Morgunblaðið - 09.12.1959, Page 24
dagar
til jóla
275. tbL — Miðvikudagur 9. desember 1959
dagar
til jola
Bjarnarey komst
til Klakksvíkur
Alþingismenn bera kistu Gísla Sveinssonar, fyrrum Alþingis-
forseta, úr kirkju. —
Fjölmenn og virðuleg
minningarathöfn um
Císla Sveinsson
I GÆR fór fram í Dómkirkjunni minningarathöfn um Gisla Sveins-
son, fyrrverandi alþingisforseta og sendiherra. Hófst athöfnin kl. 2
með því að dr. Páll Isólfsson lék sorgargöngulag eftir Hartmann.
Síðan var sunginn sálmurinn „Víst ert þú Jesús kóngur klár“. Þá
flutti séra Óskar Þorláksson, dómkirkjuprestur, minningarræðu en
síðan var sunginn sálmurinn „Fögur er foldin“.
EINS og skýrt var frá í frétt
blaðsins í gær voru tvö skip
SÍS, Hvassafell og Dísarfell,
stödd skammt frá nauðstödd-
um skipum á óveðurssvæði
því er nú er vestur af norðan-
verðu meginlandi Evrópu.
Dísarfell var út af vesturströnd
Noregs er þýzkt skip sendi út
neyðarkall. Var um 40 mílna sigl-
ing fyrir Dísarfell til hins nauð-
stadda skips. Er það kom á vett-
vang voru þar fyrir tvö skip til
hjálpar, norskt björgunarskip og
sænskt skip. Gat Dísarfellið því
haldið áfram för sinni til íslands
en það kemur til hafnar á Aust-
fjörðum.
Hvassafellið hafði í fyrrakvöld
fylgt hinu nýja austur-þýzka
togskipi, Bjamarey, í rúman sól-
arhring, þar með bilaða stýrisvél.
Talið var að tekizt hefði að gera
við stýri Bjarnareyjar til bráða-
birgða.
Síðan kom í ljós að viðgerðin
á stýri Bjamareyjar reyndist
ekki fullnægjandi. Hvassafell
fylgdi því enn og var gert ráð
fyrir að halda til Klakksvíkur.
Nýtt skip
Bjarnarey er nýtt austur-þýzkt
togskip, sem fyrr segir, og er á
leið hihgað til lands í sína fyrstu
för. Lagði það síðast úr höfn í
Kaupmannahöfn. Skipstjóri á
Bjamarey er Stefán Stefánsson
frá Dalvík. Skipið er eign hluta-
félagsins Röst og er framkvæmda
stjóri þess Hólmsteinn Helgason
á Raufarhöfn. Heimahöfn skips-
ins verður á Vopnafirði. Röst hf.
á einnig austur-þýzka togskipið
Jón Trausta á Raufarhöfn, sem
er af sömu gerð. Með Bjamarey
er 7 manna skipshöfn og 1 far-
þegi, kona skipstjórans.
Komu heilir í höfn
f gærkvöldi náði Mhl. tali
af Guðmundi Hjaltasyni skip-
stjóra á Hvassafelli. Sagði
hann að þeir hefðu yfirgefið
STÓREIGNASKATTURINN, er
lagður var á með sérstökum lög-
um 1957, hefur nú verið lækk-
aður stórlega. Enn sem komið er
liggja ekki fyrir heildarupphæð
skatts þessa eins og hann er nú
orðinn.
Lækkun skattsins er gerð sam-
kvæmt dómum þeim er gengið
Bjamarey er hún var komin
upp undir land við Klakksvík,
en þangað mun skipið hafa
komið um kl. 20 í gærkvöldi.
Hélt Hvassafell síðan heim á
leið. Bjarnarey bað um hjálp
er hún var stödd um 140 sjó-
milur suðaustur af Shetlands-
eyjum. Veðurhæðin var 11—12
vindstig er verst var og sjór
mikill. Aldrei þurftu þeir á
Hvassafelli að setja dráttar-
taug yfir í Bjarnarey, en
fylgdu henni hins vegar til ör-
yggis.
