Morgunblaðið - 08.12.1959, Side 2

Morgunblaðið - 08.12.1959, Side 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 8. des. 1959 Samkomulag neytenda og bænda farsælasta lausnin Bráðabirgðalögin Á DAGSKRÁ neðri deildar Alþingis í gær var frumvarp til laga um verðlagningu land búnaðarafurða, en frv. þetta er sem kunnugt er samhljóða bráðabirgðalögum þeim, er fyrrverandi ríkisstjórn gaf út sl. haust. Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, hafði framsögu um frumvarpið. Kvað hann mál þetta þegar allmikið rætt á þinginu, enda þótt það hefði ekki fyrr verið á dagskrá og bráðabirgða- lögin um landbúnaðarvöruverðið væru vel kunn alþingismönnum sem öðrum. Sjálfstæðisflokkur- inn hefði frá setningu þessara laga lýst sig andvígan þeim og þyrfti ekki að taka fram, að sú afstaða flokksins væri óbreytt. Ráðherrann kvaðst þó telja rétt, að mál þetta fengi þinglega með- ferð og yrði vísað til nefndar. Minnti ráðherra á að nefnd lög rynnu út 15 des. nk. og kvað ríkisstjórnina vilja leysa þessa deilu með samkomulagi milli neytenda og bænda og væri ósk- andi að slíkt samkomulag næð- ist, og yrði það áreiðanlega far- í HÆSTARÉXTI er genginn dómur í stóreignaskattsmáli, sem Guðmundur Guðmundsson og Trésmiðjan Víðir höfðuðu gegn fjármálaráðherra, út af skatti þessum. Er hér um að ræða síð- ari þátt máls þessa. Þau urðu úrslit málsins í Hæstarétti að dómurinn staðfesti dóm þann er Hákon Guðmundsson hæstarétt- arritari kvað upp. í þessum þætti málsins fjall- aði Hæstiréttur um þessi þrjú atriði: Guðmundur Guðmunds- son taldi að fasteignir sínar væru of hátt metnar til skatts, þar eð Báturinn dreginn til hafnar VÉLBÁTURINN Páll Þorleifsson, sem lýst var eftir á laugardags- kvöldið, og ókominn var fram er sunnudagsblað Mbl. fór í prentun á iaugardagskvöldið, var dreginn til hafnar í Vestmannaeyjum. Var báturinn með bilaða vél út af Selvogi, er hann fannst. Maugham kynntur í kvöld SVO sem kunnugt er hefur að undanfömu verið tekin upp sú nýbreytni í starfsemi ameríska bókasafnsins að Laugaveg 13, að halda þar bókmenntakvöld, og er þá fjallað um ritverk bæði enskra og amerískra höfunda og lesið upp úr verkum þeirra. Þriðja bókmenntakvöldið af þessu tagi verður haldið í kvöld, þriðjudag, 8. des. og hefst eins og áður kl. 8.45 e.h. í ameríska bókasafninu, Laugaveg 13. í þetta sinn verður rætt um smá- sagnagerð nokkurra enskra rit- höfunda, þar á meðal Somersets Maughams, sem hefur verið mjög vinsæll meðal bókmenntaunn- enda hér. Verður lesið upp úr smásögum hans og fleiri höfunda enskra. öllum er heimill aðgang- ur að þessum bókmenntakvöld- um. rædd á Albingi sælasta lausnin fyrir báða aðila. Eysteinn Jónsson, 1. þm. Aust- urlands, tók næstur til máls og beindi tveimur fyrirspumum til landbúnaðarráðherra þess efnis, hvort ráðherrann vildi lýsa því yfir, að bráðabirgðalöðin yrðu undir engum kringumstæðum framlengd í þinghléinu og engin bráðabirgðalög sétt á þeim tíma um verðlagningu landbúnaðaraf- urða. Einar Olgelrsson, 3. þm. Reyk- víkinga, kvað heppilegast að af- greiða þetta mál þegar og lagði til að það yrði gert með rök- studdri dagskrá. Ólafur Thors, forsætisráðherra, fór fram á að fundi yrði frestað í klukkustund, svo mönnum gæf- ist færi á að kynna sér þá tillögu, er fram hefði komið. Var fundi frestað. Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, tók fyrstur til máls, er fundi var fram haldið. Vék hann fyrst að fyrirspurn Eysteins Jóns- sonar og kvað undarlegt, er mað- ur, sem verið hefði ráðherra jafnlengi og Eysteinn, léti sér detta í hug, að ríkisstjórn afsal- aði sér réttinum að gefa út bráða- birgðalög. Þá fór ráðherrann nokkrum skylt sé að miða verðmæti þeirra við fasteignamatið frá 1. maí 1957. f öðru lagi að skylt sé að draga frá skuldlausri eign Guðmundar í árslok 1956, alla skatta til ríkis og bæjar, sem lagðir voru á árið 1957 og í þriðja lagi, að eigi megi telja með eign- um Guðmundar, eignir sem hann hafi á árinu 1956 afhent sem fyrirframgreiðslu upp í arf. Dómur Hæstaréttar gekk í gærmorgun. Einn dómenda Krist ján Kristjánsson borgarfógeti, skilaði sératkvæði. En dómur Hæstaréttar segir, að með skírskotun til dóms und- irréttar, og forsendna hans, þá sé stóreignaskattur Guðmundar Guðmundssonar rétt talinn kr. 427.571,00, og þar af megi sækja Trésm. Víðir hf. um kr. 89.035,00. Ríkisskattanefnd hafði ákveðið að stóreignaskattur Guðmundar skyldi vera kr. 662.598,00, þar af átti Víðir hf. að annast greiðslu á rúmlega 98.000,00 krónum. í undirrétti var ekki fallizt á þá skoðun Guðmundar að eignir hans væru of hátt metnar til skatts. Eins var ekki fallist á þá kröfu að til frádráttar skuli koma skattar til ríkis og bæjar. Aftur á móti var fallist á það, í héraði og fyrir Hæstarétti, að eignir þær er Guðmundur hafði afhent á árinu 1956 sem fyrirfram- griðslu upp í arf, hafi verið lög- mæt ráðstöfun. Með fullfermi í KJÖLFAR togaranna Hvalfells og Asks, sem komu af Nýfundna landsmiðum með fullfermi um síðustu helgi, sigla nú fjórir tog arar, áleiðis hingað heim með karfaafla til vinnslu í hraðfrysti- húsunum. f dag kemur fyrsti þeirra, Þor- móður goði, en síðan koma þeir hver af öðrum Þorsteinn Ingólfs- son, Þorkell Máni og Úranus, — en allir eru togararnir með full- fermi. Eftir að stormakafla slot- aði á þessum fjarlægu miðum, hefur togurunum gengið vel, og hafa þeir fengið fullfermi á nokkrum dögum. orðum um rökstuddu dagskr^na, er Einar Olgeirsson hafði borið fram. Kvað hann hana að ýmsu leyti ganga í rétta átt, en þó kvaðst hann ekki telja rétt að samþykkja hana. Fulltrúar neyt- enda og bænda væru nú að hefja viðræður um þessi mál, og gæti samþykkt rökstuddu dagskrárinn ar orðið til að torvelda þær við- ræður. Yrði væntanlega skorið úr því í þessari viku, hvort sam- komulag næðist eða ekki. Það yrði öllum til góðs, af samkomu- lag næðist, en öllum hlutaðeig- endum til ills, ef það mistækist. Að lokum lagði Ingólfur Jónsson til, að málinu yrði vísað til 2. umræðu og nefndar. Var nú gengið til atkvæða. — Dagskrártillagan var felld með 28 atkv. gegn 7 og málinu vísað til 2. umr. með 22 atkv. gegn 18, að viðhöfðu nafnakalli og til landbúnaðarnefndar með 24 sam- hljóða atkvæðum. — Útvarpsumræður Framh. af bls. 1. ist kostur á að grandskoða allar aðstæður. Hitt vissu kunnugir, að meðan Alþingi sæti hefði stjórn- in ekki fullan vinnufrið. Þá vék forsætisráðherra nokkru nánar að einstökum at- riðum efnahagsástandsins og lauk máli sínu með þessum orð- um: „Það er svo auðvitað kjarni málsins, keppikeflið, hugsjónin, að takast megi í náinni framtíð, eigi aðeins að halda núverandi Iífskjörum, heldur einnig að bæta þau. Þetta er hægt, ef þjóðin vill, þekkir sinn vitjunartíma og stend ur einhuga að nauðsynlegum að- gerðum.