Morgunblaðið - 10.12.1959, Page 23
Fimmtudagur 10. des. 1959
MORCVNBLAÐIÐ
23
Dragnótaveiði innan 12 mílna
spillir ekki málstað íslands
Ummæli sjávarútvegsmálaráðherra
á aðalfundi LÍÚ
EINS og skýrt var frá í blaðinu í
gær, hófst aðalfundur Landssam
bands ísl. útvegsmanna í fyrra-
dag. í gærmorgun hófst fundur
að nýju kl. 10 f.h. Var þá lagt
fram nefndarálit skipulagsnefnd-
ar um talstöðvar í verstöðvum o.
fl. í gær sátu fundarfulltrúar og
nokkrir gestir L.Í.Ú. hádegisverð
arboð sambandsins í tilefni af
20 ára afmæli þess.
Að því búnu hófst fundur að
nýju kl. 2 síðdegis og flutti þá
sjávarútvegsmálaráðherra, Emil
Jónsson, ávarp. Ræddi hann í
upphafi máls síns um landhelgis-
málið. Kvað hann íslenzku þjóð-
ina standa eins og einn mann
um það mál, á sama hátt eins og
þjóðin stóð eins og einn maður
um lýðveldisstofnunina. Ræddi
hann í þessu sambandi nokkuð
um horfur í sainbandi við Gen-
far-ráðstefnuna á næsta vori, og
taldi að við íslendingar hefðum
ástæðu til að vera bjartsýnir um
niðurstöður hennar. Ráðherra
kvað Breta orðna þreytta á hern
aði sínum hér við land. Emil Jóns
son kvað vernd fiskimiðanna
vera grundvallaratriði fyrir ís-
lenzkan sjávarútveg. Ráðherr-
ann gat þess, að ríkisstjórnin
hefði skipað nefnd sl. ár til að
athuga möguleika á dragnóta-
veiðum hér við land, innan 12
mílna fiskveiðitakmarkanna. Gat
hann þess, að rannsakað hafi ver-
ið, hvort slíkar veiðar myndu
spilla málstað íslands á væntan-
legri Genfar-ráðstefnu.
Kvað hann athugun hafa leitt í
ljós að dragnótaveiðar, ef leyfð-
ar yrðu, myndu ekki spilla mál-
stað íslands, heldur væru bein-
línis æskilegar með tilliti til þess
að rök íslendinga í landhelgis-
málinu væru tvíþætt. í fyrsta
lagi, Iriðun flskstofnanna við
ísland, og í öðru lagi nýting frið-
unarsvæðanna til hagsbóta fyrir
íslendinga.
í>ví næst ræddi ráðherrann
um skipasmíðar fslendinga nú,
og taldi að þær hafi aldrei verið
meiri. Kvað hann þessa þróun
spá góðu um íslenzkan sjávarút-
veg. Jafnframt ræddi hann um
ískyggilegan skort á fiskimönn-
um og væri það sífellt áhyggju-
efni íslenzkra útvegsmanna.
Jafnframt ræddi ráðherrann
um nauðsyn á auknum hafnar-
framkvæmdum og bættri aðstöðu
fiskvinnslunnar.
í lok máls síns sagði ráðherr-
ann, að núverandi efnahagskerfi
— Vatnsæð
Framh. af bls. 1.
Tvær nýjar dælustöðvar
Undanfarna tvo mánuði hafa
verið starfræktar tvær nýjar
dælustöðvar til að ráða bót á
vatnsskortinum uppi á hæðunutn
Er önnur í krikanum milli Lang-
holtsvegar og Laugarásvegar og
bætir úr vatnsskortinum sem áð-
ur var í Laugaráshúsunum, en
hin er í gömlum kjallara við
HofsvaUagötu í verkamannabú-
stöðunum) og dælir upp á Landa-
kotshæð.
Vatnsgeymir á Öskjuhlíðina
Auk Vesturbæjaræðar ráðgerir
Vatnsveitan á næstu árum bygg-
ingu vatnsgeymis í Litlu Hlíð,
austanvert í Öskjuhlíðinni og
lagningu aðalæða að honum og
frá. Fór fram samkeppni um hug-
myndir að vatnsgeymi þessum,
sem sérstaklega verður vandað
til og voru lagðar fram 5 tillögur.
Er úrskurður dómnefndar vænt-
anlegur næstu daga.
