Morgunblaðið - 04.03.1960, Side 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 4. marz 1960
Stolnum
frímerkj-
um skilað
' H&ifGar* tihann Simr SS$tírb}Sm Gv8M«m tiigibjSrg
Klufekan to fyWr hádegi í dag h*fst kosníng «» nýju t fgju, féiagi verfe«mtSjuféifc«, m kotnim »tó9 einntð f s«r, Nú fá'
, fétðg&r í f$ji* fíekífáerS fi! aS fjslfýl kjar$£kerl$itt$ií, se'm ríktesf ©a Atfeý**3Í^L‘Ws;1*.o. %**&'**.
kaftag yffr þá. $varS3 @r a8 fefúaa A-iM*nn, lisfa vinstri manna i |gfy_
Eiga .fylkingar að síga saman
Nliðurrifsbandalag Framsóknar og kommunista
n
KOMMÚNISTAR og Fram-
sóknarmenn hafa myndað
með sér órjúfandi bandalag
innan verkalýðshreyfingar-
innar. Framsóknarmenn hafa
iofað því, að styðja kommún-
ista með ráðum og dáð til
þess að ná völdum í sem flest-
um verkalýðsfélögum um
land allt.
Þetta bandalag er stofnað
jafnhliða því sem formaður
kommúnistaflokksins, Einar
Olgeirsson, Iýsir því yfir, að
nú munu „fylkingar síga sam-
an“ í stórkostlegustu stéttaá-
tökum, sem um geti hér á
landi. Tilgangur þessara átaka
er að rífa niður þær viðreisn-
arráðstafanir, sem núverandi
ríkisstjóm hefur gert í efna-
hagsmálum þjóðarinnar. Það
er um það háleita takmark,
sem kommúnistar og Fram-
sóknarmenn hafa myndað
bandalag sitt.
• Hóta ofbeldis-
aðgerðum
Ætlan kommúnista er að
efna til stórfelldra verkfalla
og brjóta niður með hreinu of
beldi viðleitni ríkisstjórnar-
innar til þess að stöðva vöxt
verðbólgunnar og koma ís-
ienzkum efnahags- og at-
vinnumálum á heilbrigðan
grundvöll. Framsóknarmenn
hafa heitið því að leggja sig
alla fram um það að styðja
kommúnista í þessu niðurrifs-
starfi.
Sjálfir geta Framsóknar-
menn og kommúnistar ekki
bent á neitt úrræði til þess að
ráða fram úr vandamálunum.
Þeir láta við það eitt sitja
að heitast við aðgerðir ríkis-
stjómarinnar, sem hefur haft
kjark og manndóm til þess að
taka vandamálin föstum tök-
um, eftir óstjóm og uppgjöf
vinstri stjórnarinnar.
• Hækjulið
kommúnista
Framsóknarmenn hafa
þannig gerzt hækjulið komm-
únista. Þeir hafa skipað sér
við hlið þeirra í baráttunni
gegn efnahagslegri viðreisn í
þjóðfélaginu. Þrátt fyrir það
að Vilhjálmur Þór, aðalefna-
hagsmálasérfræðingur Fram-
sóknarmanna, hafi lýst yfir
fylgi sínu við viðreisnartil-
lögur ríkisstjórnarinnar og tal
ið þær nauðsynlegar og eðli-
legar, streitist Tíminn við að
halda þvi fram daglega, að
þær munu fyrst og fremst
hafa í för með sér „samdrátt“,
og „kyrrstöðu", auk þess sem
þær séu árás á „byggðastefn-
una“.
• Iðju-Björn —
„ástmögur“
Framsóknar.
Myndin hér að ofan birtíst
í Tímanum sl. sunnudag. Af
henni má marka , hversu rík-
an áhuga Framsóknarmenn
höfðu á því, að einn æstasti
Moskvukommúnisti landsins
yrði formaður stærsta verka-
lýðsfélags iðnaðarfólks á ís-
land. Tíminn eggjaði reyk-
víkst iðnaðarfólk til þess að
kjósa á ný yfir sig stjórn
Moskvu-kommúnistanna, sem
fyrir nokkrum árum urðu
berir að einstöku bruðli og
óráðvendni með sjóði Iðju.
