Morgunblaðið - 09.12.1959, Page 13
Miðvikudagur 9. des. 1959
MORGVNBLAÐIÐ
13
Þjóðin vill sterka stjórn og stutt
og athafnamikið þing
Þeim vilja hennar ber okkur alþingis-
mönnum að hlýða
Útvarpsræða Ólafs Thors forsætisráð-
herra á mánudagskvöldið
í>IN GSÁL Y KTUN ARTILL AG A
sú, á þingskjali 22, sem hér er
til umræðu, íer fram á að Al-
þingi samþykki, að fundum
þingsins verði frestað frá 30. nóv.
eða síðar, ef henta þykir, svo sem
það er orðað, enda vérði þingið
kvatt saman eigi síðar en 28.
janúar n. k., og þá að sjálfsögðu
fyrr ef rétt þykir.
Ástæðan til þess, að ég hefi
fyrir hönd stjórnarinnar, borið
þessa tillögu fram, er sú, að
vegna þess að ríkisstjórnin tók
ekki við völdum fyrr en 20. fyrra
mánaðar, þ. e. a. s. sama daginn
og Alþingi Kom saman, hefur
henni ekki gefizt nægur tími til
að kynna sér til hlítar skýrslur
þær um efnahagsafkomu þjóðar-
innar, sem ýmsir helztu hagfræð-
ingar landsins, undir forustu
efnahagsráðunauts stjórnarinnar,
Jónasar Haralz, ráðuneytisstjóra,
hafa verið og eru enn að vinna
að. Fékk fyrrverandi stjórn hina
fyrstu þeirra í hendur nokkru
eftir kosningar, en við, umboðs-
menn Sjálfstæðisflokksins, við
samningana um stjórnarmyndun,
fengum þær ekki fyrr en um 10.
nóvember. Skýrslur þessar eru
langar og fylgiskjölin mörg, og
von á fleirum. Þurfa þessi gögn
nákvæmrar athugunar, en end-
anlegar ályktanir af þeim er
ekki auðið að draga, fyrr en
rannsókninni er lokið, sem enn
getur dregizt nokkuð.
Stjórnin telur því nauðsynlegt,
að hún geti einbeitt sér að at-
hugun á þessum höfuðmálum,
sem allt veltur á að vel takist
til um.
— o —
í rauninni tel ég þessi fáu orð
nægjanlega greinargerð fyrir
þingfrestunartillögunni. En
vegna ofsafenginnar andstöðu
stjórnarandstæðinga gegn tillög-
unni, sem lýst hefir sér í lát-
lausu málþófi undanfarna daga
og nætur, skal ég þó bæta nokkru
við.
Tíðar þingfrestanir
undanfarin ár
A undanförnum árum, t. d.
1954, 1955 og 1957, var Alþingi
frestað frá því um miðjan des-
embermánuð og allt fram í
febrúar, án þess að nokkrum
andmælum væri hreyft. Stjórnin
átti sér því eðlilega alls einskis
ills von, þegar hún bar tillöguna
fram. Það kom henni því ger-
samlega á óvart að sömu menn-
irnir, sem áður hafa borið fram
eða staðið að svipuðum tillög-
um, skuli nú allt í einu um-
hverfast, missa algjörlega stjórn
á skapi sínu og hafa hér í frammi
dag og nótt málflutning, sem er
í engu samræmi við fyrri að-
gerðir þeirra, meðan þeir voru
í stjórn eða stjórnarliði. Þannig
hefir Tíminn eftir hv. 1. þm.
Austfirðinga, Eysteini Jónssyni,
um þingfrestunina þessi um-
mæli: „Þetta er fullkomið ger-
ræði og lítilsvirðing við löggjaf-
arsamkunduna og grímulaus til-
raun til að svipta hana áhrifa-
valdi“ o. s. frv. Rökin fyrir þess-
um harða dómi eiga svo að vera
þau, að óafgreidd mál liggi fyrir
þinginu. Ég leyfi mér nú að
skora á Framsóknarmenn að
upplýsa, hvenær þingi hafi yfir-
leitt verið frestað eða slitið, án
þess að fjöldi óafgreiddra mála
hafi legið fyrir því. Það hefir
a. m. k. aldrei skeð síðan ég
kom á þing fyrir nær þremur
og hálfum áratug. Svona rök-
færsla sýnir það eitt, að menn
eru miður sín og hafa glatað
bæði dómgreind og jafnvægi.
