Morgunblaðið - 21.08.1960, Page 20

Morgunblaðið - 21.08.1960, Page 20
20 MORGUlSBLAÐtÐ Sunnudagur 21. ágúst 1960 STEPHEN LEACOCK: SKEMMTISIGLINGÍN Áður en mínúta var liðin voru [ al.lir farinir að hlaupa um og leita að nestisbögglunum sínum og rífa af sér brandarana, en sumir reyndu að hita sér kaffi við leifarnar af glóðinni í vél- inni. ——01 Ég þarf nú ekkert iangt mál til að segja frá því, sem síðar skeði. Líklega hefðu allir, sem þarna voru saman komnir orðið að slá sér til rólegheita þarna yfir nótt ina, þangað til hjálp kæmi að heiman, ef ekki nokkrir menn, sem höfðu farið fram í og rýndu út í myrkrið, hefðu sagt, að það gæti ekki verið meira en ein míla upp að Malaroddanum. Maður gæti næstum séð hann þarna til vinstri — „út af bakborðskinn- ungnum“, sögðu sumir, enda er það staðreynd, að þegar maður lendir í svona sjóslysum, lifir maður sig alveg inn í sjómennsku og sjómannamál. í*eir voru því fljótir að sveifla bátauglunum út fyrir borðstokk inn, og fírðu nú gamla björgunar bátnum ofan af efsta þilfari nið- ur í vatnið. Nokkrir menn stóðu úti við borðstokkinn með luktir í hönd- izm og lýstu hinum, sem voru að setja bátinn út, og ljósbjarminn féll á vatnið og sefið. En þegar þeir voru búnir að koma bátnum niður, sýndist hann svo lítill og veikbyggður, að ofan séður, að einhver öskraði: „Konur og börn fyrst!“ Enda var lítil meining í því, ef kænan tæki ekki einu sinni konurnar og börnin, að fara þá að fylla hana með stór- um og þungum karlmönnum? I>eir fylltu því bátinn mest- negnis með konum og börnum, og svo ýtti hann frá, og var þá 3VO hlaðinn, að hann flaut varla. í stafni sat stúdentinn, sem þjónaði í biskupakirkjunni, og hann æpti upp, að þau væru öll í forsjónarinnar hendi. En hann sat nú samt allur í hnút, reiðu búinn að stökkva út úr forsjónar hendinni við fyrsta tækifæri. (Irstutt framhaldssaga Báturinn skreið nú af stað og ekkert sást af honum nema lukt- in í stafninum, sem sást hossast á vatninu. Bráðum kom hann svo aftur og þá var sendur annar hópur, og loks voru þilförin orð- in áberandi manntóm, enda vildu flestir koma sér burt sem ailra fyrst. Það vaf víst um það leyti, sem þriðji bátsfarmurinn lagði frá, að Smith sló veðs við Mullins, uppá tuttugu og fimm dali, að hann skyldi verða kominn heim í Mari posa á undan hinum, sem í land fóru og þurftu að krækja fyrir vatnið. Enginn skildi almennilega hvað hann var að fara, en bráðlega sáu menn hr. Smith hverfa undir þiljur með hnall í annarri hendi og stóran böggul af tvisti í hinni. Og þetta hefði getað leitt til frekari heilabrota hjá mönnum, ef ekki í sama bili hefði heyrzt hróp frá björgunarbáti bæjarins — stóra Mackinawbátnum, þið munið — sem hafði þotið af stað frá bryggjunni heima, með fjór- tán fíleflda menn undir árum, jafnskjótt sem fyrsta neyðarijós ið sást. Það er víst alltaf eitthvað skáldlegt við björgun úr sjávar eða vatns-háska. Og víst er hugrekki björgunar mannsins hið eina sanna hug- rekki — sem stefnir að því að bjarga lífi en ekki eyða því. Og í marga mánuði á eftir sögðu þeir söguna af því, þegar björgunarbá:turinn brauzt út í Mariposa Belle. Ég býst við, að þegar þeir settu fram bátinn, þá hafi það verið í fyrsta sinn sem hann vöknaði síðan gamla Macdonaldstjórnin lagði borginni hann til, forðum daga. Að minnsta kosti fossaði vatn- ið inn í hann um hverja rifu. En ræðararnir létu það ekki á sig fá, meðan þeir varu að róa þessar tvær mílur út í skipið. Þegar þeir voru komnir hálfa leið, var báturinn orðínn þóftu- fullur, en þeir þræluðu honum áfram samt. Másandi og blásandi, eins og menn verða, þegar þeir hafa ekki snert ár í heilan manns aldur, héldu ræðararnir áfram björgunarstarfi sínu, og köstuðu bara barlestinni fyrir borð, og eins þungu korkbeltunum, sem hindruðu hreyfingar þeirra. En engum datt í hug að snúa við. Þeir voru sem sé nær skipinu en landi. „Takið á, strákar!" var hrópað til þeirra frá skipinu, og þeir tóku svei mér á. Þeir voru alveg að niðuri.'