Morgunblaðið - 10.12.1959, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.12.1959, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 10. des. 1959 MORCUNBLAÐIÐ 19 Furðulegnr ritdómur Herra ritstjóri. 1 HEIÐRUÐU blaði yðar 6. des. birtist ritdómur eftir Kristmann Guðmundsson um Norðlenzka skólann eftir Sigurð Guðmunds- son skólameistara. Efnisyfirlitinu gerir höfundur svo rsekileg skil, að honum næg- ir ekki minna en að þrítaka kafla heiti bókarinnar og innihald hvers kafla, og 1 hvert sinn tek- ur höfundur skilmerkilega fram, að sér finnist kaflinn um deilur um mataræði á Möðruvöllum „full ýtarlegur“, „langteigður", (sic!) og loks, svo að allt sé þá þrennt er „of langur." Þar með hefur Kristmann Guðmundsson sagt álit sitt á matarkaflanum, svo að ekki verður um villzt. Þó tekur í hnúkana þegar Krist- mann Guðmundsson þykist þess umkominn að taka Sigurð heit- inn Guðmundsson skólameistara á kné sér, og komast þannig að orði, að „hann skrifi gott og hnökralaust íslenzkt mál og hafi ágæta frásagnargáfu Gömlum nemendum og öðrum, sem áttu því láni að fagna að njóta handleiðslu og kynna af Sigurði skólameistara, er það minnisstætt, hvílíkur afburða- maður meistari var um íslenzkt mál og hve heilög köllun það var honum ,að kynna nemendum sín- um hina margslungnu töfra ís- lenzkrar tungu. Er mér nær að halda, að fáir menn á þessari öld hafi staðið honum jafnfætis um meðferð íslenzkrar tungu, og kemur mönnum því spánskt fyr- ir sjónir, að Kristmann Guð- mundsson skuli hafa þann ókunn- ugleika á hinum látna skóla- manni, að hann geti tekið sér í munn orðið „nnökralaust" þegar hann talar um málfar Sigurðar Guðmundssonar skólameistara. Með þökk fyrir birtinguna. Reykjavík, 8. des. 1959 Högni Torfason. — o — Kristmann Guðmundsson lætur þess getið, að hann fái ekki séð tilganginn með ofanritaðri grein, „þar eð höfundur hennar stað- festir og leggur áherzlu á um- mæli mín um ágæti íslenzks máls í bók Sigurðar skólameistara", eins og Kristmann komst að orði. Styrkur til verldræðináms í SLENDIN G AFÉL AG Norður- Kaliforníu hefur ákveðið að veita 300 dollara til að styrkja íslenzk- an stúdent til verkfræðináms í Bandaríkjunum. Er hér um að ræða framlög frá íslendingum í San Francisco, og ber gjöfin vott um ræktarsemi þeirra og hlýjan hug. Menntamálaráðuneytið hefur verið beðið að annast ráðstöfun fjárins, og skulu þeir, er hafa hug á að hljóta styrkinn, senda ráðuneytinu umsókn ásamt stað- festum afritum prófskírteina og meðmælum fyrir 31. janúar n.k. Ingélfscafé Ingólfscafé Félagsvistin í kvöld klukkan 9—11,30. CITY-sextett og Sigurður Johnnie skemmta. l^öÉaíi ik Og Haukur Morthens Skemmta með hljómsveit Árna Elfars í kvöld Borðpantanir í síma 15327 R Ö Ð U L L Leikfélag Kópavogs IVIúsagildran eftir Agatha Christie Mjög spennandi sakamálaleikur í tveim þáttum • Sýning í kvöld kl. 8,30 Síðasta sýning fyrir jól. Aðgöngumiðasala í dag frá kl. 5. Sími 19185. Pantanir sækist 15 mín. fyrir sýningu. er í kvöld kl. 9. Dansstjórl: HELGI EYSTEINSSON Hljómsveit Árna ísleifssonar leikur til kl. L Sala aðgöngumiða hefst kl. 8. Sími 17985. VÖRÐIJR - HVÖT - HEIMDALLUR - ÓÐINIM Spilakvöld halda Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík fimmtudaginn 10. des. kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu. 1. Spiluð félagsvist. 2. Ræða: Pétur Sigurðsson, alþingismaður. 3. Spilaverðlaun afhent. 4. Dregið í happdrættinu. 5. Kvikmyndasýning. Sætamiðar afhentir í dag í Sjálfstæðihúsinu. Skemmtinefndin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.