Morgunblaðið - 23.02.1960, Page 2

Morgunblaðið - 23.02.1960, Page 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 23. febrúar 1960 GENGIS SKRÁNING Skráð frá og með 22. febrúar 1960 Eining Kaupgengi Sölugengi Sterlingspund 1 106,56 106,84 Bandaríkjadollar 1 38,00 38,10 Kanadadollar 1 39,97 40,07 Dönsk króna 100 550,50 551,95 Norsk króna 100 531,85 533,25 Sænsk króna 100 733,85 735,75 Finnskt mark 100 11,90 11,93 Franskur franki 100 774,25 776,30 Belgískur franki 100 76,20 76,40 Svissneskur franki 100 875,65 877,95 Gyllini 100 1.007,75 1.010,40 Tékknesk króna 100 527,05 528,45 Vestur-þýzkt mark 100 911,25 913,65 Líra 1000 60,80 60,96 Austurr. schillingur 100 146,15 146,55 Peseti Reikningskróna —• Rússland, Rúmenía, 100 63,33 63,50 Tékkóslóvakía, Ungverjal. .. 100 99,86 100,14 — Vaxtahækkunin Framh. af bls. 1. Fiskveiðasjóður úr 4% í 6Vi%. Þessi hækkun nær ekki til vaxta af þegar umsömdum lánum fjár- festingarlánastofnana, sem verða óbreyttir, eins og fyrir er mælt i skuldabréfi. Hækkunin nær held- ur ekki til lána, sem þegar eru komin i afgreiðslu hjá þessum stofnunum, þótt útborgun hafi enn ekki átt sér stað. • 40 millj. kr. til íbúðalána t sambandi við þessa hækkun vaxta hefur ríkisstjórnin ákveð- ið að gera ráðtafanir til að afla 40 millj. kr. til íbúðalána á þessu ári umfram tekjur Byggingar- sjóðs ríkisins. Hluti þessarar upphæðar verði sérstaklega æti- aður til að losa menn, sem eru að byggja eða nýbúnir að byggja, við erfiðar lausaskuldir í bönk- unum. Skiptist þessi 40 millj. kr. upphæð í fvo hluta. • I fyrsta lagi hefur stjórn Seðlabankans í dag samkvæmt tilmælum ríkisstjórnarinnar sam þykkt, að lána Byggingarsjóði ríkisins 25 millj. kr. til íbúða- lána í trausti þess, að samkomu- lag náist við stjórn Atvinnuleys- istryggingasjóðs varðandi geymslu lausafjár sjóðsins hjá Seðlabankanum. • Víxilskuldum breytt í íbúðalán 1 öðru lagi mun ríkisstjórnin leita eftir samningum við við- skiptabankana og stærstu spari- sjóðina um, að þeir fallist á að breyta víxillánum, er nemi allt að 15 millj. kr. í íbúðalán, ef um er að ræða séstaka erfiðleika byggenda vegna lausaskulda þeirra í þessum stofnunum. FRÉTTATILKYNNING LANDSBANKA ÍSLANDS, SEÐLABANKANS Með skírskotun til laga um efnahagsmál nr. 4 frá 1960, hefir stjórn Seðlabankans ákveðið: 1. Ný skráning á gengi is- lenzkrar krónu komi til fram- kvæmda að morgni mánudags 22. febrúar 1960. Kaupgengi banda- rísks dollars er ákveðið kr. 38.00 og sölugengi 38.10 fyrir hvern Bandaríkjadollar. Kaup og sölu- Dagskrá Alþingis í dag eru boðaðir fundir í báð- um deildum Alþingis á venjuleg- um tíma. Á dagskrá efri deildar eru tvö mál. 1. Framleiðsluráð landbúnað- arins o. fL, frv. — 1. umr. 2. Erlend lán Ræktunarsjóðs íslands og Byggingarsjóðs sveita bæja, frv. — 1. umr. Tvö mál eru á dagskrá neðri deildar: 1. Aukaútsvör ríkisstofnana, frv. — 