Morgunblaðið - 12.08.1960, Qupperneq 3
Föstudagur 12. ágúst 1960
MORCUTSfíT 4 fíl Ð
3
<«
Tveir s’áliðar af Garm og tveir íslenzkir löeregluþjónar fylgdu Gunnari H. Olsen um borð í Sjannöy. Hann stökk wm borð og
þeir réttu farangurinn hans á eftir honum.
Vildi enga
myndatöku
NORSKA síldveiðiskipið
Sjannöy hélt frá Seyðisfirði sl.
þriðjudag með líkið af einum
skipverja um borð og annan,
Gunnar H. Olsen, undir eftir-
liti tveggja sjóliða af eftirlits-
skipinu Garm, grunaðan um
að hafa valdið dauða hins
látna skipsfélaga síns með
hnefahöggi. Hafði Olsen þá
verið í gæzluvarð'haldi síðan
þessi atburður gerðist föstu-
daginn 5. ágúst, og verið marg-
sinnis til yfirheyrslu hjá bæj-
arfógetanum á Seyðisfirði, Er-
lendi Björnssyni, eins og rakið
hefur verið í fréttum hér í
biaðinu.
Til viðbótar þeim fréttum
óskaði Sigurður Ólason hrl.,
réttargæzlumaður hins grun-
aða, að taka fram, að við þær
yfirheyrslur hafi ekkert kom-
ið fram sem sannaði að piltur-
inn hafi verið valdur að dauða
skipsfélaga síns, ef um dauða
af mannavöldum hafi þá verið
að ræða.
Myndir þær er birtast hér á
síðunni og myndin á baksíð-
unni voru teknar á Seyðisfirði,
daginn sem yfirheyrslum þar
lauk og Sjannöy hélt þaðan til
Álasunds, þar sem réttarhöld-
um verður haldið áfram. Þar
bíður nú unnusta Gunnars H.
Olsens, en þau ætluðu að
ganga í hjónaband er hann
kæmi af síldveiðum við ís-
land.
Það gekk erfiðlega að ná
mynd af þessum ólánsama
pilti, því hann bar ætíð hend-
ina fyrir andlitið, er ljósmynd-
ari nálgaðist. Og er niður á
bryggju kom hljóp hann snögg
lega í áttina að ljósmyndavél-
inni, setti ljósm.yndarann al-
veg út af laginu og hvarf um
borð.
Haldið af stað frá bæjarfógetaskrifstofunum. Sjóliðarnir, sem
eiga að fylgja hinum grunaða norska sjómanni til Noregs,
höfðu formlega tekið við honum. Islenzkir lögregluþjónar
fylgja þeim cm borð.
STAKSIEINAR
Tíminn gegn
Atlantshafsbandalaginu
Leiðarastúfur í Timanum í gær
hljóðar svo:
„í fréttaskeyti frá Reykjavík,
sem birtist í New York Times
í fyrradag, segir m.a. á þá leið,
að ríkisstjórn Ólafs Thors hafi
enn ekki treyst sér til að svara
tilboði Breta um „friðarsamn-
inga“ í landhelgisdeilunni. „Ráðu
naular" Ólafs Thors óttist, að það
geti haft slæm áhrif á tengslin
við Atlantshafsbandalagið, ef
deilan blossar upp að nýju, og
vonist til að hægt sé að finna leið
til samninga, án þess að það verði
talið undanhald.
Ef þessi frétt er rétt, lætur rík-
isstjórn íslands vissulega stjórn-
ast meira af annarlegum sjónar-
miðium en þjóðarhagsmunum. Ef
þeir eru látnir ráða, er vanda-
iaust að svara neitandj öllum til-
boðum um frávik frá 12 mílun-
um“.
Samkvæmt þessum ummælum
Tímans eru það ekkj þjóðarhags-
munir að reyna að finna leið til
að koma í veg fyrir að Atlants-
hafsbandalagið skaðist án þess að
um undanhald af íslands hálfu sé
að ræða. Með öðrum orðum ættu
það að vera þjóðarhagsmmnir ís-
lendinga að leitast við að skaða
það bandalag, sem þeir sjálfir eru
aðilar að og hafa hingað til leit-
azt við að styrkja.
Ógeðfelldasti
aróðurinn
í sama blaði segir í gær:
„Hér í blaðinu hefur aldrei ver
ið farið dult með það, að oliuinál
ið gæti verið til lærdóms fyrir
samvinnuhreyfinguna um það að
hafa ekki í þjónustu sinni menn,
sem eru aldir upp í jarðvegi gróða
hyggjunnar“.
Þetta er ekki í fyrsta skipti,
sem Framsóknarmenn ráðast ó-
drengilega að þeim forstjóra OIíu
félagsins, sem þeir á sínum tima
fólu mikinn trúnað. I'að er held-
ur ekki í fyrsta skipti, sem þeir
tala um að hann hafi verið „al-
inn upp í jarðvegi gróðahyggj-
unnar“. Tímamönnum nægir
þannig ekki að svívirða þennan
einstakling dag eftir dag, heldur
þurfa þeir líka að ráðast að fjöl-
skyldu hans og kenna uppeldi
hans um ógæfuna. Svo ósiðlegur
málflutningur hefur sem betur
fer sjaldan sést í íslenzku mál-
gagni.
