Morgunblaðið - 12.08.1960, Side 1
20 siður
V
47 árgangur
181. tbl. — Föstudagur 12. ágúst 1960
Prentsmiðia Morgunblaðsins
Islendingursakaðurum
líkamsárás í New York
En framburður gegn honum
viliandi — vitnin margsaga
í EINKASKEYTI til Mbi. frá og var Thor Thors sendiherra
fréttaritara þess í New
York er frá því sagt að tveir
leigubílstjórar þar í borg hafi
kært ungan íslending, Stein-
grím Jónsson, fyrir árás
eða jafnvel morðtilraun.
Réttarhöld hófust í málinu
í dag í Queens Felony Court
9357
ókvæðisorð
AÞENU, 6. ágúst. — Gríska
sím-amálastjórnin hefur lát-
ið frá sér fara safn 9357
ókvæðis- og skammaryrða,
sem á liðnu ári voru látin
glymja í eyrum símastúlkna
hér í Aþenu.
Islands viðstaddur.
Þar kom í Ijós að fram-
burður bílstjóranna var mjög
villandi, þeir margsaga um
tildrög átakanna. Hafa þeir
auk þess á sér illt orð og for-
sögu og hefur Steingrímur
lagt fram gagnkæru á þá.
Er lögfræðingur Steingríms
vongóður um málalok honum
í vil. Réttarhöldum hefur ver-
ið frestað fram yfir helgi og
verður þá tekin ákvörðun um
það hvort málið verður látið
niður falla. /
• SVÓÐUSÁRIÐ
Frásögn bílstjóranna, Ant-
hony Pellerito og Vincent San-
sone, var a þá leið að þeir hafi
hinn 18. júlí sl. ekið Steingrimi
í bifreið Pelleritos. Átti Sein-
grímur að hafa gert tiiraun til
að reka hníf í Sansone, en ekki
hitt hann og hnífurinn lemt í
Tshombe hleypir
Hammarskjöld inn
andliti Pelleritos. Hlaut bifreiða-
stjórinn sár mikið og þurfti tutt-
ugu og níu spor til að sauma það
saman að því er hermt er.
Málið var fyrst fyrir 2. águst
sl. en því frestað og Steingrími
sleppt gegn 3.000 dollara trygg-
ingu.
SIGRIÐUR Geirsdóttir feg
urðardrottning Islands tek-
ur nú þátt í alheimsfegurð-
arsamkeppninni á Langa-
sandi í Kaliforníu. Nú hafa
borizt þær fregnir, að Sig-
ríður hafi sigrað í tveimur
undankeppnum, í fyrradag
Sigríður Ceirsdóttir
sigursœl á Langasandi
Elisabethville og Leopoldville,
11. ágúst. (NTB —■ Reuter).
MOISE Tshombe, forsætis-
ráðherra Katanga, sagði við
blaðamenn í dag að ríkis-
stjórn hans hefði fengið full-
nægjandi tryggingar frá Sam-
einuðu þjóðunum á svo til
öllum þeim skilyrðum er sett
voru fyrir því að herlið S. þ.
fengi heimild til að halda inn
í landið. Vegna þeirra trygg-
inga mun 2—300 manna her-
lið Sameinuðu þjóðanna
halda inn í landið á laugar-
dag undir stjórn Dag Hamm-
arskjölds. Segir Tshombe að
þetta sé ekki hernámslið,
heldur aðeins lífvörður
Hammarskjölds.
DAGBUÖÐ BÖNNUÐ
Um svipað leyti og Tshombe
hélt blaðamannafund sinn, flutti
Lumumba forsætisráðherra
Kongó útvarpsávarp til þjóðar-
innar og nvatti til þjóðareining-
ar. Ef íbúarnir vildu aðeins hlýða
lögreglunni, mundi friður og
regla strax komast á í landinu,
sagði Lumumba.
Fyrr í dag hafði lögreglan lagt
til atlögu við nokkur af dagblöð-
um Leopolaville og handtekið
ritstjóra og útgefendur. Tvö dag-
blöð hafa verið bönnuð og belg-
isku fréttastofunnj lokað. Lög-
regluvörður er við dyr frétta-
stofunnar og fær enginn aðgang
að fjarriturum hennar.
LUMUMBA I MINNIHLUTA
Moise Tshombe sagði í dag að
nauðsynlegt hafi verið fyrir Sam.
þjóðirnar að senda herlið til
Kongó vegna öngþveitisástands í
landinu. En þegar friður kemst
á að nýju bíður mikið vandamál
úrlausnar, sagði hann. En það
væri að breyta stjómmálagrund-
velli landsins. Það væri misskiln-
ingur að álíta að Kongó væri ein
Framhald á bls. 19.
