Morgunblaðið - 16.12.1959, Side 23
Miðvikudagilr 16. des. 1959
MORGUNBLtfÐlÐ
23
Kosnoðarsamt og óheppilegt
— segir Washington Post
ENN ræða erlend blöð um varn-
armál íslands, nú síðast „Was-
hington Post“, sem samkvæmt
Reutersfrétt segir m. a. á þessa
leið:
Brottkvaðning um 1200 her-
manna frá tslandi felur í sér
fjárhagslegan sparnað og jafn-
framt pólitískan hagnað.
Bæði starfsmenn utanríkis- og
varnarmálaráðuneytisins hafa
lagt áherzlu á að brottkvaðning-
in sé ekki vísbending um að dreg-
ið verði úr vörnum NATO — og
að 3000 menn úr flughernum og
1000 úr sjóhernum muni áfram
dveljast á íslandi.
Hins Vegar er það ekkert laun-
Bátarnir lausir
í hoimnni
AKUREYRI, 15. des. — Er lög-
regluþjónn á Akureyri var á eftir
litsferð við höfnina sl. mánudags-
kvöld, varð hann þess var að
skorið hafði verið á lavidfestar
sumra bátanna við hatnargarð-
inn og aðrir leystir. Var þá farið
að reka. Ekki hefur lögreglan
haft upp á þeim sem þarna voru
að verki. En þetta hefði getað
valdið miklu tjóni, bæði á bátun-
um sjálfum og öðru í höíninni, ef
veður hefði verið vont.
Ekki hefur heldur hafzt upp á
þeim sem brutust inn í skemmu
Svifflugfélagsins á Melgerðismel-
um fyrir skömmu og skemmdu
þar tæki og stálu öðrum. — mag.
JMerium
bubonis4 á Húsavík
HÚSAVÍK, 13. des. —- Leikfélag
Húsavíkur frumsýndi á laugar-
dagskvöldið gamanleikinn Dele-
rium bubonis eftir Jón Múla og
Jónas Árnasyni. Leikstjóri var
Ragnhildur Steingrímsdóttir.
Aðalhlutverkin leika: Ægir Ó.
Ægis: Sigurður Hallmarsson,
kona hans: Björg Friðriksdóttir,
jafnvægismálaráðherrann: Páll
Þór Kristinsson. Aðrir leikarar
eru Árnína Dúadóttir, Kristján
Jónasson, Magda Vigfússon,
Hólmar Jóhannesson, Ingimund-
ur Jónsson og Sigurpáll ísfjörð.
Hljóðfæraleik annast Örn Frið-
riksson og Ingimundur Jónsson.
Önnur sýning var á sunnudag.
— Fréttaritari.
— Markmið Rússa
Framh. af bls. 1.
ar — og að ekki væri ósann-
gjarnt að álíta að þær gætu farið
að greiða stærri hluta af her-
kostnaði bandalagsins en hingað
til. Bandaríkjamenn sæju alls
ekki eftir því fé, sem þeir verðu
til bandalagsins, en þeir gerðu
það að skilyrði fyrir fjárveiting-
um sínum að allur her bandalags-
ins yrði undir einni stjórn.
Meðal annarra ráðherra, sem
ræður fluttu í dag, var Debre,
forsætisráðherra Frakklands.
Hvatti hann eindregið til aukinna
átaka og betri skipulagningar
bandalagsins svo að það yrði fært
að gegna því hlutverki, sem því
væri ætlað og hinar frjálsu þjóð-
ir væntu af bandalaginu.
Selwyn Lloyd, utanríkisráð-
herra Breta, sagði í sinni ræðu,
að aðalástæðan til þess, að Krú-
sjeff vildi nú draga úr spennunni
á alþjóðavettvangi væri sú, að
miklar breytingar væru nú í und
irbúningi í stjórn Ráðstjórnar-
ríkjanna — og þessar breytingar
væru jafnvel hafnar nú þegar.
Lange ,utanríkisráðherra Norð-
manna sagði, að Atlantshafs-
bandalagið mætti ekki bregðast
einlægum óskum þeirra þjóða,
sem að því stæðu. Bandalagið
væri stofnað til varðveizlu frið-
inum — og áfram yrði að vinna
að settu merki.
ungarmál, að siðgæðisleg vanda-
mál hafa komið upp í sambandi
við dvöl hersins í Keflavík og
sambúðin við íslenzku ríkis-
stjórnina stundum stormasöm.
Vandamálin hafa ekki verið ein-
hliða, því fer fjarri.
Þessi brottkvaðning ,sem ráð-
gerð hefur verið í nokkur ár,
mun draga úr ástæðum til
óánægju án þesS í rauninni að
hafa áhrif á varnirnar.
íslenzk stjórnarvöld kalla að-
gerðirnar „endurskipulagningu“
og möguleg aukning annarra
herja er til umræðu.
Þegar dregur til úrslita gæti
nýja íslenzka ríkisstjórnin orðið
treg að fallast á að þessi her-
sveit landhersins fari, en betra
er að vera langþráður en óvel-
kominn gestur.
