Morgunblaðið - 02.12.1959, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.12.1959, Blaðsíða 14
14 MORCUNBLAÐÍÐ Miðvikudagur 2. des. 1959 — Ræða Jónasar Haralz Framh. af bls. 13. ■minjar kreppu- og stríðsára. í árslok 1954, eftir að gjaldeyris- tekjur höfðu verið mjög háar um tveggja ára skeið, var þó svo kom ið, að gjaldeyrisstaðan var orðin sæmileg, þótt ekki gæti hún talizt góð. Síðan hefur aftur hallað mjög undan fæti. Frá árslokum 1954 til ársloka 1958 versnaði gjaldeyrisstaðan um meir en 200 millj. kr. Síðari hluta þessa árs hefur gjaldeyrisstaðan enn versn- að svo mjög, að draga hefur orðið úr yfirfærslum bankanna síðustu vikurnar. Birgðir útflutnings- vöru hafa aftur á móti aukizt um nokkurn veginn sömu upphæð sem gjaldeyrisstaðan hefur versn að. Það sýnir bezt, hversu alvar- legt gjaldeyrisástandið er, að ekki hefur þurft annað en nokkra tregðu á hreyfingu útflutnings- afurða til þess að mikið hafi þurft að draga úr yfirfærslum. Gjaldeyrisstaða íslands hefur á undanförnum 2—3 árum verið verri en nokkurs annars lands í heiminum, ef undan eru skilin ör- fá lönd, sem þó er varla hægt að bera saman við ísland vegna mjög sérstakra erfiðleika, sem þau hafa átt við að etja. Smæð Iandsins Það er óhætt að fullyrða, að greiðslubyrðin af erlendum lán- um hafi síðustu árin verið svo há, og gjaldeyrisstaðan það erfið, að flestar, ef ekki allar aðrar þjóðir hefðu undir svipuðum kringumstæðum verið búnar að glata öllu lánstrausti og hefði legið við greiðsluþroti. Ég held það skipti miklu máli, að íslend- ingar geri sér ljóst, hvernig stend ur á því, að svo illa er ennþá ekki komið hér á landi. Skýringin er fyrst og fremst smæð landsins. Það sem er stórfé fyrir fsland, eru smáfúlgur fyrir erlenda banka og erlendar þjóðir. Þar að auki njótum við enn góðs af því, að á kreppuárunum fyrir síðustu heimsstyrjöld tókst íslenzkum bönkum ætíð að standa við skuld- bindingar sínar, þrátt fyrir mikla erfiðleika, á sama tíma sem mörg önnur lönd um víða veröld kom- ust í greiðsluþrot. Þetta tvennt, smæð landsins og góð reynsla af vilja þess til að standa við skuld- bindingar sínar við erfiðar að- stæður, hefur gert það að verk- um, að íslandi hefur tekizt að afla sér yfirdráttar hjá erlend- um bönkum og fastalán hjá er- lendum bönkum og ríkjum, löngu eftir að komið var yfir þau mörk varðandi greiðslubyrði og gjald- eyrisstöðu, sem annars eru not- uð sem mælikvarði í viðskiptum þjóða og peningastofnana. Þrátt fyrir þetta er svo komið fyrir all- mörgum árum, að ísland getur ekki fengið lán til langs tíma hjá þeim helztu peningastofnunum heimsins, sem slík lán veita. Við höfum ekki heldur getað fengið fjárhagslega aðstoð frá þeim stofnunum, sem við erum aðilar að (Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Efnahagssamvinnustofnun Evr- ópu), og sem slíka aðstoð veita, þegar örðugleikar steðja að, blátt áfram vegna þess að engar líkur hafa verið til þess að við að ó- breyttri stefnu í efnahagsmálum gætum í fyrirsjáanlegri framtíð endurgreitt þau framlög í sam- ræmi við starfsreglur þessara stofnana. Þetta verður að hætta Þau miklu erlendu lán til langs tíma, sem landið hefur notað á undanförnum þremur árum hafa verið veitt úr sérstökum sjóðum, sem Bandaríkjastjórn ræður yfir, en slíkra lána hafa aðeins fá lönd orðið