8—9 vikna aðgerðaleysi
Síðan er talað um þá „eymd
stjórnarinnar" svo sem Tíminn
kveður að orði, að hafa ekki úr-
ræði í efnahagsmálunum á reið-
um höndum sama daginn og
stjórnin tók við völdum. Þetta
segja mennirnir, sem kvöddu
saman Alþingi 10. okt. 1957 og
lýstu að sönnu yfir, að án sam-
ráðs við þinglið sitt gætu þeir
alls engar tillögur gert um lausn
efnahagsmálanna. Síðan héldu
þeir þinginu svo aðgerðarlausu í
8—9 vikur, að hrein undantekn-
ing var að nefndir héldu nokk-
urn fund, að fjárveitinganefnd
einni undantekinni. Og þing-
fundir stóðu að meðaltali að-
eins hálfa klukkustund á viku
þessa rúmlega tvo mánuði. Allan
þann tíma átti ríkisstjórnin í
innbyrðis deilum.
Samráð við þingið hafði hún
hins vegar alls ekkert, heldur
ekki við stuðningsmenn sína,
flesta a. m. k., og sannaði þar
með, að þingið var alls ekki kvatt
saman til þess að stjórnin hefði
við það samráð eða samstarf,
heldur einvörðungu í því skyni
að reyna að breiða yfir sundur-
lyndi innan sjálfrar ríkisstjórn-
arinnar.
Snemma í desember gaf stjórn-
in öllum á óvart fyrirmæli um
afgreiðslu fjárlaga, sem þó að-
eins voru nafnið eitt, en frestaði
síðan þingi upp úr miðjum des-
ember og allt fram í febrúar,
með það heit á vörum, að þá
skyldu úrræðin þó a. m. k. ekki
skorta. Því heiti brást hún þó
sem fleirum, og lét þingið sitja
athafna- og auðnulítið og enn
án þess að samráð væri haft við
það, fram í maímánuð, að stjórn-
in lagði fram gengisfellingar-
frumvarp sitt, „bjargráðin" svo-
nefndu.
Allt var þetta til lítils sóma,
til viðvörunar en ekki eftir-
breytni.
Tekið við þrotabúi
Það er von, að slíkir menn séu
viðkvæmir fyrir virðingu þings-
ins og dómharðir um stjórn, sem
er að taka við þrotabúi þeirra
og leyfir sér að biðja um fárra
vikna frest, til að kynna sér
súpuna.
Ég játa hreinskilnislega, að
mér er fullkomin ráðgáta hvers
konar æði hefir greipið þessa
menn. Helzt er, ef satt er, að
hv. 1. þm. Austfirðinga, Eysteinn
Jónsson, sem einna verst hefir
látið, sé orðinn svo vanur að
rexa og „regera“, að honum fat-
ist, þegar hann á ekki bara að
skipa öðrum fyrir verkum, held-
ur líka að beygja sig fyrir á-
kvörðun meirihluta Alþingis.
Nei, stjórnarandstæðingar
verða að gera sér ljóst, að at-
hæfi þeirra undanfarna daga er
þeim ekki til sóma. Það dregur
úr, en eykur ekki virðingu þjóð-
arinnar fyrir Alþingi, og er því
skaðlegt. Ég held þá lika, að
ástæðan til þess, að þeir gáfust
upp sé sú, að kjósendur þeirra
hafi aðvarað þá. Sannleikurinn
er sá, að þjóðin vill sterka stjórn,
stutt og athafnamikið þing. Þeim
vilja þjóðarinnar ber okkur al-
þingismönnum að hlýða.
Ólafur Thors
Mikill vandi á höndum
Allir hv. alþingismenn hljóta
lengi að hafa vitað, að mikill
vandi er fyrir höndum.
Við skulum aðeins renna aug-
unum um öxl. Það er rúmt ár
liðið frá því að þáverandi hæst-
virtur forsætisráðherra tilkynnti
Alþingi, að ný verðbólgualda
væri riðin yfir þjóðina, og að
stjórn hans væri sjálfri sér sund-
urþykk um öll úrræði til úrbóta.
Hann treysti sér þess vegna ekki
til að etja kappi við þá örðug-
leika, sem framundan væru og
bæðist því lausnar fyrir sjálfan
sig og ráðuneyti sitt. Þessum
boðskap fylgdu síðan þær upp-
lýsingar frá efnahagsráðunaut
stjórnarinnar, Jónasi Haralz, að
yrði ekki tafarlaust spyrnt við
fótum, myndi vísitalan, sem þá
hafði verið 185 stig, verða 270
stig eða jafnvel hærri eftir eitt
ár. Enn væri auðið að veita við-
nám, ef það væri gert tafarlaust.
Ella yrði það of seint. Svona
var viðhorfið, þegar Emil Jóns-
son myndaði ráðuneyti sitt 23.
des. sl.
Ég spyr nú: Hver vill gera sig
að þeim einfeldning, að láta sem
hann haldi, að upp úr þessu
kviksyndi yrði komizt með því
einu móti, að Alþýðuflokkurinn
losaði sig við Framsóknarflokk-
inn og kommúnista úr ríkis-
stjórninni og fengi í staðinn lof-
orð Sjálfstæðisflokksins um að
verja hann vantrausti.
