Morgunblaðið - 22.12.1959, Side 2
2
MORGUNBLAÐ1Ð
Þriðjuagur 22. ðes. 1959
Lislkynning Mbl.
Keisarinn og Farah
urðu hjón i
Arthur Ólafsson
ARTHUR ÓLAFSSON, sem sýnir
um þessar mundir listaverk sín
á vegum listkynningar Mbl. er
19 ára gamall, fæddur í Reykja-
vik. Foreldrar hans eru Sigriður
Sigurðardóttir og Ólafur Þor-
valdsson. Arthur lýkur almennu
kennaraprófi frá Kennara.ikóla
íslands á komandi vori. Þar hefir
hannn notið teiknikennslu Jó
hanns Briems listmáiara og Gests
Þorgrímssonar kennara. Lista-
maðurinn hefir ekki áður sýnt
opinberlega. Hann sýnir málverk
teikningar og barkarmyndir í
Mbl.-glugganum, og munu
barkarmyndirnar vekja sérstaka
athygli sökum þess hve nýstár-
legar þær eru. Myndirnar eru
allar gerðar á tveimur síðustu ár
um og eru flestar til söltu. Upp-
lýsingar um verð myndanna eru
veittar í afgreiðslu Mbl. og hjá
listamanninum sjálfum í síma
2 31 69.
TEHERAN, 21. des.
KEISARINN af Persíu og
Farah Diba voru í dag gefin
saman í hjónaband í hinni
fögru Marmarahöll Teherans.
Sjálf giftingarathöfnin var
einföld og voru viðstaddir
hana aðeins nánustu skyld-
menni brúðhjónanna og
nokkrir ráðherrar.
Ekkjudrottningin móðir keis-
arans stráði gullpeningum, perl-
um og sykruðum möndlum yfir
BRUSSEL, 21. des. — Peter
Townsend, fyrrum unnusti Mar-
grétar Englandsprinsessu, gekk í
dag að eiga belgísku stúlkuna
Mariu Jamaigne, en hún er dóttir
iðnrekanda eins í Belgíu. Brúð-
kaupið var borgaralegt og fór
engin athöfn fram í kirkju.
Verziunorbruni
á Ruufurhöfn
RAUFARHÖFN, 21. des. — Að-
faranótt surmudags kom upp eld-
ur í verzlunarhúsi Hjalta Frið-
geirssonar á Raufarhöfn. Brann
það til kaldra kola, svo og allar
vörur verzlunarinnar. Hvort-
tveggja munu hafa verið óvá-
tryggt.
Verzlunarhús þetta var skúr úr
bárujárni, fóðraður innan með
trétexi. Hafði eigandinn stækk-
að skúrinn í sumar og var raf-
virki nýbúinn að leggja rafmagn
í hann. Þar eð ekki er upphitun
í verzluninni, stóðu tveir raf-
magnsofnar 1 kw og 2 kw,
á miðju gólfi. Húsið var mann-
laust.
Enginn varð eldsins var fyrr
en kl. 4.40 um nóttina, er veður-
athugunarmaður sá bjarma og fór
að aðgæta hverju það sætti. Um
kl. 2 hafði hann farið út, en
einskis orðið var þá. Húsið stóð
í björtu báli, er slökkviliðið kom
á vettvang og að mestu brunnið
niður. Telur eigandinn sig þarna
hafa orðið fyrir 150 þús. kr. tjóni.
— Einar
/5 hnúíar\
/ SV 50 hnútar
X’ Snjókoma
> 06 i
V Skúr ir
K Þrumur
VsvetTii
KulJaskil
Hifaski/
H H<*6
L Ug6
Veðurfregnir:
49 stiga hitamismunur
á kortinu í dag
Á kortinu er djúp lægð SV
í hafinu, 1400 km. A-NA af
Reykjanesi. Kl. 22 í gær-
kvöldi var hún orðin öllu
dýpri og virtist halda sömu
stefnu og áður. Þá var loft-
þrýstingurinn í lægðinni orð-
inn á að gizka 958 mb. Gert
var ráð fyrir að þessi lægð
mundi valda austan stormi
suður af ströndinni í dag. —
Lægðin við Noregsströnd fer
minnkandi og þokast NA.