“ Gunnar Thoroddsen, fjármála- ráðherra, talaði næstur. Kvað hann það hafa verið fyrsta verk ríkisstjórnarinnar að gera sér grein fyrir, hver verkefni væru mest aðkallandi og hver vinnu- brögð væru hagkvæmust varð- andi lausn þeirra. Fjárlög ríkis- ins og róttækar efnahagsaðgerð- ir hefðu þar orðið efst á baugi. Fjárlagafrumvarp hefði verið undirbúið af fyrrverandi fjár- málaráðherra, en því yrði að breyta, þar sem fyrir dyrum stæðu breytingar á ríkjandi skip- an innflutnings og útflutnings- mála. Og nú hefðu legið fyrir tvær hugsanlegar leiðir um vinnu- brögð, önnur sú að Alþingi héldi áfram fundum sínum allan þenn- an biðtíma, sýslandi við einhver önnur verkefni. Hin leiðin væri sú, að Alþingi ákvæði að fresta fundum sínum þennan tíma. Rík- isstjórnin gæti þá gefið sig ein- göngu að efnahagsmálunum og lagt fullmótaðar tillögur fyrir þingið, er það kæmi saman. Kvað fjármálaráðherra alla þingmenn stjórnarflokkanna hafa samþykkt að síðari leiðin væri farin. Þá minntist hann á þau tvö frumvörp, er lögð hefðu verið fyrir þingið og hverjar við- tökur þau hefðu fengið af stjórn- arandstöðunni, en slík frumvörp hefðu ætíð verið samþykkt ágrein ingslaust á þingi. Þingreyndir menn hefðu því orðið furðu lostn ir, þegar stjórnarandstaðan hefði risið gegn þeim af slíkum ofstopa. Gunnar Thoroddsen fór nokkr- um orðum um þær mótbárur, er stjórnarandstæðingar hefðu bor- ið fram gegn þingfrestun og sýndi fram á, hve þær væru ger- samlega úr lausu lofti gripnar. Minnihluti Alþingis hefði vilj- að ráða yfir meirihluta Alþings, sem réði hvort Alþingi væri frest að eða ekki. Um afkomu ríkissjóðs tók fjár málaráðherra fram, að ekki væri ástæða til að óttast greiðsluhalla á yfirstandandi ári. Að lokum rakti Gunnar Thor- Síðari þáttur stóreigna- skattsmáls í Hæstarétti i Ve&urfregnir i f NA /5 hnútar */ SV 50 hnútar ¥ Snjókoma > Oði \7 Skúrír í£ Þrumur W&t Kutíaskit Hitask/Z H Hoti L Latqi ^ LÆGÐARSVÆÐI frá Græn- S landshafi til Bretlandseyja. — \ Veðurhorfur: Suðvesturland i og SV-mið: SA-stinningskaldi, S rigning. Faxaflói til Norður- • lands, Faxaflóamið til norður- miða: SA-kaldi, sums staðar! dálítil rigning. Norðurland til j Suðausturlands og miðin: AU- v hvass suðaustan, rigning. — 5 Horfur á miðvikudag: Aust- j læg átt, þíðviðri, dálítil rign- s ing á Suður- og Austurlandi. ) oddsen efnislega það írumvarp um framlengingu nokkurra laga, er málþófi olli á þinginu og rakti nokkuð nauðsynlegar bieyting- ar á ýmsum þáttum þess. 1 síðari umferð töluðu af hálfu Sjálfstæðisflokksins Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráðherra, og Bjarni Benediktsson, dómsmála- ráðherra. Ingólfur Jónsson vék í upphafi máls síns að málþófi því, er stjórnarandstaðan hefði haldið uppi til að tefja þinghaldið. — Hefðu talsmenn hennar þar rætt um óskyld mál þeim er á dag- skrá hefðu verið og m. a. um bráðabirgðalög fyrrverandi ríkis- stjórnar. Hefðu ýmis brigzlyrði verið höfð í frammi og talið að ríkisstjórnin væri að brjóta lög með því að leggja hin margum- ræddu bráðabirgðalög ekki fram á fyrstu dögum þingsins. Á dög- um V-stjómarinnar hefði dregizt í 3 mánuði að leggja bráðabirgða lög fyrir þingið, en að þessu sinni hefði aðeins verið liðinn hálfur mánuður af þingtímanum, er lögin voru lögð fram. Stjórnarflokkarnir hefðu ekki sömu afstöðu til þessara laga og stjórnarandstaðan hefði gert sér vonir um, að miklar innræður um þetta mál á Alþingi gætu valdið erfiðleikum í ríkisstjórn- inni. Deilur um málið gætu tor- veldað lausn þess og nauðsyn- legra væri að leysa hinar erfiðu deilur milli neytenda og fram- leiðenda heldur en hefja illvigar deilur á Alþingi um málið. Landbúnaðarráðherra rakti því næst aðdraganda bráðabirgðalag- anna o g viðhorf verðlagsmála