Morgunblaðið - 08.12.1959, Síða 4
4
MORCUTSBLÁÐ1Ð
Þriðiudaeur 8. des. 1959
í dag- er 341. dagur ársins.
Þriðjudagur 8. desember.
Árdegisflæði kl. 10:59.
Síðdegisflæði kl. 23:40.
Slysavarðstofan er opin allan
sólarhringinn. — Læknavórður
L.R. (fyrii vitjanir), er á sama
stað frá kl. 18—8. — Simi 15030
Holtsapótek og Garðsapólek
eru opin alla virka daga frá kl.
9—7, laugardaga 9—4 og sunnud.
1—4.
Næturlæknir vikuna 5.—11.
desember er í Lyfjabúðinni Ið-
unni. Sími 17911.
Hafnarfjarðarapótek er opið
alla virka daga kl. 9—12. Laugar-
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
daga kl. 13—16 og kl. 19—21.
Næturlæknir í Hafnarfirði er
Ólafur Einarsson, simi 50552.
Kópavogsapótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Tékkneskir
Barnaskór
SKÓSALAN
Jlnugaoeg 1 - Sími 1Ó5S4
Keflavíkurapótek er opið alla
virka daga kl. 9—-19, Iaugardaga
kl 13—16. — Sími 23100.
I.O.O. F. Rb. 1 = 1091288% =
E. K.
SBBl Skipin
H.f. Eimskipafélag íslands.
Dettifoss fór frá Rotterdam 7.
des. til Hamborgar og Rvíkur. —
Fjallfoss ffór frá Hull 7. des. til
Rvíkur. Goðafoss fór frá Rvík
3. des. til New York. Gullfoss
fer frá Kaupm.höfn á hádegi í
dag til Kristiansand, Leith og
Rvíkur. Lagarfoss fór frá Vestm,-
eyjum 3. des. til New York. —
Reykjafoss fór frá Súgandafirði
7. des. til ísafj. og norður um
land til Rotterdam og Hamborg-
ar. — Selfoss fór frá Lysekil 7.
des. til Kaupm.hafnar, Rostock,
Gdynia og Riga. — Tröllafoss fór
frá New York 3. des. til Rvíkur.
Tungufoss fór frá Rvík 7. des. til
Fáskrúðsfjarðar, Gautaborgar,
Árhus og Kaupm.hafnar. —
Skipaútgerð ríkisins.
Hekla er á Austfjörðum á norð-
urleið. Esja kom til Rvíkur í gær
að norðan og vestan. Herðubreið
kom til Rvíkur í gærkvöldi að
austan. Skjaldbreið er á Húna-
flóahöfnum á norðurleið. Þyrill
er í Rvík. Skaltfellingur fór til
Vestm.eyja í gærkv. Baldur fer
frá Rvík í kvöld til Ólafsvíkur,
Grundarfjarðar og Flateyjar.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.
Katla er í Rostock. Askja er á
Önfirðingar í Reykjavik
Aðalfundur Önfirðingafélagsins verður haldinn
í Tjarnarcafé fimmtudaginn 10. des. kl. 9 síðdegis.
Venjnleg aðalfundarstörf — Félagsvist.
STJÓRNIN.
leið til Rvíkur frá Cardenas.
M.s. „Oksywie“ er í Rvík.
Skipadeiid SÍS
Hvassafell fór 4. þ. m. frá
Malmö áleiðis til Rvíkur. Arnar-
fell fer í dag frá Reyðarfirði á-
leiðis til Hamborgar, Malmö,
Klaipeda, Rostock, Kaupm.hafn-
ar, Kristiansand og Islands. —
Jökulfell fór um hádegið frá
Patreksfirði til Rvíkur. Dísar-
fell væntanlegt til Reyðarfjarð-
ar 9. þ. m. frá Gdynia. Litlafell
er í olíuflutningum í Faxaflóa.
Helgafell fór 4. þ. m. frá Siglu-
firði áleiðis til Helsingfors. —
Hamrafell átti að fara frá Batum
áleiðis til Rvíkur í gær.
Flugvélar
Flugfélag Islands h.f.
Millilandaflug: — Millilanda-
flugvélin „Hrimfaxi" er væntan-
leg til Rvíkur kl. 16:10 í dag frá
Kaupm.höfn og Glasgow. —
Millilandaflugvélin „Gullfaxi“
fer til Glasgow og Kaupm.hafnar
kl. 08:30 í fyrramálið.
Innanlandsflug: — 1 dag er
áætlað að fljúga til Akureyrar,
Blönduóss, Egilsstaða, Flateyrar,
Sauðárkróks, Vestmannaeyja og
Þingeyrar. — Á morgun er áætl-
að að fljúga til Akureyrar, Húsa-
víkur, ísafjarðar og Vestmanna-
eyja.
Loftleiðir h.f.
