Morgunblaðið - 08.12.1959, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 08.12.1959, Qupperneq 17
Þriðjudagur 8. des. 1959 MORGVTSBLAÐÍÐ 17 ísraelsmaður veitir veburfars- deildirmi tækniaðstoð Er hér á vegum Sameinuðu þjóðanna UNDANFARNA tvo mánuði hef- ur dvalizt hér á landi sérfræð- ingur á vegum Alþjóðaveður- fræðistofnunarinnar, en sú stofn- un hefur milligöngu um tækni- aðstoð sem Sameinuðu þjóðirnar kvenveðurstofustjórinn í veröld- inni fyrr og síðar, og Adda Bára Sigfúsdóttir, sem veitir forstöðu veðurfarsdeildinni hér. Sagði Naftali Rosenan að verk- efni sitt hér væri að rannsaka 1 Israei er mun heitara en hér. Þar er meðalhiti 13 stig og upp í 26 stig, hér 11 stig í júlí og -f-1 stig í janúar. veita. Heitir hann Naftali Ros- enan og stjórnar veðurfarsdeild veðurstofunnar í ísrael og skipu- leggur veðurathuganir þar í landi. Dvöl Rosenans hér á landi er líður í þeirri tækniaðstoð, sem Alþjóðaveðurfræðistofnunin veit ir íslandi til þess að auka starf- semi veðurfars- og áhaldadeildar Veðurstofunnar, þannig að þær geti veitt atvinnuvegunum full- nægjandi þjónustu og stuðlað að þróun þeirra. f gær bauð ræðismaður ísrael, Sigurgeir Sigurjónsson, frétta- mönnum að ræða við Rosenan. Viðstaddar voru þær Teresía Guðmundsson, veðurstofustjóri sem Rosenan segir að sé eini — Bókaþáttur Framh. af bls. 8 skýringum. A bls. 162 segir að Steingrímur Thorsteinsson hafi dáið 21. ágúst 1913, en í bréfi frá 5. og 6. ágúst sama ár minn- ist Matthías á lát Steingríms. Sumar þýðingar á útlenzkuslett- um Matthíasar eru líka hæpnar. Á bls. 80 er gríska orðið „eon“ þýtt „heimur", en það merkir „aldur“, „öld“. „eilífð“. A bls. 172 er latneska setningin (sem þýdd er í skýringu nr. 2) greini- lega framhald íslenzku setningar- innar og ætti að útleggjast sam- kvæmt því, t. d.: „en um það er deilt“. Nafnaskráin aftan við bréfin er líka stórlega gölluð, í hana vantar nokkur nöfn og við mörg önnur eru röng blaðsíðu- töl. Þessi vinnubrögð eru því meinlegri, sem hér er um veru- lega skemmtilega og fróðlega bók að ræða, en þau skrifast víst fyrst og fremst á reikning út- gáfufyrirtækisins. Sigurður A. Magnússon. hvort nægar upplýsingar væru til um veðurfar hér á landi til að hægt sé að gera fullnægjandi veð urfarskort af landinu, svo sem úrkomu og hitakort. Einnig hefði sér verið falið að gera sérstaka athugun á því hvernig tíðni ým- issa veðurfyrirbrigða . breytist eftir landshlutum. Er þar t. d. um að ræða tíðni hvassviðra, frosta og þurrka. Gagnlegt fyrir atvinnuvegina. Veðurfarsfræði þ. e. a. s. at- huganir á veðurástandi á hverj- um stað yfir lengri tíma, kvað hann geta komið að miklu gagni fyrir atvinnuvegina, og tók nokk- ur dæmi. Þegar um virkjun vatnsafls til rafvæðingar er að ræða, eru athuganir á jökulleys- inu, uppgufun og regni t. d. mikil vægar, nauðsynlegt er að vita ef ráðizt er í stórbyggingar hversu mikinn storm sú bygging verður að standast mestan, ef ráðast á í ræktunarframkvæmdir á nýjum gróðri eru veðurathuganir yfir lengri tíma nauðsynlegar til að velja hentugasta staðinn, og fisk- veiðarnar gætu haft mikið gagn af meiri upplýsingum en daglegri veðurspá, t. d. upplýsingar um tíðni storma og þannig mætti