Hlýjast á þessu svæði er 9
stiga hiti á veðurskipinu J,
vestur af írlandi og í Valenc-
ia á Suðvestur-írlandi. Kald-
ast er á Tobinhöfða, 25 stiga
frost og þess má geta að 10
stiga frost er í Meistaravík,
sem er rétt á jaðri kortsins.
Veðurútlit: SV-mið: vax-
andi austanátt, stormur og
slydda og síðar rigning. SV-
land til Austfjarða, Paxaflóa-
mið til Austfjarðamiða: A-
kaldi og bjart veður, síðan all
hvass austan, skýjað og frost-
lítið.
SA-land og SA-mið. A-gola
og bjart veður, síðan all-
hvasst og dálítil slydda, rign-
ing er líður á daginn.
brúðhjónin, en slíkt er gamall
persneskur siður, sem boðar ham
ingju og frjósemi í hjónabandi.
Eftir það gengu brúðhjónin út
til hundruða gesta, sem biðu þess
með óþreyju að óska þeim til
hamingju. Dáðust menn ákaflega
af hinum fagra brúðarkjól hinn-
ar ungu drottningar, en hann er
úr hvítu satíni, skreyttur gim-
steinum og minkaskinni.
Brúðhjónin sýndu gestunum
hundruð brúðargjafa, sem peiin
hafa borizt víða að, m. a. frá
Eisenhower og Krúsjeff.
Almenn hátíðahöld eru í Persíu
vegna bráðkaupsins. Kveikja
menn blys á strætum úti í The-
heran og skjóta flugeldum. Verða
hátíðahöld í eina viku í tnefni
brúðkaupsins.
Vökudansleikur
á annan í jólum
VAKA, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta á annan í jólum og hef-
ur þetta verið eina jólaskemmt-
unin sem haldin er sérstaklega
fyrir stúdenta. — Vaka mun
nú sem fyrr halda háskóla-
stúdentum skemmtan á annan í
jólum og verður hún í Tjarnar-
café svo sem verið hefur undan-
farin ár.
Er ekki að efa að háskólasiúd-
entar muni fjölmenna á þennan
jóladansleik eins og áður, en
dansleikir þessir hafa jafnan þótt
afburða skemmtilegir.
Indverjor snko Kínverja um
ómnnnúðlega meðferð ó föngum
NYJA DELHI. — Indverska
stjórnin hefur ítrekað mótmæli
sín við kínversku stjórnina
vegna ómannúðlegrar meðferðar
sem tíu indverskir landamæra-
verðir hlutu er þeir voru í haldi
hjá kínverska innrásarliðinu í
Ladak í nokkrar vikur á þessu
hausti.
í mótmælum Indverja segir að
meðferð Kínverja á föngunum
hafi verið mjög hörð og ómann-
úðleg og andstæð allri framkomu
menningarþjóða. Þeim var m.a.
neitað um nægan mat og húsa-
skjól.
Foringi landamæravarðanna,
Karam Singh var yfirheyrður í
70 klst. Honum og meðföngum
hans var hótað hörðu, ef þeir
ekki undirrituðu yfirlýsingar
sem Kínverjar sömdu og voru til
þess ætlaðar að velta af Kínverj-
um ábyrgðinni á árekstrum þeim
sem orðið hafa í Ladak-héraði.
Lýsir indverska stjórnin því yf-
ir, að ekkert sé að marka undir-
skrift fanganna undir slíkar yf-
irlýsingar. Þeir hafi verið beitt-
ir þvingun til þess að undirrita
þær.