Nei, svo einfaldur er enginn.
Róttækra aðgerða þörf
Allir, sem einhverja nasasjón
hafa af stjórnmálum vissu, að
hér var róttækra aðgerða þörf,
hér þurfti að lyfta Grettistök-
um.
En engum úrræðum varð við
komið í umboði þjóðarinnar, fyrr
en það var þjóðin sjálf, en ekki
gamalt ranglæti, sem réði á Al-
þingi.
Fyrir því varð fyrst að breyta
stjórnarskrá landsins, eins og nú
hefir gert verið. En til þess að
hindra ,að lengra væri haldið á
ógæfubrautinni meðan á þessu
stóð og þar til Alþingi gæti starf-
að í umboði þjóðarinnar, tók Al-
þýðuflokkurinn að sér að mynda
stjórn, sem Sjálfstæðisflokkurinn
hét að verja vantrausti í bili,
gegn því að Alþýðuflokkurinn
gerði bráðabirgðaráðstafanir til
þess að stöðva óðavöxt verðbólg-
unnar, og flytti auk þess með
Sjálfstæðisflokknum frumvarp
um endurreisn lýðræðisins á ís-
landi, en hvort tveggja voru sam-
eiginleg áhugamál beggja flokk-
anna.
Báðir flokkarnir héldu þetta
samkomulag. Að öðru leyti var
það Alþýðuflokkurinn, en ekki
Sjálfstæðisflokkurinn, sem stjórn
aði landinu. En það er mál fyr-
ir sig.
Alþýðuflokkurinn lagði frá
öndverðu áherzlu á, að hans hlut-
verk væri aðeins að stöðva ógæf-
una í bili. Stjórn hans væri að-
eins bráðabirgðastjórn. Það yrði
svo vandi hinnar nýju stjórnar
að glíma við arf vinstri stjórn-
arinnar og liðinna ára. Þar á
meðal hina nýju verðbólgu, sem
Hermann Jónasson réttilega
sagði, að risin væri, er hann
baðst lausnar.
Ráðizt gegn þjóðarvoða
Nú hefir þessi nýja stjórn ver-
ið mynduð og er þegar tekin til
óspilltra málanna, að kynna sér
til hlítar alla aðstöðuna, til þess
síðan, svo fljótt sem auðið er,
að ráðast á þann þjóðarvoða, sem
við er að etja. Hvort sá ásetn-
ingur endist íslendingum til
björgunar og blessunar veltur á
því, hvernig þjóðin tekur þeim
úrræðum, sem ríkisstjórnin mun
að loknu þinghléi bera fram og
sem munu miða að því, að treysta
allan grundvöll efnahagslífsins.
Að framkvæma þær rannsókn-
ir, sem slík úrræði verða að
l>yggjast á, er óhemju verk, sem
sérfræðingar einir eru færir um
að inna af hendi, og er nú kom-
ið langleiðis. Að draga ályktanir
af þeim upplýsingum, sem end-
anlega koma í Ijós, og semja til-
lögur til úrbóta, er líka mikið
verk. En um það ber ríkisstjórn-
inni og ríkisstjórninni einni að
hafa alla forustu. Síðan kemur
til kasta Alþingis, sem hins rétta
valdhafa, að ákveða hvað lög-
festa beri.
Er það að undra?
Þetta er viðhorfið í dag.
Getur það nú undrað nokkum
mann, að ríkisstjórn, sem tekur
við völdum 20. fyrra mánaðar,
sama dag og Alþingi kom sam-
an, óski þess, að sér gefist kostur
á að grannskoða allar aðstæðurn-
ar? Er nokkur sá, að hann æski
þess, að stjórnin beri fram til-
lögur í þessu mikla máli, sem
örlög þjóðarinnar geti oltið á,
sem kynni að vera ábótavant
vegna þess eins, að stjórninni
hefði ekki unnizt tími til að skoða
allar hliðar málsins? Vissulega
vill enginn góðgjarn maður, að
slíkt hendi þjóð okkar.
Hitt vita þeir, sem kunnugir
eru, að sitji Alþingi, á stjórnin
ekki fullan vinnufrið, sem og
það, að án afskipta og helzt for-
ustu ríkisstjórnarinnar, er sjald-
an fullt gagn af störfum Alþing-
is. Þetta veit ég, að er einnig
skoðun Framsóknarmanna, eða
svo var að minnsta kosti öll þau
ár, sem við vorum saman í
stjórn.
