Morgunblaðið - 16.12.1959, Blaðsíða 8
8
MORCTINTiT 4 T)1Ð
Miðvik'udagur 16. des. 1959
Vélbátur óskast
Vélbátur 55 til 75 lesta í góðu standi, óskast strax
til kaups. — Upplýsingar á skrifstofu okkar.
TRYGGINGAB og FASTEIGNIR,
Austurstræti 10, 5. hæð sími 13428
og eftir kl. 7 í síma 33983.
Nýkomið — Ýmsar stærðir
margar gerðir
Jfekla
Austurstræti 14
Sófasett og stakir stólar
#
margar gerðir
Svefnbekkir
Svefnstólar
Hringsófar
Bólstrarinn
Hverfisgötu 74
Kjörgarður við Laugaveg
í Kjörgarði eru 14 verzlanir
VIÐ Laugaveg, þar sem áður voru
lóðirnar nr. 57 og 59, er nú risið
Jriggja hæða verzlunarhús, sem
í eru yfir 3000 gólfflatarmetrar og
er húsið eign tveggja hlutafélaga
Austurgarðs h.f. og Vesturgarðs
h.f. Nefnist verzlunarstaður þessi
Kjörgarður, og eru nú teknar þar
til starfa 14 verzlanir, en rúm er
þó fyrir fleiri.
A fyrstu hæðinni er húsgagna-
verzlunin Skeifan, og er þar kom
ið fyrir einhverri stærstu sölu-
sýningu af nýtízku húsgögnum,
sem kostur mun að sjá á einu
gólfi hér á landi. Er þar á boð-
stólum allfjölbreytt úrval hús.
gagna, svo sem 10 gerðir af sófa-
settum, 7 af dagstofu- og svefnher
bergissettum, ný gerð borðstofu-
setta, sem er alger nýjung, og
yfirleitt allt, sem viðkemur hús-
gögnum. — A þessari sömu hæð
er komið fyrir hentugri vörumót-
töku og pökkunarrými. Fer vöru-
móttaka og útsending þyngri
vara fram Hverfisgötumegin.
Á næstu hæð, sem er götuhæð
miðað við Laugaveg, hafa fimna
verzlanir þegar komið sér fyrir,
en væntanlega koma þar 3—4
verzlanir til viðbótar. Þar hefir
Últíma karlmannafataverzlun,
Híma hefir stóra skóverzlun,
verzlunin VGK hefir þar sport-
og vinnuföt og ýmsar herravörur.
Þar er verzlunin Sport, sem hefir
á boðstólum alls konar sport-
vörur og veiðitæki. Úra- og skart-
gripaverzlunin Menið er einnig á
þessari hæð.
Á þriðja gólfi, annarri hæð
miðað við Laugaveg, er skipulag.
ið lengst á veg komið. Þar er
Storkurinn með fjölbreyttan ung
barnafatnað og skyldar vörur. Þá
er þar Tízkan með nærfatnað
kvenna, lífstykkjavörur og fleira
fyrir kvenfólk. Þar er verzlunin
Mælifell með fjölbreytt úrval af
álnavöru, verzlunin Orion, sem
hefir m.a. á boðstólum garn,
tvinna, hnappa, saumavélar,
prjónavélar o. fl. Bernharð Lax-
dal hefir þarna stóra kvenkápu-
verzlun og kvenhatta. Þá má
nefna prýði hússins, sem er Kjör-
blómið, blómaverzlun, sem blasir
við úr innganginum. Þarna er
hárgreiðslustofan Blæösp, verzl-
unin Gluggatjöld, sem verzlar
með alls konar gluggabúnað. A
þessa hæð vantar aðeins kjóla-
verzlun og snyrtivöruverzlun,
sem þar eru fyrirhugaðar í fram-
tíðinni.
A þriðju hæð er svo sauma-
verksmiðja Últímu og skrifstofur.
Þar verður einnig Kjörgarðskaffi,
smá kaffistofa fyrir starfsfólkið
og viðskiptavini verzlananna. —
Fyrirhugaðar eru tvær hæðir til
viðbótar.
Að sjálfsögðu hafa margir lagt
hönd að verki við byggingu slík*
húss, en hér er ekki rúm til að
greina nöfn þeirra iðnmeistara,
sem verkum hafa stjórnað. —
Húsið er hið myndarlegasta og
vafalaust með glæsilegustu verzl
unarhúsum hérlendis og þótt
víðar væri leitað.
Til sölu er:
Saumavél
nýtízku sófaborð og hrærivél.
Allt sem nýtt. — Hringið í
síma 35265. —
Bókhaldari
karl eðo kona
Vil ráða mann eða konu með meiri eða minni bók-
haldsþekkingu, í matvöruverzlun, hálfan eða allan
daginn. Tilboð merkt: „Verzlun — 8032“, sendist
afgr. Mbl. sem fyrst.
Útsögunartœki — Áhöld
Bezta jólagjöf drengjanna
Ludvig Storr & Co
Ný senaing
Mohair kjólar
Fallegur mohair-kjóli
er bezti jólakjóllinn
MARKADURINII
LAUGAVEGI 89