Saga er væntanleg frá New
York kl. 7,15 í fyrramálið. Fer
til Stafangurs, Kaupm.hafnar og
Hamborgar kl. 8,45.
Pan-Ameriean-flugvél
kom til Keflavíkur í morgun
frá New York og hélt áleiðis til
Norðurlanda. — Flugvélin er
væntanleg aftur annað kvöld og
fer þá til New York.
gH Ymislegl
ORÐ LÍFSINS: — Þetta er nú
annað bréfið, sem ég skrifa yð-
ur, þér elskuðu, og í þeim báð-
um hef ég reynt að halda hinu
hreina hugarfari vakandi hjá
yður með því að rifja upp fyrir
yður orð þau, er hinir heilögu
spámenn hafa áður talað, og skip-
un Drottins vors og frelsara, er
postular yðar hafa flutt, og þetta
skuluð þér þá fyrst vita, að á
hinum síðustu dögum munu
koma spottarar með spotti, er
framganga eftir eigin girndum,
og segja: Hvað verður úr fyrir-
heitinu um komu hans? 2. Pét. 3.
Gleðjið sjálfa yður með því að
gleðja einstæð gamalmenni og
munaðarlaus börn.
— Mæðrastyrksnefnd.
Slysavarnadeildin Hraunprýði.
— Afmælisfundurinn er í kvöld
kl. 8,30.
Faxi 20 ára — leiðrétting. —
I fréttinni af 20 ára afmæli Mál-
fundafélagsins Faxa í Keflavík
féllu niður nokkrar línur þar sem
skýrt er frá afmælishófinu. —
Þar átti að standa: „.... Krist-
inn Pétursson flutti félaginu
frumsamið kvæði. Einnig tóku
til máls. Ingvi Loftsson, Páll S.
Pálsson, Bjöm Pétursson, Krist-
inn Magnússon, er færði félaginu
kveðjur Málfundafél. Magna í
Hafnarfirði ásamt fallegri ljós-
mynd úr Hellisgerði ....“.
Kvenfél. Langholtssóknar. —
Fundur í safnaðarheimilinu að
Sólheimum í dag kl. 20:30. —
Félagsvist. — Þess er vænzt, að
konur fjölmenni.
Bazar Eddu. — Konur eru
minntar á bazar kvenfél. Eddu
í félagsheimili prentara kl. 2 í
dag. — Margir góðir munir.
Er til viðtals í Hallgrímskirkju
daglega kl. 18—19. Á öðrum tím-
um í síma 15937.
Séra Lárus Halldórsson.
Munið jólasöfnun Mæðra-
styrksnefndar. — Skrifstofan er
að Laufásvegi 3, sími 14349.
Togarar koma af veiðum: Þau
leiðu mistök urðu í blaðinu fyrir
helgi, er sagt var frá því að Hval
fellið og Askur hefðu komið af
veiðum, að niður féll aflamagnið.
Var Hvalfellið með 277 tonn og
Askur 266 tonn, eða báðir með
fullfermi.
Félagsstörf
Ungtemplarafélagið Háloga-
land. — Fundur í kvöld kl. 8,30
í Góðtemplarahúsinu.
SIMÆDROTTfyi^lGIIV - Ævintýri eftir H. C. Anderisen
Hreindýrið og hreinkvígan
hlupu með og fylgdu þeim al-
veg að landamærunum. Þar
tók að bóla á grænum gróðri,
og þar kvöddu þau hreindýr-
ið og Lappakonuna. Nú fór
líka að heyrast fuglakvak.
Skógurinn var að byrja
að grænka. Út úr honum kom
ung stúlka þeysandi á glæst-
um fáki, sem Helga þekkti,
því að honum hafði verið
beitt fyrir gullvagninn forð-
um. Stúlkan hafði sterkrauða
húfu á höfði og var með
skammbyssur fyrir framan
sig. — Þetta var litla ræn-
ingjastelpan. Hún var orðin
leið á að sitja heima og var
nú á leið til norðurs, en ætl-
aði síðan að stefna í aðra átt,
ef henni líkaði ekki fyrir
norðan. Hún þekkti Grétu
þegar í stað, og Gréta þekkti
hana. Það varð fagnaðar-
fundur.
„Þú ert laglegur fugl,“ sagði
hún við Karl litla. „Mér þætti
gaman að vita, hvort þú ert
þess virði, að hlaupið sé
heimshornanna á milli þín
vegna.“
En Gréta klappaði henni á
kinnina og spurði eftir kóngs-
syni og kóngsdóttur.
„Þau eru farin til útlanda,“
anzaði ræningjastelpan.
Söfn
BÆJAHBÓKASAFN REYKJAVÍKUB
Sími 1-23-08.
Aðalsafnið, Þingholtsstrætl 29 A: —
Útlánadeild: Alla virka daga kl. 14—22,
nema laugard. kl. 14—19. Sunnud. kl.
