Morgunblaðið - 23.02.1960, Page 6
6
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 23. febrúar 1960
Vísindasjóður
auglýsir styrki
Prófessor Alexander Jóhannesson afhendir Alfreð Eliassyni
gullmerkið. —
Alfreð Elíasson heiðr-
aður á Flugmálahátíðinni
VÍSINDASJÓÐUR hefur auglýst
styrki ársins 1960 lausa til um-
sóknar. Sjóðurinn skiptist í tvær
deildir: Raunvísindadeild og
Hugvísindadeild. — Formaður
stjórnar Raunvísindadeildar er
dr. Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur, en formaður stjórnar
Hugvísindadeildar dr. Jóhannes
Nordal bankastjóri. Formaður
yfirstjórnar sjóðsins er dr.
Snorri Hallgrímsson prófessor.
Rf unvísindadeild annast styrk-
veitingar á sviði náttúruvísinda,
þar með taldar eðlisfræði og
kjarnorkuvísindi, jarðfræði, efna
fræði, stærðfræði, læknisfræði,
líffræði, lífeðlisfræði, jarðfræði,
dýrafræði, grasafræði, búvísindi,
fiskifræði, verkfræði og tækni-
fræði. Hugvísindadeild annast
styrkveitingar á sviði sagnfræði,
bókmenntafræði, málvísinda, fé-
lagsfræði, lögfræði, hagfræði,
heimspeki, guðfræði, sálfræði og
uppeldisfræði.
Hlutverk Vísindasjóðs er að
efla íslenzkar vísindarannsóknir
og í þeim tilgangi styrkir hann:
1) Einstaklinga og vísindastofn-
anir vegna tiltekinna rann-
sóknarverkefna.
2) Kandídata til vísindalegs sér-
náms og þjálfunar. Kandídat
verður að vinna að tilteknum
sérfræðilegum rannsóknum
eða afla sér vísindaþjálfunar
til þess að koma til greina við
styrkveitingu.
3) Rannsóknastofnanir til kaupa
á tækjum, ritum eða til
greiðslu á öðrum kostnaði í
sambandi við starfsemi, er
sjóðurinn styrkir.
Umsóknir þurfa að hafa borizt
fyrir 1. apríl n. k. Umsóknar-
eyðublöð ásamt upplýsingum
fást hjá deildarriturum, á skrif-
stofu Háskóla íslands og hjá
sendiráðum Islands erlendis. —
Deildarritarar eru fyrir Raun-
vísindadeild Guðm. Arnlaugsson
menntaskólakennari og fyrir
Hugvísindadeild Bjarni Vil-
hjálmsson skjalavörður.
I\ý stjórn í Kerala
NÝJU DELHI, Indland, 19. febr.
(Reuter): — Búizt er við því að
Congress flokkurinn taki að sér
stjórnarmyndun í Kerala fylki á
Indlandi.
Kommúnistar réðu áður ríkj-
um í þessu fylki, en við síðustu
þingkosningar, sem fram fóru 1.
febrúar sl., voru lýðræðisflokk-
arnir með víðtæka samvinnu til
að hrekja þá frá völdum. Árang-
urinn varð sá að Congress flokk-
urinn fékk 63 þingsæti, Praja
jafnaðarmenn 20, Muslin (Mú-
hameðstrúar) flokkurinn 11 og
óháðir 3 þingsæti. Kommúnistar
sem áður höfðu meirihluta þing-
sæta, fengu nú aðeins 29.
Ekki hefur lýðræðisflokkun-
um komið saman um myndun
samsteypustjórnar, en jafnaðar-
menn og Múhameðstrúarflokkur-
inn munu styðja stjórn Congress-
flokksins.
FLUGMÁLAHÁTÍÐIN var hald
in í Lido fyrra laugardag
Alfreð Elíassyni, framkvstj. Loft
leiða, var þar veitt gullmerki
Flugmálafélags íslands fyrir mik
ð starf í þágu íslenzkra flugmála.
Forseti Flugmálafélagsins, próf.
Alexander Jóhannesson, afhenti
merkið og flutti Alfreð síðan
stutta ræðu, þar sem hann þakk-
aði heiðurinn.
Tveir menn hafa áður hlotið
gullmerki Flugmálafélagsins.
Þeir Agnar Kofoed Hansen, flug-
málastjóri, og örn Ó. Johnson,
framkvstj. Flugfélags íslands.
Á Flugmálahátíðinni var Björn
Jónsson, flugumferðarstjóri,
einnig heiðraður vegna mikils
framlags hans til flugmála okk-
ar.
Þá var skýrt frá því, að Flug-
vísindafélag íslands hefði gert
Agnar Kofoed Hansen, flugmála-
stjóra, að heiðursfélaga sínum,
m.a. í virðingarskyni fyrir störf
þau, er hann vann á allsherjar-
þingi ICAO í San Diego á sl. ári.
