Morgunblaðið - 10.12.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.12.1959, Blaðsíða 22
22 MOJtCTnvnrAniÐ Fimmtudagur 10. des. 1959 Þarna verður jólavakan, gutubóö og leirböð. Jólavaka í Skíðaskálanum — lýstar brekkur og skíðalyfta GAGNGERÐAR breytingar hafa nú verið gerðar við Skíðaskálann í Hveradölum til aukinnar þjónustu og fyr- víkur og hafa verið gerðar á henni miklar endurbætur. — Ljósaútbúnaður hefur verið stórbættur í brekkunni og Jóladvöl á fjöllum Um jólahátíðina verður Skíðaskálinn opinn þeim sem vilja njóta hátíðanna til fjalla. Dvalarkostnaði verður stillt í hóf og mun dvölin kosta um þúsund krónur með fæði. Verða sam- tímis starfrækt gufu- og leirböð fyrir gestina og er slíkt algjör nýjung hér á landi og þó víðar sé leitað til hliðstæðra staða. Hinir nýju gestgjafar ætla um jólahátíðina að hafa sem heimilis legast í Skíðaskálanum. Verður efnt til kvöldvaka með gestun- um og fleira haft til skemmtun- ar og ánægju. 1r Bætt aðstaða íþróttalega séð er mikill ávinningur af því að skíðalyftan var endurbætt. Beztu skíðamenn landsins hafa af henni mikil not. Stór verkéfni eru nú framundan hjá skiðamönnum og stærst þeirra eru Ólympíuleikarnir í Squaw Valley, en þangað munu fara 4 íslendingar. Tveir skíða- mannanna, þeir Eysteinn Þórðar- son og Kristinn Benediktsson, eru farnir til Austurríkis til æf- inga og mun Eysteinn halda til Bandaríkjanna þegar upp úr ára- mótunum. Eysteinn er okkar bezti skiðamaður í Alpagreinum á liðnum árum og var á sl. vetri talinn bezti alpagreinamaður á Norðurlöndum. Mikill áhugi er meðal reyk- vískra skíðamanna og hafa þeir hópum saman hafið skíðaiðkun fyrir nokkru. — Klaki. Afhugasemd í TILEFNI af skrifum Atla Stein- arssonar undir fyrirsögninni „Og fólkið hlær“ teljum vér rétt að taka eftirfarandi fram: 1. Dómstólar íþróttahreyfingar- innar eru til þess að skera úr deilumálum félaga og einstakra aðila og til að fyrirbyggja að einstakir hópar eða einstaklingar fái að fremja lögbrot. 2. Það er eigi starfssvið H. K. R. R. að dæma í ágreiningi þeim, er kann að koma upp á milli fé- laga eða einstaklinga. Tíl þess starfs hefur ráðið dómstól er heitir Sérráðsdómstóll H. K. R. R. og liggur því í hlutarins eðli að senda allar þær kærur er sér- ráðinu berast beint til hans. 3. í sambandi við spurningu þá er vaknar í brjósti umrædds blaðamanns um það hvort Í.R. hefði fengið kæruna senda til Sérráðsdómstóls H. K. R. R. þá viljum vér taka það fram, að sú kæra hefði verið höndluð á sama hátt og aðrar kærur er ráðinu berast. Stjórn H. K. R. R. Síðustu tréttir í gær hafði Íþróttasíðan þær fregnir sannastar að kæran fræga út af 2. flokks mótinu hafi enn verið í höndum HKRR — og dómstóllinn hafi ekki fengið hana til „afgreiðslu" ...segið ibað gárungunum irgreiðslu við unnendur skíða íþróttarinnar. Hefur Skíðafé- lag Reykjavíkur keypt skíða- lyftuna af Skíðaráði Reykja- — Utan úr heimi Framh. af bls. 12. búa skuli þann möguleika, að Berlín verði í framtíðinni aftur höfuðborg — jafnvel þótt langur tími líði, áður en Þýzkaland fæst sameinað. Og nokkuð hefur þeg- ar verið gert í því efni. Á síðasta ári fór t. d. fram gagnger við- gerð á Bellevue-höllinni, með það fyrir augum, að hún verði aðsetursstaður .forsetans, þegar hann heldur til í borginni — og nú er unnið af miklum krafti við þinghúsið, sem fyrr segir. Ef svo heldur áfram sem horfir, eru all- ar líkur til, að nokkur hluti byggingarinnar verði tilbúinn þegar á miðju næsta ári, eða áður en fyrirhugaður Berlínar-fundur sambandsþingsins verður hald- inn. ýmislegt fleira gert fyrir skíðaunnendur. ★ Nýir gestgjafar Steingrímur Karlsson, sem um áraraðir hefur annazt rekst- ur Skíðaskálans, hefur nú látið af því starfi og við hafa tekið Óli J. Ólason og Sverrir Þor- steinsson, ungir menn, sem gert hafa ýmsar breytingar til bóta fyrir gesti skálans. Á Lyftan endurbætt Aðalbreytingin er í því fólg- in að eigendur skálans taka nú við rekstri skíðalyftunnar. Verð- ur hún starfrækt þegar veður leyfir allar helgar og þess á milli þegar henta þykir og veður leyf- ir. Hafa miklar endurbætur verið gerðar á lyftunni og ljósaútbún- aði í brekkunni. Má ætla að fjör- ugt verði við skálann á kvöldin og um helgar og er fyrsta kvöld- ferðin farin í kvöld frá BSR kl. 7.30. Lyftan verður í gangi og brekkan upplýst. í Morgunblaðinu 9. des. sl., er birt grein undir fyrirsögninni .. og fólkið hlær. Fjallar hún um úrslitaleik annars flokks karla í nýafstöðnu