Morgunblaðið - 09.12.1959, Page 20

Morgunblaðið - 09.12.1959, Page 20
20 MORGTJNBLAÐIÐ Miðvikudagur 9. des. 1959 OPSSfíA. Og nú varð henni sjálfri ljóst, kannske vegna vandræða hans, kannske vegna þess að ég stóð þarna gersamlega orðvana, — að hún hafði látið skapið hlaupa með sig í gönur, því að hún sneri sér aftur að mér. „Fyrirgefið þér mér, en Josef faefði vel getað biðið, í stað þess að ryðjast svona inn til okkar. l>etta er aðeins hin venjulega, daglega pynting — nuddlæknir- inn, sem æfir mig í sjúkraleik- fimi. — Allt saman gagnslaus faégómi — einn tveir, einn tveir, upp, niður, upp, niður, niður upp. Og það á að veita mér fulla lækn ingu. Síðasta uppgötvun okkar Ikæra læknis og alveg óþörf pynd ingaraðferð. Gagnslaus, eins og allt annað“. Hún leit ögrandi á föður sinn, eins og hún teldi hann ábyrgan fyrir því öllu. Gamli maðurinn, sem bersýnilega fór hjá sér í ná- vist minni, laut niður að henni. „En, barnið mitt .... heldurðu raunverulega að dr. Condor..?“ Hann lauk ekki við setning- una, vegna þess að hún hafði þeg ar opnað munninn og nasavæng- imir titruðu. Það var einmitt svona sem varir hennar höfðu titrað, kvöldið forðum og ég fór að óttast nýtt æðiskast. En svo roðnaði hún skyndilega og taut- aði auðmjúklega. „Jæja, gott og vel. Ég skal þá fara, enda þótt það sé tilgangs- laust, gersamlega tilgangslaust. Afsakið, hr. liðsforingi. Ég vona að þér komið aftur mjög fljót- lega“. Ég hneigði mig og bjóst til að kveðja, en hún hafði þá þegar skipt um skoðun að því er brott- för mína snerti. „Nei, verið þér kyrr hjá pabba, meðan ég fer“. Þessi síðustu orð, „ég fer“, voru hvöss og ákveðin, eins og hótun. Svo tók hún litlu brons-bjölluna, sem stóð á borð- inu og hringdi henni. Það var ekki fyrr en síðar, sem ég veitti því athygli að bjöllur eins og þessi var á öllum borðum, alls- staðar í húsinu, svo að hún gat alltaf kallað á einhverja sér til hjálpar, hvar í húsinu sem hún var stödd. Bjölluhljómurinn var hár og hvellur og kjallarameist- arinn, sem laumazt hafði út svo að iítið bar á, birtist aftur nær samstundis. „Hjálpaðu mér", skipaði hún faonum og kastaði af sér ullar- ábreiðunni. Ilona beygði sig nið- ur að henni og hvíslaði einhverju í eyra hennar, en hún hreytti óð- ar út úr sér einu „nei“, bersýni- lega í mjög æstu skapi. „Josef á að hjálpa mér á fætur og þá get ég gengið sjálf“. Það sem næst skeði var hræði- legt. Kj allarameistarinn laut nið ur yfir hana og lyfti hinum veika líkama upp, eins og um léttan ullarhnoðra væri að ræða. Hún hélt báðum höndum um armbrík stólsins, stóð upprétt og leit frá einum okkar tii annars, með ögr- un 1 svipnum. Svo greip hún tvo stafi, sem verið höfðu huldir und ir ábreiðunni, herpti- saman var- irnar einbeitt og ákveðin á svip, lyfti sér upp á hækjurnar og — Tvær duglec?ar stú'lkur til aðstoðar í eldhúsi óskast 1. jan. Mötuneyti skólanna Laugarvatni. Upplýsingar í síma á Laugarvatni. SKRE YTINGAR Götusbreytingar r Vafningagreinar í metratali Ctvegum ljósaseriur Fljót afgreiðsla — Hvergi ódýrara GRÓÐRASTÖÐIN v/Miklatorg — Sími 19775. tap-tap, tap-tap, riðaði, hallaðist, dróst áfram, óstyrk og afskræmd, meðan kjallarameistarinn gekk á eftir henni með útréttar hend- ur, til að grípa hana, ef hún skyldi hrasa eða hníga niður — tap-tap, tap-tap — fyrst annan fótinn, því næst hinn og á milli favers skrefs heyrðist lágt hringl og hvinur, eins og í harðþöndu gúmmíi og málmi. Það leyndi sér ekki — ég þorði ekki að líta á máttlausu fótleggi — að hún gekk með einhvern vélrænan styrktar-útbúnað á