17—19- — Lestrarsalur fyrir fullorðnar
Alla virka daga kl. 10—12 og 13—22,
nema laugard. kl. 10—12 og 13—19. og
sunnudaga kl. 17—19.
Útibúið Hólmgarði 34: — Útlánadeild
fyrir fullorðna: Mánudaga kl. 17—21.
aðra virka daga nema laugard. ki. 17—
19. Lesstofa og útlánsdeild fyrír börn:
Alla virka daga nema laugardaga kL
kl. 17—19.
Útibúið Hofsvallagötu 16: — Útlána-
deild fyrir börn og fullorðna: Alla
virka daga, nema laugardaga, kL
17.30—19.30.
Útibúið Efstasundi 26: — Útlánsdeild
fyrir börn og fullorðna: Mánudaga.
miðvikudaga og föstudaga kl. 17—19.
Bókasafn Hafnarfjarðar
Opið alla virka tíaga ki 2—7. Mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga einnig
kl 8—10 síðd. Laugardaga kl. 2—5. —
Lesstofan er opin á sama tíma. —
Sími safnsins er 30790
Lestrarsalurinn opinn mánud., mið-
vikud., fimmtud., og föstud. kl. 4—7
Bæjarbókasafn Keflavíkur
Utlán eru á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum kl. 4—7 og 8—10
ennfremur á fimmtudögum kl. 4—7.
Minjasafn Reykjavíkur: — Safndeild
in Skúlatúni 2 er opin alla daga nem*
mánudaga kl. 2—4. Arbæjarsafn e»
lokað. Gæzlumaður sími 24073.
Tæknibókasafn IMSÍ
(Nýja Iðnskólahúsinu)
Útlánstimi: Kl. 4.30—7 æ.h. þriðjucL.
fimmtud., föstudaga og laugardaga. —
Kl. 4,30—9 e.h. mánudaga og mið-
vikudaga. — Lesstofa safnsins er opin
á vanalegum skrifstofutíma og út-
lánstíma.
Listasafn ríkisins er opið þriðjudaga.
fimmtudaga og laugardaga kl. I—-3,
sunnudga kl. 1—4 síðd.
Þjóðminjasafnið: — Opið sunnudag*
kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtudaga og
laugardaga kl. 1—3.
Náttúrugripasafnið: — Opið á sunnu-
dögum kl. 13:30—15, og þriðjudögum
og fimmtudögum kl. 14—15.
Listasafn Einars Jönssonar: — Hnit-
björgum er opið miðvikudaga og sunnu
daga kl. 1:30—3:30.
Bókasafn Lestrarfélags kvenna, —
Grundarstíg 10, er opið til útlána
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
kl. 4—6 og 8—9.
Læknar fjarveiandi
Björn Sigurðsson, læknir, Keflavík.
í óákveðinn tíma. Staðgengill: Arn-
björn Ólafsson, sími 840
Björn Gunnlaugsson fjarv. um óák.-
inn tíma. Staðgengill: Guðmundur
Benediktsson, Austurstræti 7 kl. 1—3.
Esra Pétursson. Staðg.: Henrik Linn-
et.
Páll Sigurðsson yngri fjarverandL
Staðgengill: Tryggvi Þorsteinsson.
Hverfisgata 50, viðtalstími 2—3.30.
Maður um fimmtugt vill
kvnnast góðrs stúlku
35—45 ára. Má eiga börn. Sú,
er vildi sinna þessu, sendi
nafn og heimilisfang á afgr.
blaðsins fyrir föstudagskvöld,
merkt: „8008“. Æskilegt að
mynd fylgi. Fullri þagmælsku
heitið.
Verzlunarmaðui
Ungur maður óskar eftir að
komast í verzlun jólamánuð-
inn. Gæti orðið framtíðar-
vinna. Þeir, sem vildu sinna
þessu, sendi nafn og heimilis-
fang merkt: „Abyggilegur —
8525“, fyrir 12, þ.m.__
HILMAK FOSS
lögg dómt. óg skjalaþýð.
Hafnarstræti 11. — Sími 14824.
. . . & . .
SKIPAUTGCRB RIKISINS
HERÐURBREIÐ
austur um land til Þórshafnar
hinn 12. þ.m. Tekið á móti flutn
ingi í dag til Hornafjarðar, Djúpa
vogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvar-
fjarðar, Borgarfjarðar, Vopna-
fjarðar, Bakkafjarðar og Þórs-
hafnar. Farseðlar seldir á föstu
dag. — Ath.: Þetta er siðasta
ferð skipsins fyrir jól.__
Félagslíf
I K. D. R. —
Heldur aðalfund sinn í Breið-
firðingabúð uppi, í kvöld. Fund
arefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
— Stjórnin.