Morgunblaðið - 10.12.1959, Blaðsíða 1
24 siður
Tilhæfulaust að isi. rikis-
stjórnin hafi andmælt fækk-
un herliðs á Islandi
New York Times segist sjálft ekki
hafa öruggar heimildir fyrir
frásögn sinni
BÆÐI Tíminn og ÞjóSviljinn láta
í gær liggja að því, að íslenzka
ríkisstjómin hafi verið andvíg
fækkun í varnarliði Bandaríkja-
manna hér á landi og bera fyrir
sig í þessu efni frásögn New
York Times. Keppast blöðin um
að koma því inn hjá fólki að
Bandaríkjastjórn vilji kalla
hluta af varnarliðinu heim frá
Keflavíkurflugvelli, en íslenzka
ríkisstjórnin standi gegn því.
Greinin í New York Times hef-
nr nú borizt hingað til lands og
kemur skýrt í ljós af henni, að
blaðið sjálft kveðst ekki hafa
öruggar heimildir fyrir frásögn
sinni, þar sem það skorti opin-
bera staðfestingu. Og í setningu
þeirri þar sem fréttamaður blaðs-
ins ræðir um andmæli íslendinga,
kemur glöggt i ljós, að heimild-
irnar eru ekki sterkar, því að
sagt er „það er álitið“ (Under-
stood).
Enda fer fréttamaður blaðsins
þama með staðlausa stafi og er
greinin á margan annan hátt
villandi og röng.
Ekkert rætt um fækkun varnar-
liðsins
Sannleikurinn í þessu máli er
sá, eins og Guðmundur í. Guð-
mundsson, utanríkisráðherra hef
ur upplýst á Alþingi, að ekki hef-
ur verið á nokkurn hátt rætt um
fækkun varnarliðsins á íslandi.
1 svarræðu sinni við fyrirspurn
Einars Olgeirssonar á Alþingi
sagði ráðherrann m.a., eins og
skýrt var frá í Morgunblaðinu á
þriðjudag:
,,Út af þessari fyrirspurn vil
ég skýra frá því, að fyrir örfáum
dögum síðan fóru fram viðræður
á milli ríkisstjórnar íslands og
sendiherra Bandaríkjanna um
skipun varnarliðsins á íslandi.
Var ekki um það rætt að drága
46 fórust
BOGOTA, 9. desember. — Farizt
hefur flugvél með 46 mönnum
innanborðs. Flugvélin var frá
flugfélaginu í Colombiu, tveggja
hreyfla Curtiss Commando, á leið
frá eyjunní San Andreas í Kara-
biska hafinu til Norður Colom-
biu. Flak vélarinnar er fundið í
Panama. Fullvíst er talið, að allir
hafi farizt.
★------------------★
Fimmtudagur 10. desember
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: ísl. stúlka f Rósaskrúðgöngunni
— 6: Kvikmyndir. — Bridge.
— 8: Fjárlagaræða eftir áramót. ■—
fítvarpsræða Gunnars Thor-
oddsen, fjármáiaráðherra.
Trésmiðafélag Rvíkur 60 ára.
— 10: Við veðsettum okkur fyrir
skólavistinni.
— 11: Rogalandsbréf A. G. E.
— 1Z: Forystugreinarnar: „Þjóðnýt-
ingarstefnan á sér æ færri for-
mælendur" og „Var það til
varnar alþýðuheimilunum^.
Frá Berlín (Utan úr heimi).
— 13: Verður dæmd eftir verkum sín
um. Útvarpsræða Bjarna Bene
diktssonar, dómsmálaráðherra
— 22: íþróttir.
★--------------------------★
úr vörnum landsins á nokkurn
hátt né fækka í varnarliðinu á
íslandi, eða breyta fjölda varnar
liðsmanna. Var hins vegar ein-
göngu um það talað, hvort ekki
væri nauðsynlegt að gera nokkr-
ar skipulagsbreytingar á varnar-
liðinu sjálfu og samsetningu
þess“.