Þá greinir í mótmælaorðsend-
ingu Indverja frá því, að einn
hinna indversku fanga hafi ver-
ið særður af byssukúlu í baki,
en enga aðhlynningu eða læknis-
hjálp fengið. Annar Indverjanna
þjáðist einnig af skotsári. —
Jólabögglar
SAMKVÆMT upplýsingum Toll-
póststofunnar barst henni í gær
mjög mikið af jólavarningi frá
Evrópu, og var ætlunin að vinna
í nótt að tollskoðun og niðurröð-
un hans. Til að auðvelda fólki
að vitja hans, verður Tollpóst-
stofan í Hafnarhúsinu opin til kl.
7 í kvöld og annað kvöld.
Hann sást síðast lifandi í
gæzlu Kínverja, en hefur ekki
verið skilað aftur og engin grein
argerð gefin fyrir hvarfi hans.
Aftökudagur
ókveðinu í
óttunda sinn
LOS ANGELES, 21. des. NTB-
Reuter: — Dómstóll í Los
Angeles ákvað í dag að Caryl
Chessman skuli tekinn af lífi
hinn 10. febrúar n.k.
Chessman var dæmdur til
dauða árið 1948, og byggðist
dómurinn á átta ákærum fyr-
ir rán, fjórum fyrir barnarán,
tveim fyrir kynferðisbrot,
einni fyrir nauðgunartilraun,
einni fyrir tilraun til ráns, og
einni ákæru fyrir bílþjófnað. |
Hefur Chessman nú dvalið í
ellefu ár í dauðaklefanum, og
er þetta í áttunda skiptið að
aftökudagur er ákveðinn.
Hingað til hefur honum ávallt
lánazt að fá frestun á aftök-
unni með áfrýjunum eða kær-1
um. Hvorki Chessman né verj- í
andi hans voru viðstaddir er ’
Herbert Walker dómari ákvað
aftökutímann, en aftakan á að
fara fram í gasklefa San Quen
tin fangelsisins. Hæstiréttur
Bandarikjanna vísaði nýlega
á bug síðustu kæru Chessmans
vegna dauðadómsins.
Chesman, sem er nú 38 ára
gamall, hefur skrifað þrjár
víðlesnar bækur í fangelsinu,
auk þess sem hann hefur, þrátt
fyrir stutta skólagöngu, aflað
sér það mikillar þekkingar á
lögum, að hann hefur að miklu
leyti flutt mál sitt sjálfur.
JÓLABÆKURNAR eru nú
sennilega allar komnar á
markaðinn. f gær voru þær
180 talsins. Þær eru þarna
í einum stafla, enginn smá-
ræðis bunki. Myndin var
tekin í bókaverzlun Blön-
dals í Vesturveri. En þar
var ekki nægilega hátt und-
ir loft, svo að við urðum
að stafla bókunum upp í
hljóðfæraverzluninni, sem
er í næsta bás. Þeir, sem
komið hafa í Vesturver,
kannast sjálfsagt við sig. —
Myndin er tekin af stiga-
pallinum, í Rósinni — og
staflinn nær upp á næstu
hæð — til DAS.
Ncrskir línu-
bútor gegn
brezkum tog-
urum
ALASUNDI: — Norskir bátar,
sem stunda veiðar á línu á miðun-
um fyrir vestan Shétlandseyjar,
við Færeyjar og við ísland, urðu
í sumar fyrir tilfinnanlegu veið-
arfæratjóni vegna ágangs
brezkra togara.
Oft leit út fyrir að togararnir
tækju viljandi stefnu á norsku
veiðarfærin og sópuðu með sér
línunni. Einnig kom það fyrir að
togararnir voru fyrirfram að-
varaðir um hvar línan var lögð,
en samt tóku þeir ekkert tillit til
hennar, segja norskir sjómenn.
Venjulega eru það sömu skipin,
sem standa að þessum eyðilegg-
ingum, meðan önnur taka fullt
tillit til starfsfélaga sinna á sjón-
um. Að sögn bátaformannanna
er útilokað að fá bætur fyrir tjón
það er togararnir orsaka. Til þess
þyrfti að leggja fram ljósmyndir
af verknaðinum, en að sjálfsögðu
standa sjómennirnir ekki sífellt
reiðubúnir með ljósmyndavélina
meðan þeir eru við vinnu sína á
sjónum.