Morgunblaðið - 02.12.1959, Page 8
8
MORCVNR* 4 Tilfí
Miðvik'udagur 2. des. 1959
Sjóvá hefur á 25 árum greitt
15 millj. kr. í líftryggingar
Líftí yggingadeild félagsins 25 ára í gxr
Þrjár sögur eftir Jack
London komnar út
í GÆR á fullveldisdegi ís-
lendinga, voru 25 ár liðin frá
því að Líftryggingadeild Sjó-
vátryggingafélags íslands var
stofnuð. Með stofnun þeirrar
deildar, varð Sjóvá fyrsta
innlenda líftryggingafélagið
og með því var stigið stórt
spor í þá átt að flytja trygg-
ingastarfsemina inn í landið.
. Halldór Kr. Þorsteinsson
^ Undirbúningur fyrir 25 árum
Arið fyrir stofnun deildar-
innar eða 1933 hafði komizt á
nokkur hreyfing í þá átt að
stofna innlent líftryggingafélag.
Á fundi, sem ræddi það mál,
mættu m. a. Jón Þorláksson
borgarstjóri, Guðmundur Ás-
björnsson bæiarfulltrúi, Jón Ás-
björnsson hæstaréttardómari,
Halldór Hansen læknir, Ólafur
Dan. Daníelsson dr. phil og Brynj
ólfur Stefánsson tryggingafræð-
ingur. Vann Brynjólfur að ýms-
um undirbúningi og úr varð að
tillaga var lögð fram fyrir aðal-
fund Sjóvá um stofnun slíkrar
deildar og þar ákveðið að hefja
starfsemina eins fljótt og kostur
væri á.
Blaðinu hafa borizt átta bæk-
ur frá Bókaforlagi Odds Björns-
sonar, sem eru nýkomnar á mark
aðinn. Eru þær fjölbreyttar að
efni og vandaðar að öllum frá-
gangi.
Nýju fötin keisarans nefnist
safn greina og fyrirlestra eftir
Sigurð A. Magnússon, sem hann
hefur samið á undanförnum 10
árum. Hafa sumar þeirra birzt
áður. Greinarnar fjalla um marg
vísleg efni, einkum þó erlendar
og innlendar bókmenntir. M. a.
er skrifað allýtarlega um ýmis
af höfuðskáldum aldarinnar í
Bandaríkjunum, — Bretlandi,
Frakklandi, Rússlandi, á Norð-
urlöndum og víðar. Bókin er 290
blaðsíður.
Hrakhólar og höfuðból eftir
Magnús Björnsson á Syðra-Hóli
flytur 11 þætti um fólk og fyr-
irbæri, flest á öldinni sem ieið.
Gætir þar margra og sérkenni-
legra grasa. Bók Magnúsar
Mannaferðir og forr.ar slóðir,
sem kom út 1957, vakti athygli,
og má búast við að seinni bókin
verði einnig aufúsugestur þeim,
sem áhuga hafa á þjóðlegum
fræðum. Hún er 278 bls.
Undirbúningsvinna var eðli-
leag mikil. Endurtryggingasamn-
ingar gerðir í Danmörku og á-
kveðið að stofna deildina 1. des.
1934. En það sama haust kom
fram á þingi frumvarp um stofn-
un Líftryggingastofnunar ríkis-
ins. Hefði það mál náð fram að
ganga, hefði öll undirbúnings-
vinna að stofnun deildarinnar
verið til einskis. En frumvarpið
náði ekki fram að ganga og
starfsemi líftryggingadeildar
Sjóvá hófst eins og ákveðið
hafði verið.
★ Tryggur starfsgrundvöllur
Til deildarinnar var lagður
Vs hluti af hlutafé félagsins og
svo ákveðið að fjárhagur deild-
arinnar skyldi vera óháður fé-
laginu þannig, að deildin bæri
ekki ábyrgð á öðrum skuldbind-
ingum félagsins en sínum eigin,
en félaginu sem heild var híns
vegar gert skylt að ábyrgjast
skuldbindingar líftryggingadeild-
arinnar.
Starfsemin skilaði tapi
fyrstu árin og komu skuld-
bindingarnar sem að ofan er
getið deildinni þá að góðu.
Og á 25 árum hefur félagið
greitt til deildarinnar 18 millj.
kr. Starfsemin jókst smám
saman. Á fyrsta ári námu
tryggingarnar rúmlega 1
milljón króna, en sl. starfsár
(1958) rúmlega 23 milljóuum.
Samanlagðar tryggingaupp-
hæðir hafa numið 193 milljón-
um kr. brúttó.
Sjóvá yfirtók smám saman
tryggingastofn nokkurra er-
lendra umboða, sem hér voru
rekin. Má þar nefna „Thule“ með
17 millj. kr. tryggingastofn og
síðar „Svea“, „Trygg“ og síðast
„Danmark".
Á 15 millj. kr. útborgun
Ljóð af lausum blöðum eftir Ár
mann Dalmannsson er 174 bls.,
og hefur að geyma ljóð um marg
vísleg efni, öll í hefðbundnu
formi.
