Morgunblaðið - 22.12.1959, Side 15
MORCUNBLAÐIÐ
15
Þriðjuagur 22. des. 1959
Grafir og grónar
rústir
— bók til að
„GRAFIR og grónar rústir“ er
ein þeirra bóka, sem vakið hefur
mikla athygli á jólamarkaðinum
í ár. Þetta er bók bæði til að
skoða og lesa, hún fjallar um
forna hámenningu, skreytt 326
myndum, þar af fjölmörgum heil-
síðumyndum. Bók þessi er eftir
C. W. Ceran, þann hinn sama og
ritaði „Fornar grafir og fræði-
menn“, en báðar þessar bækur
eru í útgáfu POB á Akureyri.
skoða og lesa
„Grafir og grónar rústir“ er
skrifuð til fróðleiks fyrir
almenna lesendur og skiptist í 17.
meginþætti: Klassísk fornleifa-
fræði fæðist, Pompei og Hercul-
aneum, Hugboði hlýtt, Ljósi
varpað á Krít, Egypzka sminxin,
Flatarmálafræði í steini, Múmíur,
Konungadalurinn og menjar
hversdagslífs, Fyrstu Babýlonar-
og Persepolis-farar, Ráðning
fleygletranna, Layard í Níníve —
Koldewey í Babýlon, Aðferðir og
árangur uppgraftrarins í Úr,
Fyrstu sagnir af Mexico, í þjón-
ustu nýrrar vísindagreinar, Borg-
ir í frumskógi vaktar af alda-
svefni, Ný viðfangsefni í Mexico
og Litið til baka og fram.
Þessi bók kemur nú út í mörg-
um löndum samtímis. Þýðinguna
hefur Björn O. Björnsson gert,
en myndir eru prentaðar hjá Du-
mont Schauberg í Köln í Þýzka-
landi. Frágangur allur er hinn
vandaðasti.
C. W. Ceram er löngu orðinn
heimsfrægur fyrir ritstörf sín á
þessu sviði. Hann vakti strax
athygli fyrir stríð og eftir styrj-
öldina hefur hann unnið sleitu-
laust að rannsóknum og ritstörf-
um. Hann hefur tekið þátt í upp-
gröftum gamalla borga við
Miðjarðarhaf, en annars er hann
forstöðumaður hins heimsfræga
bókaútgáfufyrirtækis Rowohlts
í Hamborg.
Fróðleg
RITGERÐASAFN
JÓNS HELGASONAR, PRÓFESSORS
RITGERDAKORN
og
RÆÐUSTÚFAR
„Hafi menn ekki vitað það áður, ætti þessi bók að færa þeim heim sanninn
um að ekki stingur Jón niður penna um almenn mál öðru vísi en úr verði
ritsmíð, sem á erindi til hvers hugsandi Islendings“.
M.T.Ó. 1 Þjóðviljanum 21. nóv. sl.
„Jón Helgason, prófessor í Kaupmannahöfn, er eflaust einn skemmtilegasti
stílisti, sem nú skrifar á íslenzka tungu. Mál hans er kjarngott, orðafærið
lipurt og látlaust, og stíll hans þrunginn hinni léttu kaldhæðni, sem gerir í
senn að ylja lesandanum og styggja hann til umhugsunar".
Sigurður A. Magnússon í Morgunblaðinu 21. nóv. sl.
Nú er tækifærið til að eignast fjölda af ritgerðum og ræðum
Jóns í einni bók. — Hún fæst í bókaverzlunum.
Félag íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn.
og skemmtileg jólahók
Glæsileg jólagjöf
Strákur
í stríði
Útg. Bókaforlag Odds
Björnssonar.
í FYRRA kom út nýstárleg barna
bók er vakti óskipta athygli bæði
yngri og eldri lesenda. Bók þessi
bar hið þjóðlega og skemmtilega
heiti „Strákur á kúskinnsskóm",
en höfundur, sem var nýr af nál-
inni, nefndi sig Gest Hannsson.
Bókin seldist upp svo að segja
á augabragði, enda hlaut hún
óspart lof gagnrýnenda. Þarna
var höfundur, sem skrifaði á
kjarngóðu og lifandi máli, laus
við predikunartón, en lýsti mönn-
um og atburðum eins og þeir
koma börnum fyrir sjónir: í eins
konar töfraljóma. Þetta er orðinn
nokkuð sjaldgæfur eiginleiki í nú
tíma-barnabókmenntum, að mínu
viti of sjaldgæfur. Fyrir bragðið
venjast börnin um of á einhæfa
nautn spennunnar, en gefa persón
um og umhverfi lítinn gaum.
Slíkar bækur þjóna að vísu þeim
ágæta tilgangi að skemmta barn-
inu, en þær þroska hvorki smekk
þess né hugmyndaflug, og eru
því naumast hæfar til að mynda
með því grundvöll að vaxandi
bókmenntaáhuga.
Hér var bók sem kom börnum
til að sjá, heyra, meira að segja
finna 'lykt. — Og nú er komið
framhald hennar, „Strákur í
stríði“ nefnist hún, og eins og
nafnið bendir til gerist margt og
mikið í þeirri bók. Kostirnir eru
þeir sömu og þeir er prýddu
fyrri bókina, en ekki kæmi mér
á óvart að krökkum fyndist þessi
ennþá meira spennandi,
Bróðir höfundar hefur prýtt
bókina mörgum snjöllum mynd-
um, sem eru alveg í réttum dúr.
Frágangur allur er útgefanda til
sóma og öðrum til ánægju.
Ég get vart hugsað mér hollara
lestrarefni fyrir börn á öllum
aldri en þessa skemmtilegu bók:
— og ætla má að fullorðnir hafi
næstum því eins gaman að henni,
sakir hinnar fyndnu og safaríku
frásagnar.
FERÐABOK Þorvuldor Thoroddsens I-IV
Þriðja bindið er koriiið út
Kynnist landinu og kaupið F erðabók Þorvaldar Thoroddsens
Snaebj ör niíótisson& Co.h.f
THE ENGLISH BOOKSHOP
Hafnarstræti 9 Símar 11936-10103
Reynir Þórðarson.