Morgunblaðið - 22.12.1959, Page 24
2
dagar
til jóla
mgmiMafeÍb [2
dagar
til jola
286. tbl. — Þriðjudagur 22. desember 1959
Landburður af síld
Saltað fram á nótt á síldar-
plónunum
f GÆR var fádæma góður
síldarafli hjá Faxaflóabátum.
Voru bátarnir með frá 100
tunnum upp í 1100, en þann
afla kom hringnótabáturinn
Guðmundur Þórðarson með
til Hafnarf jarðar. Erfitt er
orðið að fá síldarsíúlkur til að
salfa, þar eð húsmæður eru
nú að verða önnum kafnar við
jólaundirbúning og fer því
meira í frystingu en ella.
Sturlaugur Böðvarsson á
Akranesi gaf blaðinu þær upp
lýsingar, að í gær mundi hafa
verið langmesta meðalveiði
hjá Akranesbátum síðan Hval
fjarðarsíldin var 1947. Yrði
unnið að síldarsöltun á plön-
unum til eitt eða tvö í nótt og
byrjað í býti á morgun, en
fyrirtæki Haraldar Böðvars-
sonar hefði ákveðið að hætta
söltun í kvöld og færu bát-
arnir ekki aftur út fyrir jól.
Aftur yrði hafizt handa strax
upp úr jólum.
/' Hafnarfjarlðarbátar
Fréttaritari blaðsins í Hafnar-
firði símaði: Bezti síldveiðidag-
urinn til þessa var í gær og
fengu þá flestir bátarnir frá 200
og upp í 500 tunnur. Guðmund-
ur Þórðarson frá Reykjavík kom
hingað inn með um 1100 tunnur
og Faxaborgin með 500, en báð-
ir þessir bátar eru með hring-
nót. Fiskaklettur var með hátt
á fjórða hundrað tunnur, Hafn-
firðingur 200, Stefnir 250, Haf-
björg 265, Reykjanes og Álfta-
nes um 200 tunnur hvor, Fagri-
klettur 100 og Guðbjörg um 90.
Var unnið við að salta og
panna síld allan sunnudaginn og
langt fram eftir nóttu. Til dæm-
is hefir verið unnið hjá Frost hf.
til kl. 3 undanfarnar nætur. —
Togarinn Ágúst kom af veiðum
í gærdag og sigldi með aflann á
erlendan markað. Var skipað
nokkru magni af síld út í hann,
en síðustu togarar, sem héðan
hafa siglt, hafa einnig farið með
nokkurt magn aÆ síld, sem selzt
hefir vel í Þýzkalandi. í gær
kom Juní þaðan. — G.E.
Keflavíkur og Sandgerðisbátar
Fréttaritarinn í Keflavík kvað
17 báta hafa komið inn á sunnu-
dag með 3500 tunnur og í gær
komu jafnmargir bátar með 3626
tunnur. Hæstir í gær voru hring
nótabátarnir Kópur með 650
tunnur og Von með 510 og af
reknetjabátum var Reykjaröst
hæst með 277 tunnur. Á sunnu-
dag voru hæstir Andri, Ólafur
Magnússon, Magnús Marteins-
son og Guðfinnur með um og
yfir 300 tunnur hver, en vegna
veðurs og slæmra aðstæðna gekk
hringnótabátunum þá illa. Lægsti
afli var 100 tunnur.
Fréttaritari blaðsins í Sand-
gerði kvað 9 Sandgerðisbáta hafa
komið inn í gær með 1600 tunn-
ur. Rafnkell var hæstur með
465 tunnur, Hamar næstur með
215 tunnur, Hrönn með 174 og
Guðbjörg 170.
Akranesbátar
Fréttaritarinn á Akranesi sím-
aði: Landburður af síld var hér
í dag. Fjölmargt skólafólk starf-
ar nú á eyrinni, á síldarplönun-
um og í frystihúsunum og enn
vantar fleiri í vinnu. í dag var
síldaraflinn á 16 báta 4605 tunn-
ur, að meðaltali 288 tunnur á bát.
Höfrungur kom þrauthlaðinn
stafna í milli, hafði fengið 763
tunnur, Víðir II. úr Garði 632,
og Keilir 550. Þetta eru allt
hringnótabátar. Aflahæstur rek-
netjabáta er Sveinn Guðmunds
son með 352 tunnur, annar Ás-
björn með 287 og þriðji Svanur
með 257. Enginn bátur hafði inn-
an við 100 tunnur. — Oddur.