Draumurinn heitir ný skáld-
saga eftir Hafstein Sigurbjarn-
arson, sem sendi frá sér skáid-
söguna Kjördóttirin á. Bjarnar-
læk í fyrra. Er Draumurinn fram
hald fyrri sögunnar. Bókin er
224 bls.
Systir læknisins er ný skáld-
saga eftir Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur, sem áður hefur skrifað
bækurnar Haukur læknir og
Sýlumannssonurinn. Sú síðar-
nefnda var framhaldssaga í
„I eima er bezt“. Bókin er 138
blaðsíður.
Flogið yfir flæðarmáli er ný
saga handa börnum og ungling- I
um eftir Ármann Kr. Einarsson,
sem kunnur er fyrir Árnabækur
sínar. Bókin er myndskreytt af
Halldóri Péturssyni og er 192
blaðsíður.
Loks er skáldsagan Fórn snill-
ingsins eftir brezka höfundinn
A. J. Cronin í þýðingu Magnúsar
Magnússonar. Cronin er löngu
kunnur hér á landi, enda heims-
hafa numið um 47 níillj. kr. —
Dánarbætur og útborganir í lif-
anda lífi hafa numið 15 millj.
kr. — Iðgjaldasjóðir eru nú 35
millj. kr., og verðbréfaeign, sem
stendur á móti skuldbindingum
deildarinnar rúml. 42 millj.
Sjóvá berst nú ásamt öðr-
um tryggingafélögum fyrir
því að frádráttur til skatts
á líftryggingum verði hækk-
aður. Nemur hann nú kr. 2000
Stefán G. Björnsson
á ári, en sparnaðarnefnd rík-
isins, sem nýlega skilaði áliti
taldi eina leiðina til aukinnar
sparif jármyndunar vera þá, að
stórhækka þennan frádrátt. —
Taldi nefndin að þó hann yrði
kr. 10.000 yrði hann ekki
hlutfallslega eins hár og hann
var á árunum fyrir verðbólg-
una.
ic Starfsmenn
Aðalstarfsmenn líftrygg-
ingadeildar Sjóvá eru nú Árni
S. Björnsson, sem er aktuar
deildarinnar, tryggingalæknir er
Þórður Möller, settur yfirlæknir
á Kleppi en stjórn deildarinnar
skipa Halldór Þorsteinsson, Lár-
us Fjeldsted, Geir Hallgrímsson,
Sveinn Benediktsson og Ingvar
Vilhjálmsson. — Forstjóri Sjóvá
er Stefán G. Björnsson.
NÚ LÍÐUR ekki sá dagur að
nýjar bækur komi ekki í bóka-
verzlanir. f gær komu til dæmis
þrjú bindi af útgáfu ísafoldar-
prentsmiðju á ritum Jack Lond-
on. Eru það „Óbyggðimar kalla“
í þýðingu Ólafs Friðrikssonar,
„Ævintýri" í þýðingu Ingólfs
Jónssonar og „Spennitreyjan“ í
þýðingu Sverris Kristjánssonar.
Bækur Jack Londons eru jafnt
fyrir unga sem gamla. Nokkrar
KOMIÐ er út hjá Hlaðbúð ný-
stárlegt safn af smásögum, sem
nefnist ,.Pennaslóðir“. Er hér um
að ræða 11 sögur eftir 11 ís-
lenzkar konur, sem margar eru
þekktir höfundar. Ritstjóri er
Halldóra B. Björnsson. Höfund-
arnir eru Arnfríður Jónatansdótt
ir, Guðfinna Þorsteinsdóttir
(Erla), Halldóra B. Björnsson,
Líney Jóhannesdóttir, Oddný
Guðmundsdóttir, Rósa B. Blön-
dals, Sigríður Einars frá Munað-
arnesi, Steingerður Guðmunds-
dóttir, Steinunn Eyjólfsdóttir,
Valborg Bentsdóttir og Vilborg
Dagbjartsdóttir.
í eftirmála bókarinnar segir
ritstjórinn:
„Það var mér mikið ánægju-
efni, þegar mér bárust handritin,
að sjá hve viðfangsefni höfund-
anna voru fjölbreytt og óskyld.
Sagan um kramda hjartað og
NORÐFIRÐI, 30. nóv. — Menn-
ingarnefnd Neskaupstaðar gekkst
nýlega fyrir tónleikum góðra
listamanna. Nefndin, sem kosin
er af bæjarstjórn Neskaupstaðar,
tók fyrst til starfa í fyrra og
gekkst þá fyrir málverkasýningu
þeirra voru þýddar á íslenzku
fyrir mörgum árum og hlutu
miklar vinsældir. Nafn Jack
Londons er órjúfandi tengt gull-
æðinu mikla í Klondyke, ævin-
týralegum ferðalögum á hunda-
sleðum í baráttu við soltna úlfa
á snæviþöktum auðnum Norður-
Ameriku, glæfralegum sjóferð-
um og ríkri kennd með örlögum
lítilmagnans, hvort sem um menn
eða skepnur er að ræða.