Þorskafjarðar
skrifar um:
KVIKMYNDIR
STJÖRNUBÍÓ:
. , , 1 9 8 4 “
RITHÖFUNDURINN Georg Or-
well ritaði fyrir nokkrum árum
skáldsögu um það, hvernig verða
mundi umhorfs í heiminum árið
1984, ef áfram héldi fyrir mann-
kyninu á sömu braut og undan-
farna áratugi. A þessari skáld-
sögu er byggð kvikmynd sú, sem
hér er um að ræða. Sagan og
myndin ber það með sér að höf-
undurinn virðist ærið svartsýnn
á framtíð mannkynsins ef ekki
verður algerð breyting á sam-
skiptum þjóðanna. — Margt í
þessari óhugnanlegu mynd kem-
ur okkur kunnuglega fyrir eftir
því sem lýst hefur verið ástand-
inu í mörgum einræðislöndum
heims, þar sem andleg og líkam-
leg kúgun þegnanna er einn
meginþátturin í viðhaldi einræð-
isins. Við minnumst hinna mörgu
„hreinsana", sem farið hafa fram
í þessum ríkjum með tilheyrandi
„heilaþvotti", sem veldur því að
menn „játa“ á sig hverskonar
Langt að sækja
á miðin
PATREKSFIRÐI, 17. febrúar —
Þrír bátar úr Isafjarðardjúpi leit
uðu hér inn í dag vegna veðurs,
;n bátar héðan eru enn ókomnir.
Bátarnir eru Víkingur frá Bol-
ungarvík, Hugrún frá Bolungar-
/ík og Páll Pálsson frá Hnífsdal.
Afli þessara báta hefur ekki
verið eins góður og bátanna héð-
an, vegna þess að þeir hafa þurft
að sækja á mið hér suður frá,
og tekur ferðin á miðin þá 8—12
tíma hvora leið. Geta þeir því
ekki farið nema 4 róðra í viku.
Afli þeirra hefur verið 8—15
lestir í róðri, en afli bátanna héð-
an hefur aftur á móti verið 130—
150 tonn sL hálfan mánuð.
glæpi gegn þjóð sinni og ríkis-
stjórn. — 1984 hefur einræðis-
herrann „Stóra bróður" í Elja-
álfu og handlöngurum hans tek-
izt að gera allan almenning að
hugsunarlausum og æpandi skríl
fullum aðdáunar (af sefjun og
ótta) á öllu því sem „Stóri bróð-
ir“ býður og bannar. En þær fáu
hræður, sem hreyfa minnstu
gagnrýni eru teknar og pynd-
aðar og lýkur því með hinum
alkunna „heilaþvotti“ til þess að
brjóta á bak aftur alla andstöðu
við stjórnarkerfið og alla sjálf-
stæða hugsun.
Mynd þessi er, sem áður segir,
óhugnanleg og gerð af töluverðri
hugkvæmni en þó ekki meiri hug
kvæmni en sumir einræðisherrar
síðari tíma hafa sýnt í því að
kúga og pynda mannfólkið, eftir
því sem lýst hafa nánustu sam-
verkamenn þessara harðstjóra.
heiði fær
ÞUFUM, 20. febr.: — I gær fór
Kristján Steindórsson, bóndi á
Kirkjubóli í Langadal, á jeppa
suður yfir Þorkafjarðarheiði að
Kollabúðum í Þorskafirði og fékk
ágæta ferð. Heiðin er. nær snjó-
iaus, og hið bezta færi yfir hana.
Hér hefur verið mjög snjólétt,
en frost hafa verið nokkra síð-
ustu daga. — P.P.
-
skrifar úr 1 daglega lífinif J
• Úrelt ákvæði
tryggingarlaga
Njarðvíkingur kom að máli
við Velvakanda á dögunum og
ræddi um ákvæði tryggingar-
laganna, sem hann taldi nú úr
elt orðið, en það er skiptingin
í fyrsta og annað verðlags-
svæði. Fórust honum svo orð
m. a.:
— Ákvæðið um að skipta
landinu í fyrsta og annað verð
lagssvæði hvað greiðslur á
tryggingum snertir, mun hafa
verið sett inn á þeim forsend-
um, að ekki var jafndýrt að
lifa á hinum ýmsu stöðum. Nú
er þessi mismunur ekki lengur
til staðar og hefir skiptingin
því ekki lengur eðlilega for-
sendu. Ég get nefnt sem dæmi,
að Njarðvík er á öðru verðlags
svæði trygginganna, en Kefla-
vík á fyrsta. Á þessum tveim-
ur stöðum, sem liggja hlið við
hlið, en enginn munur á lífs-
kjörum eða afkomumöguleik-
um. Hins vegar er gífurlegur
munur á greiðslum almanna-
trygginga til gamalmenna og
öryrkja. Una menn í Njarð-
víkum þessu illa að vonum og
finnst hér um óþarfa mismun
un að ræða af hálfu löggjaf-
ans.
