Morgunblaðið - 20.05.1960, Page 23
Fðstudagur 20 maí 1960
MORGVNBLAÐIti
23
Sýning Harðar Agústssonar listmálara á teikningum stendur
nú yfir í .sýningarsal Ásmundar Sveinssonar við Freyjugötu,
og birtist hér ljósmynd af einni teikningunni. Sýningin er
opin 5—10 e .h. daglega og 2—10 á sunnudag.
— Berlín
Framh. af bls. 1.
úr flugvélinni. — Við brottför-
ina frá París hafði forsetinn lýst
vonbrigðum sínum yfir hinum
misheppnaða fundi, en jafnframt
sagt, að Vesturveldin hefðu nú
fylkt sér enn fastar sáman en
áður vegna þessa áfalls.
— ★ —
James Hagerty sagði á blaða-
mannafundi í Lissabon, að for-
setinn væri algerlega uppgefinn
orðinn á framkomu og duttlung-
uin Nikita Krúsjeffs — og hann,
eins og öll bandaríska sendi-
nefndin á toppfundinum, væri
feginn að hvíla sig frá slíku í
bili.
★ TILTÖLULtua HÓGVÆB
Krúsjeff var tekið með kost-
inn og kynjum af íbúum Aust-
ur-Berlínar, er hann steig út úr
flugvél sinni á Schönfeld-flug-
vellinum, eins og fyrr segir —
enda höfðu stj'órnarvöldin skor-
að á almenning að fjölmenna til
þess að fagna sovétleiðtoganum.
Walter Ulbricht, foringi austur-
þýzkra kommúnista, beið hans á
flúgvellinum með útréttar hend-
ur — og féllust þeir „félagarn-
ir“ í faðma með miklum kær-
leikum. — í stuttri ræðu réðist
hann enn að Bandaríkjunum fyr-
ir að koma leiðtogafundinum á
kaldan klaka — en þótti þó til-
tölulega hógvær, miðað við ofsa
hans undanfarna daga. Hann
sagði t. d., að það væri sannfær-
ing sín og stjórnar sinnar, að
„heilbrigð skynsemi" mundi fyrr
eða síðar „ná yfirhöndinni í
samskiptum þjóðanna“. Hann
kvað augljóst, að þau öfl, sem
ekki kærðu sig um bætta sam-
búð austurs og vesturs, hefðu nú
„náð yfirhöndinni“ í Bandaríkj-
unum, í bili a. m. k. — en stjórn
sín mundi „gera allt“ til þess,
að mögulegt yrði að halda ann-
an leiðtogafund eftir 6—8
mánuði.
Á meðan þessu fór fram, á-
varpaði Willy Brandt, borgar-
stjóri Vestur-Berlínar, löggjaf-
arsamkomunduna þar, og kvaðst
ekki ætla, að draga mundi til
neinna stórtíðinda á meðan
Krúsjeff dveldist í Berlín. Borg-
arstjórinn kvað íbúa Vestur-
Berlínar bíða rólega þróunar
mála og lét í ljós „óbifandi trú“
á, að Vesturveldin mundu haida
verndarhendi sinni yfir borginrti
gegn hvers konar ésókn knmm-
únisia.
★ TIL MOSKVU A
LAUGABDAG
Ummæli Willy Brandts
koma heim við það, sem haft
var eftir ábyrgum heimildum í
Austur-Þýzkalandi í gær, að
ekki væri gert ráð fyrir að
Sovétríkin gerðu sér-friðar-
samning við Austur-Þjóðverja
fyrr en eftir að loknum öðrum
leiðtogafundi eftir 6—8 mánuði.
— Sömu heimildir sögðu, að
Krúsjeff mundi halda heim til
Moskvu á laugardag — og síð-
an flytja Æðsta ráðinu skýrslu
um leiðtogafundinn og fyrirætl-
anir sínar um greinda friðar-
samninga.
— * —
Þess má geta, að það er haft
eftir heimildum í París, sem
standa kommúnistaflokknum
mjög nærri, að næsta skref
Krúsjeffs mundi verða að boða
til alþjóðlegs fundar um friðar-
samninga við Þýzkaland.
★ FJÖLDAFUNDUR
Skömmu eftir að Krúsjeff
kom til Berlínar hóf hann við-
ræður við Grotewohl, forsætis-
ráðherra, og flokksforingjann
Ulbricht. 1 dag mun hann síðan
ávarpa fjöldafund, sem haldinn
verður á íþróttaleikvangi. Upp-
haflega átti hann að tala þegar
í gær á útifundi á Marx Engels-
torginu, þar sem 25 sinnum fleiri
áheyrendur hefðu komizt fyrir
en á íþróttaleikvanginum — en
þeim fundi var aflýst.