aðnjótandi undir mjög sér- stökum kringumstæðum. Það er smæð landsins, sem heíur gert þessar lánveitingar mögulegar. Þótt lánin séu mikil frá okkar sjónarmiði séð, eru þau svo lítil á mælikvarða Bandaríkjanna, að hægt hefur verið að veita þau án þess að fylgja í öllu þeim ströngu reglum, sem annars gilda um lán- veitingar yfirleitt. Getur nokkur íslendingur, sem íhugar þær staðreyndir, sem hér hafa verið raktar, komist nema að einni niðurstöðu: Þetta verð- ur að hætta. Við getum ekki hald ið áfram að hafa halla í við- skiptum okkar við önnur lönd, sem nemur a.m.k. 200 millj. kr. á ári hverju, og hlýtur að fara sí- vaxandi nema gripið sé í taum- ana. Getum við íslendingar, sem lifum við betri lífskjör en flest- ir aðrir íbúar þessa hnattar, búizt við því, að aðrar þjóðir hafi okk- ur á framfæri sínu til langframa? Hvað er þá orðið um tilraun okkar til að byggja sjálfstætt ríki í þessu landi? Verðum við ekki einmitt að gera þá kröfu til annarra þjóða, að þær líti á okk- ur sem jafningja og veiti okk- ur ekki annað en það, sem þjóðir yfirleitt veita hvor annarri í viðskiptum sín á milli? Við þurf- um enn um langt skeið á erlend- um lánum að halda til uppbygg- ingar atvinnulífsins. Slík lán eig um við að taka innan hóflegra marka og slík lán getum við fengið með eðlilegum hætti und- ireins og við höfum sýnt, að við séum færir um að stjórná efna- hagsmálum okkar. Verðbólgan innanlands Við getum líka ætlazf til þess, að alþjóðastofnanir og vinveitt- ar þjóðir hlaupi undir bagga með okkur um skeið, þegar við lend- um í sérstökum erfiðleikum, að þær þegar svo ber undir hjálpi okkur til þess að hjálpa okkur sjálfum. En um leið og við göng- um lengra, hættum við í raun- inni að líta á okkur sem sjálf- stæða þjóð. Og ef við hættum að ♦aka sjálfstæði okkar alvarlega hvað munu þá aðrir gera? Greiðsluhallinn úf á við er ekki nema önnur hlið efnahags- vandamálanna. Hin hliðin er verðbólgan innanlands, sem einn ig er ávöxtur tilraunanna til að eyða méiru en við öflum. Sé verðbólgan mæld með vísitölu framfærslukostnaðar ,hefur hún numið um það bil 10% á ári að meðaltali undanfarin 15 ár. Það hefur með ýmsu móti verið reynt að hafa hemil á verðbólgunni. Vörur hafa verið greiddar nið- ur ,ströngu verðlagseftirliti hef- ur verið haldið uppi. Stundum hafa allar verð- og kauphækkan- ir verið stöðvaðar um nokkurt skeið, og á sl. vetri var eins og kunnugt er verðlag og kaupgjald lækkað um ákveðna hundraðs- tölu. Þessar aðgerðir hafa allar borið árangur í því að draga úr hraða verðbólgunnar. En þær hafa ekki bundið enda á verð- bólguna af þeirri ofurskiljanlegu ástæðu að þær hafa beinzt að af- leiðingum hennar en ekki orsök- um. Með þessu er ekki verið að kasta rýrð á þýðingu þessara ráð stafana. Verðbólga, sem nemur ekki meiru en um 10% á ári hef- ur að sjálfsögðu ekki eins ör- lagaríkar afleiðingar og verð- bólga sem nemur 50 eða 100% á ári. En afleiðingar hinnar hægu verðbólgu eru nógu uggvænleg- ar samt, þegar til lengdar lætur, og sjást þess nú ærin merki í efnahagslífi landsins. Minnkun sparnaðar og aukning óarðbærr- ar fjárfestingar er sú afleiðingin sem alvarlegust er, af því hún gerir það að verkum, að vöxtur þjóðarframleiðslunnar verður minni, þegar fram líða stundir, en ella hefði getað orðið. Um tvennt að velja Þótt tekist