Morgunblaðið - 24.04.1960, Page 6
6
MORCUrffíT AÐIÐ
Sunnudagur 24. apríl 1960
Úr verinu
Eftir Einar Sigurðsson
Togararnir
I>AÐ hefur gengið á ýmsu með
tíðarfarið sl. hálfan mánuð.
Fyrri vikuna gerði snarpa norð-
austanhrinu, en í sl. viku voru
ríkjandi vestan- og suðvestan-
áttir, með allmiklum sjógangi.
Togararnir hafa eitthvað tafizt
frá veiðum, en ekki mjög mikið.
Allflestir togararnir eru nú
við suðvesturlandið. en nokkrir
þó við Austur-Grænland.
Afli hefur verið allgóður hjá
sumum og mjög góður hjá öðr-
um, t. d. eins og Neptunusi og
Marz, sem báðir fengu yfir 250
lestir á tiltölulega stuttum tíma.
Togarar þeir sem eru á veiðum
við suðvesturland, hafa fengið
allmikið af ýsu, þetta 40—60
lestir.
Fisklandanir sl. 2 vikur:
Gerpir 134 t. 14 dagar
Marz 259 t. 9 —
Þorkell máni .. 25 t. 2 —
Neptunus .... 251 t. 7 —
Geir 207 t. 11 *
Hvalfell 117 t. 7 —
Sk. Magnúss. .. 229 t. 12 —
Fylkir . 272 t. 13 —
Ól. Jóhanness. . 125 t. 7 —
Ing. Arnars. . . 48 t. 13 —
saltfiskur 118 t.
Þorst. Ingólfss. . 46 t. 13 —
saltfiskur 94 t. —
Jón Trausti .... 68 t. 10 —
Þormóður goði . 228 t. 16 —
Gerpir .... um 100 t. 7 —
Askur 220 t. 13 —
Sölur erlendis sl. viku:
Hallv. Fróðad. . 175 t. £ 16.918
Karlsefni ...... 136 t. £ 14.009
Akurey ......... 185 t. £ 12.196
Jón Þorláksson . £ 16.500
Salan hjá Karlsefni er líklega
einhver bezta sala íslenzk tog-
ara í Bretlandi, miðið við magn,
fyrr og síðar.
Reykjavík
Tíð hefur verið stirð undan-
farið, skipzt á sunnan- og suð-
vestanáttir og léleg sjóveður og
stundum ekki komizt á sjó.
Aflabrögð hafa verið léleg og
yfirleitt margra nátta gamall
fiskur úr netunum. Fiskur hefur
farið minnkandi í Forunum, þar
sem smærri bátarnir hafa yfir-
leitt haldið sig. Hafa þeir yfir-
leitt verið að færa sig utar og
dýpra.
Mjög margar trillur eru nú
byrjaðar með handfæri, en hvoru
tveggja er að tíð hefur verið
erfið og eins, að afli hefur verið
frekar lítill. Síli er þó komið í
innbugtina, og vona menn, að
fiskur fari að glæðast úr þessu.
Aflahæstu
frá 1/3—22/4:
dagróðrabátarnir
Asgeir .... .......... 487 t.
Svanur ................. 487 -
Barði .................. 430 -
Hermóður ............... 370 -
Víkingur ............... 365 -
Kári Sölmundarson .... 355 -
Hrefna ............... 355 -
Aflahæstu útilegubátarnir frá
áramótum tii 22/4:
Guðm. í>órðarson ........ 816 t.
Helga .................. 758 -
Hafþór ................. 750 -
Björn Jónsson ......... 652 -
Rifsnes ................ 650 -
Auður .................. 602 -
Þegar vel viðrar og vel veiðist er sjórinn heillandi.
Keflavík
Sl. hálfan mánuð hefur verið
hin mesta ótíð miðað við árstið,
stöðugir sunnan- og suðvestan-
stormar, oft með stórsjó.
Afli hefur verið talsverður,
þegar gefið hefur, en fiskurinn
oftast verið mjög illa farinn
vegna tíðarfarsins og helgidaga.
Hefur fiskur yfirleitt ekki náðst
nýr á þessu tímabili utan tvisv- 1
ar sinnum. Elztur hefur fiskur-
inn orðið almennt 4ra nátta á 2.
í páskum og 3ja nátta í fyrradag.