Fjárfestingaþörf þessara fram-
kvæmda allra er áætluð 20 millj.
króna.
væri að syngja út sitt síðasta
vers. Stafaði það m.a. af því, að
reynt hefir verið að gera mun á
andvirði á keyptum og seldum
gjaldeyri. Þetta hefir tekizt fram
að þessu, m.a. með eftirtöldum
ráðstöfunum: 1) Tekin hafa ver-
ið mikil erlend lán, 2) miklar
gjaldeyristekjur hafa verið
vegna varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli, 3) og framlög úr rík-
issjóði til Útflutningssjóðs hafa
árlega numið milljónum króna.
Þessu fyrirkomulagi er ekki hægt
að halda áfram og verður því að
snúa inn á rétta braut.
Ráðherrann gat þess, að nú
um áramótin mundi verða milli-
bilsástand, og kvað hann það
von sína, að útvegsmenn láti það
ekki hamla því, að útgerðin
verði rekin af fullum krafti upp
úr áramótum. Hann kvað ríkis-
stjórnina mundi hafa samráð við
samtök útvegsmanna um þær
Sinfóníuhljóm-
leiknr
SINFÓNÍUHL J ÓMS VEIT fs-
lands hélt tónleika í Þjóðleikhús
inu föstud. 4. des. Stjórnandi var
Henry Swoboda en einleikari á
fiðlu Einar G. Sveinbjörnsson.
Tónleikarnir hófust með þrem
dönsum úr ballettinum „Þrí-
hyrndi hatturinn“ eftir spænska
tónskáldið De Falla. Eru þessir
dansar mjög merkilegir og snilld
arlega „instrumenteraðir“, en all
erfiðir til flutnings. Hljóm-
sveitin leysti þó hlutverk sitt
ágætlega af hendi og stjórnand-
inn ekki síður.
Ungur íslenzkUr fiðluleikari
kom hér í fyrsta sinn fram fyrir
áheyrendur sem einleikari: Ein-
ar G. Sveinbjörnsson. Hann stund
aði nám við tónlistarskólann hér,
hjá Birni Ólafssyni og síðar í
Fíladelfíu hjá frægum kennara
þar. Einar lck fiðlukonsert Mend
elssohns. Leikur hans var fág-
aður og öruggur frá upphafi til
enda; næm smekkvisi og góður
skilningur auðkendu allan leik
þessa unga listamanns. Er ástæða
til að fagna honum og bjóða
hann velkominn í hóp íslenzkra
einleikara.
Tónleikunum lauk með Sin-
fóníu nr. 2 í h-moll eftir rússn-
eska tónskáldið Borodin. Þetta
er el.Iii •' " 'ð verk, en geymir
þó víða mikla fegurð og hug-
kvæmni. Borodin var snjallt tón-
skáld, en sem sinfóniker jafnast
hann ekki á við landa sinn
Tschaikowski.
Henry Swoboda á þakkir skyld
ar fyrir að flytja okkur áður
þekkt verk hér svo sem dansana
eftir de Falla og Sinfoníu Borod-
ius. Hann er snjall stjórnandi, og
var ánægjulegt að kynnast hon-
um á stjórnpallinum. Húsfyllir
var og fögnuðu áheyrendur stjórn
anda og einleikara ákaft. — P. í.
Mitterand stefnt
París, 8. des. (Reuter). —
FRANSKI þingmaðurinn Fran-
cois Mitterand var í dag opinber-
lega ákærður fyrir að hafa sýnt
dómstólum landsins lítilsvirðingu
með því að halda leyndum upp
lýsingum í sambandi við árás þá,
er hann varð fyrir að næturþeli
í október sl. — Hefir Mitterand
verið sakaður um að hafa „sett
árásina á svið“ — þ.e.a.s. hann
hafi vitað um hana fyrirfram. —
efnahagsráðstafanir, sem gerð-
ar verða á næsta ári.
Að lokinni ræðu ráðherrans
hófust umræður um framkomnar
tillögur, og þegar umræðum þeim
er lokið, mun fara fram kosning
sambandsstjórnar, framkvæmda
ráðs Innkaupadeildar L.Í.Ú. og
verðlágsráðs L.Í.Ú.
