Morgunblaðið - 13.03.1960, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.03.1960, Blaðsíða 16
16 MORCrwniAÐlÐ Sunnudagur 13. marz 1960 Hattar — Hattar Gamla verðið LONDON P. EYFELD Ingólfsstræti 2 — Sími 10199. Til sölu miðstöðvarketill, ásamt olíukynditæki (Gillbert) og Spíral hitavatnsdunk. — Upplýsingar í sima 34383. Dr. Gunnlaugur Þórðarson Landhelgi Islands íslenzk og frönsk útgáfa fæst í bókabúðum. Hla&búð Sveínsóíar og svefnbekkir Svefnbekkir úr eik, mah., teak Tveggja manna svefnsófar Skrifstofusksrifborð tvær gerðir úr eik, mah., teak Skr i f s tof u sk j al askápar Heimilisskrifborð tvær gerðir úr eik, mah., teak SófaborA c*7pfnstólar, standlampar og hansahillurr Húsga»-zlunin Skólavörðustíg 41. (Np'ta hús fyrir ofan Hvítabandið) Símar: 11381 — 13107 — 16593. Sigurður Einarsson vélsmiður — Á MORGUN fer fram útför Sig- urðar Einarssonar, en hann lézt í Landsspítalanum að kvöldi hins 6. þ.m. eftir erfið veikindi síð- ustu 18 mánuði. mianingarorð Sigurður var fseddur 29. okt. 1905 að Nýjabæ undir Eyjafjöll- um. Foreldrar hans voru Kristín Pálsdóttir og Einar Sveinsson, sem bjuggu þar allan sinn bú- Iskap, og hjá þeim ólst hann upp og dvaldist í stórum systkinahóp fram undir tvítugsaldur, að hann fór til Vestmannaeyja ög nam járnsmíði hjá Einari Magn- ússyni i Hvammi. Til Reykjavíkur fluttist hann árið 1928 og starfaði í Vélsmiðj- unni Héðinn til ársins 1942, að hann setti upp eigin vélsmiðju á- samt Lofti Árnasyni, en um tveim árum síðar tók hann við smiðjunni og rak hana undir eigin nafni til dauðadags. íslendingar höfðu vanizt því frá alda öðli, að sérhvert það tæki, sem nota þurfti í nútíma þjóðfélagi væri innflutt erlendis frá. En sem betur fer höfum við átt marga dugnaðar- og hug sjónamenn, sem sáu að íslenzkt efnahagslíf hiyti að byggjast á íslenzku framtaki. Sígurður Ein- arsson var einn af þessum braut- ryðjendum í sinni grein. Hann hóf snemma framleiðslu ísL miðstöðvarkatla, sem fyrir löngu hafa hlotið almenna viðurkenn- ingu og eru dreifðir um allt land. Hin síðari ár naut hann þar stuðnings tveggja elztu sona sinna, sem nú halda áfram starfi föðurins. Hmn 17. nóvember árið 1928 giftist Sigurður Guðrúnu Jóns- dóttur frá Yzta-Skála undir Eyja fjöllum ,h\nni ágætustu konu, sem nú syrgir sinn góða lífsföru naut, ásamt þrem sonum, tengda dætrum og barnabörnum, sem syrgja góðan föður og afa. Eina dóttur eignuðust þau, en misstu kornunga. Á hinu myndarlega heimili Sig- urðar Einarssonar og Guðrúnar að Þverveg 2, ríkti ávallt glað- værð, enda var hjónaband þeirra sérstaklega hamingjuríkt. Til þeirra var ávallt gaman að koma, því Sigurður var einn af þeim mönnum, sem ávallt hafði vekj- andi áhrif á samferðamennina og mér fannst ég alltaf fara betri af hans fundi en ég kom. >að er sár söknuður konu og börnum að sjá á bak góðum eig- inmanni og föður, en enginn má sköpum renna. Ég votta þeim mína ínnileg- ustu samúð. Það er mikils virði að eignast góðan og einlægan vin, sem setur sér það takmark i lífinu að breyta við aðra eins og hann vill að aðrir breyti við sig. Oddur Sigurðsson. að auglysing i stærsta og útbreiddasta blaðinu —eykur söluna mest — Húsaleiga Mig vantar 4—5 herbergja íbúð til leigu. Fyrsta flokks umgengni. Upplýsingar á mánudaginn 14. þ.m. í síma 35639. Sálarrannsóknarfélag ísiands heldur aðalfund sinn í Sjálfstæðishúsinu, mánudag- inn 14. marz kl. 8,30 e.h. Fundarefni: 2. Forseti félagsins fiytur erindi um miðla sem mála. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. STÓKNIN. Baðker n ý k o m i n pantana óskast vitjað Vatnsvirkinn h.f. Skipholti 1 — Sími 19562 Felgur — bremsuskálar gamla verðið Póstsendnm VÉLA og VAKAHLUTAVERZLUN Laugavegi 168 — Sími 10199. Atvinna Flugmálastjórnin óskar eftir að ráða stúlku til vél- ritunar og almennra skrifstofustarfa. Umsónir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, send ist skrifstofu minni á Reykjavíkurflugvelli fyrir 19. þessa mánaðar. FLU GMÁLAST JÓRINN. Auglýsing um starf Bæjarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að stofnuð verði deild í skrifstofu bæjarverkfræðings, er annist gatna- og sorphreinsun bæjarins, og að ráðinn verði maður til þess að veita henni forstöðu. Æskilegt er að hann hafi . verkfræðimenntun. Starf þetta er hér með auglýst til um- sóknar. Umsóknir sendist mér fyrir 1. apríl1 1960. Reykjavík, 10. marz 1960, BÆJARVEKFRÆÐINGURINN I REVKJAVlK. Simi 15300 Ægisgotu 4 BORÐKANTAR L A M I R S K R Á R GLUGG AHENGSLI ELDH ÚSSKÁPALÆSINGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.