Reykjavíkurmóti í handknattleik. Þar sem greinarhöfundur virð- ist fella sinn Salómonsdóm í þessu máli, án þess að hafa hug- mynd um, hvað um er að ræða, og einnig það að tilgangur blaða- mennsku sem þessarar er ekki augljós, langar mig til þess að minnast á eftirfarandi: Það var hrein tilviljun að Þrótt ur gat stillt upp liði með fullri leikmannatölu í úrslitin. Liðið kom saman fyrir leikinn og frétti niður í miðbæ að fresta ætti leikn um. Var hringt inn í Hálogaland og þar var staðfest að svo væri, en liðið fór samt sem áður inn í Hálogaland til þess að vita fulla vissu sína. Það var ekki fyrr en mjög var liðið að leiknum, að okkur var tilkynnt að hann ætti að fara fram, en þá voru þrír leik menn Þróttar farnir og náðist ekki í einn þeirra aftur. Þróttarar geta vel „unað við“ að tapa fyrir ÍR-ingum, án þess að hafa bezta mann sinn með, en allir, sem fylgjast með flokka- íþróttum vita hvað það kostar liðið. En það er ÁSTÆÐAN fyrir því að hann var ekki með, sem Þróttur getur ekki unað við og óskar eftir rannsókn á, og álítu i fulla ástæðu til. Greinarhöfundur getur sagt „gár- ungunum", sem spurðu hann í gamni, að auðvitað hefðu ÍR-ing- ar getað kært leikinn á sama grundvelli og Þróttur, hefðu þeir tapað, en þeir hefðu þá varla kært Þrótt, frekar en Þróttur leikmenn ÍR, vegna þess að voti- andi er hvorugur aðilinn ábyrgur fyrir þessum mistökum. Hvað leikjabók H. K. R. R. v!ð- víkur er hún alls ekki bindandi og löglegt að færa til leiki, eí fullar ástæður þykja fyrir. Ég hef ekki orðið var við að dómstólar (þróttahreyfingarinnar væru hafðir að athlægi, eins og greinarhöfundur vill vera lá'u. Þeir eru nauðsynlegir og gagn- legir íþróttahreyfingunni, al- veg eins og almennir dómstólar eru nauðsynlegir í þjóðfélaginu. Lög íþróttadómstólanna eru mjög sniðin eftir almennum lög- um, og ættu Þróttarar og aðrir er íþróttir stunda, að geta skotið málum sínum til hlutlausrar rannsóknar, sem er öllum er hl’it eiga að máli fyrir beztu, i þessu máli sém öðrum, án þess að menn grípi til áróðursbragða. Þróttari. kc Ég get ekki stillt mig um að svara, þó ekkert nýtt komi fram í þessari athugasemd frá Þrótt- ara. Þó hann tali um að ég „virð- ist fella minn 'Salomonsdóm, án þess að hafa hugmynd um hvað um er að ræða“ (svo!), staðfestir hann í næstu málsgrein að kæran sé byggð á þeim grunni sem ég gat um í grein minni. Víst er hægt að gera breýtingar á leikjabók HKRR, en þó ekki nema á fundi HKRR sem á að bókast, en það var ekki g*;rt í þessu tilfelli. Þvert á móti aug- lýsti HKRR leikinn að minnsta kosti í tveim dagblöðum sama daginn og leikurinn átti að fara — og fór fram. Grein mín.......og fólkið hlær“ var ekki skrifuð sem neitt áróð- ursbragð. Kærumál eru ekkert leyndarmál og mættu vel sjá dags ins ljós í blöðum. En hitt skil ég vel, að sumir hafi viljað að þessi kæra færi leynt, því ýmsum svið- ur þegar þeir verða að athlægi — og kæran sennilega orðin tii í fljótfærni. Sé um einhver áróð- ursskrif að ræða í öllu þessu máli eru það skrif Þróttara eins í Þjóðviljanum 2. des. sl. þar sem áróður var að ástæðulausu hafinn fyrir að fresta úrslitaleiknum, sem hin hlægilega kæra hefur nú borizt um. Þessi skrif 2. des. sl. eru upp- haf allra mistakanna sem Þróttur kærir. Upphafið má því rekja til þess Þróttara er þar heldur um pennann. Þetta allt ætti því að verða „innanríkismál" og einka- mál Þróttar — og engin ástæða fyrir „dómstóla" að eyða kröftum sínum í slík mál. pHBBiBiiniHiagiiiiiiaiHiDmH Þrjár nýjar bókafo rlagsbækur | W é • • • i Ljóð af lausum bloðum eftir ÁRMANN DALMANNSSON HÖFUNDUR þessarar nýju ljóðabókar er þjóðkunnur for- göngumaður í skógrækt og íþróttamálum. En hann hefur, eins og margir aðrir Islend- ingar, farið dult með hag- mælsku sína, og er þetta fyrsta ljóðabók hans. I bókinni eru 73 ljóð. 173 bls. Verð kr. 120,00. Draumurinn Skáldsaga eftir HAFSTEIN SIGURBJARNARSON ÞESSI nýja skáldsaga Hafsteins er ekki siður spennandi en fyrri bók hans „Kjördóttirin á Bjarn- arlæk“. Höfundur kann þá list að halda athygli lesandans allt frá fyrstu síðum til loka. 223 bls. Verð kr. 130,00. Flogið yfir flæðamdli eftir ARMANN Klt. EINARSSON ÁRMANN er tvímælalaust vin- sælasti unglingabókahöfundur hérlendis, og eru bækur hans jafnframt að ná mikilli út- breiðslu erlendis. Þetta er 7. Árnabókin. 192 bls. Verð kr. 58,00. Bókaforlag Odds Björnssonar iiiMiiiiaajiuiBi A, St.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.