Morgunblaðið - 17.07.1960, Qupperneq 15
Sunnudagur 17. júlí 1960
MORGVNBLAÐIÐ
15
oft og t>ví sýnist. Fólk mun
alltaf lesa bækur.
— Þér leggið mikið upp úr
persónulegu sambandi við höf
unda?
— Já, mjög mikið. Hvað
getur bókaútgefandi gert án
höfunda?
— Hvað viljið þér segja im
yðar eigin bækur? •
— Ég geri engar kröfur til
rithöfundarnafns. Ég hef skrif
að bækur mínar í ákveðnum
tilgangi. Margir halda að það
sé eitthvað dularfullt við bóka
útgáfu. Það er ekkert „dular-
fullt“ við bókaútgáfu og það
hef ég reynt að sýna fram á.
Bókaútgáfa krefst mikillar
skipulagningar og stundum
svolítillar áhættu. Bókaútgáfa
er lifandi starf. En hún er
engin góðgerðastarfsemi. Ég
er oft reiðubúinn til að gefa
eigin vinnu en bók verður
alltaf að standa undir beinum
kostnaði svo sem prentun,
pappir og bandi. Hins vegar
er bókaútgáfa allt annað en
þurr og köld gróðastarfsemi.
Ég heyri fólk oft segja um
fræga rithöfunda: „Hvað mér
þætti gaman að heyra skoðun
hans á þessu“. Við getum
heyrt skoðun rithöfundanna á
bókum þeirra og það miklu
betur en í tilviljanakenndum
samræðum. í bókunum lesum
við vandlega hugsaðar skoð-
anir þeirra. Það eru til bækur
um næstum allt. Til fróðleiks,
skemmtunar, hvíldar o. s. frv.
Og bækurnar sem fólk les á
hverjum tíma eru oft spegill
lífsins.
Þannig farast honum orð.
Hann les um 150 bækur á
hverju ári, því fyrirtæki hans
gefru sjaldan út bók sem hann
hefur ekki lesið sjálfur.
Nú er Sir Stanley Unwin
farinn héðan og kominn aft-
ur inn í heim bókanna í orð-
anna fyllstu merkingu. Hann
ferðast víða um heim, hittir
bóksala og bókaútgefendur,
skrifar hjá sér athugasemdir
um allt sem viðkemur bókum
og útgáfu. Hann þarf ekki
annað en fletta upp í spjald-
skrá sinni til að vita um bóka-
búð á Nýja Sjálandi eða ís-
landi. Hann er sífellt að leita
að bókum til útgáfu.
— Til okkar berast ótelj-
andi handrit á ári, segir hann.
— En beztu bækurnar þarf
venjulega að finna.
— Hvers vegna komuð þér
til íslands núna?
— Mér var tilkynnt að ég
yrði sæmdur Stórriddara-
krossi Fálkaorðunnar. Mér
fannst það minnsta sem ég
gæti gert væri að taka við hon
um í eigin persónu. Ég veit
ekki hvers vegna ég á þennan
heiður skilið. Mér fannst ég
einungis hafa gert tvennt fyrir
Island. Ég hef kynnt fremsta
rithöfund ykkar fyrir hinum
enskumælandi heimi, og ég
hvatti á sínum tíma systurdótt
ur mína, frú Barböru Árna-
son listakonu, til íslandsferð-
ar. Hún hefur verið hér síð-
ar og gefið íslandi mörg ómet
anleg listaverk.
Njörður P. Njarðvik.
Fdlk
alltaf
| Sir Stanley Unwin er mjög
í stilltur maður í fasi. Þegar
7 hann situr, vottar hvergi fyr-
1 ir starfsorku hans nema í
i augunum. En þegar hann er á
gangi, er allt öðru máli að
gegna. Ég á fullt í fangi með
að fylgja honum eftir þar sem
við örkum um Þingvöll þver-
an og endilangan.
— Gangið þér alltaf svona
hratt? spyr ég.
— Nei, segir hann. — Áð-
ur fyrr gekk ég miklu hrað-
ar.
— Ég er heppinn að hitta
yður ekki fyrr, segi ég við
hinn 75 ára gamla, heimsfræga
enska bókaútgefanda.
— Hér áður fyrr gekk eng-
inn eins hratt og ég á götun-
um í London. Ég vildi aldrei
leyfa neinum að fara fram úr
mér á göngu. Einu sinni var
ég á gangi eftir Strand. Þá
heyrði ég fótatak fyrir aftan
mig. Ég greikkaði sporið en
fótatakið færðist alltaf nær og
nær. Ég greikkaði enn sporið.
En allt kom fyrir ekki. Ég
greikkaði enn sporið. En allt
kom fyrir ekki. Ég varð að
játa mig sigraðan. Þetta var
George Bernard Shaw.
— Ganga allir bókaútgef-
endur svona hratt?