Iðju-Björn var orðinn ást-
mögur Hermanns og Eysteins.
• Kjörorð Tímans
Hvað segja nú bændur í
Framsóknarflokknum um
þetta framferði Tímans og
leiðtoga Framsóknarflokks-
ins? Finnst þeim ekki hinn
íslenzki „bændaflokkur‘“
rækja skyldur sinar trúverð-
uglega við sveitafólkið, sem
hefur kosið hann? Myndu
bændur vilja gera Björn
Bjamason, harðsoðnasta
Moskvukommúnista á íslandi
að formanni Búnaðarfélags
íslands eða Stéttarsambands
bænda? Iðnverkafólkið í
Iðju hlýddi ekki áskorunum
Tímans um að kjósa Moskvu-
koinmúnista fyrir formann
félags síns. En Framsóknar-
mönnum tókst að hjálpa
kommúnistum til valda í Tré-
smiðafélagi Reykjavíkur.
Þannig hyggjast þeir halda
áfram.
Kjörorð Tímans og Fram-
sóknarflokksins er nú: Komm
únistar alvaldir í verkalýðs-
hreyfingunni á íslandi. Þann-
ig hyggjast þeir brjóta niður
viðleitnina til þess að stöðva
verðbólguna og leggja traust-
an og heilbrigðan grandvöll
að islenzku atvinnu- og efna-
hagslífi.
EINS og skýrt v ar frá þegar
hið svonefnda frimerkjamál
var efst á baugi, gerði póst-
stjórain íslenzka kröfu til
til þess að hinum gömlu 40 og
50 aura frímerkjum, sem stol-
ið var í frímerkjageymslunni,
yrði skilað aftur. Rannsóknar-
dómari málsins skýrði blaða-
mönnum svo frá í gær, að
vitað væri að 40 aura frímerkj
unum, en þau eru frá 1898—
’99, hefðu 37 verið seld til
Svíþjóðar, en hér innan lands
63. Nú hefir tekizt, sagði rann
sóknardómarinn, að endur-
heimta hér á landi 62 merkj-
anna, og eru þau komin í
örugga vörzlu. 63. merkið er
einnig komið í leitiraar, er á
Norðurlandi, en sending þess
tefst vegna snjóalaga þar.
50 aura frímerkin: Sex
þeirra voru seld til Svíþjóðar
og 94 hér innanlands. Skilað
hefir verið aftur 78 þessara
merkja, en enn sem komið er,
eru 16 ófundin, og verður að
sjálfsögðu haldið áfram að
reyna að komast eftir því
hvar þau séu að finna.
í sambandi við endurheimt
þessara gömlu frímerkja, upp-
lýsti rannsóknardómarinn, að
í einu tilfelli hefði verið úr-
skurðuð húsleit hjá merkis-
hafa, og fékkst merkið þá af-
hent. Það mun vera miklum
crfiðleikum bundið að grafa
upp þá útlenda, sem hafa
þessi stolnu frímerki undir
höndum, og þó að frímerkin
hafi verið seld til Svíþjóðar,
er engin vissa fyrir því að
þeirra sé þar endilega að
Ieyta.
Merkjasala Rauða
krossins gekk vel
MERKJASALA Rauða kiassins
gekk með miklum ágætum hér
í Reykjavík á Öskudaginn. Merki
voru seld fyrir um 118 þús. kr.
og mun aðeins einu sinni hafa
selzt fyrir hærri upphæð.
Sr. Jón Auðuns, formaður
Rauða-kross deildar Reykjavík-
ur, bað blaðið að færa öllum,
sem studdu þetta góða málefni
alúðarþakkir, ekki sízt bornun-
um, sem stóðu sig mjög vel við
söluna þrátt fyrir jökulkulda.
Fjórtán tíma hrakningur á
Fjarðarheiði
I FYRRADAG voru nokkrir
menn í 14 klukkustundir að
kostur að fara þessa 26—28
km leið á skemmri tíma.
bílinn svo að hann kæmist upp.
Það hefði verið nær óvinnandi
verk fyrir 2—3 menn að moka
alla þá leið með skóflum.
