Morgunblaðið - 31.08.1960, Blaðsíða 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 31. ágúst 196Q
Þessi mynd er tekin austur við Brúará, á þeim stað, sem áin verður brúuð næsta sumar — brúin,
sem tengir Laugardalinn og Biskupstungur. (Ljósm. Mbl.: vig.)
Vegur milli Þingvalla og
Laugarvatns
og riý brú á Brúará næsta ár
ÞEGAR hægt verður að aka aust
ur að Gullfossi og Geysi um
Þingvöll og Laugarvatn, opnast
ein skemmtilegasta ferðamanna-
leið sem um getur hér um sunn-
Kennara-
skorturinn
FRÁ stjórn Sambands íslenzkra
barnakennara hefur blaðinu bor-
izt athugasemd út af stuttu sam-
tali er Mbl. átti fyrir nokkru við
fræðslumálastjóra vegna hins al-
varlega kennaraskorts í barna-
skólum landsins.
Segir í athugasemdinni að
kennaraskorturinn stafi fyrst og
fremst af því „að kennslustarfið
er svo illa launað, að stór hluti
þeirra sem kennarapróf taka ár-
lega, kýs fremur að hverfa að
öðrum betur launuðum störfum".
Telur stjórn sambandsins „að til
þess að koma í veg fyrir kennara
skortinn þarf fyrst og fremst að
bæta launakjör kennara, svo að
þeir geti óskiptir helgað sig
kennslustarfinu“.
— Belgir
Frh. af bls. 1
Lokafundur ráðstefnunnar
Á morgun er ráðgert, að Ijúki
ráðstefnu Afríkuríkjanna, sem
staðið hefur yfir í Leopoldville
undanfarna daga. Er þess jafnvel
vænzt að Lumumba komi þangað
frá Stanleyville til að sitja loka-
fund ráðstefnunnar.
STNDIÐ 200 METRANA
anvert landið. Og nú er skriður
kominn á þessar framkvæmdir.
Austur við Efstadal í Laugar-
dal, og þaðan niður að Brúará,
er búið að gera undirstöður að
nýjum vegi, — vegi sem mynd-
ar hlekk í þessari fyrirhuguðu
vegakeðju. Og nú er verið að
bera ofan í þennan veg, með það
fyrir augum, að hægt verði þeg-
ar næsta sumar að hefja smíði
nýrrar brúar yfir hina straum-
þungu Brúará.
Pálmi bóndi Pálsson á Hjálms
stöðum í Laugardal, skýrði þetta
stuttlega fyrir blaðamönnum
Mbl., er þeir voru á ferð austur
í Laugardal í fyrradag. — Og í
gær staðfesti Sigurður vegamála
stjóri Jóhannsson, þessa frásögn
Pálma.
Kvað Sigurður ákveðið, að veg
urinn, sem lagður verður milli
Byggakur sleginn
SKRIÐUKLAUSTRI, 30. ágúst:--
1 dag er verið að slá byggakur
á Víðivöilum Ytri.
Á si. vori gekkst Búnaðarsam-
band Austurlands fy.ur því að
sáð var korni í akurlendi á nokkr
um stöðum á sambandssvæðinu.
í þennan byggakur að Víði-
völlum Ytri, var sáð 23. apríl sl.
Vorið var hagstætt og var byggið
fullskriðið 3. júlí. Er það hálfum
mánuði fyrr en í meðalári. Bygg-
ið er nú ofurlítið misjafnt þrosk-
að.
Veðráttan í júlí og ágúst hefur
ekki verið hagstæð fyrir korn,
nema nokkrir síðustu dagarnir,
sem voru ágætir. — J.P.
Laugardals og Þingvalla, skuli
liggja upp frá Miðfelli í Þing-
vallasveit, um Laugardalsvelli,
norðan Lyngdalsheiðar, og niður
í Laugardal. Þegar þessi vegur
er kominn á, styttist leiðin til
Laugarvatns um hvorki meira né
minna en um 15 km.
Hin fyrirhugaða brú á Brúará
hjá Efstadal í Laugardal, verður
um 30 metra löng. í haust verður
vegarlagningu lokið niður að
væntanlegu brúarstæði, beggja
vegna Brúarár. Og þegar brúar-
smíðinni verður lokið, verður
hægt að aka allt austur að Geysi
í Haukadal.
