Morgunblaðið - 08.12.1959, Page 6

Morgunblaðið - 08.12.1959, Page 6
6 MORCTllS TtLAÐIÐ Þrlðjudagur 8. des. 1959 Ný flóða■ hætta í Frejus MBL. bárust í gær þessar myndir frá fréttastofunni As- sociated Press, en þær eru teknar í og við Frejus í Frakk landi eftir flóðið mikla, sem varð þar á dögunum. — Efri myndin sýnir björgunarmenn hjálpa konu gegnum rústir og aurleðju til þess að koma henni á öruggan stað. — Á myndinni til hliðar sést það, sem eftir er af Malpasset- stíflunni miklu, sem brast að- faranótt 2 .des., en þá féllu milljónir lesta af vatni í 5—6 metra hárri fólðbylgju niður eftir Reyran-dalnum og yfir bæinn Frejus. ★ 1 Reutersfréttum í gær- kvöldi sagði, að ný flóða- hætta væri nú yfirvofandi í Frejus. — Mikil rigning var á þessum slóðum í gær, og var Reyran-fljótið tekið að vaxa, er á daginn leið. En þar sem stíflan í ánni er nú að mestu á brott, á fljótið greiða leið niður dalinn, ef það vex að nokkru ráði. Bæjarbúum hef- ur verið tilkynnt, að þeir verði að vera við því búnir að yfir- gefa Frejus fyrirvaralaust, og hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að hægt sé að flytja fólkið burt á skömmum tíma, ef þörf geríst. — Veðurspá er þannig, að búast má við áfram haldandi regni — og er því gert ráð fyrir hinu versta. — Eisenhower tekið með kost- um og kynjum í Pakistan — og sæmdux æðsta heiðursmerki landsins Talsímasamband við Frejus sem búið var að koma á, rofn- aði aftur í gærkvöldi. leita að fólki, sem týnt er. Þá höfðu fundizt 323 lík, en a. m. k. 110 er enn saknað. —Nokk-| ur lík hefur rekið á Riviera- j ströndinni, allt til Nice. — Fjöldagreftrunum er haldiðj áfram á degi hverjum. í fyrra- dag var m. a. jarðsett heil, fjölskylda, foreldrar með níu, börnum sínum. — Á sunnudagf var haldin guðsþjónusta undir' berum himni, þar sem þeir, er eftir lifa, báðu fyrir hinum látnu. Samkvæmt lauslegri áætlunl um eignatjónið í Frejus, munl það nema 1500—2000 milljón-| um ísl. króna. — samskotaféí og hvers konar hjálp önnurj berst nú stóðugt að frá ýms-j um þjóðum. KAKACHI, Pakistan, 7. des. Reuter: — Eisenhower Banda- ríkjaforseti kom hingað í dag frá Ankara í Tyrktandi, þar sem hann átti viðræður við Bayar for- seta. — í sameiginlegri tilkynn- ingu um fund þeirra sagði, að heimsihálin hefðu verið rædd á grundvelli skilnings og vináttu. — Eisenhower var tekið forkunn- arvel við komuna til Karachi, og er sagt, að aldrei hafi sézt slík- ur mannfjöldi samankominn í borginni fyrr. — Hann mun eiga tveggja daga viðræður við Ayub Khan, forseta landsins. Hann tók á móti Eisenhower a flugvelli borgarinnar. Þeir skiptust á vinsamlegum kveðjum og óku síðan inn í borgina í opn- um vagni. — Manngrúinn bar fána og spjöld með áletrunum, þar sem Eisenhower var boðinn velkominn — og hvarvetna gullu við fagnaðar. og hyllingaróp: Lengi lifi Eisenhower, hið fræga „I like lke“ o. s. frv. — Einn brezkur fréttamaður lýsti allri dýrðinni svo, að þetta væri eins og krýningardagur í London. Þeir forsetarnir munu ræða heimsmálin á breiðum grund- velli. — Talið er, að deilurnar milli Pakistan og Indlands út af ríkinu Kasmír og vatnsréttindum í Indusfljóti og þverám þess, verði ofarlega á dagskrá. Sömu- leiðis mun Ayub Khan ræða við Eisenhower vaxandi ítök Rússa í Afganistan, sem er Pakistönum mikið áhyggjuefni. í síðdegisverðarboð, sem Ayub Khan hélt Eisenhower í stóru tjaldi utan við forsetahöllina, sæmdi hann forsetann æðsta heiðursmerki Pakistans. — í skjali, sem Eisenhower var af- hent við þetta tækifæri, er lýst „aðdáun Pakistana á forsetanum sem baráttumanni fýrir frelsi einstaklingsins og lýðræði í heim inum“. Þar er talað um hann sem helzta leiðtoga hins frjálsa heims og lýst yfir vilja Pakistans að halda ávallt góðu sambandi við Bandaríkin. Frá Karachi heldur Eisenhow- er til Nýju-Delhi til viðræðna við Nehru, forsætisráðherra Ind- lands. Hefir komu hans yfirleitt verið fagnað í indverskum blöð- um. Það þykir tíðindum sæta, að Kommúnistaflokkur Indlands hef ir talað um heimsókn hans sem „mikilvægan viðburð" og óskað góðs árangurs af viðræðum þeirra Nehrus. — í einu ind- versku