Morgunblaðið - 22.12.1959, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.12.1959, Blaðsíða 12
12 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjuagur 22. des. 1959 JNwguttMaMfr Útg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið VERÐBOLGAN VELDUR KJARARÝRNUN UTAN UR HEIMI Ómetanlegar fornminjar ÍÐUSTU tvo áratugi hef- ur verið full atvinna hér á landi og meiri velmeg- un en nokkru sinni fyrr. Alvar- legur skuggi hefur þó hvílt yfir efnahagslífinu, sem hefur valdið því, að lífskjörin hafa ekki orðið eins góð og efni hafa staðið til. Er það verðbólgunni, sem hér er um að kenna. í rauninni má segja, að af- leiðingar verðbólgunnar séu margvíslegar, þótt þeim sé það öllum sameiginlegt að skerða lífskjör þjóðfélagsborgaranna, þegar á heildina er litið. Þegar verðbólgan birtist í vægri mynd getur sýnzt, sem hún geri lítinn skaða. Og sumir tala jafnvel um að væg verðbólga hafi ýmsa kosti, þar sem hún auðveldi fram- kvæmdamönnum ýmiss konar um svif og verki þannig hvetjandi á atvinnulífið. Torveldar tryggingastarfsemi En jafnvel á þessu stigi hefur verðbólgan þau áhrif, að verð- gildi sparifjár rýrnar smám sam- an, og ýmiss. konar sjóðir og tryggingastofnanir verða fyrir á- föllum. Það mun almenn skoðun fræðimanna, að langvarandi verð bólga, jafnvel þót hún sé á vægu stigi, sé hættuleg efnahagslífi sér hverrar þjóðar. En hvað þá um langvarandi verðbólgu, sem er á eins háu stigi, og við fslendingar höfum kynnzt henni? Þá er ekki aðeins um það að ræða að raunverulegt verð- gildi sparifjár og sjóða rýrni smám saman, heldur rýrnar það mjög fljótt, og ýmislegt bætist við. ASÍÐASTA fundi í bæjar- sjóm Reykjavíkur þegar fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 1960 var til umræðu, hélt frú Auður Auðuns, borgar- stjóri félagsmála ræðu, þar sem hún minntist á ýmsar fram- kvæmdir á sviði félagsmála og í þágu æskunnar í bænum. Skýrði hún þar m. a. frá því, að á næsta ári yrði fullgert nýtt barnaheim- 2i við Fornhaga. Byggingu nýs barnaheimilis í Hlíðunum kvað hún einnig vera í undirbúningi. Smábamagæzla og leikvellir Borgarstjóri skýrði frá því, að smábarnagæzla væri nú á 14 stöð- um í bænum. Almennir gæzluvell ir fyrir börn á öllum aldri væru á 6 stöðum og opin leiksvæði með leiktækjum væru pú á um 30 stöðum í bænum. Akveðið er, að á næsta ári verði hafin gerð tveggja leikvalla í hinu nýja hverfi í Kringlumýri og Háa- leiti. Ennfremur er það nýmæli fyrirhugað, að gera fjöruleik- völl við Skerjarfjörð. Þá er einnig unnið að undir-. búningi leikvalla við Heiðar- gerði og við Efstasund. Auður Auðuns gat þess, að fyrirhugað Þannig verður starfsemi al- mannatrygginga mjög erfið, því að þegar tryggingaþegar greiða iðgjöld sín er það með peningum, sem verða orðnir svo og svo miklu verðminni, þegar þeir fá þá endurgreidda, til dæmis sem sjúkrabætur eða ellilaun. Þetta þarf að bæta upp með því að taka fé úr op- inberum sjóðum, og því verða tryggingarnar þjóðfélaginu miklu dýrari en ella. Bitnar harðast á fátæku fólki í annan stað veldur ör verð- bólga því, að allir, sem nokkur tök hafa á, ætla sér að hagnast á henni. Eftirspurnin eftir lánum verður óskapleg og menn hafa það sem aðalmarkmið að koma eigin fé og lánsfénu í raunveru- leg verðmæti. Lánin hugsa þeir sér svo að borga með miklu verðminni peningum síðar. Þeir sem ekki hafa tök á þessu eyða flestir öllu sem þeir vinna sér inn, þar sem varla nokkur mað- ur vill eiga sparifé. Margt fleira fer úr skorðum í þessum efnahagslega hruna- dansi. Þannig geta peningarnir ekki lengur gegnt því mikilvæga hlutverki að vera raunverulegur mælikvarði á verðgildi hlutanna. Ofvöxtur hleypur í ýmsar at- vinnugreinar, sem