Neita® í aðalstöðvum NATO
Af þessum ummælum ráðherrans
má sjá, að ekki hefur verið rætt
við íslenzku ríkisstjórnina um
fækkun í varnarliði Bandaríkja-
manna hér. Kemur það heim við
yfirlýsingu formælenda Atlants-
hafsbandalagsins, þegar frétta-
ritari Reuters spurðist fyrir um
mál þetta í París, og er sú yfir-
lýsing birt í Morgunblaðinu s.l.
þriðjudag. Þar segir m.a., „að
fréttinni um heimköllun banda-
sísks herliðs á íslandi hafi verið
neitað í aðalstöðvum Atlantshafs-
bandalagsins þar í borg. Formæl-
andi *bandalagsins sagði, að mál-
ið hefði ekki verið rætt í fasta-
ráði bandalagsins“. En eins og
Smnþyhkt með
54 ntkvæðum
NEW YORK, 9. desember.
í KVÖL.D var gengið til
atkvæða um ályktunartil-
lögu Bandaríkjanna og 23
annarra ríkja um Ungverja-
landsmálið. — Var tillagan
) samþykkt með 54 atkvæðumX
, gegn 9, en 18 ríki sátu hjá.(
Voru Ráðstjórnarríkin og
ungverska stjórnin þar
minnt á fyrri samþykktir
SÞ um Ungverjalandsmálið
og jafnframt var ályktað, að
Ráðstjórnin ætti að fara
með her sinn úr Ungverja-
landi, kúgun landsmanna
ætti að hætta og efna bæri
til frjálsra kosninga.
mönnum er kunnugt, er varnar-
liðið hér á vegum Atlantshafs-
bandalagsins og ættu yfirlýsingar
þess og utanríkisráðherra að
tryggja að rétt sé farið með stað-
reyndir.
Þó ber allt að sama brunni hjá
stjórnarandstöðunni. Staðhæfing-
ar Tímans og Þjóðviljans styðj-
ast eingöngu við bollaleggingar
og órökstuddar fullyrðingar er_
lendra blaða ,ef það mætti verða
til þess að gera íslenzku ríkis-
stjórnina tortryggilega.
Grein NEw York Times birt-
izt í heild á bls. 2.
70 fórust
MEXICO CITY, 9. des.: — Um
70 manns biðu bana í dag, er
langferðabíll ók út af veginum
og niður í gljúfur um 100 km
suður af Mexico City. Kviknaði
þegar í bílnum og biðu margir
farþeganna bana í eldinum.
Ný sókn
ALGEIRSBORG, 9. dessember:
Franski herinn hefur nú byrjað
nýja sókn gegn uppreisnarmönn-
um í A.-Alsír og er ætlunin að
reyna að vinna helztu bæki-
stöðvar uppreisnarmanna á þeim
slóðum. 12.000 fallhlífarhermenn
studdir öflugu liði.
Stórvirkt vinnutæki notað við gröftinn.
Byrjað að grafa fyrir Vestur-
bæjaræð Vatnsveitunnar
A FIMMTÍU ára afmæli
Vatnsveitu Reykjavíkur í vor
var skýrt frá framkvæmda-
áætlun Vatnsveitunnar 1956
—61 og þess getið að á þess-
um árum yrði m. a. lögð Vest-
urbæjaræð. I gær var byrjað
að grafa fyrir þessari æð,
sem á að liggja frá Þorfinns-
götu, yfir Landspítalalóðina,
sunnanvert við Hringbraut-
ina, suður fyrir Háskóla-
hverfið og vestur í Suður-
götu. Á þarna að liggja við-
bótaræð, þar eð vatnsæðin í
Vesturbænum er of grönn. —
Eru nýju rörin 60 sm eða 24
tommur að innanmáli, en
þau gömlu eru helmingi
mjórri, eða 30 sm.