1. umr. 2. Varnir gegn útbreiðslu jurta sjúkdóma, frv. — 1. umr. gengi á öðrum gjaldeyri er á- kveðið í samræmi við það, verð- ur t. d. kaupgengi sterlingspunds 106.56 og sölugengi 106.84. Kaupgengi 100 danskra króna verður 550.50 og sölugengi 551.95. Kaupgengi 100 norskra króna verður 531.85 og sölugengi 533.25. Kaupgengi 100 sænskra króna verður 733.85 og sölugengi 735.75. Kaupgengi 100 finnskra marka verður 11.90 og sölugengi 11.93. Kaupgengi 100 v-þýzkra marka verður 911.25 og sölugengi 913.65. • Aukin sparifjáor- myndun 2. Til þess að hafa áhrif til aukinnar sparifjáröflunar, hefir bankastjórnin á fundi í dag ákveðið, að höfðu samráði við ríkisstjórnina, að innlánsstofn- anir greiði frá og með deginum í dag vexti af innstæðufé: Á almennum sparisjóðsbók- um 9%. Á sparisjóðsbókum með 6 mán. uppsagnarfresti 10%. Á tíu ára sparisjóðsbókum 11%. Á ávísanasparisjóðsbókum 6%. Á hlaupareikningi 4%. • Hækkun útlánsvaxta Sömuleiðis ákvað bankastjórn- in að útlánsvextir lánastofnana skuli frá sama tíma ekki vera hærri en hér segir: Forvextir 11%. Framlengingarvextir eftir 3 mán. 11Í4%. Vextir af yfirdrætti á hlaupa- reikningum, reikn. mánaðarlega eftir á 12%. Vextir af reikningslánum og viðskiptalánum, auk viðskipta- gjalds 1% á ári 11%. Sömu lán með föstum vöxt- um 10%. Vextir af afurðavíxlum 9%. Framlenging sömu víxla eftir 3 mánuði 9Vz%. • Bundinn reikningur Ákvörðun þessi gildir, þar til öðruvísi verður ákveðið. Bankastjórnin ákvað ennfrem- ur, eftir að hafa haft samráð við ríkisstjórnina, að nota heimildir í Iögum til að skylda innláns- stofnanir til að leggja inn á bund inn reikning í Seðlabankanum helming aukningar á innláns- reikningum frá 1. jan. 1960. Reykjavík, 21. febr. 1960 Fá lausn frá störfum HINN 17. þ. m. veitti forseti fs- lands Guðbrandi ísberg, sýslu- manni í Húnavatnssýslu, lausn frá embætti frá 1. júlí nk. að telja. UM helgina var innbrot framið í fataverzlun Gefjunar-Iðunnar við Kirkjustræti. Var stolið sjö karlmannsfö tum. Danska • •• smjorio komið í DAG kemur danska smjörið væntanlega í verzlanir. I gær var verið að skipa því upp úr Gull- fossi og verður uppskipun vænt- anlega lokið í dag. Ljósmyndari blaðsins tók þessa mynd í gær í Osta- og smjörsöl- unni, en hún sér um dreifingu á danska smjörinu, eins og því íslenzka. Kemur danska smjörið í 250 gramma stykkjum, og sést á myndinni, með orðinu „lurmærket" (lúðurmerkt), sem mun vera skráð merki danskra útflytjenda. Með þessari ferð Gullfoss komu 50 tonn af dönsku smjöri í 15 kg kössum, og eru önnur 50 tonn væntanleg með næstu ferð. Það magn er talið duga þangað til okkar eigin framleiðsla fer aftur að aukast með vorinu. Fengum við þær upplýsingar í Osta- og smjörslunni í gær, að sennilega yrði hægt að aka út smjörinu upp úr hádeginu, og þá í verzlanir í öllum hverfum nokk um veginn samtímis, svo að hús- mæður mundu að