HI utafél agsstjórn og formaður
hennar geta ekki firrt sig
áhyrgð
sem
og
SÍS
H œstaréttardómur,
snerfir gjaldeyris-
tollsvik olíufélaga
SÍÐAN MORGUNBL.AÐIÐ birti skýrslu rannsóknardómaranna
í máli olíuféiaga SÍS hefur blaðinu borizt fjöldi fyrirspurna um
það, hver sé ábyrgð félagsstjórnar og stjórnarformanns í stjórn
hlutafélags á athöfnum framkvæmdastjóra slíkra félaga.
Um þetta eru greinileg ákvæði í hlutafélagalögunum. Segir þar
á þessa leið um hlutverk og skyldu hlutafélagsstjórnar:
„Félagsstjórn fer með málefni félagsins milli hluthafafunda,
Hún ræður framkvæmdastjóra, einn eða fleiri, hefur umsjón með
rekstri atvinnunnar, gerir reikningsskil og skuldbindur félagið, allt
samkvæmt lögum og samþykktum félagsins“.
1 þessu sambandi má
þessu sambandi má einnig
geta þess, að hinn 21. febrúar árið
Kápan á „6 ljóðskáldum
Nýjung í ísl. bókagerð
Úrvalsljóð sex skdlda dsamt talplötu
með upplestri þeirra
ÚT ERU kominn hjá Bókaverzl-
un Sigfúsar Eymundssonar úr-
valsljóð sex íslenzkra ljóðskálda.
Nefnist bókin „6 ljóðskáld", og
fylgir henni talplata með upp-
lestri höfundanna. HöfUndarnir
eru þessir: Einar Bragi, Hannes
Pétursson, Jón Óskar, Matthías
Johannessen, Sigurður A. Magn-
ússon og Stefán Hörður Gríms-
son. Útgáfuna hefur Eiríkur
Hreinn Finnbogason annazt.
í bókinni eru bæði eldri ljóð
og áður ó'birt ljóð þessara sex
skálda, sem öll hafa gefið út
bækur áður.
Kápu bókarinnar og umslags-
ins um plötuna hefir Atli Már
gert.
Hér er vegna talplötunnar um
að ræða nýjung í íslenzkri bóka-
gerð, og munu margir hafa á-
nægju af að geta hlýtt á upp-
lestur skáldsins um leið og þeir
lesa Ijóð þess. Talplötunni er
komið þannig fyrir, að umslag-
ið utan um hana er heft inn í
bókina.
„Sex Ijóðskáld" er 118 bls, að
stærð. Bókin er prentuð í Prent-
felli. Bókina er einnig hægt að
fá án plötu. Eins fæst platan
sérstök.
1947, féll dómur í Hæstarétti í
máli, sem höfðað var vegna
brota á verðlags- og gjaldeyris-
löggjöf. Með dómi þessum var
kona, sem átti sæti í stjóm hluta-
félags, sektuð vegna verðlags-
brots, sem framkvæmdastjórn fé-
lagsins hafði gerzt sek um. Var
þó sannað, að konan hafði hvergi
komið nærri þeim verknaði, sem
hún var sektuð fyrir og vissi
ekkert um hann.
í forsendum Hæstaréttardóms-
ins frá 21. febrúar 1947 var kom-
izt að orði um þetta á þessa leið:
„Verður að gera þær kröfur til
hennar, áð hún aflaði sér vit-
neskju um rekstur félagsins í
höfuðdráttum. Átti henni því að
vera kunnugt um verðlagsbrot fé-
lagsins, sem framið hafði verið
að staðaldri um langan tíma.
Verður þess vegna að telja, að
hún hafi gerzt brotleg við sömu
lagaákvæði og hinir sam-
ákærðu —• “.
Getur ekki firrt sig ábyrgð
Samkvæmt þessari niðurstöðu
Hæstaréttar virðist það útilokað,
að stjórnarformaður í Olíufélag-
inu hf. geti firrt sig allri ábyrgð
af ráðstöfunum framkvæmda-
stjóra félagsins með því einu að
lýsa því yfir, að hann hafi ekki
„haft hugmynd um“ það, sem
framkvæmdastjórinn aðhafðist.