Á fimmtudag reru 5—6 bátar,
og sneru allir aftur nema einn.
Þó fór einn af þeim, er sneru
aftur, að vitja um aftur upp úr
hádeginu. Fékk hann mesta
rudda á leiðinni út, en þegar
hann var búinn að draga eina
trossu, var komið bezta sjóveð-
ur. Hann dró síðan öll netin og
var að því alla nóttina og kom
að kl. 4 á föstudag með 45% lest
af fiski, og bótti mönnum þraut-
seigjan hafa borgað sig vel.
Þetta var Ólafur Magnússon frá
Keflavík. En hinn, sem hélt
áfram um morguninn, Jón Finns-
son, dró 3 trossur og kom um
kvöldið í Garðinn með 13 lestir
úr 3 trossum
Um miðjan mánuðinn höfðu
54 (54) bátar, sem eru á skrá,
farið 2.725 (2.189 1959) róðra og
aflað 21.392 (14.913 1959) lestir
af fiski.
Fimm aflahæstu bátarnir um
miðjan mánuðinn:
Askur ................. 836 t.
Ólafur Magnússon ...... 757 -
Jón Finnsson........... 679 -
Bjarmi ...........;.... 678 -
Guðm. Þórðarson........ 673 -
Akranes
Tíðin hefur verið mjög stirð
undanfarið, t. d. var aðeins vitjað
þrisvar um sl. viku.
Afli hefur verið rýr og mjög
misjafn.
Vertíðaraflinn í ár frá árs-
byrjun til 22. 4. er 12.000 lestir
1215 sjóferðum á móti 11.362
lestum alla vertíðina í fyrra.
Voru þá farnar 1075 sjóferðir.
Tíu aflahæstu bátarnir frá ára-
mótum:
Sigrún ................. 880 t.
Sigurvon ............... 806 -
Sigurður ............... 764 -
Sæfari ................. 740 -
Böðvar ................. 740 -
Ólafur Magnússon ....... 730 -
Höfrungur .............. 705 -
Sv. Guðmundsson ........ 700 -
Vestmannaeyjar
Róið hefur verið almennt alla
daga mánaðarins nema á föstu-
daginn langa og páskadag. Tíð
hefur samt verið mjög erfið til
sjósóknar, stormar af hafi og
yfirleitt sjór Margur báturinn
hefur aðeins dregið helminginn
úr
skrifar ,
daqleqa iifinu
]
•jUnga^fólkið_0£
dvrin.
þeim, sem á annan veg hugsa
og eiga sér önnur hugðarefni.
Það sýnir sig m. a. af bréfi,
sem „Velvakanda" hefur bor-
izt oe hér birtist:
Nú ríkir sorg í dúfnakofan-
um okkar.
Sorg í dúfna-
af netunum daglega, þótt farið
hafi verið.
Afli hefur verið óvenju tregur
um þetta leyti vertíðar, og páska
hrota var engin að þessu sinni.
Mjög langt er síðan fiskur hefur
brugðizt um páskana fyrr en nú,
ef það hefur nokkurn tíma kom-
ið fyrir, síðan farið var að nota
net.
Bátarnir hafa verið með netin
allt frá Stokkseyri og langleið-
ina austur að Ingólfshöfða og
alls staðar jafndautt, þótt ein-
staka bátur hafi verið að fá dag
og dag sæmilegan afla. Og sama
er að segja af aflabrögðum á
djúpmiðum suður og suðvestur
af Eyjum, þar hefur heldur ekk-
ert verið að hafa, sem heitið
geti.
Meðalafli hjá netabátum nú
mun vera um 500 lestir af ósl.
fiski.
Handfærabátar hafa sama og
ekkert fengið undanfarið, og
fjöldinn af þeim hefur ekki feng
ið nema 20—30 lestir af fiski
yfir vertíðina.
Tveir bátar róa með línu og
hafa aflað upp í 8 lestir á 25
stampa.
Lifrarsamlag Vestmannaeyja
hafði 22. apríl tekið á móti 3031
lest af lifur á móti 3170 lestum
á sama tíma í fyrra. Það sem af
er apríl er lifrarmagnið 660 lest-
um minna en í apríl í fyrra og
svarar það til 9000 lesta af
fiski, eða meðalvertíðarafla af
15 bátum.