öklunum. — Hjartað í mér var samanherpt eins og í nístandi járngreipum, meðan ég varð sjónarvottur að þessari þjóningarfullu göngu, vegna þess að ég skildi þegar, hvers vegna hún hafði svo ákaft neitaði því að þiggja hjálp, eða láta aka sér út í sjúkrastólnum. Hún vildi sýna mér, og mér al- veg sérstaklega, sýna okkur öll- um, að hún væri máttlaus, kryppl ingur. Hún vildi af einhverri dularfullri hefnigirni, sem skap- azt hafði af vonleysi, kvelja okk- ur með sínum eigin kvölum, okk ur sem heil vorum og líkamlega sjálfbjarga. En það var þessi löngun hennar, þessi hræðilega löngun, sem gerði mér það fylli- lega Ijóst, hversu ólýsanlega hún falaut að þjást af hinum líkam- lega vanmætti sínum. Að lokum — það virtist heil eilífð — hafði hún skjögrað þessi fáu skref til dyranna, kastað sér af annarri 'hækjunni á hina, með öllum þunga síns granna líkama. Ég gat ekki fengið mig til að horfa á hana, vegna þess að hið harða, þurra tap-tap, tap-tap í hækjun- um, við hvert skref sem hún steig, ískrið í ökla-útbúnaðinum og síðast en ekki sízt, hin holu, slitróttu andköf hennar og erfiði andardráttur, æstu mig svo mjög, að ég bjóst við að hjartað myndi þá og þegar springa í brjósti mínu. Hún var farin út úr her- berginu og ég hlustaði með önd- ina í hálsinum, meðan hið hræði- lega hljóð varð lægra og lægra og hljóðnaði loks með öllu, fyrir utan lokaðar dyrnar. Nú fyrst vogaði ég að líta upp. Gamli maðurinn — ég hafði ekki veitt því athygli — hlaut að hafa staðið hljóðlega á fætur, meðan þessu fór fram og starði nú út um gluggann með ákefð, starði út út með óeðlilega mikilli ákefð. ákefð. í daufri birtunni gat ég einungis séð skuggamyndina af hinum álúta manni, en þó sá ég, að herðarnar kipptust til í áköf- um skjálftaflogum. Einnig hann — faðirinn, sem sá barnið sitt kvelja sjálft sig á þennan hátt, dag eftir dag — einnig hann hafði gugnað við þá sjón. Loftið milli okkar tveggja var dauðakyrrt. Eftir fáar minútur sneri maðurinn sér loks við og gekk hljóðlega til mín, hikandi skrefum, eins og hann gengi á hálu svelli. „Þér megið ekki móðgast við barnið, hr. liðsforingi, þótt hún hafi ekki gætt sín sem skyldi, en .... þár vitið ekki hvað hún hefur orðið að þola í öll þessi ár .... alltaf nýjar og nýjar aðgerð ir og þær eru allar svo seinvirk- ar. Ég get vel skilið óþolinmæði hennar. En hvað eigum við að gera? Við verðum, þegar á allt er litið, að reyna allt, er skki svo?“ Gamli maðurinn hafði numið staðar fyrir framan hið yfirgefna te-borð. Hann leit ekki á mig, meðan hann talaði, en hafði ekki augun, sem voru næstum hulin undir gráum brúnunum, af borð- inu. Eins og í draumi stakk hann fingrunum niður í sykurkerið, tók sykurmola, sneri honum milli fingranna, starði tómlega á hann og lét hann svo aftur í kerið. Maður hefði getað haldið, að hann væri drukkinn. Hann gat ekki haft augun af borðinu, einhver sérstakur hlutur virtist hafa seitt til sín alla athygli hans. Jólagjafir Munið hið fjölbreytta úrval af erlendum lömp- um. LÍTIÐ I GLUGGANA Skermabúðin Laugavegi 15. Sími 19635. Hann tók upp teskeið annars hug ar, lét hana aftur á borðið og sagði svo, eins og við skeiðina: „Ef þér vissuð bara hvernig barnið var áður fyrr. Hún var á stöðugri hreyfingu allan daginn, hlaupandi upp og niður stigana og um allt húsið. Þegar hún var aðeins ellefu ára, þeysti hún yfir engið þvert og endilangt á litla hestinum sínum og enginn hafði roð við henni. Við vorum oft hrædd um hana, konan mín sálaða og ég. Hún var svo eirðar- laus, svo djörf og liðug. Hún átti svo auðvelt með