hafi undanfarin 15 ár að halda verðbólgunni í skefj um, þannig að hún hafi ekki ver- ið meira en 10% á ári að meðal- tali, þá má ekki draga þá álykt- un, að þetta geti tekizt framveg- is. Ég held þvert á móti, að að- eins sé um tvennt að velja: enga verðbólgu eða óðaverðbólgu. Nið urgreiðslurnar eru nú orðnar svo miklar, að öllu lengra verður ekki haldið á þeirri braut, allra sízt eftir að vísitölugrundvöllur- inn var leiðréttur á sl. vetri. Tenging kaupgjalds við vísitölu framfærslukostnaðar, og tenging verðs landbúnaðarafurða og fisk verðsins við kaupgjaldið, er orð- in svo náin ,að hefjist víxlhækk- anir kaupgjalds og verðlags á annað borð, hlýtur það á skömm um tíma að leiða til v'erðbólgu- sprengingar. Það var einmitt slík sprenging ,sem átti sér stað síð- ari hluta árs 1958. Þá var komist svo að orði. að þjóðin væri að ganga fram af brúninni. Sú sýn, sem þar blasti við, var nógu ugg vænleg til þess að hörfað var til baka. En það var jafn augljóst þá eins og það er nú, að hversu þýðingarmikið, sem það væri að stöðva víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags í bili, væri verðbólg- an þar með ekki að velli lögð. Ennþá stöndum við svo nærri brúninni að vel má sjá fram af. Leiðin út úr vandanum Ég hefi í þessu erindi reynt að gera grein fyrir efnahagsmál- um þjóðarinnar, eins og þau koma mér fyrir sjónir. Ég hefi reynt að sýna fram á, hvernig þau vandamál, sem við nú glím- um við, hafa sprottið af þeirri sjálfstjórn, sem við höfum öðl- azt sem þjóð og sem einstakling- ar í hinum miklu þjóðfélagsbreyt ingum undanfarinna áratuga. Ég hefi lýst þeirri skoðun minni, að það, að sigrast á þessum vanda- málum, sé í raun og veru próf- steinninn á hvernig okkur tekst, hvort við getum lifað sem sjálf- stæð þjóð í þessu landi. Ég hefi ekki farið dult með þá skoðun, að nú sé komið áð tímamótum. Sé haldið lengra á þeirri braut, sem gengin hefur verið sl. 15 ár, blasir ekki annað við en greiðslu- þrot út á við og óðaverðbólga innanlands. Nema þá, að við get- um komizt á einhvers konar var- anlegt framfæri hjá öðrum þjóð- um. Ef þær þjóðir eru þá til, sem slíkt framfæri vilja veita, og ef við sjálfir teljum það eitthvað happasælla hlutskipti en það, sem fyrr var nefnt. Hvaða leið er þá út úr vand- anum? Sú ieið getur ekki verið auðveld Jafnsamtvinnuð og þessi vandamál eru þjóðfélagstþróun margra áratuga. En leiðin er samt til. Hún liggur ekki til baka til þess þjóðfélags, sem hér var ríkjandi fyrir þrjátíu árum. Þangað liggja engar leiðir. Enda var það þjóðfélag stórlega gall- að, þótt lítið gætti þá þeirra- vandamála, sem nú eru efst á baugi. Ég er viss um, að ekki er til sá íslendingur, hvorki í hópi atvinnurekenda né annarra, sem óskar eftir endurkomu þeirra tíma, þegar atvinna var náðar- brauð og verkalýðsfélög áhrifa- lítil. í stað þess að snúa til baka verðum við að halda áfram. Við verðum að læra að ráða við þau vandamál, sem þróun hins nýja þjóðfélags hefur skapað, án þess að glata þeim verðmætum, sem sú þróun hefur fært okkur. Að því er efnahagsmálin snertir, þýðir þetta fyrst og fremst það, að undir forustu ríkisvaldsins verður að taka upp miklu ákveðn ari stjórn þeirra mála, en verið hefur fram að þessu. Sú stjórn á ekki að vera byggð á höftum og eftirliti, haldur á almennum regl um, er