.tum komnir, þegar þeir komu á stað inn, en þeir sem um borð voru, köstuðu til þeirra köðlum og svo voru þeir dregnir um borð, einn og einn, samtímis því, sem björg unarbáturinn sökk undir fótum þeirra. Björgun! Já, svei mér ef þetta var ekki sú al-snöfurlegasta björgun, sem nokkurntíma hafði verið framin þama á vatninu, og þó viðar væri leitað. Það þýðir annars ekki neitt að fara að lýsa henni — svona nokk- uð verður maður að sjá með eig- in augum, til þess að geta skilið það. En mannskapurinn á björgun- arbátnum var nú annars ekki einn um það að geta sér orðstír. Bátur eftir bát og smákæna eftir smákænu, lagði út frá Mari posa, til þess að hjálpa. Og allir .komust um borð. Pupkin — þið vitið bankagjald kerinn með andlit eins og á öðru hrossi — sá, sem ekki fór neitt í ferðina — undir eins og hann vissi, að skipið var að beiðast hjálpar og að ungfrú Lawson var að skjóta flugeldum — þá þaut hann til og ofan í bát og greip eina ár — því hann hefði aldrei ráðið við tvær — og buslaði eins og vitlaus maður út á vatnið. Hann þaut þarna bara út í myrkr ið og skelin næstum að sökkva undir honum. En hann bjarg- aðist líka- Þeir sátf hann, næstum dauðan af þreytu, þar sem hann stefndi að skipinu, og voru þá ekki lengi að hala hann um borð. Heill á húfi! —o— Þeir hefðu svo sem vel getað haldið svona áfram alla nóttina að bjarga björgunarmönnum, hefði ekki svo viljað til, að þeg- ar tiundi farmurinn fór í land — þá gerir Mariposa Belle svo vel og lyftir sér upp af leðjubotn- inum og flýtur! Flýtur? Já, auðvitað flaut hún. Ef mað- ur tekur hundrað og fimmtíu manns af sokknu skipi, og ég tala nú ekki um, ef maður hefur snið- ugan mann eins og hr. Smith með hnall og tvist, og setur auk þess heifa hljómsveit til að þrælast við dælurnar — hvern skollann get- ur skipið þá gert annað en fljóta? Og ég tala nú ekki um, ef mað- ur hrúgar viði í glæðurnar, sem eftir eru undir katlinum, þang- að til allt fer að snarka og ioga, þá líður ekki á löngu áður en skrúfan fer í gang aftur og hvell- ur vællinn í flautunni bergmól- ar yfir alla borgina. Og nú er sem sagt Mariposa Belle að skríða áleiðis heirn, með fullum dampi og neistaflugið upp úr reykháfnum. En það er bara enginn Chriistie Johnson við stýrið uppi í brúnni. „Smith! Við viljum Smith!“ æpir lýðurinn. Og getur hann þá stýrt því í höfn? Hvernig geturðu spurt, maður? Spurðu mann, sem hefur láitið hvert skipið af öðru sökkva und- ir sér og stýrt smábát niður háv- aðann í Elgsánni, hvort hann ráði við' stýrið á svona dalli. Já, nú siglir hún svei mér áleiðis heim, eins og ekkert hafi í skorizt! Líttu bara á Ijósin og mann- fjöldann! Nú ætti ríkismanntalið að spreyta sig á að telja okkur. Heyrðu fólkið hlaupa fram og aftur um þilfarið, æpandi og hlæj andi. Nú heyrist ískrið í land- festunum við bryggjuna, og þarna er lúðrasveitin að skipa sér upp í hring á efra þilfarinu í sama bili og skipið lendir og" stjóm- andinn með taktstokkinn sinn . . . „einn, tveir, þrír, tilbúnir“: „Ó, Canada“. afllltvarpiö Sunnudagur 21. ágúst 8.30 Fjörleg músík í morgunsárið. 9.00 Fréttir. — 9.10 Vikan framundan. 9.25 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a) Sinfónía nr. 95 í C-dúr eftir Haydn. (Hljómsveit undir stjórn Andras Korodys leik- ur. — Hljóðritað á Haydn- hátíðatónleikum 1 Búdapest í sept. 1959). b) Tilbrigði um rókókó-stef fyrir knéfiðlu og hljómsveit eftir Tjaikovskíj (Paul Tortelier leikur með hljómsveitinni Fíl- harmoníu í Lundúnum; Her- bert Menges stjórnar.) c) j£legie, útsett fyrir knéfiðlu og hljómsveit eftir Fauré. — (Sömu flytjendur.) d) Svíta fyrir hljómsveit eftir Dohnányj, (Hljómsveitin Fil- harmonía leikur; Robert Irv- - ing stjórnar). 11.00 Messa í Laugarneskirkju (Prest- ur: Sr. Garðar Svavarsson. Org- anleikari: Kristinn Ingvarsson). 12.15 Hádegisútvarp. 14.00 Miðdegistónlikar. a) Þriðji þáttur óperunnar „Tosca" eftir Puccini (Maria Callas, Giuseppe di Stefano og hljómsveit Scalaópefunnar í Milanó flytja; Victor de Sa- bata stjórnar). b) ,,Kápan“ (II tabarro), ópera í einum þætti eftir Puccini (Tito Gobbi, Margaret Mas, Miriam Pirazzini, Giacinto Prandelli og fleiri flytja á- samt kór og hljómsv. Rómar- óperunnar; Vincenzo Beliini stj.). 