— Ég veit það ekki. Ég
spila tennis. Þess vegna er ég
alltaf við góða heilsu.
Sir Stanley Unwin er mjög
óvenjulegur maður. Hann er
einn þeirra fáu manna sem
kunna verk sitt til hlítar. —
Hann lærði starfsgrein sína
1903 í Leipzig sem um þær
mundir var miðstöð allrar
bókaútgáfu. Því næst keypti
hann eignir gjaldþrota bóka-
forlags í London, stofnaði út-
gáfufyrirtækið George Allen
and Unwin og er nú einn mest
metni bókaútgefandi Bret-
lands. Hann hefur t. d. tvisvar
verið forseti alþjóðasambands
bókaútgefenda. í þjónustu
hans eru 74 manns og hann
hefur umboðsmenn um allan
heim. Forlag hans gefur út
um 150 bækur á ári.
— En það er ekki stærð út-
gáfufyrirtækisins sem skiptir
mestu máli, segir Sir Stanley.
— Fyrirtækið má ekki verða
of stórt^ því þá verður starfið
vélrænt. Bókaútgáfa verður
alltaf að vera persónuleg. Út-
gefandinn verður að hafa per
sónulegt samband við höfund-
ana. Sömuleiðis við bóksala
og aðra útgefendur.
Og hann hefur svo sannar-
lega ekki setið auðum hönd-
um hér á íslandi. Daginn sem
hann kom hitti hann 15 bók-
sala og all-marga útgefendur.
Nú stendur hann og horfir
hugsandi á búð Snorra hér á
Þingvelli. Og hann fer að tala
um Edduútgáfu sem hann gaf
út fyrir American Scandinavi-
an Foundation.
— Ég var hér fyrir 26 árum
segir hann svo. — Ásgeir Ás-
geirsson forseti, sem þá var
forsætisráðherra, kynnti mig
fyrir Halldóri K. Laxness og
af því leiddi að ég gaf út tvær
af bókum hans í enskri þýð-
ingu, Sölku Völku og Sjálf*
stætt fólk.
Hér má skjóta því inn að
forsetinn hefur verið persónu
lega kunnugur Sir Stanley í
um þrjátíu ár og þeir hafa
hitzt öðru hverju á þessu tíma
bili.
Á leiðinni til Þingvalla
heimsótti Sir Stanley Laxness
og þeir ræddu fjörlega í
rúma klukkustund um bæk-
ur, útgáfu og höfunda sem ég
les
bækur
ann ekki upp að telja. Svo
fóru þeir að tala um útgáfu í
Sovétríkjunum og sögðu báð-
ir frá óþægilegri reynslu sem
þeir höfðu orðið fyrir vegna
þess að Rússar taka hvaða bók
sem þeim sýnist án þess að
greiða nokkurn skapaðan hlut
fyrir útgáfurétt nema þeim
sjálfum þóknist SVo.
Sjálfur er Sir Stanley rithöf
undur jafnframt því sem hann
er útgefandi. Meðal annars íef
ur hann skrifað bók sem heit-
ir ,,The truth about publish-
ing“ sem er orðið víðfrægt rit
um bókaútgáfu og hefur ver-
ið þýtt á mörg tungumál. Sem
dæmi um frægð bókarinnar og
nytsemi má nefna að síðar um
daginn þegar Sir Stanley hitti
Ragnar í Smára, sagði Ragn-
ar að hann væri löngu farinn
á hausinn, ef hann hefði ekki
lesið bókina. Önnur bók Sir
Stanleys er „The truth about
a publisher“, sem er sjálfsævi
saga höfundar og jafnframt
merkilegt rit um brezka bóka-
útgáfu síðustu 50 árin.
Við erum komnir upp í Al-
mannagjá og förum að tala
um jarðskjálfta. Ékki líður þó
á löngu áður en talið berst aft
ur að bókum.
— Hvaða bók hefur verið
vinsælust af þeim bókum sem
þér hafið gefið út?
— Kon-Tiki, svarar Sir
Stanley. — Af henni seldust
meira en milljón eintök. Það
mun vera einsdæmi. Það sem
venjulega hefur háð metsölu-
bókum er að þær seljast
fljótt upp og eru svo ekki fá-
anlegar í nokkurn tíma. Ég
ákvað að Kon Tiki skyldi allt
af fást. Þetta var töluverð
áhætta en það borgaði sig.
-— Er bókaútgáfa ekki allt-
af töluverð áhætta?
— Jú, oft.
Bókaútgáfa í Englandi er
með nokkrum öðrum hætti en
hér. Bókasalar þar kaupa bæk
urnar en taka þær ekki fum-
boðssölu eins og hér tíðkast.
Þess vegna verða ensk forlög
að hafa sölumenn sem fara
milli bóksalanna og selja bæk
urnar. Þetta breytir viðhorf-
inu töluvert svo sem skiljan-
legt er.
— Og hvernig vegnar bók-
menntum Norðurlandanna í
Bretlandi?