Varar við
kjararýrmm
Á FUNDI fullskipaðrar sam-
bandsstjómar Alþýðusambands
fslands, sem haldinn var 6. og 7.
desember sl. var • eftirfarandi
samþykkt gerð:
„Fundur sambandsstjómar Al-
þýðusambands íslands, haldinn í
Reykjavík 5.—6. desember 1959
lýsir samþykki sínu við ályktun
ráðstefnu sambandsfélaganna, er
haldin var 29. og 30. ágúst sl. og
ennfremur við ákvarðanir mið-
stjórnar varðandi starf fulltrúa
sambandsins í verðlagsnefnd land
búnaðarafurða.
Með tiliti til þeirrEir óvissu,
sem nú ríkir um aðgerðir stjórn-
avalda í efnahagsmálum þjóðar-
innar og kjaramálum verkalýðs-
stéttarinnar, telur sambands-
stjórnin eðlilegt að félögin hafi
lausa samninga sína þar til fram-
vinda þeirra mála skýrist, jafn-
framt því sem hún varar alvar-
lega við öllum fyrirætlunum og
aðgerðum er rýrt gætu raunveru-
leg launakjör alþýðunnar.
Fundurinn felur miðstjórn
sambandsins að kalla saman ráð-
stefnu verkalýðsfélaganna þegar
hún telur tímabært að ganga frá
megin kröfum þeirra við nýja
samningagerð“.
hafa í Hæstarétti í prófmáli Guð-
mundar Guðmundssonar og Tré-
smiðjunnar Víðir hf., svo og
samkvæmt úrskurðum skattyfir-
valdanna. Sem fyrr segir er ekki
vitað hve heildarupphæð stór-
eignaskattsins nú er, en fullyrt
er að hann sé komin niður fyr-
ir 80 milljónir króna.
Þá minntist Ásmundur Guð-
mundsson, fyrrverandi biskup,
fjölþættra starfa Gísla Sveins-
sonar í þágu kirkju og kristni-
halds 1 landinu, dr. Páll ísólfs-
son lék pílagrímskórinn eftir
Wagner, sunginn var sálmurinn
„Ó blessuð stund“ og að lokum
var leikið sorgargöngulag eftir
Hándel.
Ur kirkju báru forsetar
Alþingis, ráðherrar og þingmenn
úr öllum þingflokkum.
Enn iinnst fé
lifondi 1 fönn
GRUNDARHÓLI, Hóls-
fjöllum, 8. desember.
HÉR er nú hjarnfenni og
bílfæri því sæmilega gott. í
dag er nokkur hláka. Enn
er leitað að fé í fönn og
finnast af og til. í gær
fundust t. d. tvær kindur í
Möðrudal. Voru báðar lif-
andi og hafði fennt í veðr-
inu fyrir mánuði síðan. Fé
er allt úti og var ekki hýst
nema nokkra daga eftir
óveðrið.
Vitað er að á þremur bæj-
um hér hafa bændur þegar
heimt allt sitt fé, en ennþá
er þó talsvert ófundið. Verð-
ur gerð nánari leit er færi
batnar nú eftir helgina. —
Minna fjártjón hefur orðið
en menn óttuðust í fyrstu,
enda var fé staðið upp og
komið til beitar er mesta
óveðrið skall yfir. Það fé,
!sem fennti, hefur lagzt í
skjól á hrakningi sínum
undan veðrinu. — Víkingur.
Minningarathöfnin var mjög
fjölmenn. Var Dómkirkjan þétt-
skipuð fólki. Fór athöfnin öll hið
virðulegasta fram. Meðal við-
staddra voru forsetahjónin og for
sætisráðherrahjónin, flestir ráð-
herrar og margir þingmenn.
1 dag verður útför Gísla Sveins
sonar gerð frá Víkurkirkju í V-
Skaftafellssýslu. Þar flytur séra
Jón Þorvarðarson líkræðuna.
HAFNARFIRÐI: - Heldur minni
síldveiði var hjá reknetabátunum
í gær en daginn áður, og voru
þeir nú yfirleitt með frá 50 og
upp í 100 tunnur. Vélbáturinn
Guðmundur Þórðarson frá Rvík,
sem er með hringnót, kom hing-
að í gær með um 300 tunnur.
Hér hefir nú verið saltað í rúm
ar 4 þúsund tunnur, en ekki 400,
eins og misritaðist í blaðinu í
gær. — Enn er talsverð smá-
ufsaveiði í höfninni, og er hún
stunduð af litlum þilfarsbátum.