sniðnar séu eftir grund- vallarlögmálum efnahagslífsins sjálfs. En sú stjórn getur því að- eins borið árangur, að stjórnmála menn, leiðtogar stéttarsamtaka og allur almenningur skilji nauð- syn hennar og veiti henni stuðn- ing. Höfuðreglur efnahagsmálanna Ég mun nú í stuttu máli reyna að gera grein fyrir þeim höfuð- reglum, sem stjórn efnahags- málanna verður að byggjast á. Hér getur að sjálfsögðu ekki verið um neitt tæmandi yfirlit að ræða né er heldur hægt að fara mikið út í einstök atriði. Samt sem áður ætti þetta yfirlit að geta gefið nokkra hugmynd um það, sem mestu máli skiptir. 1. Bankakerfi landsins verður undir forustu Seðlabankans að vinna eftir ákveðnum reglum, sem eru við það miðaðar, að út- lánaaukning bankanna fari ekki fram úr eðlilegri aukningu á um- ráðafé þeirra. En aukning um- ráðafjársins ákveðst hins vegar af aukningu spariinnstæðna og seðlaveltu við vaxandi þjóðar- framleiðslu og fast verðlag. Setja verður ákveðin takmörk fyrir þeim sjálfvirku lánum Seðlabank ans til vissra atvinnugreina, sem hér hafa tíðkazt, svo að öruggt sé, að þau lán aukizt ekki um- fram það, sem hæfilegt er. Til þess að bankarnir geti haldið út- lánum innan hæfilegra marka og geti jafnframt stuðlað að auk- inni sparifjármyndun, verða þeir unáir forustu Seðlabankans að geta hækkað og lækkað vexti eft ir því sem þörf krefur á hverj- um tíma. Slíkar breytingar vaxta eftir því sem aðstæður segja til um, er tæki til stjórnar peninga- málanna, sem reynsla annara þjóða hefur sýnt, að ekki er hægt að komast hjá að nota. , Hellalaus fjárlög 2. Fjárlög verða að vera hallalaus og helzt með nokkrum greiðsluafgangi. Binda verður enda á lánveitingar úr ríkissjóði, og draga úr eða helzt hætta með öllu veitingu ríkisábyrgðar fyrir lánum. Þetta hvorttveggja. veit- ing lána og ábyrgða er verkefni banka, sem ríkissjóður getur ekki tekið að sér svo vel fari. 3. Semja verður starfsáætlan- ir fyrir hina mörgu fjárfesting- arsjóði hins opinbera og fyrir þær opinberu stórframkvæmdir, sem eru utan fjárlaga. Þessar á- ætlanir verða að vera miðaðar við það tvennt, að framkvæmd- irnar fari ekki fram úr því fjár- magni, sem til umráða er með eðlilegu móti, og að þær fram- kvæmdir gangi fyrir, sem mest gefa í aðra hönd. Jafnframt verða lánskjör fjárfestingarsjóða að breytast í eðiilegt horf bæði að því er snertir lánstíma og vexti. Jafnvægi í greiðsluviðskiptum 4. Sama gengi verður að gilda fyrir útflutning og innflutning, er sé miðað við að skapa jafn- vægi í greiðsluviðskiptum lands- ins við önnur lönd. Það er ein- mitt hlutverk gengisins að skapa slíkt jafnvægi og ekkert annað tæki er til, sem getur komið x þess stað. Um leið og jafnvægi hefur náðst í greiðslujöfnuðin- um, má afnema influtningshöft, nema að því leyti, sem þau eru nauðsynleg tii verndar viðskipta við þau lönd, sem verzla á jafn- keypisgrundvelli. 