eru þjóðfélag- inu lítt mikilvægar. Og síðast en ekki sizt kem- ur þetta allt saman verst nið- ur á fátæku fólki, og þá eink- um fátækum gamalmennum, sem mörg hver höfðu reynt að aura saman til elliáranna. væri að koma upp leikvöllum á 8 stöðum á óbyggðum svæðum milli húsa í bænum. Aukið skólahúsrými Þá gat borgarstjóri þess, að miklar framkvæmdir stæðu yf- ir í skólamálum bæjarins. í smíð um eru 6 nýir skólar. Eru það Breiðagerðisskóli, Laugalækjar- skóli, Réttarholtsskóli, Hagaskóli, Hlíðaskóli og Vogaskóli. A næsta ári er gert ráð fyrir að lok- ið verði við byggingu 23 full- kominna skólastofa. Á undan- förnum rúmum tveimur skólaár- um hafa verið byggðar 45—50 kennslustofur. Þá er einnig í undirbúningi bygging skóla í nýjum hverfum í bænum. Af þessum upplýsingum Auð- ar Auðuns er það auðsætt, að stórfelldar framkvæmdir verða á næsta ári unnar í þágu æskunn- ar í Reykjavík. En allir Reykvíkingar eru áreiðanlega sammála um það, að því fé sé vel varið, sem veitt er til þess að bæta að- stöðu hinnar uppvaxandi kyn- slóðar, auka öryggi hennar og gera hana andlega og líkam- . lega hraustari. / hæftu — Jbegar Asvan- stíflan verður byggð /kMETANLEGAR fornminjar ” frá blómatímum Egypta- lands eru í hættu, þegar hin mikla stifla við Asvan verður byggð, en þá mun myndast „stöðuvatn", sem verður um 400 km langt og 25 km breitt. — Á þessu svæði er fjöldi fornrá listaverka og jafn- UNESCO hyggst bjarga Jbv/, sem bjargað verður vel heil hof — og flest af því hlýt- ur að verða Nílarfljóti að bráð, ef ekki verður að gert. — Á hinn bóginn verður framkvæmd þessi til þess, að hægt verður að veita vatni yfir stór svæði af egypzku og súdönsku landi, sem nú er nakin eyðimörk, og gera þar gróð ursæla jörð, sem fóstrað gæti tugi og hundruð þúsund manna. Menningar- og vísindastofn- un Sameinuðu þjóðanna (UN- ESCO) hyggst 'nú bjarga því, sem bjargað verður, af þessum dýr- mætu fornminjum, og hafa verið — en Jboð mun kosta a.m.k 60 milljónir dala gerð drög að áætlun um „björg- unarstarfið", en samkvæmt henni mun kostnaður af því, nema um 60 milljónum dala. — Þörf er á því að taka þetta mál skjó - um og föstum tökum, því að framkvæmdir við Asvan-stifluna eiga að hefjast þegar í byrjun næsta árs — og henni skal lokið á fimm árum. — En aðalforstjóri UNESCO, Vittorio Veronese, er bjartsýnn og gcrir fastlega ráð fyrir, að unnt reynist að útvega hina háu upphæð, sem til þarf. ■jjlf Tvær fornminja þeirra, sem þarna eru í hættu, eru einna frægastar — klettahof Ramses II við Abu Simbel, og fagurt, lítið hof á eyjunni Philæ, sem ptole- mæarnir reistu. Einn liðurinn í á- ætlun UNESCO er að byggja mik inn steinmúr, sem kosta mun 30—- 40 milljónir dala, umhverfis hof Ramses II og minjarnar á Philæ — en jafnframt er ætlunin að flytja sem mest af öðrum forn- minjum á Asvan-svæðinu inn fyrir múr þennan. Mikill uppgröftur mun fara fram, þar sem ekki verður hjá þvi komizt, að Níl flæði yfir — og egypzka stjórnin hefur gefið fyrirheit um, að þeir erlendir vís- indamenn, sem þátt taka í upp- greftrinum, megi flytja heim með sér helming þeirra minja, sem þeir finna, nema hvað hinar verð mætustu skulu fluttar í egypzk söfn. — Þetta tilboð er líklegt til til að laða fjölda erlendra forn- fræðinga til þess að taka þátt í uppgreftrinum á Asvan-svæðinu — og verður væntanlega til þess að bjarga mörgum dýrmætum minjum frá glötun. Þrjú líkneski í hofi Ramses II við Abu Simbel. Simbel. — ISIS-hofið við Philæ. Níl flæðir nú þegar allt umhverfis það mikinn hluta ársins. En brátt mun það hverfa fyrir fullt og allt, ef ekki verður að gert. FRAMKVÆMDIR 1ÞAGU ÆSKUNNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.