Úttektin og Alþingi
Framsóknarflokkurinn hefir
kvartað undan því, að ég hafi
ekki gefið Alþingi skýrslu um
efnahagsástandið, en flutt um
það ræðu í Varðarfélaginu, og
segir þau vinnubrögð með öllu
óþolandi. Ekki þarf ég langt að
leita fordæma fyrir slíku. Her-
mann Jónasson lofaði úttekt
þjóðarbúsins fyrir opnum tjöld-
um, þegar hann myndaði vinstri
stjórnina í júlílok 1956, og kvaddi
tafarlaust hingað erlenda sérfræð
inga í þessu skyni. Rúmum 2
mánuðum síðar, eða hinn 7. okt6-
ber 1956, hélt hann ræðu í Fram-
sóknarfélaginu í Reykjavík, til—
kynnti þar, að úttektin hefði far-
ið fram og skýrði m. a. frá því,
að hún staðfesti hrakspár hans
sjálfs um fjárhagsafkomuna o. s.
frv. o. s. frv. Bráðlega myndi
þjóðin fá að vita allan sannleik-
ann, svo hugnanlegur sem hann
væri eða hitt þó heldur. Það lof-
orð brást að sönnu, eins og svo
margt annað, þrátt fyrir marg-
falda eftirgangsmuni á AlþingL
Eftir stendur, að Framsóknar-
menn telja heimilt að skýra al-
mennum flokksfundi frá mikils-
verðum upplýsingum, en þegja
jafnan þunnu hljóði á Alþi*gi
árum saman.
Vil ekki fylgja því for*
dæmi
Þessu fordæmi vil ég ekkl
fylgja. Strax og stjórnin hefir
kynnt sér málin til hlítar, mun
hún gefa Alþingi og raunar líka
allri þjóðinni allar upplýsingar,
sem máli skipta. 1 dag læt ég
nægja að minna á það, sem sést
af opinberum gögnum, en það er
m. a. þetta:
1. Undanfarin 5 ár hafa ís-
lendingar árlega eytt 200 millj.
kr. meira en þeir öfluðu.
2. íslendingar þurfa næstu ár-
in að nota 11% af andvirði gjald-
eyristekna þjóðarinnar til
greiðslu á vöxtum og afborgun-
um erlendra skulda. Ein eða eng-
in þjóð veraldarinnar er í þess-
um efnum jafn djúpt sokkin sem
við.
3. Af þessu leiðir, að engin
stofnun í veröldinni, sem gegnir
því hlutverki að lána þjóðum,
sem eiga mörg verkefni óleyst,
eins og íslendingar, getur lengur
lánað okkur eyrisvirði, að ó-
breyttum aðstæðum, hvorki til
langs né skamms títna, einfald-
lega vegna þess, að stofnskrár
þessara lánsstofnana heimila
ekki að lána þeim þjóðum, sem
svo miklu hafa hlaðið á sig af
óhagstæðum lánum, eins og við
höfum gert.
Hin geysimiklu erlendu lán,
sem Islendingar hafa tekið und-
anfarin þrjú ár, eru öll veitt
okkur úr sérstökum sjóðum, sem
stjórn Bandaríkjanna ræður yfir.
Aðeins fá lönd hafa orðið þeirra
fríðinda aðnjótandi og einvörð-
ungu undir fátíðum kringum-
stæðum.
Ég get þess, að svo að kalla
öll þessi skuldabyrði hvíldi á
herðum vinstri stjórnarinnar
þegar hún baðst lausnar 4. des.
1958. —
Dómur efnahagsráðu-
nautanna
Þetta er sú hliðin.
Hin er sá dómur efnahagsráðu-
nauts vinstri stjórnarinnar, Al-
þýðuflokksstjórnarinnar og nú-
verandi stjórnar, Jónasar Haralz,
ráðuneytisstjóra, að nú sé um
tvennt að velja:
Að stöðva verðbólguna tafar-
laust,
eða
Að yfir skelli óðaverðbólga.
Það er að segja líf eða dauði.
Fyrir stjórninni liggur nú að
rannsaka sannleiksgildi þessara
orða og reynist þau sönn, sem
vart þarf að efa, þá að leita allra
úrræða til að verjast voðanum.
Mun stjórnin einskis láta ófreist-
að til þess að tryggja framtíð
þjóðarinnar, og jafnan hafa það
höfuðsjónarmið, að bráðabirgða-
fórnir þær sem óhjákvæmilegt
virðist að færa þurfi, verði þeim
sem léttbærastar, sem við erfið-
ust kjör búa.
Það er svo auðvitað kjarni
málsins, keppikeflið, hugsjónin,
að takast megi í náinni framtíð,
eigi aðeins að halda núverandi
lífskjörum, heldur einnig að bæta
þau. Þetta er hægt ef þjóðin vill,
þekkir sinn vitjunartíma og
stendur einhuga að nauðsynleg-
um aðgerðum.