— Sjóstangaveiði
Framh. af bls. 24.
fiskinn, miðlungsstóra keilu og
varð almenn hrifning um borð.
Þarna voru tveir aðrir Englend-
ingar, tveir Fransmenn og tveir
fslendingar, þeir Jóhann Sigurðs-
son, fulltrúi Flugfélagsins í
Lundúnum og Halldór Snorrason,
bílasali með meiru.
Aftur dró Mr. Shilling keilu án
þess að aðrir yrðu varir og færð-
ust hinir kappsfullu Fransmenn
þá í aukana. Leið ekki á löngu
þar til annar þeirra dró tvær
keilur samtímis og gaut horn-
auga sigri hrósandi til Mr. Shill-
ing. Og skömmu síðar svignaði
stöngin hjá hinum Fransmannin-
um ferlega og dró hann þrjá smá-
upsa, því hann hefur marga öngla
á færinu.
Upsinn rotaður
Átti Fransmaðurinn í stíma-
braki við að losa fiskana af öngl-
unum, þeir sprikluðu á þilfarinu
og skruppu alltaf úr höndum
hans. Dró hann þá úr pússi sínu
forláta klaufhamar, miðaði vand-
lega á haus eins upsans og högg-
ið reið af. Upsinn bærði varla
uggana eftir þetta vel útilátna
högg og gekk þá greiðlega að
losa hann.
Þegar hér var komið sögu var
búið að stilla ljósmyndavélarnar
og veiðifélagarnir vildu ólmir
taka myndir af aflaklónni. Fór
álíka mikill tími í að krækja ups-
anum aftur á öngulinn, því allir
urðu að vera með á myndinni.
Þorskurinn lánaður til
myndatöku
Jóhann Sigurðsson dró nú stór-
an þorsk, sem reyndist vera 24 tfe
pund og var gaman að sjá hversu
veiðimannlega honum tókst að
innbyrða skepnuna. Lögðu nú all-
ir frá sér stengurnar og hófu að
ljósmynda Jóhann með stórfisk-
inn. Því keppnin var ekki nafin
og engin ástæða til að sleppa svo
góðu tækifæri til ljósmyndunar.
— Síðan fengu Fransmennirnir
þorskinn lánaðan hjá Jóhanni og
tóku myndir hvor af öðrum með
gripinn, sem væntanlega verður
til að auka hróður þeirra, þegar
heim til Parísar kemur.
Bátarnir lágu þarna í hnapp,
með íslenzka fánann við hún, og
létu reka austur undan Suðurey.
Veiðimennirnir kölluðu oft á
milli bátanna, og veifuðu stærstu
fiskunum hver framan í annan.
Menn hlógu og gerðu að gamni
sínu.
Steinbíturinn þótti ljótur
Mr. Shilling var að velta vöng-
um yfir því, hvernig fótbolta-
leikurinn í Glasgow í gærkvöldi
hefði farið, þegar snögglega var
kippt í og stöngin svignaði mik-
ið. Eftir erfiðan drátt kom i ljós,
að hann hafði sett í stærðar stein
bít, fisk sem Mr. Shilling hafði
aldrei séð öðru vísi en á pönn-
unni. Þótti honum dýrið ljótt og
varð hálf feiminn við að taka á
því. En með góðra manna aðstoð
tókst að ná önglinum út úr þeim
gráa, sem þó var ekkert áhlaupa-
verk. Fylgdist öll áhöfnin með
viðureigninni, og hrósuðu Frans-
Fl fer fjórar ferðir um helgina
FERÐAFÉLAG fslands' ráðgerir
tvæi- tveggja daga férðir og tvær
eins dags ferðir um helgina. Á
laugardag kl. 2 verður lagt af
•stað í Landmannalaugar og Þór
mörk. Og kl. 9 á sunnudagsmor
un I gönguferð á Esju og ök1
ferð í Brennisteinsfjöllin.
mennimir happi að lenda ekki á
sliku kvikindi.
130 fiskar
Þannig leið fyrsti dagurinn, og
þegar Sigrún sigldi inn á höfn-
ina, stóðu veiðimennirnir bros-
andi á þilfari. Þeir höfðu veitt 130
fiska yfir daginn, mestmegnis
þorsk, keilu og ýsu, en með villt-
ust afbrigðilegar tegundir, eins
og steinbítur og karfi.
Ekki liggja fyrir tölur um hver
var aflahæstur í dag, því í
reynsluferðinni veiddu allir í
sömu stíu. Bandaríkjamaður af
Keflavíkurflugvelli dró stærsta
fiskinn, 40 punda þorsk og var
veiðimaðurinn brosleitur eins og
nærri má geta. Á sama báti var
eini kvenmaðurinn, sem tekur
þátt í keppninni, ungfrú Gower
frá London, kona komin af létt-
asta skeiði. En hún stóð sig eins
og hetja og dró 14 fiska. Hún
hefði sjálfsagt dregið fleiri, ef
báturinn hefði ekki orðið að
halda til hafnar á undan öðrum,
vegna þess að ekkert salerni var
á þeim báti.
