Morgunblaðið - 04.03.1960, Síða 1
24 síður
47. árgangur
53. tbl. — Föstudagur 4. marz 1960
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ríkissióður bætir tjdn bátanna með
Umræður hófust með því,
að Halldór E. Sigurðsson, 3.
þm. Vesturlands, kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár og
spurði ríkisstjórnina hvað
gerzt hefði í málinu og hvað
ríkisstjórnin hygðist gera. Þá
spurði hann einnig hvort lík-
ur væru til, að bátunum yrði
bætt tjón sitt og hvort ríkis-
stjórnin myndi beita sér fyrir
því.
Snæfellsnesi
rætt á Alþingi
Á FUNDI nd. Alþingis í gær
urðu nokkrar umræður um
ofbeldisverk Breta í íslenzkri
fiskveiðilandhelgi út af Snæ-
fellsnesi í fyrradag. Svöruðu
dómsmálaráðherra og utan-
ríkisráðherra fyrirspurnum
þingmanna um mál þetta, að
svo miklu leyti sem upplýs-
ingar liggja fyrir. Voru ráð-
herrar svo og þingmenn þung
©rðir í garð Breta fyrir þetta
fáheyrða ofbeldi.
Bjarni Benediktsson, dóms-
málaráðherra, varð fyrir svörum
og mælti m. a. á þessa leið:
Mér var skýrt frá þessum at-
burðum í gær og hafði ég þá,
strax og ég náði til hæstvirts ut-
anríkisráðherra, samband við
hann og óskaði þess, að þó að
enn lægju ekki fyrir fullnaðar-
skýrslur um málið, þá hefði
hann þegar í stað tal af sendi-
herra Bretlands hér og skýrði
og hœtta á farsótfum
þær hafa komizt á kreik.
Múhameð fimmti Marokkó-
konungur hefur gefið fyrirskip-
un um að borgin skuli jöfnuð við
jörðu og borgarsvæðið stráð
kalki og sótthreinsandi efnum.
Útlendir hermenn hjálpa
Um 5000 manns hafa unnið dag
og nótt að björgunarstörfum síð-
ustu tvo sólarhringa. í þeim hópi
er m. a. mikið af frönskum sjó-
liðum og bandarískum flughers-
mönnum.
Flestir eftirlifandi íbúar borg-
arinnar hafa flúið hana. Hópur
þeirra hefur fengið aðsetur í
tjaldbúðum í úthverfi borgarinn-
ar. Öðrum hefur verið flogið til
Casablanca. Margt þessa fólks er
illa komið, beinbrotið og sært og
fjöldi þeirra hefur orðið fyrir
taugaáfalli. Sumir láta það í
Ijós, að þeir muni aldrei framar
snúa til borgarinnar Agadir, jafn
vel þótt hún rísi aftur úr rúst-
um. Slíkar eru hinar hryllilegu
minningar fólksins frá þessum
stað.
Hersveitir Marokkóstjórnar
hafa slegið hring um Agadir til
þess að koma í veg fyrir grip-
deildir og þjófnaði úr rústunum.
Skammt fyrir sunnan borgina er
þegar hafizt handa um að reisa
nýja bráðabirgðaborg úr húsum
sem borizt hafa frá öðrum lönd-
um og hægt er að setja saman.
Fólk sem bjargast
Margar sögur eru sagðar í
Agadir um dásamlega björgun
manna. M. a. er greint frá því að
barn eitt hafi fundizt á lífi er það
hafði verið grafið undir húsa-
rústum í 42 klst. Önnur saga seg-
ir frá klæðskera, sem vann að
því í 18 klst. með berum hnúum
að grafa sér 8 metra löng göng
gegnum húsabrak og þannig
bjargaði hann fjölskyldu sinni.
Frá Kairo í Egyptalandi berast
fregnir um að Nasser forseti hafi
heimilað að sem nemur 5 milljón
um króna skyldi varið til hjálp-
ar fólkinu í Agadir. Frá íraks-
stjórn hafa borizt sem nemur
2 milljónum króna. Þá mun írak
senda hóp lækna og hjúkrunar-
kvenna til Marokko.
Brúðkaup í
maí eða júní
STARFSLIÐI í Buchingham-
höll hefur verið fjölgað og er
nú unnið að þvi af miklum
krafti að undirbúa brúðkaup
þeirrar Margrétar Rósar og
Armstrong-Jones ljósmynd-
ara. Enn hefur brúðkaups-
dagur þó ekki verið ákveðinn
endanlega. Er það dálitið
erfitt vegna þess, að Elísa-
bet drottningarmóðir ráðger-
ir för til Ródesíu-sambands-
ins í Afrku á tímabilinu 10.—
30. maí. Nú er annaðhvort
um að ræða að brúðkaupið
standi skömmu áður en hún
ieggur af stað í byrjun maí-
mánaðar eða þá ekki fyrr en
um miðjan júní, því að
drottningarmóðirin vili sjálf
fá að hjálpa til við brúð-
kaupsundirbúninginn.
Landhermn a Keflavikurflugvelh for í gær. Hermennirnir foru um borð í flutningaskip á ytri höfninni og myndin er tekin, þegar
olíuskipið, sem fiutti fyrsta hópinn, sigldi upp að hafskipinu. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Agadir verður jöfnuð við jörðu
Jarðýtur slétta yfir rústirnar
Rottuplága
Agadir, 3. marz — (Reuter) —
í KVÖLD hættu björgunar-
sveitir starfi í rústunum í
Agadir. Er nú talið ólíklegt að
fleiri menn finnist á lífi undir
hinum hrundu húsum. — Á
morgun verður stór fylking
af jarðýtum sett til að jafna
Agadir við jörðu, brjóta nið-
ur leifarnar af lirundum múr-
veggjum húsanna.
Fram að þessu hafa fundizt
rúmlega 2000 lík í rústunum,
en talið er að milli 3000 og
4000 til viðbótar liggi þar.
Bjarni Benediktsson
honum frá því, hversu alvarleg-
ir atburðir hér hefðu gerzt, að
skoðun okkar íslendinga.
Mér er kunnugt um það, að
hæstvirtur utanríkisráðherra
náði þegar í sendiherrann í gær
og gerði honum grein fyrir
skoðun okkar á þessu furðulega
tiltæki.
Sjúkdómshættan
Ástæðan fyrir því að ekki er
hægt að halda björgunarstarfinu
áfram er sjúkdómshættan. Nú er
sá tími liðinn frá jarðskjálftun-
um í Agadir að líkin í rústunum
eru tekin að rotna og er nú yfir-
vofandi hætta á farsóttum, eink-
um á taugaveiki.
Urmul'l af rottum fer um rúst-
irnar. Hefur jarðskjálftinn ónáð-
að þær í bælum sínum, svo að
endurkröfurétti gegn Bretum
Ofbeldið fyrir
Halda
heimleiðis