Morgunblaðið - 24.04.1960, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 24. apríl 1960
TTtg.: H.f Arvakur Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
JBitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Asknftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
UTAN UR HEIMI
LJRSLITATILRAUN
¥jAÐ er nú auðsætt orðið,
að meðal þeirra 18 ríkja,
sem staðið hafa að tillögu um
óskert 12 mílna fiskveiðitak-
mörk á Genfarráðstefnunni,
er upp kominn mikill ágrein-
ingur og óeiníng. Aðeins 10
þessara ríkja hafa getað kom-
ið sér saman um nýja tillögu,
.sem í aðalatriðum heldur þó
fast við 12 mílna fiskveiði-
takmörkin. Nokkur þeirra
hafa opinberlega gengið til
liðs við hina sameiginlegu til-
lögu Kanadamanna og Banda
ríkjamanna um 12 mílna
fiskveiðilandhelgi og 10 ára
sögulegan rétt til þess að
fiska á ytri 6 mílunum.
Mikil vonbrigði
Um það þarf ekki að fjöl-
yrða, að þessi þróun mála á
■Genfarráðstefnunni eru ís-
lendingum hin mestu von-
brigði. Sendinefnd okkar hef-
nr af festu og dugnaði barizt
gegn hinum sögulega órétti.
INú, þegar miklar líkur eru til
að tillaga Bandaríkjanna og
Kanada nái samþykki, hefur
íslenzka sendinefndin gert
lirslitatilraun til þess að
hindra að hin svokölluðu
sögulegu réttindi komi til
framkvæmda gagnvart þjóð-
um, sem eru yfirgnæfandi
háðar fiskveiðum við strönd-
ina um afkomu sína eða efna-
hagsþróun.
Um það skal ekkert full-
yrt, hvernig þessari tilraun
islenzku sendinefndarinnar
til þess að losa íslendinga
undan órétti sögulega réttar-
ins reiðir af. En allir þeir,
sem hugsa fyrst og fremst
um hagsmuni íslendinga
hljóta að vera sammála um
það, að sendinefnd okkar bar
að gera þessa tilraun til að
tryggja hagsmuni þjóðar
sinnar.
Hagsmunir íslands
aðalatriðið
Það er vissulega mjög
ömurlegt að tveir fulltrúar í
íslenzku sendinefndinni í
Genf, þeir Hermann Jónas-
son og Lúðvík Jósefsson,
skuli hafa skorizt úr leik og
neitað að eiga þátt í flutningi
fyrrgreindrar tillögu, sem er
lokatilraun Islendinga til þess
að tryggja hagsmuni sína.
Það er auðvitað hrein firra,
sem kommúnistablaðið Þjóð-
viljinn heldur fram í gær, að
með þessari tillögu íslend-
inga séu þeir að „svíkja 12
mílna ríkin“. íslendingar eru
með tillögu sinni þvert á
móti að gera tilraun til þess
að hindra að hinum sögulega
órétti verði þröngvað upp á
þá sjálfa og aðrar fiskveiði-
þjóðir, sem eru yfirgnæfandi
háðar fiskveiðum um afkomu
sína og efnahagsþróun.
Vitanlega ber íslenzku
sendinefndinni fyrst og
fremst að hafa hagsmuni
íslands fyrir augum. Um
það hljóta allir þeir ís-
lendingar, sem ekki láta
fyrst og fremst stjórnast
af annarlegum sjónarmið-
um, að vera sammála.
Konungssnekkjan Britannia.
rúðkaupsf
HÚSGAGNA-
SÝNINGIN
¥ TNDANFARNA daga hefur
staðið yfir sýning í
Reykjavík á vegum Félags
húsgagnaarkitekta. Eru þar
sýnd húsgögn, sem ekki hafa
verið smíðuð hér áður. Sjálf-
sagt munu skiptar skoðanir
unl einstaka hluti á sýning-
irnni, en menn ættu að geta
verið sammála um, að margir
þeirra eru mjög athyglisverð-
ir og fallegir. Og vönduð
smíði mun einkenna þá alla.
Vekur til íhugunar
Þessi sýning er lofsvert
framtak fámenns félags, sem
almenningur kann vel að
meta, svo sem sjá má af að-
sókninni. íslenzkir húsgagna-
arkitektar og húsgagnasmiðir
standa nú orðið nálægt fær-
ustu starfsbræðrum sínum
erlendis, hvað smekk og
kunnáttu snertir. Um verð-
lagið er óvissara. Þó er ekki
víst að miklu muni, nú þegar
hægt er að fara að gera eðli-
legan samanburð, eftir leið-
réttingu gengisskráningarinn-
ar. —
Þessi sýning vekur menn
til umhugsunar um hvað
hægt er að gera, þegar list-
rænn áhugi og smekkvísi
ráða miklu um framkvæmd-
ir. —
MARGRÉT prinsessa og Antony
Armstrong-Jones hafa ákvcðið að
eyða hveitibrauðsdögum sínum á
siglingu um Karabiska hafið.
Eins og kunnugt er lánaði
Elísabet drottning systur sinni
brezku konungssnekkjuna Brit-
annia til afnota í brúðkaupsferð-
ina, og verður haldið úr höfn
þann 6. maí n.k. og reiknað með
að ferðin taki um sex vikur. Ekki
hefur verið tilkynnt neitt um það
hvar hjónin koma við í ferðinni.
Margrét prinsessa hefur áður
komið á þessar slóðir og varð
mjög hrifin af íbúum eyjanna,
sem gáfu henni nafnið „Kalypso
prinsessan“.