Nægt húsrými fyiii Áinasuln
Á NÆSTA ári mun Landsbóka-
safnið fá sal þann í safnhúsinu
sem Náttúrugripasafnið hafði og
verður þar búið um handrit safns
ins, en skráð handrit eru um 11
þús. Lætur Finnur Sigmundsson,
Lándsbókavörður, þess getið í ný
útkominni árbók safnsins, að þar
verði rúm fyrir handritin úr
Árnasafni, ef til þess kemur að
þeim verði skilað.
Heyrzt hafa tilgátur um að
handritunum kunni að verða skil-
að á 300 ára afmæli Árna Maga*
ússonar 1961, og hafa í því sam-
bandi heyrzt raddir um að ekki
væri hægt að taka sómasamlega
á móti þeim. Er það tilefni um-
mæla Finns í árbókinni. — Mað-
ur verður alltaf að gera ráð fyrir
að handritin komi heim, sagði
Finnur, er blaðið innti hann eft-
ir þessu í gær. Og ef til kemur,
getur bæði Háskólasafnið og
Landsbókasafnið tekið við þeim.
Undir þau þarf ekki nema lítið
herbergi.
- .................................................................
Mamma hefur aldeilis orðið glöð þegar börnin k omu svona færandi hendi heim. Og sjálfsagt hef-
ur engum dottið í hug að orða það að börn ættu ekki að vera að flækjast niðri 5. bátum.
- Trésmiðafélagið
Framh. af bls. 8
skipta félaginu. En með stofnun
Meistarafélags Húsasmiða í
Reykjavík varð sýnt að félagið
myndi skiptast og varð sú raun-
in á árinu 1955. •
Með þessari skiptingu varð T.
R. launþegafélag og um vorið
1956 sótti félagið um upptöku í
Alþýðusamband fslands, og voru
fulltrúar þess á A.S.Í.-þinginu þá
um haustið í fyrsta sinn.
Nú eru félagsmenn um 600 og
fjölgar árlega um 40—50 menn.
Lífeyrissjóður Húsasmiða tók til
starfa 1. sept. 1958 og mun hann
verða stéttinni mikil lyftistöng
í framtíðinni. Sjóðurinn hefir á
þessum stutta starfstíma lánað
til meðlima sinna tæpar 2 millj.
króna. Félagsmenn i sjóðnum eru
nú 420, og fer ört fjölgandi.
Pöntunarfélag er starfandi inn
an félagsins og nú í haust var
stofnað byggingarsamvinnufélag
á vegum þess.
Mikill áhugi hefir á undanförn
um árum verið meðal félags-
manna fyrir því að upp komist
félagsheimili Trésmiðafélagsins
og er þess að vænta að svo verði
í náinni framtíð. Þess má að lok-
um geta að félagið minnist 60
ára afmælisins meðal annars með
því að færa Bæjarstjórn Reykja-
víkur að gjöf frá félaginu fund-
arhamar, er Ríkharður Jónsson
hefir gjört. Þá verður afmælisins
einnig minnst með hófi að kvöldi
afmælisdagsins.
Núverandi stjórn félagsins
skipa nú: Guðni H. Árnason for-
maður, Kári J. Ingvarsson, vara-
formaður, Eggert Ólafsson, rftari,
Þorvaldur Sigurðsson, gjaldkeri.
Sigurður Olason
Ilæstarétlarlöginaður
Þorvaldur Lúðvíksson
HcruSsdótnslögniaSur
Málflutningsskrifstofa
Aust urstræti ] 4. Sínii 1-55-35
U nglinga
vantar til blaðburða við
IMesveg
m
Afgreiðslan
Sími 22480.
Mínar beztu þakkir til allra þeirra sem sýndu mér
margvíslega vinsemd á 60 ára afmæli mínu þann 19.
nóvember s.l.
Guðlaug Jónsdóttir, Saurbæ, Kjalamesi.
Þakka heimsóknir, gjafir og skeyti, sem ég móttók á
60 ára afmæli mínu.
Ólafur Ingvarsson, Hellishólum, Fljótshlíð.
Hjartanlegar þakkir færi ég öllum sem auðsýndu mér
vinarhug á 60 ára afmæli mínu með heimsóknum, gjöf-
um og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Þórður Þ. Þórðarson, Akranesi.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
DAVlÐ SIGURÐSSON
frá Hnausum á Akranesi,
andaðist á Elliheimilinu Grund Reykjavík 8. des. 1959.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Börn, tengdabörn og barnaböm.