Hœli vantar fyrir
vangefið fólk
S.V. efnir til
BIFREIÐAHAPPDRÆTTI Styrkt
arfélags vangeiinna stendur nú
yfir og er ráðgert að dráttur
fari fram 1. nóvember n.k. Fyrir-
komulag happdrættisins er
þannig, að happdrættismiðar eru
gefnir út á bifreiðanúmer á öllu
landinu, þannig að hver bifreiða-
eigandi á kost á að kaupa miða
á númer bifreiða sinna. Miðinn
kostar kr. 100,00 og eru vinningar
skattfrjálsir, en þeir eru: Opel
Kapitan sex manna bifreið að
verðmæti kr. 250 þús. og 9 auka-
vinningar að verðmæti kr. 70 þús.
Forgangsréttur bifreiðaeigenda
happdrœttis
til happdrættismiðakaupa rennur
út n.k. mánaðarmót. Miðana má
panta á skrifstofu Styrktarfélags-
ins, Skólavörðustíg 18 og á öllum
benzínafgreiðslum í Reykjavík og
Hafnarfirði og verða þá miðarnir
sendir heim.
★
Agóði happdrættisins rennur
til styrktarstarfsemi félagsins, en
eitt aðalverkefni þess og mest
knýjandi er, eins og stendur í
1. gr. félagslaga þess, „að komið
verði upp nægilegum og við-
unandi hælum fyrir vangefið
%
fóik, sem nauðsynlega þarf á
hælisvist að halda“.
Að tilhlutan Styrktarfélagsins
hefur Kópavogshæli fært að
nokkru út starfsemi sína með
nýrri viðbótarbyggingu. Ennfrem
ur er hafin bygging dagheimilis
fyrir vangefin börn í Reykjavík
og nágrenni og er sú bygging stað
sett í Sogamýri.
Þá hafa staðið yfir samningar
milli Syrktarfélagsins og Um-
dæmisstúkuunnar nr. 1 um fram-
tíðarstarfsemi barnaheimilisins
að Skálatúni í Mosfellssveit, en
þar hefir verið rekið heimili fyrir
vangefin börn um allmörg undan
farin ár og stendur til að nú á
þessu sumri verði hafin bygging
að nýju hæli þar.
★
Talið er, skv. spjaldskrá, sem
nú er unnið að, að a.m.k. 500—600
manns sé svo vangefið; að þeir
þurfi hælis með, en í þeim þrem
hælum, sem til eru í Jandinu, þ.e.
Kópavogshæli, Barnaheimilinu að
Skáiatúni og að Sólheimum, dvelj
ast nú um 150 vistmenn. Sést á
því, hversu þörfin er brýn að
ný eða nýjar hælisbyggingar risi
af grunni. Eini fasti tekjustofn
Styrktarfélagsins er 10-aura gjald
ið af hverri öl- og gosdrykkjar-
flösku, sem framleidd er í land-
inu. Er það von félagsmanna
Styrktarfélagsins, að menn láti
sitt ekki eftir liggja og kaupi
happdrættismiða Styrktarfélags-
ns, minnugir þess, að andvirði
hvers selds miða er framlag tii
þess að bæta hag hinna van-
gefnu og um leið að létta byrðar
þeirra aðstandenda ,sem hafa orð-
ið fyrir þeirri óhamingju að eign-
ast vangefin börn.
Melbourne, Ástralíu, 9. ágúst.
— Bandaríski calypso-söngvar-
inn Harry Belafonte, sem hingað
kom í dag, hefir orðið að aflýsa
fjórum fyrstu hljómleikum sín-
um, sem ráðgerðir voru hér — en
hann hefir sýkzt af inflúensu. —
Sex þúsund manns-höfðu i>antað
miða á hljómleika þessa.
Ljótt er, ef satt er
Tíminn tekur skyndilega upp á
því í gær að ráiðast að vinunum
og samlierjiunum við Þjóðviljann.
Segir í blaðinu á þessa leið:
„Ýmsir náitir aðstandendur
Þjóðviljans hafa t.d. ekkert ver-
ið feimnir við að stofna hlutafé-
lög í gróðaskyni í sambandi við
Austur-Evrópu viðskiptin og e.
t. v. ætti Þjóðviljinn ekki neitt
erfitt með að upplýsa, hvert sumt
af þessum gróða hefur runnið.
Víst er a. m. k. það að gróðinn
af þessum hlutafélöguim hefur
ekki runnið til uppbyggingar og
bættrar þjónustu á ýmsum svið-
um, eins og meginhlutinn af
gróða oliufélaganna, sem sam-
vinnuhreyfingin ræður yfir, hef-
ur óumdeilanlega gert.
Hlutafélög kommúnista, sem
stunda viðskipti við' Austur-Evr-
ópu, eru vissulcga glöggur vitnis-
burður þess að kommúnistkr fyrir
1-íta ekki gróða og hafna ekki
hlutafélagsforininu, þegar það
þykir væniegt til fjáröflunar“.
*