Síðan verður lagður vegur frá
Geysi að Gullfossi — nærri því
beint af augum til austurs — og
þá ný brú smíðuð á Tungufljót.
Slæmt síldarsumar -
en gott heyskapar
DALVIK, 30. ág. — Á aðra viku
er liðið sáðan síðustu bátarnir
kornu af síld, eftir léiega og
endasleppa vertíð. Mun láta
nærri að meðalafli á bát sé helm-
ingi minni en í fyrra, þó allir
hafi fiskað fyrir tryggingu og
sumir vel það. Enn mun óráðið
hvort bátarnir farj veiðar í haust,
en telja má liklegt að tveir hinir
stærri fari á togveiðar, en eitt-
hvað af hinum á ýsunetaveiðar.
Eins og að líkum lætur hefur
verið lítið um atvinnu í ágúst-
mánuði, sem komið hefur harð-
ast niður á þeim sem bundið
höfðu atvinnu sína við söltunar-
stöðvamar. Heildarsöltun er að-
eins um einn fjórði af því magni
sem saltað var í fyrrasumar. Þeg-
ar kom fram í ágúst og sýnt þótti
að hverju stefndi með síldveið-
arnar, fóm margir að stunda línu
veiðar á smiábátum, og hefur ver-
ið dágóður reitingur fram að
þessu. Er það einkum ýsa sem
veiðzt hefur og fer aflinn til
vinnslu í frystihús KEA.
Þar sem sumarislátrun stend-ur
nú fyrir dyrum, getur frystihús-
ið ekki tekið á móti fiski eftir-
leiðis. Gera má þó ráð fyrir að
nóg verði að starfa fram etftir
haustinu fyrir landverkamenn,
þar sem miklar' hafnarfram-
kvæmdir standa fyrir dyrum.
Aðeins einn bátur hefur stund
að hér handfæraveiðar i sumar
og aflað ágætlega.
Gott heyskaparsumar
Að því er landbúnað snertir
hefur árað betur. Að vísu kom
óþurrkakafli frá 20. júlí til 15.
ágúst, er setti mjög svip á lífið í
Danir unnu Pólland
en Pólverjarnir átfu leikinn
WASHINGTON, 25. ágúst. —
Bandaríkjastjórn hefur enn einu
sinni krafizt þess, að sendiráðs-
menn hennar í Moskvu fái að
ræða við U-2 flugmannir.n
Francis Powers, en slíkum beiðn
um hefir hingað til verið neit-
að.
7 undir Ólympíumeti
Undanrásirnar í 400 metra
skriðsundi karla sem fóru fram í
gær, verða mönnum mjög eftir-
minnilegar og lofa harðvítugri
keppni í úrslitunum, sem
fram fara í dag. Allir fyrstu
menn í riðlunum sex syntu undir
gamla Olympíumetinu 4:27,3
mín., og auk þess sjöundi maður-
inn, sem varð annar í einum af
riðlunum.
Beztum tíma í þessu geysi-
spennandi sundi náði Banda-
ríkjamaðurinn Somers, sem vannog fyrr segir.
sjötta og síðasta riðil undan-
keppninnar á 4:19,2 mín. — Næst
beztum tíma náði Yamanaka,
Japan, 4:21,0 mín. — en hann
varð fyrstur í 1. riðlinum.
Annan riðilinn vann Jon Kon-
rads, Ástralíu á 4:24,3 mín. Þriðja
riðilinn Black, Englandi 4.21,9
mín., fjórða, Rose, Ástralíu á
4.21.5 mín., fimmta vann Suður-
Afríkubúi á 4.25.9 og sjötta vann
Bandaríkjamaðurinn Somers eins
Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ léku
Danir við Pólverja í undan-
keppni Olympíuleikanna í knatt-
w
spyrnu og sigruðu Danir með
2:1, eftir 1:0 í hálfleik.
Leikur þessi var þó svipaður
leiknum, er Danir unnu Argent-
ínu. Danir áttu í vök að verjast,
en góð vörn og frábær frammi-
staða markmannsins, Henry
From, hindraði sigur Pólverja.
• Harka í Harald Nielsen
Fyrsta mark leiksins skoraði
hinn framúrskarandi miðherji
danska landliðsins, Harald Niel-
sen er 14 mín. voru af leik. Har-
eld fékk sendingu frá John Dani-
elson og lék eftir það á hliðar-
vörð og bakvörð pólska landsliðs
ins og sendi síðan þrumuskot á
markið, sem lenti í annari hliðar-
stönginni. Knötturinn hrökk aft
ur út án þess að markmaðurinn
gæti náð honum og aftur skaut
Harald á markið. Pólski mark-
maðurinn náði til knattarins, en
skotið var svo fast að hann hélt
honum ekki.