— Ekki mjög vel. Bretum
finnst þær yfirleitt þungar af-
lestrar og of svartsýnar.
— Það hafa auðvitað orðið
miklar breytingar á útgáfu-
starfsemi síðan þér hófuð út-
gáfu?
— Já, mjög' miklar. Til
dæmis er ekki eins mikil eft-
irspurn eftir skáldsögum og
áður var. Þetta er skiljanlegt
því á þessum árum hefur kom
ið svo margt nýtt fram sem
fólk vill fá einhverja vitn-
eskju um. Að sjálfsögðu selj-
ast góð skáldrit enn vel en
ekki eins og áður.
— Og hvað haldið þér um
framtíð bókanna?
— Ég hef oft verið spurður
um þetta áður. Margir halda
að bækur deyi út. Við taki
sjónvarp eða eitthvað annað.
Til dæmis eins konar talandi
bækur. Ég hef ekki trú á því.
Ef við hlustum á útvarp þá
heyrum við hverja setningu
aðeins einu sinni og getum
ekki hugsað um hlutina í ró
og næði. Þar að auki verðum
við þá að vera á einhverjum
ákveðnum stað á ákveðinni
stundu. Fólk kaupir bækur af
því það getur lesið þær þeg-
ar það hefur tíma til og eins
Eufemía
Kvebja
Þ E G A R ég var barn, og sá
stjörnuhrap á himninum, fannst
mér það furðulegt, og spurði
hverju það sætti. — Var mér
svarað því til, að í þeim svifum
sem stjörnuhrap sæist væri ein-
hver að deyja. — Mér hvarflaði
þetta í hug, þegar ég heyrði and-
lát vinkonu minnar, frú Eufe-
miu Waage. Mér kom þessi kona
þannig fyrir, að hún væri stjarna,
sem skini skærast, þegar dimm-
ustu sorgarskýin svifu um hugar-
himin hennar. — Örugg vissa um
sameiningu við ástvinina hennar,
sem horfnir voru á undan henni,
voru geislar sem lýstu veg henn-
ar, og gjörðu henni kleift að
dreifa sorginni og sem fáguðu
svo huga hennar og hugsanir, að
við kynningu varð maður þess
var, að þarna var kona með
óvenjulega þroskaða sál. Hún
leitaði ekki að því lága, sem svo
oft er lagt á vogaskálarnar í sam-
skiptum fólksins, heldur leitaði
hún að kjarnanum. Hún elskaði
lífið og kunni að meta það, sem
gaf því giidi. Hún dáði fagrar
listir og bókmenntir og vann að
þýðingu leikrita, sem komið
hafa fram í útvarpi, eftir enska
höfunda og mun einnig hafa
þýtt fleira. Æviminningar sínar
skrifaði hún 1949.
Sjö ára gömul gekk hún í Góð-
templararegluna og var í henni
til dauðadags. Hún varð heiðurs-
félagi Stórscúku Islands 1950.
Frú Eufemia Waage var fædd
í Reykjavík 6. janúar 1881. For-
eldrar hennar voru Marta Pét-
ursdóttir og Indriði Einarsson,
hið þjóðkunna skáld og rithöf-
undur. Var Eufemia elzt af 8
Waage
systkinum. Við æskuheimilið
voru bundnar kærar minningar,
sem alla ævina yljuðu hug henn-
ar og sá irenningararfur, sem
hún fékk í íöðurhúsum bar hana
hærra en samtíðarkonur hennar
á þeim tímum, enda fylgdi henni
sá persónuleiki og glæsimennska,
sem fyllti rúm hennar, hvar sem
hún var.
1902 giftist hún Jens Waage,
bankastjóra. Eignuðust þau átta
börn. Af þeim er eitt á lífi,
Indriði, leikari við Þjóðleikhúsið,
giftur Elísabet Egilsson og eiga
þau 2 börn. — Mann sinn missti
Eufemia 1938 eftir langvarandi
veikindi.
Eftir að frú Eufemia varð sjö-
tug fór heilsu hennar mjög að
hnigna. Hún var svo heppin að
njóta heimilisöryggis til hinztu
stundar. Naut hún þar aðstoðar
frændkonu sinnar, frk. Eufemiu
Gísladóttur iprests að Stafholti),
sem annaðist hana með sérstakri
alúð og nærgætni. Hefur hún
verið á heimili hennar um 21 ár»
skeið.
Frú Eufemia andaðist á heim*
ili sínu 2. júní sl.
Guð blessi minningu hennar.
Viktoría Bjarnadóttif.
Loftpressa
Til sölu sem ný loftpressa með öllu tilheyrandi til
bílamálunar. — Suðutæki og slípiskífa. — Upplýs-
ingar í síma 19634 eða Þverholti 15 milli kl. 5—8.
Lokað
vegna sumarleyfa
18. júli til 8. ágúst.
GLER HF.