Morgunblaðið - 16.12.1959, Side 2
2
MORGUNBLAÐtÐ
Miðvik'udagur 16. des. 1959
Nýr áfangi í hand-
ritamálinu?
UM ÞESSAR mundir er staddur
hér danski ritstjórinn Bent A.
Koch, sem er formaður nefndar
þeirrar í Danmörku, sem vinnur
hvað ótrauðast að lausn handrita-
málsins. Er hér um að ræða hóp
áhnigamanna sem kallar sig —
„Nefndina frá 16. september
1957“. Hafa þessir menn gengið
frá merkilegum tillögum og lagt
þær fyrir dönsku stjórnina og
ýmsa áhrifamenn í Danmörku,
og hefur málið yfirleitt fengið
mjög góðar undirtektir.
Tillögurnar miða að því að fá
fram vilja íslenzku þjóðarinnar,
en taka jafnframt tillit til ástands
ins í Danmörku, en þar hefur lít
ill hópur manna barizt gegn af-
hendingu handritanna. Blað
danskra sósíaldemókrata sagði að
á sínum tíma, að tillögur nefnd-
arinnar væru mjög gagnlegar, því
þær bentu á nýjar leiðir til lausn
ar á handritamálinu. Voru blöðin
Asmundur Guðmundsson
Nýtt rœðusafn eftir
[ r
Asmund Cuðmundsson
KOMIÐ er út nýtt ritsafn eftir
Asmund Guðmundsson biskup, er
nefnist „Frá heimi fagnaðarer-
indisins". Skiptist það í tvo meg-
inkafla, helgidagaræður og tæki-
færisræður, þótt helgidagaræð-
umar séu aðalefni bókarinnar.
Höfundur segir svo í formála:
„Þegar helgidagaræður mínar
Frá heimi fagnaðarerindisins,
komu út, árið 1919, höfðu ýmsir
orð á því við mig, að ræðurnar
hefðu átt að vera fleiri og ná yfir
allt kirkjuárið, ekki aðeins fyrri
hluta þess. Þessum hvatningarorð
um hefi ég aldrei gleymt, né því,
hve góðar viðtökur bókin hlaut.
Leiðrétting
í DÓMI um bók Thorolfs Smiths,
„Abraham Lincoln“, sem birtist í
blaðinu í gær komst ég á einum
stað svo að orði: „„Leaves of
Grass“ er ekki „frægust ljóða-
bók“ Whitmans, heldur eina
Ijóðabók hans“. Þetta er strangt
tekið ekki rétt. Whitman gaf út
nokkur smærri Ijóðakver, „Drum
Taps“ (1865), „Passage to India“
(1870), „Good-Bye, My Fancy“
(1891), en þau voru öll tekin upp
í „Leaves of Grass“ síðar, þannig
að Thorolf Smith fer með rétt
mál, þegar hann segir að sú bók
sé frægust ljóðabóka hans. Bið
ég hann og lesendur velvirðingar
á staðhæfingu minni, sem stafaði
af því að ég fletti upp í ófullkom-
inni bandarískri bókmenntasögu,
sem gat ekki um ljóðakverin,
sennilega vegna þess að nú eru
öll ljóð Whitmans í „Leaves of
Grass“.
Sigurður A. Magnússon.
'Áttrœð
1 FYRIRSÖGN afmælisgreinar-
innar um Ólínu Snæbjarnar-
dóttur frá Stað í blaðinu í gær
segir að hún hafi orðið sjötug
þann dag, en eins og í greininni
sést, varð hún áttræð.
AÐALFUNDUK Heimis, fél.
ungra Sjálfstæðismanna í Kefla-
▼ik verður haldinn í Sjálfstæðis-
húsinu niðri, fimmtudaginn 17.
dee. kL 8,30.