Verið að gera sjóklárt
Snekkjan Britannia liggur nú
í höfn í Fortsmouth, þar sem ver
Hrossa-
kaup í
Cenf
Þórshöfn, Fœreyjum, 21.
apríl. Frá fréttaritara Mbl.
ERLENDUR Patursson, sem
á sæti í dönsku sendinefnd-
inni á sjóréttarráðstefnunni
í Genf, hefur sent færeyska
blaðinu „14. september“
fréttabréf frá ráðstefnunni
dags. 12. apríl. Birtir blað-
ið bréfið í dag, og segir
þar m. a.:
„Danmörk hefði fegin
skilyrðislaust tekið við
bandarísk-kanadíska upp-
skotinu (tillögunni), en af
færeyskum stjórnmálaleg-
um ástæðum varð ekki úr
því. Strax og fréttist um
uppskotið fóru dönsku
sendimennirnir að samráð-
ast við Breta á bak við
tjöldin og sérlega við enska
fiskimálaráðherrann og nú
í dag hefur þessi dansk-
enski hrossahandil verið
gjörður. Hann er á þann
veg að Danir skuli greiða
uppskotinum atkvæði ó-
breyttum, en á móti komi
1 brezk-danskur baksamning-
ur, sem styttir sögulegan
veiðirétt Breta við Fær-
eyjar úr 10 árum í 5—6 ár.
Um beinar grunnlínur verð-
ur ekki talað.
Þessi afstaða Dana er
hreint og gróflegt brot gegn
afstöðu og samþykkt lög-
þings Færeyja, og einnig
gengur hún gegn fyrir-
skipan þeirri sem færeysku
sendimennirnir fengu með
sér þá þeir fóru frá Fær-
eyjum.“
Í \ J
Hjónaefnin.
ið er að mála hana hátt og lágt
fyrir ferðina, og vinna við það
um sjötíu manns úr landi auk j
áhafnarinnar, sem er um 250
manns, en áhöfnin vinnur einnig
að því að koma fyrir vistum
og gera skipið sjóklárt.
Þessi brúðkaupsferð Margrétar
er ólík þeirri sem Elísabet fór
er hún giftist árið 1947. Vegna
ástandsins eftir stríðið varð ekk-
ert úr langri brúðkaupsferð, held
ur eyddu hjónin hveitibrauðs-
dögum sínum á heimili fjölskyldu
Filipusar og í Balmoral í Skot-
landi.
Sæmilegt skip
Britannia er 4.700 lestir að
stærð, rúmlega 125 metrar á
lengd ( til samanburðar má geta
þess að Gullfoss er tæplega 3,900
lestir, 102V2 metri á lengd). Var
snekkjan smíðuð árið 1953 og
kostaði þá um kr. 265 milljónir,
miðað við núverandi gengi. Brit-
annia er að sjálfsögðu búin „öll-
um nýjustu tækjum“, eins og
sagt er um mótorbátana okkar,
þegar þeir koma nýjir til lands-
ins, og er venjulegur ganghraði,
þegar ekki liggur mikið á, 21
míla.
Það hefur sætt nokkurri gagn-
rýni í brezkum blöðum að lagt
skuli í allan þennan kostnað í
sambandi við brúðkaupið, en því
svarað til að konungssnekkjan
þurfi ekki meira viðhald en önn-
ur skip flotans, og að ef til styrj-
aldar kæmi, væri unnt að breyta
henni í spítalaskip, með rúmum
fyrir 200 sjúklinga.
Húsnæðismálin leyst
Þegar prinsessan og maður
hennar koma heim úr brúðkaups
ferðinni ■ munu þau sennilega
setjast að um tíma hjá móður
hennar í Clarence House, meðan
lokið er að breyta hallarvæng
í Kensington, sem drottningin
gaf þeim nýlega.
Fornleifarannsóknir
1
Grænlandi
KAUPMANNAHÖFN, 22. apríl.
Einkaskeyti tii Mbl. — Sex forn
leifafræðingar og sex aðstoðar-
menn þeirra munu í sumar vinna
að jarðvegsransóknum i Itivnera
dalnum við Godthábsf jörð á
Grænlandi á vegum danska þjóð
minjasafnsins. í mýri, sem þarna
er, hafa fundizt merkilegar leifar
fjögurra þjóðmenninga; en það
eru:
í fyrsta lagi Saraqþjóðflokkur-
inn, fyrstu Eskimóarnir, sem
fluttust frá Alaska fyrir þrjú til
fjögur þúsund árum.
1 öðru lagi Dorsetþjóðflokkur-
inn, Eskimóar frá Kanada sem
bjuggu í nokkrar aldir í Græn-
landi fyrir um 2.000 árum, en
dóu út vegna veðurfarsbreytinga.
í þriðja lagi Thuleþjóðflokkur-
in, sem núlifandi Eskimóar eru
komnir af.
í fjórða lagi íslenzklr land-
námsmenn og afkomendur þeirra.
Grænlenzki hreindýraeigand-
inn Jens Rosing uppgötvaði þetta
svæði fyrir nokkrum árum, en
hann starfar nú við safnið og
mun taka þátt í rannsóknunum.
Vonir standa til að þarna finnist
leifar af steináhöldum, beináhöld
um og tréáhöldum, en kolefna-
rannsóknir geti gefið uppl. um
aldur leifanna og veðurfarsbreyt-
ingar. Rannsóknirnar munu vænt
anlega gefa nánari uppl. um hin-
ar ýmsu orsakirnar fyrir því að
þær dóu út um sambandið milli
afkomenda Islendinganna og
Eskimóanna í þau 100 ár eða svo
sem þessir tveír þjóðflokkar
bjuggu hlið við hlið.