lengi telja. Þess má geta að flest- ar tilraunastöðvar landbúnaðar- ins hér hafa veðurathugunarstöðv ar, en ef það sem gerðar hafa verið tilraunir með, á að nota á öðrum stöðum. er auðvitað nauð synlegt að vita hvar á landinu er sambærilegt veðurfar. Veðurfar í heimalandi Rosen- ans er að mörgu leyti mjög ólikt veðurfari hér. T. d. er meðalhiti þar 13—26 stig, hér 1—11 stig. En hann kvað vandamál beggja þess- ara litlu landa og veðurstofa þeirra að mörgu leyti lík. f báð- um löndunum væri nauðsynlegt að framleiða sem mest í landinu sjálfu en flytja sem minnst inn, og á síðustu árum hefði ísraels- mönnum með rannsóknum og skipulagningu tekizt að hefja ræktun á mörgu því sem ekki var áður ræktað í landinu. í báðum löndunum hvað hann fjárskort há veðurstofunum í því að veifa eins mikla þjónustu við atvinnu- vegina og æskilegt væri. Hér væri ekki hægt að gera það í eins ríkum mæli og hjá öðrum þjóð- um með því starfsliði sem ísl. veðurfarsdeildin hefði yfir að ráða, en þar væru góðir starfs- kraftar, sem ynnu geysigott verk við að koma út tiltölulega nýjum skýrslum. Veðráttan í áratugi í veðurfarsdeild Veðursstof- unnar hér eru þrír fastráðnir starfsmenn. Deildin gefur út ritið Veðráttuna, sem kemur út mán- aðarlega og eitt hefti, með árs- yfirliti. Eru þar rakin helztu tíð- indi veðursins frá degi til dags og skrifað þannig að allir geti haft gaman af. Ritið hefur komið út í þessu formi frá 1924 og áður kom það út í öðru formi á ísl. frá 1919 en þangað til á dönsku. Er því hægt að rekja veðrið gegn- um þetta rit aftur fyrir það sem elztu menn muna, og eru það öllu áreiðanlegri heimildir. Veðráttan fer ákaflega víða, því ritið er sent til allra veður- stofa í heiminum og stofnana sem geta haft gagn af því. Hér á landi er það aftur á móti lítt útbreytt, en áskrifendur geta fengið það hjá Veðurstofunni fyrir kr. 65 árganginn. óskast Upplýsingar hjá yfir-matreiðslumannl. Leikhúskjallarinn Framkvæmdarstjóri Útgerðarfélag óskar eftir að ráða framkvæmda- stjóra, nú þegar, eða frá næstu áramótum. Þeir sem hefðu hug á starfinu, sendi nöfn sín, ásamt upplýs- ingum fyrir 20. des. n.k. til Morgunblaðsins merkt: „8536“. Vantar kari eða konu til afgreiðslustarfa í verzlunina á Langholtsveg 174. Ennfremur þvotta- konu. Upplýsingar á staðnum. Arni j. sigurðsson. Lógregluþjónsstaða Staða lögregluþjóns í lögreglunni í Hafnarfirði er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launalögum. Uno- sóknir ritaðar á sérstök eyðublöð er fást hjá, bæjar- fógetum og lögreglustjórum sendist undirrituðum fyrir 25. þ.m. Hafnarfirði, 5. des. 1959. BÆJARFÓGETINN I HAFNARFIRÐL nj Jól askraut JÓLABJÖLLUR JÓLALUKTIR með ljósi Tilvalið til skreytingar á heimilum í verzlunum og til útstillinga. Jólatrésseríur 3 teg. Vesturgötu 2 sími 24330 Mesta skáldið meðal sagnfræðinga um mesta manninn meðal skáldanna Það eru komnar út 200 bækur — og auk þess ein anóóonar eftir Sigurð Nordal. sem í hugum allra íslendinga hlýtur að verða kjörbók ungra og aldraðra um jólin. Kápan „Nóttlaus voraldar veröld“ eftir Kjarval. Jólabókin í ár — Ilelgafellsbók. Kaupið málverkaprentanimar og jólabækumar í Unuhúsi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.