Nýr ísl, skautbúningur
vekur athygli
og í gær. Hafði hún orðið
efst er komið var fram í
strandfötum (playsuit) og
eins kusu ljósmyndarar
hana eftirlætisfyrirsætu
sína. Skv. bandarískum
fréttum hefur þetta tryggt
henni sæti í úrslitakeppn-
inni.
Af fréttum að vestan er
það Ijóst að fegurð hennar
og framkoma hefur vakið
verðuga athygli. En einnig
herma fréttirnar, að hinn
íslenzki búningur Sigríðar
hafi vakið feikna eftirtekt
og þyki bera af öllum þeim
þjóðbúningum sem þar
hafa sézt.
Mbl. fékk lánaða mynd
hjá foreldrum Sigríðar af
henni í skautbúningnum.
Kom í Ijós, að hann er tals-
vert breyttur frá þeim
skautbúningi, sem algeng-
astur hefur verið. í stað
þess að vera samfella eins
og venjulega, þá er þetta
kyrtill. Það er ennfremur
nýjung, að hann er í skær-
um djúpbláum lit.
Fréttamaður Mbl. átti í gær
stutt samtal við frú Birnu
Hjaltested, móður Sigríðar og
spurðist fyrir um, hvernig
þessi nýi búningur sem vek-
ur svo mikla athygli hefði orð
ið til.
— Ég held frú Birna, sagði
fréttamaðurinn, að með þess-
um búningi hafið þið hitt
naglann á höfuðið Þarna hef-
ur loksins verið saumaður
búningur sem samrýmir gaml
ar erfðavenjur og kröfur nú-
timans um léttan og klæði-
legan búning fyrir ungar
stúlkur. Hver hefur ákveðið
gerð búningsins á svo snilld-
arlegan hátt?
— Ja, það eru nú bara við
mæðgurnar, sem höfum á-
kveðið þetta, en í samráði við
nokkrar kunningjakonur okk
ar, sérstaklega við frú Dýr-
leifu Ármann sem líka saum-
aði kyrtilinn.
★
— Og hvað olli því að þið
breyttuð búningnum?
— M. a. það að skautbún-
ingur eins og hann tíðkast er
svo geysilega dýr ,kostar ekki
minna en tuttugu þúsund kr.
Konur eru líka tregar á að
lána skautbúninga sína og
Sigriður dóttir mín sagðist
Framh. á bls. 19
Landhelqin
Morqunblaðinu barst í gœr
svohljóðandi fréttaskeyti
frá London:
BREZKA utanríkisráðuneyt-
ið skýrði frá því í dag að und-
anfarið hafi farið fram at-
huganir á því hjá ríkisstjórn-
um Bretlands og íslands hvar
og hvenær samningaviðræður
geti hafizt um landhelgisdeiiu
landanna.
Einnig er til athugunar á
hvaða grundvelli viðræð-
urnar eigi að byggjast.
Ríkisstjórn íslands til-
kynnti á miðvikudagskvöld
að hún væri því samþykk að
ríkisstj. landanna tveggja
ræddu þau vandamál er risið
hafa eftir að Island tók í fyrra
þá einhliða ákvörðun að færa
fiskveiðitakmörk sín úr þrem
í tólf sjómílur.
Tilkynningu íslenzku ríkis-
stjórnarinnar var mjög fagn-
að af opinberum aðilum í
London.
Utanríkisráðherra í London
Brezka ríkisstjórnin hefur tek-
ið tekið pað fram að viðræður
þær sem nú eiga að fara fram,
muni ekki hafa áhrif á þá skoð-
un sem ríkisstjórnin hefur áður
látið í ljós, að brezkir togarar,
sem stunda veiðar á opnu hafi
út af ströndum Islands, brjóti
ekki alþjóðalög.
Utanríkisráðherra íslands, hr.
Guðmundur 1. Guðmundsson,
kom í dag til London og mun
gista þar í nótt, en halda síðan
flugleiðis til Israel á föstudags-
morgun. Ekki hafa verið gerðir
neinir samningar um fundahöld
Framh. á bls 2.
Fer fram
á traust
BRÚSSEL, 11. ágúst (Reuter). —
Gaston Eyskens, forsætisráðherra
Belgíu, sagði í dag að báðar deild
ir Belgíuþings yrðu kallaðar sam-
an til aukafundar n.k. miðviku-
dag, og mundi ríkissljórnin þá
fara fram á traustsyfirlýsingu í
sam,bandi við stefnu hennar varð
andi Kongó.
Áður hafði Eyskens átt tveggja
stunda fund með Baldvin konungi
og hafði orðrómur verið uppi um
það að ríkisstjórnin segði af sér.
Eyskens skýrði ennfremur frá
því að í næsta mánuði yrðu gerð-
ar breytingar á belgísku ríkis-
stjórninni og tækju þá ýmsir ,,sér
fræðingar" sæti í henni.