmálin og gera áætlun um reksturinn fyrsta árið, ákveða hvort leitað verður fjár- hagslegrar aðstoðar Sameinuðu þjóðanna, eða stórveldin þrjú lát- in bera allan kostnað fyrst í stað. eyrarkirkju og voru þar fluttir fyrirlestrar og guðsþjónusta. Pró- fasturinn á Húsavík, sr. Friðrik Friðriksson, predikaði ög erindi fluttu sr. Kristján Róbertsson sem taláði um hlutverk æskunnar í kirkjunni, og Pétur Sigurgeirs- son, sem talaði um félagsstaaf- semina og skipulag hennar. Tryggvi Þorsteinsson, skátafor- ingi veitti tilsögn í innanhúss- leikfimi. Á þessu félagssvæði starfa 4 æskulýðsfélög, á Akur- eyri, Húsavík, Nes- og Grenjaðar- sókn í Aðaldal og Siglufirði. Stjórn sambandsins skipa sr. Pétur Sigurgeirsson formaður, sr. Sigurður Guðmundsson, Grenjað- arstað, ritari, og Árni Sigurðssort, Hofsósi, gjaldkeri. Á námskeiðinu ríkti mikill áhugi fyrir æskulýðsstarfi innan kirkjunnar og æskan gerði sér það fyllilega ljóst að þar á hún heima og þar er þörf fyrir starfs- krafta hennar. — mag. Spilakvöld á Garðaholti Sjálfstæðisfélag Garðahrepps mun halda spilakvöld einu sinni í mánuði í vetur og verður hið fyrsta föstudaginn 4. des. kl. 8,30 í samkomuhúsinu á Garðaholti. Heildarverðlaun verða veitt fyrir veturinn auk sérstakra verðlauna hvert kvöld. — Er öllum heimil þátttaka, og er fólk hvatt til að vera með frá byrjun. Veðurfregnir NA /5 hnútar S V 50 hnútar Snjókoma > Oði V Skurír Þrumur WZll Kuldaskil ^ Hilaski/ H HaS L LœgS 1/10 wco u 11 1 990 17 , Air '000 ,0/0 J VEÐURLYSING klukkan 10 í gærkvöldi: Um 500 km suður af Vestmannaeyjum er mjög djúp lægð á hreyfingu norð- norðaustur. — Veðurhorfur næsta sólarhring: SV-mið, austan hvassviðri og síðan rok, rigning. SV-land til Breiða- fjarðar — Faxaflóamið og Breiðafj arðarmið: A-kaldi og síðan hvassviðri, rigning með köflum. Vestfirðir til NA- lands og Vestfjarðamið til NA- miða: Suðaustan kaldi og skýjað fyrst, hvass austan og víða rigning með morgninum. Austfirðir og SA-land, Aust- fjarðamið og SA-mið: SA- stinningskaldi og síðan austan hvassviðri, rigning. Veður- horfur á fimmtudag: Allhvass eða hvass suðaustan. Skúra- veður sunnanlands, en bjart á Norðurlandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.