blaði, Indian Express heyrist óánægjurödd í dag. — Þar sagði, að hér yrði um að ræða ,fund tveggja misheppnaðra þjóð- arleiðtoga". Báðir væru þeir Nehru og Eisenhower frjálslyndir og umburðarlyndir menn, en skorti stjórnhæfileika og hefði mistekizt á mörgum sviðum og í hinum mikilvægustu málum. Alþýðublaðið í Peking kvaðst í dag efast um, að hægt væri að tala um „friðarför" Eisenhowers. Það talaði einkum um heimsókn hans til Tyrklands og sagði í því sambandi, að „stríðsundirbúningi Tyrklands væri stjórnað frá Bandaríkjunum". Jólatréð fauk um koll KAUPMANNAHÖFN, 7. des. Reuter: — Mjóu munaði, að slys yrði í dag, þegar hið 20 metra háa jólatré á Ráðhústorginu brotnaði í hvassvirðinu og féll yfir torgið. Búið var að kveikja á þessu stóra tré, sem segja má að sé kórónan á jólaskreytingu borgarinnar, og vanalega er fjöldi barna í kringum það og dáist að ljósadýrðinni. — Það var sannarlega krafta- verk, að enginn varð fyrir trénu, er það féll, sagði lögregluþjónn, sem nærstaddur var, þegar óhapp ið varð. skrifar ur daglegq lífinu A J /. i? ^AriAQluóenaur! Ufflýáem Athugið Auglýsingar, sem birtast eiga í jólablaðinu, þurfa að hafa bor- izt auglýsingaskrifstofunni, sem allra fyrst, og í síðasta lagi fyrir n.k. Iaugardag 12. þessa mán- aðar. Sími 22480. • Stefnuljósin Umferðarlögreglan hefur lát- ið spyrjast, að hún muni í þess um mánuði taka sérstaklega hart á brotum fyrir ranga notkun stefnuljósa. Yar sann- arlega tími til kominn, að eitt hvað væri að gert í því efni, því bílstjórar virðast ekki hafa verið eins fáfróðir um neitt atriði umferðarlaganna eins og notkun stefnuljósanna. Það er mikið atriði fyrir vegfarend- ur ekki síður en ökumenn, að geta treyst því, að bíll ætli að fara þá götu, sem stefnu- ljós hans gefur til kynna að hann ætli, en því miður hafa verið mikil brögð að því, að þessu mætti engan veginn treysta. Velvakandi gerði það sér til gamans á sunnudaginn, að at- huga nokkuð hve mikið bíl- stjórar hefðu tileinkað sér af þeim áminningum og leiðbein- ingum, sem þeir hafa fengið að undanförnu. Virtist mjög áfátt hjá mörgum. Strætisvagn kom t. d. að krossgötum og hafði úti stefnuljós sitt til hægri, en ók svo beint áfram er til kom. Nokkra einkabíla sá Velvakandi einnig,. sem beindu stefnuljósum sinum á allt aðrar götur, en þeir héldu inn á. Þó finnst manni nú taka út yfir, þegar lögreglubílarnir nota stefnuljósin ekki rétt, eins og einn þeirra var stað- inn að nú á dögunum. En hert eftirlit umferðarlögreglunnar ber að virða og vonandi ber það árangur og getur þannig komið í veg fyrir slys, sem mjög er hætt við ef stefnuljós eru misnotuð. • Jólagjafir í dag segir Morgunblaðið, að ekki séu nema 16 dagar til jóla og fer því ekki að verða seinna vænna að hugsa nann? Hvað hefur maður efni a að eyða miklu í gjöfina? — Hvað skyldu aðrir gefa hon- um? Og að lokum: Hvað skyldi hann gefa manni í stað- inn? Allt þetta verður að taka til greina að einhverju leyti, ef jólagjöfin á að vera til gleði, eins og tilgangurinn. auðvitað er. Ef mistekst getur hún valdið vonbrigðum, af- brýði og vinslitum, sem erfitt er að bæta úr og er þá verr farið en heima setið. Sízt að undra þó sá jólagjafatími, er nú fer í hönd, valdi Velvak- anda og fleirum þungum áhyggjum. • Bréfarifur fyrir jólagjöfum handa vinum og vandamönnum. Upphefst þá tími heilabrota og vand- ræða hjá mörgum manninum, sem venjulega stendur fram á aðfangadag.Það er svo margs að gæta, þegar jólagjafir eru valdar. Hvað langar þann mann til að fá, sem verið er að velja gjöf? Hvað vantar Senn fer jólapósturinn að falla inn um dymar og er þá ekki úr vegi að minnast á eina algenga vöntun í þessari ágætu borg, en þar á ég við bréfarifuleysi á hurðum húsa og íbúða. Veldur það því, að póstamir verða að fleygja bréfunum í ganga og anddyri og aldrei að vita hvort þau koma nokkurn tíma til rétts viðtakanda. Væri nú ekki ráð, húseigendur góðir, að taka á sig rögg og setja bréfarifur á hurðina áður en jólapósturinn kemur til að tryggja eftir þvi sem hægt er að hann komizt alla leið á ákvörðunarstað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.