Fyrir því hefi ég ráðizt í það,
nú 40 árum síðar, að fá enn út-
gefnar nokkrar ræður mínar, sem
ég hefi flutt á seinni árum, og
miðað þar að mestu við síðari
hluta kirkjuársins .... Að ósk
útgefanda læt ég fylgja fáeinar
tækifærisræður, og er þeim skip-
að í tímaröð. Hin fyrsta þeirra
er lítið eitt stytt. Ég vel þessu
litla ræðusafni sama heiti sem
hinu fyrra, og fylgir því sú ósk og
bæn, að það megi bera einhverj-
um birtu frá boðskap Krists.
Þannig vildi ég þakka vinum og
samstarfsmönnum".
ísafold gefur bókina út og er
frágangur vandaður.
Ný kjörbáð
á Akranesi
AKRANESI, 15. des. — Kjörbúð
var opnuð hér í morgun hjá
Þórði Ásmundssyni h.f. á Vestur-
götu 48 í hinu glæsilega húsi fyr-
irtækisins. tJtbúnað og fyrirkomu
lag nýju kjörbúðarinnar annaðist
Kolbeinn Kristinsson, forstjóri
frá Egilskjöri í Reykjavík. Aðrir
sem unnu að verkinu voru Bjarni
Egilsson, byggingameistari, Lár-
us Árnason, málarameistari og
Ármann Ármannsson, rafvirkja-
meistari. Margir hafa þegar skoð
að kjörbúð þessa og ber þeim
öllum saman um að hún sé ein
allra glæsilegasta búð sinnar teg-
undar á landinu. Fyrirtæki Þórð-
ar Ásmundssonar hefur starfað
meira en hálfa öld.
Umf eiðarkennsla
skyldunámsgrein
UMFERÐANEFNDIN hefur sent
tvær reglugerðir til ráðuneyt-
anna, og má því búast við að þær
verði gefnar út áður en langt um
líður.
Sú fyrri var send menntamála-
ráðuneytinu og fjallar um um-
ferðakennslu í skólunum. Er þar
gert ráð fyrir að umferðakennsla
verði skyldunámsgrein í barna-
og unglingaskólunum og ljúki
henni með prófi. Miðar þetta að
því að auka umferðamenningu
hjá komandi borgurum þessa
bæjar.
Hin reglugerðin var send dóms
málaráðuneytinu og fjallar um
ökukennslu og ökupróf. Miðar
hún að því að herða á kröfunum
og auka og endurbæta öku-
kennslu, og koma þar fram
ýmsar nýjungar.
yfirleitt velviljuð gagnvart tillög-
unum.
Megininntakið í tillögum nefnd
arinnar er það, að Handritasafn
Árna Magnússonar verði gert að
sjálfseignarstofnun, og verði jafn
an í stjórn hennar meirihluti ís-
lendinga. Þessi stjórn geti síðan
ákveðið hvað gera skuli við hand
ritin. Á blaðamannafundi í gær
benti Koch á, að með þessu væri
eiginlega tryggt að handritin
kæmust til íslands.
Hann kvaðst vera kominn hing-
að til að kynna sér undirtektir
íslendinga undir tillögur nefndar
innar. Ef íslendingar gætu í höf-
uðdráttum fallizt á þau sjónar-
mið, sem fram koma í tillögunum,
Veðurfregnir
A/A /5 hnútar / S V 50 hnútar ¥: Snjókoma t OSi ***■ V Skúrír I? Þrumur W%IZ KuUaskH Hifaski! H4 Hat L L& Lctqi r
Bent A. Koch
þá væri náð mikilvægum áfanga
í lausn málsins. Hann sagði að
lausn handritamólsins yrði enn
ein sönnun þess, hvernig tvær
þjóðir bæru gæfu til að fjalla um
viðkvæm og alvarleg vandamál,
en hefðu Norðurlönd jafnan ver-
ið fyrirmynd annarra landa á
þeim vettvangi. Hann kvaðst gera
sér Ijóst eftir kynnin við ísland
nútímans, að handritin ættu
hvergi heima nema hér, þau væru
í rauninni þær rætur sem tengdu
hina framsæknu kynslóð nútím-
ans við fortíð sína.