Samt sem áður er Island einn
fárra staða í heiminum þaðan
sem unnt er að senda hermenn
til annarra stöðva um leið og
liðsaukinn er aukinn í landinu
sjálfu.
Blaðið getur þess að lokum, að
það yrði bæði kostnaðarsamt og
óheppilegt að flytja herlið frá
einum stað til að efla varnir á
öðrum stað og gæti slík stefna
haft keðjuverkandi áhrif á varnir
innan NATO.
Fjöltefli á Snæ-
fellsiiGsi
STYKKISHÓLMI, 13. des. — Und
anfarið hefur staðið yfir skák-
keppni í Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýslu. Hafa sjö hreppar sam-
tals tekið þátt í keppni þess-
ari og verið keppt í tveimur riðl-
um, sitt hvoru megin á nesinu.
Hefur hver hreppur haft sex
manna sveit.
í gær kepptu svo Ólafsvík og
Stykkishólmur til úrslita og fór
sú keppni fram hér í Stykkis-
hólmi. Úrslit urðu þau, að Ólafs-
víkingar unnu 3 skákir, Stykkis-
hólmur eina, en tvær urðu jafn-
tefli. ■— Fréttaritari.
Þrír bátar fuku
á Ströndum
GJÖGRI, 14. des. — Hér hefur
alltaf verið sama blíðskaparveðr-
áttan viku eftir viku. Tún hafa
verið grænni en í júlí í sumar.
Fiskirí hefur verið ágætt bæði
á handfæri og á lóðir. Snjór sást
ekki á hæstu fjöllum, hvað þá
annarsstaðar.
En í nótt brá til norðanáttar og
er allhvasst í dag með bleytu-
slyddu og miklum snjó. Hvassast
er á Norðurfirði og fuku þar þrír
bátar. Tveir þeirra voru uppskip-
unarbátar, sem Kaupfél. Stranda-
manna átti. Fóru þeir í sjó fram,
en hafa nú náðst á land, talsvert
brotnir. Þriðji báturinn var smá-
bátur, sem kaupfélagsstjórinn hef
ur. Fauk hann á þak vörugeymslu
húss kaupfélagsins og braut það,
en báturinn eyðilagðist. - Regína.
Vel safnaðist
í Vetrarhjálpina
f FYRRAKVÖLD fóru Reykjavík
urskátar, stúlkur og piltar um
Vesturbæinn og söfnuðu fé til
Vetrarhjálparinnar. Tóku þátt í
fjársöfnunni milli 60 og 70 skátar.
Tóku Vesturbæingar skátunum
vel og létu af hendi rakna til
bágstaddra alls kr. 31,229,00. Er
jíáð þó nokkru hærri fjárhæð en
safftáð var fyrir jólin í fyrra.
í kvöld munu skátar fara á
vegum Vetrarhjálparinnar um
stóran hluta af Austurbænum og
annað kvöld fara þeir svo í hús
í Laugarnes-, Kleppsholt og Smá-
íbúðahverfið.
Mbl. i
Listkynning
Sólveig Eggerz Pétursdóttir.
LISTKYNNING Morgunblaðsins
hóf í gær sýningu á málverkum
eftir Sólveigu Eggerz Pétursdótt-
ur. Hún er dóttir Péturs Eggerz
Stefánssonar frá Völlum í Svarf-
aðárdal og Sigurveigar Þorgils-
dóttur frá Sökku konu hans. Sól-
veig stundaði listnám við Hand-
íðaskólann í Reykjavík árin 1944
og 1945. Árið 1946—47 stundaði
hún nám í málaralist við lista-
háskóla í London, en fluttist
skömmu síðar aftur heim til Is-
lands. Hefur hún haldið listnámi
sínu hér áfram, m. a. hjá Ás-
mundi Sveinssyni og Herði
Ágústssyni.
Málverk þau, sem listkynning
Morgunblaðsins sýnir nú eftir
Sólveigu Eggerz eru öll máluð í
sumar. Er hér um að ræða 7
vatnslitamyndir og 4 olíumál-
verk.
Fyrir tveimur árum fékk Iista-
konan verðlaun í samkeppni um
blómafrímerki fyrir íslenzku
póstþjónustuna. — Öll málverk
hennar á þessari sýningu eru til
sölu hjá afgreiðslu blaðsi^s eða
listakonunni sjálfri.
Afmælisfagnaður
á ísafirði
ÍSAFIRÐI, 12. des. — Norræna
félagið hér á ísafirði minntist 20
ára afmælis síns í gær með kaffi
samsæti. f byrjun rakti formað-
ur félagsins Aðalbjörn Tryggva-
son bakarameistari sögu félags-
ins. Félagið var stofnað 10. des-
ember 1939 og hefur starf-
að síðan og oft með miklum
blóma. Fyrsti formaður félagsins
var Jónas Tómasson tónskáld,
hér á ísafirði.