Eftirtaldir bátar hafa fengið
yfir 700 lestir af fiski frá ára-
mótum:
Leó ..................... 983 t.
Stígandi ................ 958 -
Gullborg ................ 885 -
Eyjaberg ................ 807 -
Reynir .................. 803 -
Snæfugl SU .............. 779 -
Gjafar .................. 775 -
Gullver NS .............. 769 -
Ófeigur II .............. 758 -
Kári ....’............... 751 -
Bergur VE................ 741 .
Dalaröst NK ............. 739 -
Hafrún NK ............... 735 -
Víðir SU......"4......... 735 -
YNGRI kynslóðin hefur jafn-
i n gaman af að umgangast
dVrin, en til þess gefast ekki
ý) ja mörg tækifæri hér í
hc 'uðstaðnum. Hjá þeim
yo stu er það máske mesta
ævintýrið, þegar pabbi,
mamma eða þá eldri systkini
gefa sér tíma til að skreppa
með þau niður að Tjörn, til
þess að gefa öndunum eða
skoða svanina og kríurnar.
Hinir, sem svolítið eldri eru,
færast aftur á móti gjarna
meira í fang. Þeir hæna að
sér dúfurnar, byggja yfir þær
og sjá þeim reglulega fyrir
mat. Við þessar athafnir get-
ur unga fólkið unað sér lang-
ar stundir. Og slík iðja vekur
í brjóstum þess þá blíðu og
tillitssemi gagnvart lítilmagn-
anum, sem vissulega gætir
ekki um of í margra far
En það er ekki alltaf, sem
þetta fær að vera í friði iy.ir
• Dúfuhjónin með
ungana
„Kæri Velvakandi!
Gleðilegt sumar! Við erum
þrír drengir, sem erum búnir
að koma okkur upp dúfnahóp,
sem okkur þykir vænt um, og
við höfum búið þeim gott
heimili, við þeirra hæfi. Kof-
inn er lokaður með tveimur
lásum og allt mjög sterklegt.
Flestar af dúfunum eru bún
ar að para sig o^, ein hjón
voru komin með tvo unga.
Kerlingin er afar falleg og
heitir Karlotta, en hún varð
fyrir þeirri sorg, að annar ung
inn dó um páskana og þá var
bara annar eftir. En hún náði
sér fljótt og var hin ánægð-
asta með ungann sinn.------
kofanum
Sumardagurinn fyrsti er
hinn mesti gleðidagur barn-
anna og allt var nú ’eins og
áður gert til að gleðja okkur,
frá morgni til kvölds. Við
sofnuðum því þreyttir og
ánægðir. En á meðan hafa
vondar sálir brotið upp dúfna-
heimilið og rænt Karlottu og
tsara, sem var nýgiftur. Ung-
inn litli, sem var stolt heim-
ilisins var dáinn í morgun og
hefur dáið af kulda, því hinar
dúfurnar kunna ekki á það að
passa fyrir aðra.
,Kæri Velvakandi! Við biðj-
um þig að koma þessu áleiðis
og vonum, að þessir drengir
hafi ekki farið illa með Kar-
lottu og Isarann, því okkur
þykir svo vænt um þau.
Með beztu kveðju,
Hermann, Ingi og Gunni“.
Þetta var sagan sú.
í áttina til aukins frelsis
Nú er til meðferðar á Alþingi
frumvarp til laga um skipan inn-
flutnings- og gjaldeyrismála o.
fl., sem felur í sér mjög aukið
frelsi fyrir innflytjendur og raun
ar útflytjendur líka. Er þar lagt
til, að bæði innflutnings- og út-
flutningsnefnd verði lagðar nið-
ur og aðrar nefndir og mörg laga ,
ákvæði um ýmsar hömlur og í-
hlutun ríkisvaldsins felldar úr
gildi. Jafnframt er lagt til, að
numdar verði úr gildi allar fjár-
festingarhömlur.
Þeir sem trúa, að sem víðtæk-
ast frelsi í atvinnulífi og verzlun
sé bezt til þess fallið að auka
framfarir í landinu og bæta lífs-
afkomu þjóðarinnar, fagna þess-
um áfanga í þá átt að afnema öll
höft af atvinnulífinu og verzlun-
inni. Það er eitt sem víst er, að
frelsið er bétur fallið til að ná
þessum áfanga en ófrelsið, þótt
svo virðist sem ýmsir trúi hinu
gagnstæða.