Koch sagði að mikill meiri-
hluti þeirra Dana, sem eitthvað
vissu um málið, væri hlynntur
því að handritin yrðu afhent ís-
lendingum, en andstaðan væri
enn hörð á vissum stöðum. Hann
sagði að meðal stjórnmálamanna
væri Starcke eiginlega eini veru-
legi andstæðingurinn, jafnvel
flokksbræður hans væru á önd-
verðum meiði við hann.
Málverkasýningu
Ey fells lokið
MÁLVERKASÝNINGU Eyjólfs
J. Eyfells, listmálara, lauk sl.
sunnudagskvöld. Sýningin stóð í
8 daga. Aðsókn var ágæt. Síðasta
daginn komu 350 manns, en alls
munu hafa séð sýninguna nær
1400 manns.
Forseti íslands, hr. Ásgeir Ás-
geirsson og forsetafrúin Dóra Þór
hallsdóttir, voru meðal sýning-
argesta á sunnudaginn.
Seldar myndir óskast sóttar
eftir kl. 17 í dag og á morgun.
Snjókoma um norðanvert landið
EINS og sjá má á kortinu er
snjókoma um allt norðanvert
landið og norður yfir hafið
milli Jan Mayen og Islands,
og eftir kortinu að dæma
er foráttuveður, norðaustan
stormur með 4 stiga frosti, á
Jan Mayen og hafinu umhverf
is það. Aftur á móti er suðlæg
átt og tiltölulega hlýtt í sunn-
anáttinni fyrir austan lægð-
irnar, sem mest eru áberandi
á kortinu, t.d. 8 stiga hiti í Fær
eyjum og á veðurskipi M, sem
er á hafinu milli Islands og
Noregs. A öðru veðurskipi, A,
sem er á milli Islands og
Grænlands er 35 hnúta rok
eða 8 vindstig.
Veðurhorfur: SV-land og
SV-mið: austan og norðaustan
kaldi, slydduél suðaustan til í
nótt, annars léttskýjað. Faxa-
flói, Breiðafjörður, Faxaflóa-
mið og Breiðafjarðarmið: NA-
kaldi eða stinningkaldi, skýjað
með köflum.
Vestfirðir til NA-lands, Vest
fjarðamið til NA-miða: NA- og
N-stinningskaldi, víða dálítil
snjókoma.
Austfirðir og Austfjarða-
mið: NA-kaldi og víða snjó-
koma í nótt, en norðanátt og
léttskýjað á morgun. SA-land
og SA-mið: NA- og N-kaldi,
víða léttskýjað.
Eigendoskipti d Hótel Borg
Litlar breytingar rekstrinunx íyrst um sinn
HÓTEL BORG hefur nú skipt
um eigendur. Pétur Daníelsson,
hótelstjóri á Skjaldbreið, og Ragn
ar Guðlaugsson, framkvæmda-
stjóri Hressingaskálans, hafa und
irritað kaupsamning við Jóhann-
es Jósefsson og taka við rekstri
Borgarinnar 1. jan. næstkomandi.
Umræður um þessi kaup byrj-
uðu fyrir tveimur árum og í apríl
1958 lagði Jóhannes fram kaup-
tilboð það, sem nú var loks undir-
ritað. Selur hann Borgina fyrir
18,2 milljónir og er útborgun 6
millj. Undirritun samninga gat
ekki farið fram fyrr vegna mála-
ferla Jóhannesar og Karólínu
konu hans um heimild hans til
þessarar sölu.