landbúnaðarvara, eins og þau nú standa, og drap í því sambandi á sýndartillögur, er Framsóknar- menn hafa flutt á þessu þingi í sambandi við þessi mál. Þá ræddi hann nokkuð feril vinstri stjórn- arinnar og kvað það verkefni nú- verandi ríkisstjómar að leiðrétta ýmsar misfellur í þjóðarbúskapn- um, sem væri arfur frá vinstri stjórninni. Ingólfur Jónsson lauk ræðu sinni með þessum orðum: „Með sameinuðu átaki mun takast að komast út úr þeim vanda, sem nú er við að etja. Möguleikarnir eru miklir ef þeir eru nýttir og þjóðin ber gæfu til að vinna markvisst að því að koma atvinnuvegunum á traustan grundvöll. Rikisstjomin mun með tillögum sinum á Al- þingi, þegar það kemur saman aftur, leitast við að leggja grund- völlinn að traustu og gjörbreyttu atvinnulífi, sem verða má til þess að tryggja þjóðinni öryggi og bjarta tíma“. Bjarni Benediktsson dómsmála ráðherra kvað það hafa þótt sjálfsagt, allt frá endurreisn Al- þingis, að ríkisstjóm undirbyggi mál milli þinga og legði f járlaga- frumvarp og önnur frumvörp svo fljótt fyrir Alþingi sem nokkur kostur væri. Einstakir þingmenn hefðu ekki jafngóða aðstöðu og ríkisstjórnin til undirbúnings málum. Úm engin mál ætti þetta frekar við en efnahagsmál slík, sem nú biðu úrlausnar. Um þau mál yrðu ekki gerðar heildartil- lögur nema með aðgangi að gögn- um um afkomu ríkis og atvinnu- vega, er sérfræðingar ynnu úr. Lausn þessara mála væri hins vegar undirstaða flests annars, sem gert yrði á Alþingi, ekki sízt afgreiðslu fjárlaga. Þinghald væri því þýðingarlítið fyrr en tillögur um lausn þessara mála ásamt gögnum væm fram- komnar. Það væri tvímælalaust skylda ríkisstjómar að leggja til- lögur fyrir þingið, svo fjótt sem verða mætti, svo störf þess gætu hafizt með eðlilegum hætti. Þá rakti ráðherrann viðhorf þessara mála nú og kvað engan geta undrað, að hin nýja ríkis- stjórn færi fram á þinghlé. Væri þetta því nauðsynlegra, þar sem vandi efnahagsmálanna væri nú svo mikill og aðkallandi. Ráðherrann vék að óhæfilegum vinnubrögðum stjórnarandstöð- unnar og málþófi þeirra á þing- inu og benti á, hvernig þeir hefðu er þeir voru í stjórn, beitt sömu vinnubrögðum og verri ea þeir nú sökuðu ríkisstjórnina um. Núverandi ríkisstjórn færi fram á það eitt, að undirbúa tillögur sínar í meginmálum fyrir Alþingi til ákvörðunar, og aðstöðu til þess að leysa einstök vandamál, sem að kunna að steðja á þessu tímabili. Allt mundi þetta lagt fyrir Alþingi, svo fljótt sem föng væru á, en það myndi koma sam an aftur ekki síðar en 28. janúar n.k. Dómsmálaráðherra vék að stjórnarmynduninni, sem hefði verið eðlileg afleiðing yfirlýs- inga stjórnarflokkanna og kosn- ingaúrslitanna. Stefnuskrár flokk anna hefðu verið líkar, en þá hefði greint á um einstök mál, eins og bráðabirgðalögin um landbúnaðarvöruverðið. Málefna- leg lausn vandans sjálfs skipti þó mestu máli, mikið lægi við fyrir þjóðina alla að vel tækist í þessu og þó enn meira að leysa sjálfan meginvanda efnahagsmál anna, svo hruni yrði afstýrt og sjálfstæði þjóðarinnar tryggt. — Bjarni Benediktsson, dómsmála- ráðherra, lauk máli sínu með þessum orðum: „Að réttum lýðræðisreglum á Þjóð og þing kröfu til þess að ríkisstjórnin leggi fram tillögur sínar og greinargerðir, eins fljótt og við verður komið. Ríkisstjórnin viðurkennir þessa skyldu og fer nú fram á það eitt að fá starfsfrið til þess að leysa hana af höndum. Síðan mun þessi ríkisstjórn eins og aðrar verða dæmd eftir verkum sínum.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.