15.30 Sunnudagslögin. 16.30 Veðurfregnir. — Færeysk guðs- þjónusta (Híjóðrituð í Þórshöfn). 17.00 Framhald sunnudagslaganna. 18.30 Barnatími (Skeggi Asbjarnarson kennari): a) Oskar Halldórsson cand. mag. les síðari hluta sögunnar „Trufl" eftir Olaf Jóh. Sig- urðsson. b) Flutt verður leikritið ,,Alf- hvammur" eftir Jónas Jónas- son undir stjóm höfundar. 19.25 Veðurfregnir. . . . . og ég er komin til að biðja yður að gera mér greiða. Það hefur enginn skipt sér neitt af Tómasi, en þér hafið verið honaun góður. Pabbi hans skiiur alls ekki löngun hans til að teikna og ég væri yður þakklát ef þér vilduð hvetja hann til þess. — Auðvitað, fni Ludlow. Ég skal gera allt sem ég get fyrir hann. Næsta dag. — Það er sannarlega fallega gert af þér Markús að útvega mér þessi málaratæki. — Það er ekkert Tómas. Nú getur þú málað meðan ég veiði, og við fáum að sjá hve mikiVI lietamaður þú ert. 19.30 Tóníeikar: Poldi Mildner leikur á píanó. a) „La Campanella" eftir Liszt. b) „Glettur" um Vínarvalsa eft- ir Strauss. 19.40 Tilkynningar 20.00 Fréttir. 20.20 Raddir ská?^«. i^jóð eftir Gest Guðfinnsson og smásaga eftir Jökul Jakobsson. — Flytjendur leikararnir Baldvin Halldórsson og Steindór Hjörleifsson. 21.00 Samleikur á knéfiðlu og píanó: Einar Vigfússon og Jón Nordal leika sónötu nr. 2 í D-dúr eftir Bach. 21.15 „Klippt og skorið" (Gunnar Eyj* ólfsson leikari sér um þáttinn). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05 Danslög, þar af kynnir Heiðar Astvaldsson danskennari lögin þrjá fyrstu stundarfjórðungana. 23.30 Dagskrárlok. Mánudagur 22. ágúst. 8.00—10.20 Morgunútvarp (Ðæn. —«• 8.15 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 10.10 Veðurfr.) 12.00 Hádegisútvarp. 12.55 Tónleikar: „Sumardans". 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. Fréttir kl. 15.00 og 16.00). 16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Lög úr kvikmyndum. 19.40 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Ardegislönd og tröllaskógar": Dagskrá á aldarafmæli sænska skáldsins Gustafs Frödings. w Sveinn Einarsson fil. kand. talar um Fröding, en leikararnir Krist in Anna Þórarinsdóttir og Lárus Pálsson lesa úr Ijóðum hans. 21.10 Organtórileikar: Helmut Walcha leikur verk eftir Bach. a) Fantasía og fúga í g-moll. b) Fantasía og fúga í c-moll. c) Tokkata og fúga í d-moll. 21.40 Um daginn og veginií (Dr. Gunn- laugur Þórðarson.) 19.30 Erlend þjóðlög. — 22.00 Fréttir, veðurfregnir og síldveiði- • skýrsla. 22.20 Búnaðarþáttur: Gísli Kristjáns- son ritstjóri ræðir um sit^ a£ hverju. 22.35 Kammertónleikar: Strengjakvartett nr. 3 í D-dúr op. 18 eftir Beethoven (Komitas- kvartettinn leikur). 23.00 Dagskrárlok. Þriðjudagur 23. ágúst. 8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn. — 8.15 Tónleikar -- 8.30 Fréttir — 8.40 Tónleikar — 10.10 Veðurfr.). 12.00 Hádegisútvarp. (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.55 ,,A ferð og flugi": Tónleikar kynntir af Jónasi Jónassyni. 15.00 Miðdegisútvarp. (Fréttir kl. 15.00 og 16.00). 16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Erlend þjóðlög. 19.40 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Olafur prófastur Olafs- son og skóli hans í Hjarðarholti (Þórður Kristleifsson mennta- skólakennari). 21.00 Samleikur á fiðlu og píanó: Dav- id Oistrakh og Lev Oborín leika sónötu op. 47 (Kreutzersónötuna eftir Beethoven. 21.30 Utvarpssagan: „Djákninn í Sand ey" eftir Martin A. Hansen; XVI (Séra Sveinn Víkingur þýðir og les). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Iþróttir (Sigurður Sigurðsson). 22.25 Lög unga fólksins (Kristrún Ey- mundsdóttir og Guðrún Svafars- dóttlr). 23.20 Dagskrárlok. Framköllun Kopering Fljót afgreiðsla. Fótófix Vesturveri. Smurt brouö Suittur coctailsnittur Canape Seljum smurt brauð fyrir stærri og minni veizlur. — Sendum heim. RAUÐA M í L L A N Laugavegi 22. — Sími 13628.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.