Jóhannes Jósefsson hefur starf
rækt Hótel Borg frá upphafi eða
blaðamannsins, ekki þeirra fé-
laga, en seinna meir yrði kannski
hægt að taka það ásamt ýmsu
öðru til athugunar. Á sínum tíma
fengu þeir félagar ríkisábyrgð
fyrir 10 millj. kr. til kaupa á
Hótel Borg og seinna meir til
stækkunar, en sú ríkisábyrgð
hefur ekki verið notuð ennþá til
kaupanna, en verður e. t. v. notuð
síðar meir til breytinga ef að
þeim verður.
Afhendir trúnað-
bréf sitt
HINN nýi sendiherra Bretlands
á íslandi, herra Andrew C. Stew-
art, afhenti í gær forseta íslanda
í 30 ár. Þar eru 41 gistiherbergi trúnaðarbréf sitt við hátíðlega
eða svefnrúm fyrir 70 manns, og | athöfn á Bessastöðum. Viðstadd-
auk þess veizlusalir fyrir nær
450 manns.
Blaðið spurðist í gær fyrir um
framtíðarrekstur Hótel Borgar
hjá Pétri Daníelssyni, en Jiann
verður þar hótelstjóri. Lét Pétur
lítið yfir því að stórbreytingar
yrðu fyrst um sinn. Betra væri
að tala minna meðan málið væri
óathugað, en „seinna meir ef vel
gengi yrði ef til vill“ hægt að
gera endurbætur á rekstrinum.
Er blaðamaðurinn kvaðst hafa
séð þá hugmynd einhvers staðar
á prenti að nýju eigendurnir
hyggðust byggja tvær hæðir of-
an á hótelið, svaraði Pétur því
til að það hefði verið hugmynd
Jeppinn valt og rann
REYÐARFIRÐI, 15. des. — Ný-
lega varð harður bílaárekstur á
svokölluðum Klöppum á vegin-
um milli Reyðarfjarðar og Eski-
fjarðar. Þarna er krappt horn og
staðurinn varhugaverður. Tvær
bifreiðar frá Eskifirði, jeppi og
Taunus-bíll komu sinn úr hvorri
áttinni og rákust á á horninu.
Jeppinn kastaðist við árekstur-
inn út af veginum, fór 1—2 velt-
ur og rann síðan á hliðinni góðan
spöl. í bílnum voru Jón Arnfinns
son frá Eskifirði og sonur hans.
Sluppu þeir báðir ómeiddir.
Jeppinn var yfirbyggður með tré-
húsi. Skemmdist hann mikið.
Taunus bíllinn skemmdist einnig
talsvert við áreksturinn.
Tíðin hefur verið vætusöm hér
í haust. Oddsskarði hefur verið
haldið opnu, en í gær fór að snjóa
til fjalla og lokaðist þá skarðið.
— Arnþór.
ur athöfnina var Emil Jónsson
ráðherra, sem fer með utanríkis-
mál í fjarveru utanríkisráðherra.
Að athöfninni lokinni snæddi
sendiherrann hádegisverð í boði
f orsetahj ónanna.
Ljoo lomasar
í norska útvarpinu
KYNNING á skáldinu Tómasi
Guðmundssyni og Ijóðum han*
fer fram í norska ríkisútvarpinu
fimmtudaginn 17. desember kL
15.30 eftir ísl. tíma (A miðbylgj-
unum er Stavanger 228 m bylgju
lengd, Vigna 477 og Bergen 337
og auk þess má ná þessu víða á
stuttbylgjunum frá 25,32—41,61).
Fyrrverandi sendikennari Norö
manna við Háskóla Islands, dr.
phil. Hallvard Mageröy kýnnir
skáldið og þýðingar Ivars Org-
lands á ljóðum Tómasar, en þau
komu út í haust. Htvarpsþáttur-
inn nefnist Enno Syng Várnatti
eftir heiti bókarinnar. Lýkur hon
um með því að hinn þekkti leik-
ari og upplesari Jack Fjeldstad
les ljóð eftir Tómas á norsku 1
þýðingu Ivars Orglands, sendi-
kennara.