Fjóra tíma að komast 1 km.
berjast yfir Fjarðarheiði, frá
Seyðisfirði upp í Egilsstaði.
Voru þeir á snjóbíl og vel út-
búnir, en stórhríðin og ófærð-
in var svo mikil að ekki var
Dagskrá Alþingis
t DAG eru boðaðir fundír í báð-
um deildum Alþingis á venjuleg-
um tíma. Á dagskrá efri deildar
er eitt mál: Fyrningarafskriftir,
frv. — 3. umr.
Þrjú mál eru á dagskrá neðri
ðeildar: 1. Ráðstöfun erfðafjár-
skatts og erfðaíjár til vinnuheim
ila, frv. — 1. umi'. 2. Sala lands í
Vestmannaeyjum £ eigu ríkisins
og eignarnámshaimild á Ióðar- og
erfðafesturéttindum, írv. 1. umr.
3. Einkasala rikisins á tóbaki,
frv. 2. umr. Ef leyft veróur.
Til ferðarinnar var notaður
kanadískur snjóbíll á tvíbreiðum
beltum. Er hann útbúinn á svip-
aðan hátt og skriðdreki, þ.e. eng-
in skíði eru á honum. Fréttarit-
ari blaðsins, Sveinn Guðmunds-
son póstur, segir svo frá ferð
þeirra félaga.
Snjóýta á bílnum.
— Við lögðum af stað frá Seyð
isfirði kl. 10 fyrir hádegi og voru
bifreiðastjórar á snjóbílnum þeir
Þorbjörn Arnórsson og Árni Sig-
urbergsson. Snjóbíll Þorbjarnar
var vel búinn að öllu leyti. Ný-
lega hafði verið sett ýtutönn
framan á hann. Ferðin gekk vel
upp að Efri-Staf, þótt ófærð
væri mikil. Á Efri-Staf var allt
á kafi í fönn og snarbrattur
skafl utan í honum öllum. Nú
kom ýtutönnin sér vel, því gera
þurfti stall í skaflinn fyrir snjó-
Þarna vorum við nær 4 tíma
að brjótast eins kílómeters Ieið.
Eftir að upp á heiðina kom gekk
fremur hægt því alltaf var sama
ófærðin. Eftir að við komumst
upp fyrir Efri-Staf fórum við að
hafa áhyggjur af því að við hefð-
um ekki nægilegt benzín meðferð
is, því að þar tæmdist benzín-
geymir bílsins og höfðu þá eyðzt
70 lítrar það sem af var leiðinni.
Var nú tæmdur 18 lítra varabrúsi
á geyminn. Á Miðheiði var
benzíntunna, sem Þorbjörn á þar
geymda sem varaforða. Það stóð
á endum að benzínið var búið
þegar nokkrir metrar voru eftir
að tunnunni.
Ekið með raflínunni
Var nú sett benzín á bílinn og
tunnan tekin með. Enn herti
veðrið verulega og það svo að
ógerningur var að fylgja merkja
Framh. á bls. 23.
Stormsveipur
^ Á KORTINU má sjá öflugan
S stormsveip út af Norðaustur
| landi. Fór hann yfir Austur-
s land í gærmorgun og olli þar
S víðast vonzku hríð. Voru NV
• 8 vindstig og hríðarveður um
S allt með 11 stiga frosti á Norð
S austurlandi um hádegið. En
| svo var veðrið skýrt afmarkað
S að á Akureyri vau: logn á sama
i tíma. Stormsveipurinn er 6—
S 700 km í þvermál og hreyfist
S NA.
(
Ný lægð var SV í hafi og >
beindi hún hlýjum loftstraum -
norður á bóginn. s
Veðurútlit kl. 22 í gær- j
kvöldi. ■
SV-land og SV-mið: Suð- s
austan átt, hvasst og rigning S
síðd. Faxaflói og Breiðaf., |
Faxaflóamið og Breiðafj.mið: s
Suðaustan átt. Vestf. til NA- j
lands, Vestfj. mið til NA- \
miða: Norðan gola, él á ann- s
esjum og miðum. Austf. og >
SA-land, Austfj.mið og SV-'
mið: Gengur í vaxandi suð- i
austan átt með morgninum. i