5. Breyta verður núverandi reglum um tengingu verðlags og kaupgjalds og tengingu kaup- gjalds og afurða- og fiskverðs, þannig að ekki sé hætta á víx- hækkunum verðlags og kaup- gjalds. Jafnframt verða verka- lýðsfélög og samtök atvinnurek- enda að setja sér þær reglur unx hækkanir grunnkaups, að þær verði ekki meiri en sem nemur aukningu framleiðsluafkasta. Aukning framleiðslunnar 6. Setja verður þær reglur um verðlagningu og um skattlagn- ingu fyrirtækja, sem geri einka- fyrirtækjum jafnt sem opinber- um fyrirtækjum kleift að endur- nýja fjármuni sina á hæfilegum tíma og mynda nýtt fjármagn til eðlilegrar fjármunaaukningar. Aðeins með þessu móti er hægt að tryggja endurnýjun og eðli- lega aukningu atvinnutækjanna, sem aftur er undirstaða að vax- andi þjóðarframleiðslu og vel- megun. Það er ekki auðvelt að setja þessar reglur og þaðan af síður að framkvæma þær. Allra sízt í þjóðfélagi, sem um langt skeið hefur vanizt því, að um stjórn efnahagsmála giltu engar reglur. Þó eru þessar reglur í eðli sínu mjög einfaldar. og ekki aðrar en þær, sem löng reynsla hefur sýnt að óhjákvæmilega verður að fyigja í sjórn efnahagsmála. Þær eru byggðar á almennum lög- málum sjálfs efnahagslífsins, sem eiga jafnt við öll hagkerfi og skipulög, hvort sem þau kenna sig við kapítalisma eða sósíalisma. Við íslendingar get- um ekki búizt við því, að for- sjónin veitti okkur undanþágu frá jafn algildum lögmálum. í þessum efnum er enginn milli- vegur til. Sé þessum reglum ekki fy.gt hlýtur það að leiða til þeirrar upplausnar og óreiðu, sem nú blasir við í efnahagsmálum okkar. Sé þeim fylgt, er það öruggt, að þjóðin eyði ekki meiru en hún aflar, að hallinn á greiðslujöfn- uðinum hverfi, og að endi verði bundinn á verðbólguna. Því marki er hægt að ná á skömm- um tíma, ef unnið er af fullri einurð. Ávarp til Hafnfirðinga ÞEGAR stórslys hefur borið að höndum, sem snert hafa okkur Hafnfirðinga sérstaklega, höfum við ætíð reynt samúð, örlæti og hjálpfýsi hvaðanæva frá. Um al’.t land hafa verið útréttar hendur til þátttöku í því að létta byrðar þeirra er átt hafa um sárast að binda. Þessa almennu og samúð- arríku hjálpsemi fáum við seint fullþakkað. Nú hefur lítið þorp á Norður- landi orðið fyrir þungri raun fyr- ir sviplegan atburð. Hér í fjöl- menninu gera menn sér það ef til vill ekki fullljóst hvílíkt áfall það er fyrir lítið byggðarlag eins og Hofsós að missa í einni svipan þrjá framtakssama athafnamenn á bezta aldri. En þungbærast er það að sjálfsögðu ástvinu n þeirra. Ég veit, að þar nyrðra verða samtök um það höfð að veita þeim aðstoð eftir mætti, en fámenni og litlar tekjur hjá flest- um þar um slóðir, veldur því að sú aðstoð hlýtur að ná skammt, þrátt fyrir góðan og almennan vilja. Ég er þess fullviss, að margir í Hafnarfirði vilja leggja smn skerf til liðveizlu hinum bág- stöddu, enda ættum við flestum betur að skilja reynslu þeirra og erfiðleika. Ég mun fúslega veita gjöfum viðtöku og koma þeim til söfn- unarnefndarinnar á Hofsósi. Garðar Þorsteinsson. Uppbygging atvinnuveganna Um leið og sigrazt hefur verið á greiðsluhallanum og verðbólg- unni, og þá fyrst, er hægt að snúa sér af krafti að uppbygg- ingu atvinnuveganna. Þá verður hægt með eðlilegu móti að afla erlendra lána til langs tíma til verklegra framkvæmda og nýrra atvinnutækja, og þá mun einn- ig fást meira fjármagn innan- lands til slíkra framkvæmda en verið hefur. Þá er kominn tími til. að gera áætlanir um auknar framkvæmdir og byggingu nýrra atvinnugreina. Þá er gatan greið til aukinnar framleiðslu og vel- megunnar. Allt þetta er mikils yirði, en þó er mest um það vert, að þá hefðu íslendingar sýnt það, að þeir væru menn til að Stjórna ser sjalfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.