Morgunblaðið - 12.08.1960, Blaðsíða 18
18
MORGVNBZ1MP
F'östudagur 12. ágúst 196'f
Sepp Kerberger segir:
Islenzk knattspyrnulið skortir mest
samtakamátt
IHargir einstaklingar liðanna
virðast goð efni
EFTIK leikinn við KR átti
fréttamaður íþróttasíðunnar
stutt viðtal við þýzka lands-
liðsþjálfarann Herberger og
m. a. innti hann eftir áiiti
hans á íslenzkri knattspyrnu
og knattspyrnumönnum.
— Ég komst fyrst í kynni
við íslenzka knattspyrnu og
knattspyrnumenn, þegar ís-
lenzkt knattspyrnulið heim-
sótti Þýzkaland 1935. Mér
skilst að einmitt þá hafi Is-
lendingar fyrst eignast knatt-
spyrnulið, sem gat staðizt ein-
hvern samjöfnuð við erlend
lið. Ég álít að með þetta í
huga þá megi hiklaust telja
að íslenzkri knattspyrnu og
knattspyrnumönnum hafi far-
ið mikið fram síðan 1935. Frá
þeim þrem leikum sem ég hef
séð hér á íslandi, er það álit
mitt að yfirhöfuð eru leik-
mennirnir í góðri líkamlegri
æfingu og þol þeirra virðist
vera gott.
★ Tóku leikinn alvarlega
Þegar við lítum á frammistöðu
ísienzka liðsins verðum við að
hafa í huga að íslendingarnir
voru þarna að leika við mjög
sterkt landslið og Þjóðverjarnir
Gengu
vel um
EK fréttamaður íþróttasíðunn-
ar átti viðtalið við þýzka lands
liðsþjálfarann Herberger var
einn af starfsmönnum íþrótta-
vallarins í Laugardalnum þar
nærstaddur. Hann vatt sér að
fréttamanninum og bað um að
léta þess getið, að jslenzkir
knattspyrnumenn og aðrir
íþróttamenn hefðu getað lært
meira af Þjóðverjunum en það
að leika góða knattspyrnu. Um
gengni þeirra um búnings og
baðherbergi vallarins svo og
öll framkoma hefði verið slík
að til eftirbreytni hafi verið,
og betrj en nokkurs annars
iþróttaflokks sem keppt hafði
i Laugardalnum. Sannarlega
gætu íslenzkir knattspyrnu-
menn mikið lært af Þjóðverj-
unum hvað þetta snerti, enda
þetta gott dæmi um þann aga
sem ríkir meðal Þjóðverjanna
á hvaða sviði sem er, sagði
starfsmaður Laugardalsins að
lokum.
tóku landsleikinn eins alvarlega
og hvern annan landsleik við
stærri og þekktari þjóðir á knatt-
spyrnusviðinu heldur en íslend-
ingar hafa reynzt til þessa.
★ ' íslenzku liðin
Er fréttamaðurinn spurði
Herberger um helzta veikleika
íslenzku liðanna . . svaraði
hann. — Það er ekki nógu góð
samvinna milli íslenzku leik-
mannanna og samhug liðs-
ins og stemningu er mjög
ábótavant. Einstaklingar eru
margir góðir og ef betri sam-
vinna væri milii þeirra í leik,
þá er ekki nokkur vafi á því
að liðin geta sýnt mun meiri
knattspyrnu en þau náðu á
móti Þjóðverjunum að þessu
sinni. — Fleiri kappleikir við
erlend lið er stórt atriði til að
lagfæra þennan galla, því æf-
ingin undir slíka leiki ætti að
sameina leikmennina til enn
meiri dáða. — Um einstaka
leikmenn sagði Herberger að
framvarðarlínan í landsleikn-
um Sveinn Teitsson, Hörður
Felixsson og Gujón Jónsson
hafi verið beztu menn íslands
í landsleiknum og átt yfirleitt
góðán leik. Af þeim framherj-
um sem hann hafi séð hér í
leikjunum, sagði Herberger að
•Þórólfur Beck væri þeirra
lang beztur. Hann væri frábær
lega leikinn og skapaði mikla
hættu við mark mótherja
ýé Laugadalsvöllurinn
Er fréttamaðurinn spurði Her-
berger um álit hans á íþróttaleik
vanginum í Laugardalnum, svar-
aði hann: Knattspyrnuvöllurinn
í Laugardalnum stenzt allar
kröfur um alþjóðlegan knatt-
spyrnuvöll og er mjög góður leik
völlur. Og eitt sagði Herberger
að væri víst, að þótt einn og einn
af Þjóðverjunum hafi ekki sýnt
það í leikjunum, sem af þeim
hefði verið hægt að krefjast, þá
gæti enginn þeirra afsakað. sig
með því að bera völlinn fyrir
sig og kenna honum um getu-
leysi sitt.
ýk Einlæg vinátta
Að lokum gat þýzki landsliðs-
þjálfarinn þess, að hann hafi
ferðazt víða um heiminn með
þýzka landsliðinu, en hvergi hafi
hann og þýzku knattspyrnumenn
irnir orðið varir við jafn einlæga
vináttu og hér á íslandi. Hverja
mínútu dvalarinnar höfðu þeir
verið þess meðvitandi að þeir
dveldu meðal einlægra vina. Her-
bað Mbl. að taka það skýrt fram
að þetta væri ekki sagt fyrir
kurteisissakir, heldur væri þetta
sannleikur sem hver þátttakandi
fararinnar myndi vitna um þegar
heim kæmi og víðar á ferðum
þyzka landsliðsins.