Að lokinni ræðu formanns
flutti Jakobína Pálmadóttir kenn
ari þátt frá Finnlandi. Þá voru
sýndar kvikmyndir frá Finnladi
og Þorbjörg Bjarnadóttir, skóla-
stjóri annaðist skemmtiþátt. Að
lokum var dansað. Afmælishófið
var vel sótt og skemmti fólk sér
hið bezta. — GK.
— Bahia Blanca
Frh. af bls. 3.
„nanas up“ og þar með voru.m
við teknir til fanga.
★
Fangavistin hefur verið löng
og ströng hjá ykkur frá 1940
til 1945.
— Nei, okkur leið ágætlega
í fangabúðunum. Við vorum
fluttir héðan með beitiskipinu
Berwick til Englands, sama
skipið og áður kom til sögu.
Síðan vorum við fluttir til
Kanada og lifðum þar herra-
mannslífi í næstum 5 ár. Mér
hefur aldreí liðið eins vel og í
fangabúðunum. Þá safnaði ég
ýstru og varð 165 pund. Það
er mitt þungamet. í Genfar-
samþykktinni segir, að borgar
lega fanga megi ekki skylda
til að vinna. Við vorum borg-
aralegir fangar og Kanada-
menn efndu fullkomlega
ákvæði Genfar-samþykktar-
innar. — Þ. Th.
íslendingofognaður í New York
FYRIR nokkru síðan hélt íslend- |
ingafélagið í New York skemmt-1
un á Hótel Edison, sem hófst með
borðhaldi kl. 8 e. h. Formaður fé-
lagsins, frú Guðrún Miller, bauð
gestina velkomna og stjórnaði
hófinu.
Meðal gesta voru Thor Thors,
sendiherra, og frú og Hans G.
Andersen, sendiherra.
Happdrætti var haldið um
nokkra muni, sem stjórn félags-
ins hafði borizt að gjöf.
Aðalræðuna flutti T!hor Thors,
sendiherra, og hlaut hún mjög
góðar undirtektir.
Á annað hundrað manns sótti
skemmtunina, sem tókst með
ágætum.
Ný stjórn var kosin fyrir næsta
ár, og er hún skipuð þannig:
Frú Guðrún Miller, formaðux.
Meðstjórnendur: Halldóra Rúts-
dóttir, ritari hjá aðalræðismanns
skrifstofu íslands í New York.
Árni Ólafsson, hjá skrifstofu Sölu
miðstöðvar Hraðfrystihúsanna í
New York. Lúðvík Jónsson, hjá
Sambandi ísl. samvinnufélaga í
N. Y. Rickharð Rickharðsson, hjá
Loftleiðum í New York. Edward
Caulfield hjá skrifstofu Eimskip
í New York.
Hugheilar þakkir færi ég öllum ættingjum og vinum
nær og fjær, fyrir auðsýndan kærleik og vinarhug á átt-
ræðis afmæli mínu, 29. nóv. Ennfremur þakka ég lækn-
um og starfsfólki lyfjadeildar Landsspítalans fyrri allt
gott. — Guð gefi öllum gleðileg jól, gott og farsælt kom-
andi ár.
Ásgeir Jónsson, (fyrrv. vélsm. og rennismiður)
Ný sending
Mohairhaftar- og
húfur
HATTABtíÐ REYKJAVlKUR
Laugavegi 10.
Faðir minn og bróðir
AUGUST NIELSEN
andaðist í Los Angeles, California, 13. desember 1959.
Guðrún Ágústsdóttir og Guðrún Halldórson.
Jarðarför
DAVlÐS SIGURÐSSONAR
frá Hnausum á Akranesi
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 18. des.kL
1,30. síðdegis.
Börn, tengdabörn og barnaböra
PÁLL ÞORSTEINSSON
frá Tungu í Fáskrúðsfirði
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
17. des. kl. 14. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim
sem vildu minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Athöfninni verður útvarpað.
Börn og tengdaböm
Útför eiginkonu minnar og móður okkar,
GUÐBJARGAR SVEINBJARNARDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. des. kl. 10,30
f.h. Athöfninni verður útvarpað. Blóm afþökkuð, en
þeim, er vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent
á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Fyrir mína hönd og barna okkar.
Jón G. Bjamason.
Hugheilar þakkir fyrir hjálpfýsi og vinarhug, bæði
frá hug og hendi í veikindum, við andlát og útför,
ELlNAR MÁLFRÍÐAR ÁRNADÓTTUR
eiginkonu, tengdamóður og móður okkar.
Friðfinnur V. Stefánsson, Líney Friðfinnsdóttir,
Árai Friðfinnsson, Sólveig Friðfinnsdóttir,
Kristinn R. Friðfinnsson, Helga S. Friðfinnsdóttir,
Sigurður J. Friðfinnsson, Sigríður Einarsdóttir.
Við þökkum hjartanlega okkur auðsýnda virðingu og
samúð við andlát og jarðarför
FRÚ ágústu ó. á. ólafsson
kaupkonu
Þökkum sérstaklega yfirhjúkrunarkonu Farsóttarhús-
ins og starfsfólki hennar, fyrir aðhlynningu og velvild
síðasta árið.
Ólína Olsen,
Sólveig Hvannberg systir hinnar látnu.