Mótstjórnin skaut á skyndi-
fundi í kvöld, til að ræða málið
og var ákveðið að ungfrúin skyldi
flutt yfir á annan bát í fyrramál-
ið, stærri bát, sem hefur öll nauð-
synleg þægindi.
Góður undirbúningur
Undirbúningur mótsins hefur
gengið prýðisvel, þrátt fyrir ýmsa
byrjunarörðugleika og hafa þeir
Jóhann Sigurðsson, Njáll Símon-
arson, Pétur Einarsson og Stein-
ar umboðsmaður Flugfélagsins
hér borið hita og þunga dagsins.
Á morgun hefst svo keppnin,
sem bæði verður einstaklings-
keppni og mælikvarði á aflasæld
hinna ýmsu þjóða, sem hér eiga
sína fulltrúa. Þykja Bandarikja-
menn og Bretar einna sigurstrang
legastir, en Frakkland er líka
stórveldi og sagðist Fransmaður-
inn í súðarherberginu á HB ætla
að fara snemma í háttinn í kvöld.
— H.J.H.
Fjallaferðir
Guðmimdar
Jónassonar
GUÐMUNDUR Jónasson fjallabíl
stjóri ráðgerir ýmsar fjállaferðir
næstu helgar. Á laugardaginn nk.
kl. 2 fer hann í Landmannalaug-
ar með ferðafólk og verður komið
aftur í bæinn á sunnudagskvöld.
í næstu viku á eftir ráðgerir
hann helgarferð að Hvítárvatni.
Lagt verður upp í ferðina kl. 2
á laugardag. Og um hvitasunnu-
helgina eru í undirbúningi tvær
ferðir, önnur á Snæfellsjökul, hin
að Hagavatni. Verður lagt af stað
í báðar kl. 2 á laugardag og kom-
ið í bæinn að kvöldi annars hvíta
sunnudags. Hefur Guðmundur
tryggt sér samkomuhúsið á Arn-
arstapa til gistngar í Snæfellsnes
ferðinni. Á að ganga á jökulinn á
hvítasunnudag, en aka til Sands
og Ólafsvíkur og kringum jökul-
inn á leiðinni heim á annan. í
Hagavatnsferðinni verður gengið
á Langjökul o. fl. á hvítasunnu-
dag og ekið um Þingvelli heim á
annan.
<s> Robert Schumann
/50 ára afmælis
Schumanns minnzt
á síðustu sinfoníuhljc mleikum ó vorinu
HINN 8. n: m. eru liðin 150 ár
frá fæðingu þýzka tónskáldsins
Roberts Schumanns, og verður
þess minnzt með því, m. a., að
flutt verður verk eftir hann, sin-
Engel Lund syng-
ur ekki í kvöld
SÓNGSKEMMTUN sú sem Engel
Lund ætlaði að efna til sL þriðju
dag, en aflýsa varð vegna veik-
inda söngkonunnar, getur ekki
orðið í kvöld. Verður nánar til-
kynnt þegar söngskemmtunin get
ur farið fram. Seldir miðar verða
endurgreiddir eða gilda á hljóm-
leika söngkonunnar er af þexm
getur orðið.
fónía nr. 4 í d-moll, á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands í
Þjóðleikhúsinu í kvöld. Tónleik
arnir hefjast kl. 8,30 og eru þetta
síðustu tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar hér í Reykjavík á
þessu vori. Stjómandi er dr.
Véclav Smetácek frá Prag og ein
ari Bjöm Ólafsson fiðluleikari.
Önnur viðfangsefni á þessum
tónleikum eru forleikur að óper-
unni „Iphigenia in Aulis“ eftir
Gluck og fiðlukonsert í D-dúr
eftir Beethoven, eitt hið merk-
asta og fegrusta verk sinnar teg-
undar, sem samið hefur verið.
ÖRN CLAUSEN
héraðsdomslögmaður
Málf’utningsskrifstofa.
Bankastræti 12. — Sími 18499.
Eiginmaður minn
ÓLAFUR ASMUNDSSON
fyrrverandi verkstjóri, Miðteigi 6 Akranesi,
andaðist í sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt 19. þ. m.
Fyrir hönd vandamanna.
Helga Oliversdóttir.
Við þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og jarðarför
JAKOBlNU GlSLADÓTTUR
frá Snæfjöllum.
Börn og aðrir aðstandendur.
SS'anSg