Morgunblaðið - 09.12.1959, Side 9
Miðvikudagtir 9. des. 1959
MORCriNRT i t>1Ð
9
Hadionette radíófónn til sölu
TJr mahogny, með nýjustu gerð plötuspilara (4ra hraða)
og segulbandstæki með 4 upptökum á sama bandi. Sími
16-4-13. Á sama stað Kodak Retina III b með ljósmælir
& fjarlægðamæli einnig til sölu.
Dægurlagasöngkona
Stúlkur athugið: Ykkur, sem áhuga hafið á dægur-
lagasöng gefst tækifæri til að reyna hæfni ykkar.
Um atvinnu getur verið að ræða. Þær, sem vilja
sinna þessu gjöri svo vel og hringi í síma 34696.
Búkin um Janet Lim
8eld mansali
Éit
Endurminningar
hjúkrunarkonu
Bókin seld mannsali er kominn á jólamarkaðinn, en
á frummálinu var hún nefnd Sold for Silver.
Höfundurinn, Janet Lim, kínversk kona, segir frá ævi
sinni, sem er harla söguleg. Hún hefir lifað tímana tvenna
og lýsir á áhrifamikinn hátt andstæðunum: Annars
vegar, friðsæl æska í litlu þorpi við mjög forna og frum-
stæða lífshætti. Hins vegar, öldurót ófriðarins, sem hún
er gripinn af, og líf herfangans.
Tímarnir tvennir
Lífið í kínverska þorpinu, sem Janet Lim ólst upp I,
var með svipuðum hætti og tíðkast hafði í þúsund ár.
Hungrið og vofurnar voru að vísu ósýnileg ,en þó ævin-
lega á næstu grösum, og fólkið hugsaði alltaf um þau.
Seinagangur hversdagslífsins var kryddaður fornum
trúarsiðum og hjátrú, hátíðahöldum vegna barnsfæðinga,
giftinga og dauða, og hinni kyrrlátu og orðfáu hamingju
heimilislífs og ástar. Þegar Janet var átta ára dó faðir
hennar, og móðir hennar giftist aftur og kom telpunni
fyrir hjá nágrönnum og fluttist til fjarlægra staða, ásamt
manni sínum. Skömmu síðar seldu húsbændur telpunnar
hana kaupmanni nokkrum í Singapore, sem vildi fá sér
ambátt og hjákonu til viðbótar þeim er fyrir voru.
Hjúkrunarkona
Kristnir trúboðar leystu hana úr ánauð, settu hana
í skóla og húkrunarnám. Eftir fáein friðsæl ár, braust
stríðið út í austurlöndum. Hún vann á spítala er japanski
herinn nálgaðist. Starfsfókinu var skipað að flýja úr
sjúkrahúsinu og halda til Indlands. Skipinu var sökkt, og
eftir tvo hræðilegá daga á fleka, björguðu fiskimenn frá
Súmötru, Janet og félögum hennar. En Súmatra var
þegar fallin í hendur Japana, og hrakningar Janet voru
í rauninni aðeins að byrja. Einu sinni var hún dæmd til
að verða japönsk „gleðikona", öðru sinni stóð hún and-
spænis byssukjötum á aftökustað, en hugrekki hennar
og ráðsnilld og dugnaður björguðu henni, uns styrjödinni
lauk — en þá lýkur sögunni.
Metsölubók í Englandi
Bókin kom út í Englandi fyrir síðustu jól og náði þá
metsölu meðal enskra jólabóka og er nú að koma út í
þýðingu á fjölda mála. íslenzku þýðinguna gerði Ragnar
Jóhannesson.
Þetta er stór saga og sterk, saga mikilla atburða og
fáheyrðra örlaga, en festa, þrek og skapstyrkur er það,
sem hæst ber í frásögninni,
HLAÐBÚÐ
B O S C H
kæliskáparnir
komnir. —
Í'ÍP.&ÍP&ÍFÍgíLÍL
Keflavík. — Sími 730.
Mjög mikið úrval af allskonar
hannyrba vörur
Tilbúnir kaffidúkar með servi
ettum. — Allt tilvaldar jóla-
gjafir. —
Verzlunin JENNY
Skólavörðustíg 13-A
Dekk
825x20, tapaðist 7. þ.m. úr
Kópavogí um Reykjavík —
Skerjafjörð. — Vinsamlegast
hringið í síma 13097 eða 10016.
Fundarlaun.
Ný yfirklætt
sófasett
selst mjög ódýrt í Lauga-
gerði 56. —
Keflavik
íbúð óskast til leigu, 3—4 her
bergi og eldhús. — Upplýsing-
ar í síma 374 kl. 8—10 e.h.
Stúlka
rösk og ábyggileg stúlka ósk-
ast til innheimtustarfa. Upp-
lýsingar í síma 35350.
Bifreiðasalan
Ingólfsstræti 9.
Simar 18966 og 19092.
Kaiser '52
til sölu. Má greiðast á tveim-
ur árum. Ef um góða trygg-
Jigu er að ræða.