allt. Maður hafði það á tilfinningunni, að hún þyrfti ekki að gera annað en breiða út faðminn og þá gæti hún flogið. Og að hugsa sér að þetta skyldi svo koma fyrir hana, ein- mitt hána.... “ ..... gparió yöu.j hiaup < náUi naargra verzjana'- «(ll ÁCIIUM «WI! - Austurstræti gHUtvarpiö Miðvikudagur 9. desember 8.10—10.00 Morgunútvarp. (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8,30 Fréttir. — 8,40 Tón- leikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9,20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — 12.25 Fréttir og tilkynningar. 12.50—14.00 „Við vinnuna": Tónleikar af plötum. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og veðurfregnir). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Utvarpssaga barnanna: ,,Siskó á flækingi“ eftir Estrit Ott; XII lest ur (Pétur Sumarliðason kenn- ari). 18.55 Framburðarkennsla í ensku. 19.00 Þingfréttir. — Tónleikar. 19.30 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson cand. mag.). 20.35 Með ungu fólki (Jón R. Hjálmars- son skólastjóri). 21.00 Tónleikar: Ungversk þjóðlög í út- sendingu Béla Bartóks. — Magda Laszlo syngur með undirleik Fr. Holetscheks. 21.20 Framhaldsleikritið: „Umhverfis jörðina á 80 dögum“, gert eftir samnefndri sögu Jules Verne; VI. kafli. Þýðandi: Þórður Harðarson. Leikstjóri: Flosi Olafsson. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Ur heimi myndlistarinnar (Björn Th. Björnsson listfræðingur). 22.30 Tónaregn: Svavar Gests kynnir lög eftir Louis Prima. 23.00 Dagskrárlok. Fimmtudagur 10. desember 8.10—10.00 Morgunútvarp. (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8,30 Fréttir. — 8,40 Tón- leikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9,20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50—14.00 „A frívaktinni“ — sjó- mannaþáttur (Guðrún Erlends- dóttir). 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og veðurfregnir). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Fyrir yngstu hlustendurna (Mar- grét Gunnarsdóttir). 18.50 Framburðarkennsla í frönsku. 19.00 Þingfréttir. — Tónleikar. 19.30 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Hadrianus keisari (Séra Hákon Loftsson). 20.55 Einsöngur: Arni Jónsson syngur með undirleik Fritz Weisshappels. a) ,,I fjarlægð" eftir Karl O. Run- ólfsson. b) „Ef engill ég væri“ eftir Hall- grím Helgason. c) „Horfinn dagur“ eftir Arna Björnsson. d) „Þei.þei og ró, ró“ eftir Björg- vin Guðmundsson. e) „Til skýsins" eftir Emil Thor- / 1) Mér hefir alltaf þótt þetta einhver fegursti staðurinn hér um slóðir. Ekki er þetta neitt árennilegt. Mig mundi sannarlega langa til að fara hér niður í barkarbát 2) Þér yrði víst ekki skota- skuld úr því, Markús! segir Bald- ur háðslega. 3) Markús — sjáðu! Þarna er mannlaus bátur — og hann fer fer beint í flúðirnar! oddsen. f) „Til hafs“ eftir Nordquist. 21.15 Upplestur: Gunnar Dal skáld les úr ljóðum sínum. 21.30 Músíkvísindi og alþýðusöngur; V, erindi (Dr. Hallgrímur Helgason). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Smásaga vikunnar: „Maðurinn með frönsku póstkortin“ eftir William Saroyan, í þýðingu Bald- urs Pálmasonar (Helgi Skúlason leikari). 22.30 Frá tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Islands í Þjóðleikhúsinu 4. þ.m.; fyrri hluti. — Stjórnandi: Hans Antolitsch. Einleikari á fiðlu: Einar Grétar Sveinbjörns- son. a) Þrír dansar úr ballettinum „Þríhyrndi hatturinn“ eftir de Falla. b) Fiðlukonsert í e-moll op. 64 eftir Mendelssohn 23.10 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.