• Pólland jafnar 1:1.
Pólverjarnir jöfnuðu er 13 min.
voru af síðari hálfleik. Hægri
útherji Póllands brauzt í gegn og
skoraði með föstu jarðarskoti,
sem lenti í fæti From og síðan
inn.
• Sigurmarkið
Þegar 4 mínútur voru eftir af
leiknum var dæmd aukaspyrna
á Pólland. Spyrnan var tekin af
John Danielsson frá vinstri jaðri
vallarins. Sendi hann langa send-
ingu yfir á hægri kant til Poul
Petersen, sem skoraði viðstöðu-
laust — óverjandi.
• Danir heppnir
Það er álit allra fréttaritara, að
Danir hafi verið heppnir að fara
með sigur frá þessum leik. Telja
þeir að vörn Dananna sé ein-
göngu að þakka hin hagstæðu úr-
slit leiksins. Bezti maður danska
liðsins var Henry From, mark- j
maður.
sveitinni og torveldaði mjög hey-
öflun bænda, einkum þeirra er
ekki höfðu náð inn fyrra slætti,
er ótíðin hófst. Flestir munu nú
vera búnir að fá mikil hey með
góðri verkun og á einum bæ,
Sökku, var lokið heyskap bæði á
túnum og engjum hinn 25. ágúst,
enda hefur verið ágætis tíð frá
því um miðjan ágúst. Mun það
einsdæmi hér í sveit að heyskap
sé lokið um höfuðdag, eins og
nú hefur orðið. Horfur eru á að
kartöfluuppskera verði mikil. —
Berjaspretta er óvenju góð, og
hafa margir notað sér það, bæði
innansveitar- og utansveitar-
menn. — S.
FRJÁLSÍÞRÓTTAKEPPNI
Olympíuleikanna hefst í dag
og verður keppt í eftirtöldum
greinum:
• FYRIR HÁDEGI:
Kúluvarp karla (Byrjunar-
keppni. Lágmark 16.75 m).
Langstökk kvenna (Byrjun-
arkeppni. Lágmark 5.80 m).
100 m hlaup karla (Undan-
rásir).
80 m grindahlaup kvenna
(Undanrásir).
• EFTIR HÁDEGI
400 m grindahlaup karla.
(Undanrásir).
Langstökk kvenna. (Úrslit),
100 m hlaup karla. (Milli-
riðlar).
800 m hlaup karla. (Byrjun-.
arkeppni).
Kúluvarp karla (Úrslit).
80 m grindahlaup kvenna.
(Milliriðlar).
5000 m hlaup. (Byrjunar-
riðlar).
1 NA /5 hnútaA ¥ Snjókoma 1 { y SV 50 hnútoA » ÚÍi *** \ [ a Skúrít I III Þrumur \ pgs| Kuldoskil | y** Hitaski/ | Hi HotS
Háþrýstisvæði hefur mynd-
azt á nýjan leik yfir NA-
Grænlandi. Hins vegar er víð-
áttumikið lægðarsvæði yfir
foafinu fyrir suðvestan ísland
og suður af Grænlandi. Er
hlýtt í veðri á Suður-Græn-
landi og stórrigning á austur-
ströndinni frá Kristjanssund
norður undir Angmasalik. —
var 11 st. í Osló um hádegið. )
Þá var 16 st. hiti í Kaup-
mannahöfn, 13 í Reykjavík og
26 í New York.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi:
SV-mið og Faxatflóamið:
Austan kaldi og síðar stinn-
ingskaldi, úrkomiulítið en skýj
að.
SV-land til Norðurlands,
Breiðafj.mið til Norðurmiða:
Lægðin þokast austur eftir og Austan gola og síðar kaldi,
mun valda vaxandi A-átt hér skýjað.
sunnan lands. Yfir suður- NA-land til SA-lands, NA-
Svíþjóð er lægð, sem veldur mið til SA-miða: SA-kaldi,
N-átt og fremur köldu veðri þykkit lotft og suims staðar Mt-
í Noregi og á Norðursjó. Hiti ilsháttar súld.