Togarinn Keilir kom hingað í
gærmorgun úr sínum fyrsta túr,
og sigldi hann með aflann á
erlendan markað. — G.E.
★
SANDGERÐI, 8. des. — Hingað
komu 18 bátar í dag með samtals
2270 tunnur síldar. Hæstir hring-
nótabáta voru Víðir II. með 455
tunnur og Rafnkell með 260 tunn
ur. Hæztir reknetabáta voru Guð-
björg með 149 tunnur, Helguvik
með 131 tunnu og Mummi með
119 tunnur. Allir Sandgerðisbát-
ar fara út í kvöld. — Axel.
★
AKRANESI, 8. des. — Með degi
hverjum fjölgar stúlkum þeim,
er hér vinna að síldarsöltun. ,
Veikur
Rússi á
land
SEYÐISFIRÐI, 8. des.
HINGAÐ kom í dag rúss-
neskt síldveiðiskip með
veikan mann og var hann
lagður hér inn í sjúkrahús.
Skipið, sem ber nafnið
Reingold Cpt 3169, er frá
Murmansk og hélt þegar á
brott aftur. Það er 334
brúttólestir og er áhöfn
þess 25 manns. Nafn hins
sjúka skipverja er Alex-
andr Bilow.
Hér á Seyðisfirffi getur eng-
inn talaff viff sjúklinginn, sem
ekki skilur annaff en rússn-
esku, en afgreiffsla skipsins
gekk einnig mjög stirt vegna
skorts á málakunnáttu. Hing-
aff mun þó væntanlegur rússn
eskumælandi maffur, sem er
aff taka á móti síld, sem flutt
verffur til Rússlands, og er
þá vænzt aff úr greiffist.
Hið rússneska skip leitaffi
hér leyfis til landtöku gegn-
um rússneska sendiráffið í
Reykjavík, og veitti utanríkis
ráðhineytið leyfiff þegar í stað.
Þaff mun sjaldgæft, ef ekki
algert einsdæmi aff rússneskt
skip skilji eftir sjúkling hér
á landi eftirlistslausan.
Ekki hafffi í gær veriff geng
iff úr skugga um hvaff þjáffi
hinn rússneska sjómann, en
taliff var aff hann væri meff
innvortis meinsemd.
— Kristmann.
Spilakvöld
HAFNARFIRÐI. — Félagsvist
Sjálfstæffisfélaganna er í Sjálf
stæðishúsinu í kvöld kl. 8,30,
og verffur þaff jafnframt síff-
asta spilakvöldiff fyrir jól. Þá
verffa veitt verfflaun, eins og
venja er til, og einnig heild-
arverfflaun fyrir þau skipti,
sem spilaff hefir veriff fram aff
þessum tíma.
í dag Iandaði síldveiðiflotinn
2.300 tunnum síldar og nálega
helming þess fluttu hringnóta-
bátarnir, en þeir eru 2 af 16 bát-
um alls, sem héðan róa. Hæstur
var Höfrungur með 540 tunnur
og Keilir með 410 tunnur. Af
reknetabátum voru hæstir Ólafur
Magnússon með 114 tunnur og
Bjarni Jóhannesson með 104 tunn
ur. — Oddur.
★
KEFLAVÍK, 8. des. — Hingað
komu 25 bátar með samtals 2276
tunnur síldar. Hringnótabátarnir
voru með mestan afla, Vonin 370
tunnur, Kópur 293 og Jón Finns-
son með 120 tunnur. Af rekneta-
bátum voru hæstir Dux með 114
tunnur og Guðfinnur með 100
tunnur.
★
GRINDAVÍK: — 16 bátar komu
til Grindavíkur með 1509 tunnur
samtals. Hringnótabátarnir Ár-
sæll Sigurðsson með 460 tunnur
og Arnfirðingur með 164. Rek-
netabátar: Júlí með 118 tunnur
og Freyja með 102.
Heildarsöltun er nú orðin um
30 þúsund tunnur á höfnunum
hér við Faxaflóa.
Þessi mynd er af togveiðiskipinu Jóni Trausta frá Raufarhöfn,
en hann er systurskip Bjarnareyjar, sem Ienti í hrakningunum
á leiff sinni yfir Norffursjó, og sömu gerffar.
Sfóreignaskatturinn
innan við 80 milj. kr.
Góður afti s'ddarbáta
Hringnótabátar afla bezt