9 Verðlauna ógift
stand
tammmmmi
Þá minnist Njarðvíkingurinná
annað ákvæði tryggingarlaga,
sem einnig orkaði mjög tví-
mælis. Er það lagafyrirmælið
um að ölduð hjón fá miklu
minni ellilífeyri, en tveir ein-
staklingar. Kæmi þetta þann-
ið út, að ef fólk byggi saman í
ógiftu standi fengi það miklu
hærri ellilífeyri, en það fólk,
sem hefði gift sig með heiðri
og sóma fyrir löngu. Sama
máli gegndi um hjón, sem eitt
sinn hefði skilið, en tekið svo
saman aftur án þess að gifta
sig. — Er engu líkara en hér
sé löggjafinn að verðlauna
skilnað og ógift stand, en níð-
ast á þeim, sem grandvarlega
lifa fyrir guði og mönnum,
sagði Njarðvíkingurinn.
• Fréttir í síma
— Það er margt talað í bæn-
um núna, sagði maður utan af
lclllUl, ÖCIXl JCIU
riui
anda á laugardagsmorguninn
Þessd til staðfestingar sagði
hann eftirfarandi sögu:
— Konan, sem ég bý hjá hér
í bænum, kom til mín með
miklu írafári í morgun og
sagði: Ég hef aldeilis frétt
að segja þér. Vinkona mín var
að hringja til mín og það var
heldur þokkalegt eða hitt þó
heldur, sem hún fræddi mig á
í símanum. Þeir hafa verið af-
kastamiklir þama niðri á Al-
þingi í gær. Þarna sagði hún
að þeir hefðu samþykkt að
banna öll verkföll og mig
minnir hún sagði að þeir
hefðu bannað málfrelsi og trú
frelsi líka. Það er að verða
gæfulegt að lifa í þessu landi!
i Bílfært á
Hveravelli
UNDANFARNA viku hefur verið
farið á bílum inná Hveravelli og
upp að Hvítárvatni. Er það alveg
sérstakt að þangað skuli vera
fært í febrúarmánuði. En nú ligg
ur hjarn yfir öllu hálendinu.
Það er vel fært fyrir jeppa og
háa bíla inn á Hveravelli, sagði
Sigurjón Rist, sem fór þangað
á þriðjudag og miðvikudag til at-
hugana á ám eftir flóðið. Og ég
held að það mætti stinga sér
norður af ofan í Húnavatnssýslu
þaðan. Eini farartálmin er í Blá-
felli þar sem vatnavextirnir um
daginn hafa grafið rásir í veginn
en það er þó fært. Eins held ég
að hægt væri þessa dagana að
aka yfir hálendið í Bárðardalinn,
ef brýr væru á Tungnaá og Köldu
kvísl. Það er aðeins eitt að varast.
Við Sigölduveg hefur safnast
vatn í dælir í hrauninu, og eru
þar allt að 5 km. pollar með veik
um ís yfir.
Sgurjón sá hjólör, sem sýndu
að bíll hafði nýlega farið upp að
Hvítárvatni, sennilega sl. sunnu-
dag.
Um leið og snjóar er þetta búið
að vera, því svo djúpar rásir eru
eftir leysingavatnið, sem hefur
klippt í sundur fannir.
Jaki á miðstöpli brúarinnar
I vatnavöxtunum um daginn
hefur verið svo mikið rennsli úr
Hvítárvatni sem snöggvast, að
biti úr jaka liggur nú á miðstöpli
brúarinnar.
Endurbætur
á Hótel Blöndósi
BLÖNDUÖSI, 20. febr.: — I
haust og í vetur hafa staðið yfir
mjög miklar endurbætur og
stækkun á Hótel Blönduósi. Er
ráðgert að þeim ljúki fyrir vor
ið, en þá verður haldin hér svo
kölluð Húnavaka með stanzlaus
um skemmtunum í heila viku.
Ætti hótelið að verða fyrsta
flokks, þegar endurbótunum og
stækkuninni er lokið. Hótelhald-
ari er Snorri Arnfinnsson.
'• ~«■•-'■•-»—'■
• SKÁK •
HAFNARFJÖRÐUR
ABCBEFGH
ABCDEFGH
KEFLAVÍK
17. Rd2xe4
★
KEFLAVÍK
ABCDEFGH
ABCDEFutl
AKRANES
16. 14—f5