Morgunblaðið - 20.05.1960, Side 19
Föstudagur 20. maf 1960
MORCVNBL4Ð1Ð
19
Athugosemd
frá stjórn murara-
félags Reykjavíkur
ÞJÓÐVILJANUM var send hjá-
lögð athugasemd vegna frétta-
klausu, sem birtist í blaðinu 4.
þ. m., en þar sem blaðið hefur
ekki enn séð fært að birta hana,
viljum við vinsamlegast biðja
yður um birtingu á athugasemd
þessari í blaði yðar.
Stjórn Múrarafélags
Reykjavíkur.
Reykjavík, 9. maí 1960.
Til ritstjórnar Þjóðviljans,
Reykjavík.
Vegna fréttar, sem oirtist í
blaði yðar 4. þ. m., um tillögu,
sem samþykkt var á fundi félags
vors 26. apríl sl., viljum vér leyfa
oss að taka fram eftirfarandi:
Eins og fyrrgreind tillaga var
birt í blaði yðar, var hún aldrei
rædd eða samþykkt á fundi í
félagi voru. Ennfremur var rangt
skýrt frá atkvæðatölum. Á um-
ræddum fundi voru 68 félags-
menn, þegar flest var.
Að gefnu tilefni viljum vér
enn ítreka, að samkvæmt 13. gr.
laga félagsíns, sem hljóðar svo:
„Engin innanfélagsmál má birta
utanfélagsmönnum, nema stjórn
félagsins hafi áður samþykkt frá
sögnina og orðalag hennar“.
Það væri æskilegt, að þau blöð
sem hafa áhuga á að birta það
sem gerist á fundum félags vors
leituðu til stjórnar félagsins,
svo að öruggt sé að fréttir af
starfsemi félagsins séu sannleik-
anum samkvæmar.
Virðingarfyllst,
f. h. Múrarafélags Reykjavíkur,
Einar Jónsson (sign)
form.
Barnaskóla ísa-
fjarðar lokið
ÍSAFIRÐI, 17. maí. — Barna-
skóla ísafjarðar var slitið við há
tíðlega athöfn í Templarahúsinu
í gær. Jón H. Guðmundsson skóla
stjóri, flutti skólaslitaræðuna og
afhenti þeim nemendum, er skar
að höfðu fram úr við námið, verð
laun. í vetur stunduðu 372 nem-
endur nám í skólanum í 17 bekkj
ardeildum. Barnaprófi luku 67
nemendur og hlaut Auðunn Finns
son hæstu einkunn, 9.1, en þrjú
börn fengu yfir 9 í aðaleinkunn.
Skólastjóri gat þess að meðal
einkunn í landsprófsgreinum
hefði verið hærri en áður,
þannig var meðaleinkunn í lestri
9,0, ritgerð 8.0, réttritun 7.5 og
reikningi 7.9. Síðastliðið ár voru
þær: lestur 7.5 og reikningi 7,9,
réttritun 7.3 og reikningur 7.9.
Á undan og eftir ræðu skóla-
stjóra sungu nemendur undir
stjórn söngkennara skólans Ragn
ars H. Ragnars. —J.
[ðnskóla Siglu-
f jarðar sagt upp
SIGLUFIRÐI, 18. maí. — Iðn-
skóla Siglufjarðar var sagt upp
síðasta vetrardag. Skólinn starf-
aði í 3 ár bekkjum og voru nem
endur 42. Fjórði bekkur starf-
aði ekki að þessu sinni og voru
því engin burtfararpróf tekin, en
37 nemendur luku bekkjarpróf-
um. Hæstu einkunn í skólanum
hlaut Hafþór Rósmundssson í 2.
bekk, 9,17 og hæstu einkunn í
3. bekk Jóhann Andrésson, 8.86.
Skólinn er síðdegisskóli og er
til húsa í nýju gagnfræðaskóla-
byggunni.
Skólastjóri er Jóhann Þor-
valdsson, en auk hans starfa sjö
kennarar við skólann.
—Stefán.
Laugarássbíó
Sjón er
sögu ríkarl
ttarrinc
fiOSSANO 8RAZZI • MITZIGAYNOR • JÖHN KERR • FRANCE NUYEN
fcihiHne RAY WALSTON • juanita hau
Produced by Drrected by
BUDDY AÐLER - JOSHUA LÖGAN
Screenplay by
PAUL OSBORN
db,2CA
CENTURV-FOK
A MAGNA Froduction • STEREOPHONtC SOUND • to the Wonder of High-Fidefity
S I G
Kvikmyndahússgestir gleyma því að um kvikmynd
sé að ræða, og finnst sem þeir standi sj.álfir aug-
liti til auglitis við atburðina.
Sýning hefst kl. 8,20.
Aðgöngumiðar verða seldir frá kl. 2 í Laugarás-
bíói og kl. 2—5 í D.A.S. Vesturveri. Ekki tekið á
móti pöntunum í síma fyrstu sýningardagana.
Alvörukronan
eftir Túkall.
Sýning í kvöld kl. 8,30 í Kópavogsbíói.
Aðgöngumiðasala kl. 5. — Sími 19185.
Síðasta sýning í Kópavogi í vor.
Silfurtunglið
L I N E VALDORF — NÍTI SHOW
Turkisch dans, Orginal Franch Can-Can
Moulin Rouge Paris 1900.
Hljómsveit RIBA — Dansað til kl. 1.
Matur framreiddur frá kl. 7
Borðpantanir í síma 19611.
SILFURTUNGLIÐ
Dansleikur
í kvold kL 21
sextettinn
Söngvarar:
ELLÝ og ÖÐINN
IIMGÓLFSCAFÉ
Gónralu dansarnir
1 KVÖLD KL. 9.
Dansstjóri: l»órir Sigurbjörnsson.
Aðgóngumiðasala frá kl. 8 — Sími 12826
gömlu dansarnir
í kvöld — Silli stjórnar
Ókeypis aðgangnr
Tjarnarcafé
Dýriirðingafélogið í Reykjovík
Gróðursetningarferð í Heiðmörk sunnudaginn 22.
þ. m. kl. 13.30 frá B.S.Í.
Félagar góðfáslega mætið vel og stundvíslega.
NEFNDIN.
Félagslundur Gaulverjabæjarhreppi
Dansleikur í kvöld
Hljómsveit Óskars Guðmundssonar
Söngvari: Þorsteinn Guðmundsson
Sætaferðir frá B.S.Í. kl. 8,30. — Frá Hvera-
gerði kl. 9 og frá Selfossi kl. 9,30.
FÉLAGSLUNDUR.
SINFÓNfUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
TÓIVLEIKAR
i Þjóðleikhúsinu í kvöld kl. 20,30.
Stjórnandi: dr. VACLAV SMETÁCEK
Einleikari: BJÖKN ÓLAFSSON
Efnisskrá:
GLUCK: Forleikur að óperunni „Iphigenia in Aulis“
BEETHOVEN: Fiðlukonsert í D-dúr op. 61.
SCHUMANN: Sinfónía nr. 4 í d-moll op. 120
Aðgöngumiðar seldir í Þjóðleikhúsinu.