Ófrelsið getur að vísu verið
misjafnlega mikið og hefur sjald
an verið meira að því er inn-
flutninginn snertir en á áratugn-
um fyrir stríð, þegar höfðatölu-
reglan var í gildi c»; skömmtunin
í algleymingi á stríðifrunum.
Af hverju vilja nú einstaka menn
ríghalda í ófrelsið? Það er af því,
að þeir m. a. vantreysta vöru-
skiptalöndunum til að standast
samkeppni.
Nú er það ekki svo, að við-
skiptin við vöruskiptalöndin séu
ekki æskileg fyrir íslendinga.
Það hefur lengst af verið þannig,
að erfitt hefur reynzt að losna
við útflutnmgsvörur þjóðarinn-
ar margar hverjar, nema þegar
stríð hefur verið. Að vísu er
þetta misjafnt, eftir því um
hvaða vörutegundir er að ræða.
Einkum hefur frosni fiskurinn
átt erfitt uppdráttar á heimsmark
aðinum og síldin. Þessi viðskipti
við vöruskiptalöndin hafa því ver
ið hin mikilvægustu fyrir íslend.
inga.
Hitt er annað mál, að íslending
ar þurfa að afla sér sem trygg-
astra markaða sem víðast, en
reynslan hefur kennt okkur, að
öruggustu markaðirnir eru þar,
sem byggt er á neytendaeftir-
spurn eftir vörunni. Og æski-
legast er þá, að varan sé seld
undir sérstöku vörumerki eins og
t. d. hraðfrysti fiskurinn, þannig
að neytandinn þekki vöruna, sem
hann er að kaupa. Þó á þetta
ekki við með saltfiskinn og
skreiðina, sem er ekki selt í neyt
endaumbúðum, en þá sem ís-
landsfiskur. Því er það, að á
seinni árum hefur, að því er
varðar frosna fisknin á hinum
frjálsa markaði, verið lögð á-
herzla á að byggja dreyfingar-
og sölukerfi, sem hafa einkennzt
af því að komast sem næst neyt-
endunum, ekkert ósvipað og olíu
félögin, þar sem frjáls sala er.
Hefur þetta sölufyrirkomulag
í för með sér, að Islendingar
hafa ekki orðið háðir stórum sam
steypum, sem seldu þá vöruna
undir eigin vörumerki og gætu
skipt um þann, sem pakkaði fyr-
ir þá, eftir geðþótta, auk þess
sem vænta má með þessu fyrir-
komulagi betra verðs.
Það getur aldrei verið álitamál
hjá borgaralega hugsandi manni,
að hann vilji að öðru jöfnu hafa
viðskipti við þser þjóðir, sem búa
við svipað þjóðskipulag og hann
aðhyllist. Það er líka svo, að
hinar vestrænu þjóðir búa yfir-
leitt við betri lífsafkomu, og
meiri kaupmátt. En þjóðskipu-
lagið ræður ekki úrslitum um
viðskiptin eins og áður segir, held
ur þörfin fyrir þau.
Það kann að vera, að hið aukna
frelsi hafi ýmis áhrif á utanríkis-
viðskipti fslendinga. Eimkum
munu þau birtast í aukinni sam-
keppni. Mun það veita almenn-
ingi meira og betra vöruval og
ódýrari vörur. En það kann að
koma illa vjð útflytjendur, a. m.
k. á meðan slíkt væri að ganga
yfir.
Það fer ekki hjá því, að jafn-
víðtækar breytingar og nú eru
á döfinni á efnahagskerfi þjóð-
arinnar hljóta að gera vart við
sig á ýmsum sviðum, en það er
trú og von þeirra, er að þeim
standa, að þær verði þjóðinni til
blessunar, er fram líða stundir.
SKÓ- og GÚMMÍVINNUSTOFA
Hallgríms Péturssonar
Selvogsgrunni 26.
MÁLFLUTNIN GSSTOF A
Einar B. Guðmundsson
Guðlaugur Þorláksson
Guðmundur Pétursson
Aðalstræti 6, III. hæð.
Símar 12002 — 13202 — 13602.
I. O. G. Tr
Víkingur
Fundur annað kvöld, mánudag,
í G.T.-húsinu. Félagsmál. Frá-
sagnarþáttur: Guðni Eyjólfsson.
— Æ.t.