Fullfermi
2-4
a
dögum
f GÆRMORGUN var byrjað að
landa úr togaranum Hvalfell, en
hann kom af Nýfundnalandsnrn* -
um. Var hann með fullfermi og
hafði skipshöfnin fyllt togarann
á 4 sólarhringum. Hafði Hvalfell-
ið verið á syðstu miðunum, ekki
orðið fyrir ýkjamiklum frátöfum
og frost hafði verið lítið á þeim
slóðum.
Togarinn Askur er væntanleg-
ur árdegis í dag, af sörnu veiði-
slóðum. Gekk togaranum svo vel,
að það tók ekki lengri tíma að
fylla skipið, en á fyrstu mánuðun.
Nýfundnalandsmiðana sumarið
og haustið 1958, því fullfermi var
komið í skipið eftir tveggja sólar-
hringa veiði. Skipstjóri á Aski er
Guðni Sigurðsson.
Hvalfell og Askur munu liggja
hér í Reykjavíkurhöfn fram yfir
jól, en fara þá á ísfiskveiðar á
heimamiðum, og trúlega fara í
söluferð með aflann.
Ufsi í Keflavíkurhöfn
KEFLAVIK, 21. des. — Smá-
ufsinn, sem hefur komið í
Keflavíkurhöfn nokkuð ör-
ugglega um þetta leyti árs í
nokkur ár, kom í höfnina í
dag. Mótorbáturinn Ver náði
30 tonnum í kasti í morgun og
Kári 60—70 tonnum. Er ufsinn
háfaður með krana beint upp
Í0 0-^J0.0„0:0 00'»
á hafnargarðinn og upp á bíla.
Síðan er fiskinum ekið í
bræðslu.
Fleiri bátar eru nú komnir
í höfnina og virðist ufsamagn-
ið vera þar mikið. f fyrra
veiddust 400 tonn af smáufsa
í höfninni um þetta leyti árs,
en árið þar áður 700 tonn.
— Helgi S.
00.00,000:00000
200 ísl.
jólatré
FYRSTU íslenzku jólatrén
koma á markaðinn hér i
Reykjavík í dag, er Land-
græðslusjóður býður til sölu í
jólatréssölum sínum 75—125
cm há rauðgrenitré úr skóg-
ræktarstöðinni í Tumastöðum
í Fljótshlíð. Er alls um að
ræða 200 tré og komu þau til
bæjarins um helgina, en
skógarvörðurinn þar, Garðar
Jónsson, hafði gengið til skóg-
arhöggsins á laugardagsmorg-
uninn.
Skógræktarstjóri Hákon
Bjarnason, kvað þetta merkan
viðburð í sögu skógræktarinn-
ar og að 10 árum liðnum
myndi Skógræktin geta full-
nægt markaðsþörfinni fyrir
jólatré. Þessi 200 tré sem komu
gefa hinum dönsku ekki eftir
hvað útlit snertir. Krakkarnir
á myndinni standa yfir nokkr-
um Tumastaðatrjám suður í
Fossvogs-skógræktarstöð.
Verzlun brunn
í Kefluvíh
KEFLAVlK, 21. des. — Kl. 6,30
á sunnudagsmorgun var Slökkvi-
lið Keflavíkur kvatt út. Var eld-
ur í gömlu timburhúsi við Hafn-
argötuna, sem almennt er kallað
Edinborg. Þar var til húsa verzl-
unin Fons og brauðsölubúð.
Þegar Slökkvilið Keflavíkur
kom á vettvang var eldur all
magnaður. Slökkvilið á Keflavík-
urflugvelli kom einnig til hjápar,
en ekki tókst að ráða niðurögum
eldsins fyrr en húsið var að mestu
brunnið. Hússkrokkurinn stend-
ur þó uppi. Brunnu þarna allar
vörubirgðir verzlunarinnar. Hús-
ið var tryggt hjá Brunabótafélagi
Islands en vörubirgðir upp að
vissri upphæð hjá Sjóvátrygging-
arfélagi Islands.
Ökunnugt er um eldsupptök,
en hugsanlegt að kviknað hafi í
út frá rafmagni.
Þess má geta að fyrir 2—3 ár-
um kviknaði í þessu sama húsi
skömmu fyrir jólin, en þá tókst
að ráða niðurlögum eldsins.
— Helgi S.