öllu forfalla- lausu geta keypt smjör seinni hluta dags í dag. Framsóknarmenn viðurkenna að hata skilið við Rœktunarsjóð og byggingarsjóð gjaldþrota í GÆR var útbýtt á Alþingi frv. til Iaga um að ríkissjóður taki á sig greiðslu á erlendum lánum, sem hvila á ræktunarsjóði ís- lands og byggingarsjóði sveitar- Bókmenntokvöld NÆSTA bókmenntakvöldið 1 Ameríska bókasnfninu að Lauga vegi 13, verður haldið í kvöld og hefst að venju kl. 8,30 e. h. Svo sem kunnugt er hafa allmörg slík bókmenntakvöld verið hald in að undanförnu í vetur og þau reynzt mjög vinsæl. Á þessum kvöldum hefur verið lesið á víxl upp úr verkum bæði enskra og amerískra höfunda og sum verk- in skýrð að nokkru. í þetta sinn verður kvöldið tiieinkað tveimur af merkustu forsetum og stjórnmálaskörung- um Bandaríkjanna, Þeim George Washington, fyrsta forseta Bandaríkjanna, og Abraham Lin- coln. Öllum er að sjálfsögðu heimilt að sækja þessi bókmenntakvöld. Mikil vatnsnotkun íkuldanum MIKIL var vatnsnotkun þeirra í gær, sem á hitaveitusvæði bæj- arins búa. Daglangt og langt fram á kvöld var hún yfir 500 sek. lítrar. Hafði mest orðið 514. Er þetta einn vatnsfrekasti dagurinn í yfirstandandi kuldakasti. — í gærkvöldi klukkan 8—9 var vatnshæðin í geymunum á Öskju hlíð þó enn um 280—290 sentim. Voru horfur á að vatnið mundi duga fram til klukkan 11, en þá er almennt farið að loka fyrir inn rennslið í húsum manna. Tölu- verð brögð eru enn að því, að fólk láti vatnið renna í stríðum straumum í hús sín á nóttunni, en slíkt veldur, sem kunnugt er, vatnsskorti næsta dag, því geymarnir eru ekki nærri fullir á morgnana. bæja. Flm. eru allir þingmenn Framsóknarflokksins í efri deild Alþingis. f frv. er lagt til að ríkissjóður taki að sér að greiða eftirstöðvar af fimm erlendum lánum fyrir Ræktunarsjóð og tveimur fyrir Byggingarsjóð sveitarbæja. Lán- in eru í dollurum, 3.390.998,28 og sterlingspundum, 308500.0.0. í greinargerð segir, að nú sé svo komið, að sjóðimir búi við mikinn hallarekstur og hafi rekstrarhalli Ræktunarsjóðs ver ið 3 millj. 66 þúsund sl. ár, en rekstrarhalli byggingarsjóðs 1.892.849.42. Það er athyglisvert, að á sama og Framsóknarmenn viðurkenna gjaldþrot þessara sjóða, sem þeir hafa haft ráðstöfunarrétt yfir og umsjón með á undanförnum ár- um, berjast þeir með oddi og egg gegn því, að sjóðimir hækki útlánsvexti sína, sem þó gæti orðið einn þátturinn í því að bæta hag þeirra, enda þótt augljóst sé, að margt fleira þyrfti til að skapa sjóðunum starfsgrundvölL Rætt um skólamál HAFNARFIRÐI — Málfunda- námskeið Stefnis heldur áfram í kvöld og verður þá rætt um skólamál. Framsögu- menn eru þeir Þór Gunnars- son og Reimar Sigurðsson. — Eru Stefnis-félagar beðnir að fjölmenna. NA /5 hnúiar >/ SV50hnuiar ¥ Snjókoma y 06 i X7 Skúrír ÍC Þrumur w*z, KuUaskil Hitaski! H Hdé L Latq6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.