ástasorgin er algerlega horfin úr
penna þeirra, og mátti missa sig
og sömu leiðina virðist hafa farið
eilífðarsagan um fátæklinginn
hjartahreina og vonda kaupmann
inn, stjúpan farin veg allrar ver-
aldar. Þessir höfundar láta sér
fátt mannlegt óviðkomandi ailt
frá leynistígum barnshugans til
himinbrauta framtíðarinnar. Allt
er þetta eðlilegt og sjálfsögð þró-
un og að sumu leyti tákn um
breytta tíma, meiri möguleika og
fjölbreyttara starfssvið, það er
ekki lengur eina úrræði ungra
stúlkna að sitja bróderandi og
bíða manna.“
Aftan við sögurnar er stutt
skrá með helztu æviatriðum
höfundanna. Er elzta konan 68
ára gömul, en sú yngsta 23 ára.
Bókin er mjög smekklega út-
gefin, og hefur Jóhannes Jóhann-
esson gert káputeikningu. Hún er
86 bls. í stóru broti.
Sigurðar Sigurðssonar, tónleikum
Guðmundar Jónssonar, óperu-
söngvara o. fl.
Að þessu sinni komu þeir aust-
ur hingað Björn Ólafsson, fið'u-
leikari, Árni Kristjánsson, píano-
leikari og Árni Jónsson óperu-
söngvari. Þeir þremenningarnir
héldu tónleika í Barnaskólahús-
inu í Neskaupstað í gærkvöidL
Húsfyllir var og mikill fögnuður
áhorfenda. Þeir Björn og Árni
Kiistjánsson léku fyrst hina svo-
kölluðu Kreutzersónuötu Beet-
hovens. Síðan söng Árni Jóns-
son með undirleik Árna Krist-
jánssonar, fyrst íslenzk lög eftir
Sigfús Einarsson, Pál ísólfsson,
Eyþór Stefánsson og Inga T. Lár-
usson, en síðar norsk og sænsk
lög, eftir Grieg, Sjöberg og fleiri.
Vakti söngur Arna mikinn fögn-
uð áheyrenda og varð hann að
syngja aukalög, m. a. aríu ur
Toska. L-I. léku A-eir Björn Ól-
aú-on og Árni Istjánsson lög
eftir Dvorak og Smetana. Voru
tónleikar þessir allir hinir prýði-
legustu og verða þeir mörgum
viðstöddum ógleymanlegt ævin-
týri.
Bjarni Þórðarson, bæjarstjóri,
þakkaði gestunum komuna. Þeir
félagar léku og sungu við messu
hjá sr. Inga Jónssyni í kirkjunni
á Norðfirði fyrr um daginn og í
morgun kl. 11 héldu þeir tónleika
fyrir börnin í Barnaskólanum.
Norðfirðingar eru þeim félög-
um þakklátir fyrir komuna. A
tímabili leit út fyrir að ekki gæti
orðið af þessu vegna þess að snjór
lokaði Oddskarðsvegi, er. á laug-
ardaginn var vegurinn ruddur og
er nú fær jeppum og stórum bíl-
um.
Þeir þremenningarnir fóru til
Eskfjarðar í dag, og halda par
tónleika í kvöld á vegum Ton-
listarfélags Eskifjarðar.
Þykir Norðfirðingum för þ’eirra
hafa greiðst vel og orðið öli n.n
ágætasta. — FréttaritarL
Pílagrímsför og ferðaþættir
eftir Þorbjörgu Arnadóttur seg
ir frá ferðalögum höfundar víða
um heim, Italíu, Frakkiand,
Bandaríkin, Noreg og óbyggðir
íslands. Tólf ljósmyndasíður
prýða bókina auk teikninga ið
hvern kafla sem listakonan Toni
Patten hefur gert. Bókin er 172
blaðsíður.
frægur rithöfundur, og mun
i þetta vera ein af síðustu bókum
I hans. Hún ei 294 bls.
Von mun vera á nokkrum
fleiri bókum frá Bókaforlagi
! Odds Björnssonar fyrir jólin, og
! verður þeirra væntanlega getið
I þegar þar að kemur.
Jón Þorleifsson og nokkur málverk hans.
Málverkasýning
Jóns Þorleifssonar
CINN af elztu og kunnustu
istmálurum okkar, Jón Þor-
eifsson, heldur um þessar
nundir sýningu á verkum sín-
im að Blátúni við Kaplaskjóls
reg. — Á sýningunni eru 28
nálverk frá ýmsum tímum í
evi listamannsins. Það elzta
ká árinu 1926, nokkur frá ár-
inum 1942 og 1943 og svo frá
úðustu árum. Ekkert mál-
verkanna hefur verið á sýn-
ingu áður. — Aðsókn að sýn-
ingunni hefur verið fremur
góð og hafa 6 málverk selzt
— en sýningin var opnuð síð-
astliðinn föstudag. Hún er op-
in daglega kl. 14—22, til 23.
desember. Er ekki að efa að
sýningin muni gleðja augu og
hjörtu margra sem þangað
koma.
■Samanlagðar iðgjaldatekjur
Atta bœkur frá Bóka-
forlagi Odds Björnssonar
„Pennaslóðir" — smá-
sögur 11 íslenzkra kvenna
Góðir gestir í Neskaup
sfað