Olympiu
völlur
Hér getur að líta aðalleikvang
Rómarleikanna þar sem frjáls
íþróttakeppnin fer fram auk
setningar og lokahátíðar.
Bikarkeppnin ;
Frnm b vnnn
KR b
BIKARKEPPNIN í knatspyrnu
hófst á Melaveilinum í gærkvöldi
með leik Fram-B og KR-B. —
Fram-B fór sigurvegari frá leikn-
um, skoruðu þeir 2 mörk gegn
einu marki KR. Leikurinn stóð
1:1 í hálfleik. Þessi úrslit leiksins
komu flestum mjög á óvart því
talið var að KR-B væri eitt af
líklegustu liðunum til að komast
í aðalkeppnina.
í leiknum í gær sýndu KR-
ingarnir mun meiri knattspyrnu.
Samleikur var oft mjög góður, en
er að marki Fram kom þrengdist
spiiið um of og framherjarnir
fengu ekki skorað. Leikur Fram
var mun fumkenndari, enda um
hvergi nærri eins samstillt lið að
ræða. Fyrsta markið skoraði
Fram er 21 mín. var af fyrri
hálfleik. Skoraði markið Hörður
Pétursson, hægri bakv., sem tók
á rás upp völlinn og sendi svif-
knött mikinn að markinu af 30
metra færi, er lenti í hægra horni
marksins.
KR náði að jafna á síðustu
mínútu t'yrri hálíleiksins. Markið
skoraði Reynir Þórðarson upp úr
hornspyrnu.
Aðeins 4 mín. voru af síðari
hálfleik er Fram fékk dæmda
vítaspyrnu á KR, sem hinn gam-
alkunni knattspyrnumaður Hauk-
ur Bjarnason skoraði úr. Haukur
lék útherja í liði Fram. Þótt KR
væri í sókn meirihluta hálfleiks-
ins tókst þeim ekki að skora
Víkingar hafa leikið
marga leiki í Danmörku
IÞROTTASÍÐUNNI hafa borizt
fréttir af ungu Víkingunum, sem
um þessar mundir dveljast í
íþróttaskólanum í Vejle í Dan-
mörku.
Vkingarnir, sem eru úr 3. og
2. aldursílokki handknattleiks-
deildar félagsins hafa leikið
nokkra handknattleiks og knatt-
spyrnukappleiki við jafnaldra
sína Danmerkurmeistarana sem
einnig dvelja á íþróttaskólanum
í sambandi við þjálfaranámskeið
í handknattleik, sem fer fram.
Fyrsta leik þeirra hefir verið
skýrt frá hér á síðunni, en annar
leikurinn fór svo að dönsku dreng
irnir sigruðu 17:14. Þriðja leik-
inn kepptu þeir í knattspyrnu og
unnu Vikingarnir 8:0. Fjórða Jeik
inn sem var handknattleikur
sigruðu svo Danirnir 20:8. —
Fimmta leikinn í ferðalaginu
kepptu Víkingarnir í Horsens og
fóru þar með sigur af hólmi 14:4.
Sjötta leik fararinnar keppti 2. fl.
Consolini sver
Olympíueiðinn
RÓMABORG, 11. ágúst. -p Það
verður ítalski kringlukastar-
inn heimsfrægi Adolfo Conso-
lini, sem sver Olympíueiðinn
fyrir hönd þátttakenda i Róm-
arleikjunum.
Consolini er elzti þátttak-
andi ítala í leikjunum nú. —
Hann varð Olympíumeistari i
London 1948 og varð annar á
leikjunum í Helsingfors. Um
skeið átti hann Evrópumet í
kringlukasti.
Víkings gegn liði frá Vejle og
varð sá leikur jafntefli 7:7. 1 bæn
um Ringsted kepptu Víkingarnir
tvo leiki. Þar tapaði 2. fl. 7:15,
en 3. fl. vann 11:4 Einnig kepptu
þeir í Ringsted með sameinuðu
liði 3 og 2. flokks og sigruðu Vík
ingarnir 11:7.
Víkingarnir kepptu einnig við
lið þjálfaranna í Velje, en þeir
eru allir 1. og 2. deildar leikmenn
og sigruðu þjálfararnir 16:6.
Víkingarnir eru nú komnir til
Kaupmannahafnar og dvelja í fé
lagsheimili B1903 og kepptu þeir
þar í knattspyrnu við jafnaldra
sína úr þessu vinafélagi Víkings
og sigruðu dönsku drengirmr
1—5.
T veir
syntu úr
Viðey
í GÆR syntu tveir menn Viðeyj-
arsund. Það voru lögregluþjónarn
ir Axel Kvaran og Björn Krist-
jánsson, en Björn er 43 ára.
I fylgd með þeim voru þeir
félagar Eyjólfur Jónsson sund-
kappi, sem verður að leggja allt
sund á hilluna í sumar vegna
meiðsla í öxl, og Pétur Eiríksson.
Þeir félagar tóku sundið iétt
einkum Axel.'Höfðu þeir samflot
að mestu og var Axel 2 klst. og
10 mín., en Björn 2 klst. og 11
mín. frá Viðey að Loftsbryggju.
Sjávarhiti var 12% stig og gott
veður. Axel synti til skiptis aliar
sundaðferðir nema flugsund.