Bifreiðasalan
Ingólfsstræti 9.
Símar 18966 og 19092.
Verðtilboð
óskast í innflutnings-
leyfi fyrir bifreið frá
Vestur-Þýzkalandi, —
merkt: „Benz — 8517“,
skilist fyrir hádeg'i á
fimmtudag næstkomandi
á afgreiðslu blaðsins.
Ný bók eftir
(ju.omu.nd (t)aníelióc
— með myndum
gerðum af Ólafi K. Magnússyni
ljósmyndara Morgunblaðsins
Samtölin „í HÚSI NÁUNGANS“ eru þessi:
Þetta hef ég gert öll naín ár. Samtal í sex lotum við Þórunni
Gestsdóttur. 1. Bernskudagar á öldinni sem leið. —
2. Lausakona til sjós. og lands. — 3. Vinnukona í Húsinu.
— 4. Úr basli til búskapar. — 5. Skepnurnar mínar í lífi
og dauða. — 6. Á teig með Tótu Gests.
Tvísýn barátta sem endaði með sigri. Frá Hafliða í Búð.
„Eyrarbakki varð mín Ameríka,“ segir Kristján Guðmunds-
son sjötugur.
í fylkingarbrjósti. Afmælisviðtal við Dag Brynjúlfsson.
Framleiðandinn, sem engan ríkisstyrk fær. Garðyrkjubónd-
inn, sem vildi verða kokkur. Ingimar Sigurðsson í Fagra-
hvammi „intervjúaður“ um gróðurhúsarekstur og ýmis-
legt fleira.
Sólskinsdagamir eru fleiri en óveðursdagarnir. Viðtal við
Guðrúnu S. Guðmundsdóttur í Guttormshaga.
Fjárbóndínn við „fljótið helga“. „Ég er bjartsýnn á framtíð
íslenzkra sveita,“ segir Guðmundur Guðmundsson á Efri-
Brú í Grímsnesi.
Skakjúristi á skútuöld. Gísli Jónsson hreppstjóri á Stóru-
Reykjum áttræður.
Fýlatekja í Fagradalsbjörgum. Ólafur bóndi Jakobsson í
Fagradal í Mýrdal bjargsigsmaður i 50 ár, segir frá lífs-
» baráttu sinni á landi og sjó.
Biskupstungnamaður hvað sem á dynur. Framkvæmdastjóri
Suðurlands, Gísli Bjarnason, yfirheyrður af ritstjóranum.
Ekki við eina fjöl felldur um dagana: Leigubílstjóri, lög-
reglumaður, hestamaður, verkstjóri, kvikmyndaframleið-
andi.
Gísla þáttur Sigurðssonar. Rakarinn frá „Fossella" rifjar
upp fáeinar endurminningar um þjonustu sina við guð
og menn.
Maðurinn lifir ekki á einu og saman brauði Steinþór Gests-
son á Hæli rifjar upp endurminningar sinar um M.A.
kvartettinn. Ennfremur ræðir hann hér um hesta-
mennsku, leiklist og sveitabúskap.
Það er ekki sama hvort við vinnum ullina sjálfir eða
látum Gilitrutt gera það. Á uppstigningardag með Sigur-
jóni í Raftholti. Til sjós á togara. í farkennslu. Bóndi
í 35 ár.
I rausnargarði. Páll Björgvinsson á Efra-Hvoli rifjar upp
endurminningar sínar um vini sína og samverkamenn,
sem margir voru stórhöfðigjar og skáld. Og um lífsstarf
sitt, með pennann í annarri hendinni, en plóginn í hinni.
Veiku kýrnar bændanna óeðlilegur tekjustofn. Viðtal við
Jón Pálsson dýralækni á 40 ára starfsafmæli hans.
„Ég er búinn að velgja mörgum undir uggum,“ segir Adam
Hoffritz pípulagningamaður. „Bauninn“ hjá Degi í Bæ
varð góður íslendingur, og hefur aldrei sett upp vettlinga.
Rjómabústýra í hálfa öld. Samtal við Margréti Júníusdóttur
á Stokkseyri.
Hefur flaggað frá í 30 ár. Sjómaður, gestgjafi, húsasmiður
og bóndi horfir um öxl sem snöggvast, áður en hann fer
í fjósið. Viðtal við Kristin Gunnarsson frá Eimu.
„Það er alltaf eitthvað, sem hægt er að hlakka til,“ segir
Magnús Magnússon lausamaður. Níræður Austur-Land-
eyingur rifjar upp sjóferðabænina sína og fleira.
Skin og skúrir í 75 ár. Fáein brot úr lífssögu Jóhannesar
Erlendssonar símstöðvarstjóra á Torfastöðum.
Það var mildi að við komumst yfir Kúðafljót. Heimsókn að
Herjólfsstöðum í Álftaveri til Jóhannesar bónda Guð-
mundssonar frá Söndum.
Forsetaheimilið á Bessastöðum. Viðtal við forsetann, herra
Ásgeir Ásgeirssonar, og frú Dóru Þórhallsdóttur.
í S A F O L D