í skurðum þeim sem nú er
byrjað að grafa eiga að liggja
samsíða fyrrnefnd vatnsveituæð
og hitaveitliæð í Vesturbæinn.
Þurfa skurðirnir sums staðar að
vera nokkuð djúpir og er ætlunin
að búa til undirstöður undir rör-
in. Kom í ljós á fyrsta degi að
Bifreið Eisenhowers fylltist
af blómum
Nehru þurfti að hjálpa lögreglunn.
við umferðarstjórnina
NÝJU DELHI, 9. des. — Eisen-
hower fékk stórbrotnar móttök-
ur í Nýju Dehli. — Fréttastofu-
fregnir herma, að í höfuðborg
Indlands hafi ekki sézt slík fagn-
aðarlæti síðan á fullveldisdaginn
1947. Gizkað er á að um tvær
milljónir Indverja hafi fagnað
Bandaríkjaforseta, er hann ók
frá flugvellinum til aðseturs ind-
verska forsetans. Þröngin var
svo mikil, að Nehru, sem stóð við
hlið Eisenhowers 1 bílnum, fór
nokkrum sinnum sjálfur út úr
bílnum til þess að hjálpa lögregl-
unni að ryðja bílnum braut gegn
um mannþröngina. Móttökuat-
höfnin fór af þessum sökum að
miklu út um þúfur.
Eisenhower stóð allan tímann
og veifaði mannfjöldanum. —
Fréttaritarar sögðust hafa fengið
hellu fyrir eyrun, þvílík voru
fagnaðarlætin. Bíllinn fylltist
brátt af blómum, sem varpað var
til forsetans.
í ræðu, sem Eisenhower flutti
á flugvellinum við komuna,
sagði hann, að nú ætti heimurinn
aðeins um tvennt að velja: Al-
heimsstyrjöld eða frið. Þess
vegna bæri nú meiri nauðsyn til
þess að efla friðinn en nokkru
sinni fyrr.
Forseti Indlands fagnaði Eisen-
hower sem boðbera friðarins og
kvað alla Indverja fagna komu
hans.
Eisenhower mun flytja ræðu í
indverska þinginu meðan hann
dvelst þar, leggja blómsveig á
minnisvarða Ghandis og ræða við
stjórnmálamenn.
í morgun hafði Bandaríkjafor-
seti viðkomu í Kabul í Afganist-
an og var þar mjög vel fagnað.
Ræddi hann þar við stjórnmála-
leiðtoga.
erfiðleikar voru á greftri í mýr-
inni við Njarðargötu, þar sem
byrjað var, vegna þess hve hún
er blaut. Rörunum, sem nota á í
vatnsleiðsluna, hefur fyrir
skömmu verið raðað meðfram
Hringbrautinni þar sem vatnsæð-
in á að liggja.
Framh. á bls. 23.
Ur.dirbúa iúð-
herraiundinn
París, 9. desember.
HERNABARNEFND Atiants/
! hafsbandalagsins kom í dag /
Isaman til tveggja daga fund-
) ar og þar verða ræddar áæti- \
i anir um varnir Evrópu, eink-V
um með tilliti til vetnisvopnat
og nánara samstarfs flugflota/
bandalagsþjóðanna. Hernaðar/
> nefndin er æðsta stjórnin á)
) þessu sviði undir AtlantshafsS
ráðinu. 1 hernaðarnefndinni \
v sitja æðstu yfirmenn land- (
varna allra aðildaríkjanna að /
' íslandi undanskildu, en það (
) hefur engan her.
Fundurinn er lokaður, enl
) rætt verður m.a. um það hvortS
, fækka beri hermönnum í herl
bandalagsins þar eð frétzt hef-/
ur að nokkur bandalagsríkin /
) hafi í hyggju að draga úr)
) hernaðarlegum skuldbinding-1
I um sínum. Umræðurnar eruN
, til undirbúnings ráðherra-(
fundinum.